Dagur - 12.03.1996, Blaðsíða 11
ENSKA KNATTSPVRNAN
Þriðjudagur 12. mars 1996 - DAGUR - 11
SÆVAR HREIÐARSSON
Oryggid á oddinn
Tveir leikir fóru fram í 6. umferð
ensku bikarkeppninnar um helg-
ina auk þess sem einn endurtekn-
ingarleikur var leikinn í 5. um-
ferð. Öllum leikjunum lauk með
jafntefli enda spiluðu liðin af var-
kárni og engin áhætta var tekin. í
5. umferð gerðu Nottingham For-
est og Tottenham 1:1 jafntefli en
Forest sigraði 3:1 í vítaspyrnu-
keppni. f 6. umferð skildu Chels-
ea og Wimbledon jöfn 2:2 og
Leeds og Liverpool gerðu marka-
laust jafntefli. í gærkvöld léku
síðan Manchester United og
Southampton en úrslit voru ekki
ráðin þegar blaðið fór í prentun.
Dregið hefur verið um hvaða lið
mætast í undanúrslitum keppn-
innar. Nottingham Forest eða As-
ton Villa leikur gegn Leeds eða
Liverpool og Chelsea eða Wim-
bledon gegn Manchester United
eða Southampton. Leikimir í
undanúrslitunum verða laugar-
daginn 31. mars.
Leeds og Liverpool mættust á
Elland Road á sunnudag og þrátt
fyrir fyrirheit um skemmtilegan
leik gerðist mjög lítið áhugavert -
mikið um daður en ekkert kossa-
flens. Leeds breytti leikaðferð sinni
og spilaði með fimm manna vöm,
líkt og Liverpool hefur notað í vet-
Hart barist í leik Leeds og Liverpool. Phil Babb og John Scales, varnarmenn
Liverpool, berjast hér um boltann í loftinu en Svíinn Tomas Brolin horfir
undrandi á.
ur með góðum árangri. Gestirnir
áttu ekkert svar og leikurinn var
fyrir vikið ekki mikið fyrir augað.
Örfá færi litu dagsins ljós og það
besta fékk Nigel Worthington fyrir
Leeds en Phil Babb náði að bjarga
á síðustu stundu. Robbie Fowler og
Stan Collymore, sem saman hafa
skorað 26 mörk í undanfömum 16
leikjum, voru slakir og lítið ógn-
andi. Fjör færðist í leikinn á loka-
kaflanum og Leeds var nálægt því
að tryggja sér sigurinn en tókst
ekki. Liðin mætast að nýju á Anfi-
eld Road þann 20. mars.
Sjaldan hefur leikur lofað eins
góðu en skilað jafn lítilli ánægju
fyrir áhorfendur og blaðamenn
heimtuðu skýringar. Howard Wilk-
inson, stjóri Leeds, sætti mikilli
gagnrýni á blaðamannafundi eftir
leikinn fyrir að leika vamarleik á
heimavelli. Eg sagði við leikmenn
mína í hálfleik að þeir ættu að leika
skemmtilegri fótbolta. Farið út á
völlinn og gefið andstæðingunum
tvö mörk. Síðan eiga tveir að
leggjast á völlinn og láta Liverpool
skora þrjú mörk og við getum farið
brosandi heim, sagði Wilkinson
háðuglega við blaðamenn. Við spil-
uðum við Liverpool í janúar þar
sem að Gary Kelly var rekinn útaf
og við töpuðum 0:5 og þá sögðu
allir að við gætum ekkert og spiluð-
um illa. í dag fengum við engin
mörk á okkur og enn er fólk sem
segir að við getum ekkert. Eg er
ánægður með hversu agað við leik-
um og vörðumst vel, sagði Wilkin-
son.
Wimbledon gefst aldrei upp og
liðið sannaði það enn einu sinni um
helgina. Robbie Earle kom Wim-
bledon yfir gegn Chelsea í síðari
hálfleik en Mark Hughes jafnaði
metin. Ruud Gullit fékk aðstoð
vamarmanns til að koma Chelsea
yfir níu mínútum fyrir leikslok og
heimamenn héldu að sigurinn væri
í höfn. En strax í næstu sókn jafn-
aði Dean Holdsworth fyrir Wim-
bledon með góðum skalla eftir sof-
andahátt vamarmanna Chelsea.
Markvörðurinn Mark Crossley
var hetja Nottingham Forest þegar
liðið sigraði Tottenham í víta-
spymukeppni á White Hart Lane.
Crossley varði þrjú víti og tryggði
Forest sætið í fjórðungsúrslitunum.
Bryan Roy hafði komið Forest yfir
snemma leiks en Teddy Shering-
ham, fyrrum leikmaður Forest,
jafnaði fyrir Spurs beint úr auka-
spyrnu. Crossley fékk skammir frá
Dennis Wise og félagar hans í Chelsea náðu aðeins jafntefli á heimavelli
gegn Wimbledon. Hér fær Wise að finna fyrir tökkunum frá Dean Holds-
worth, sem skoraði jöfnunarmark Wimbledon.
stjóra sínum, Frank Clark, fyrir
ranga staðsetningu en hann átti eftir
að bæta það upp. Crossley varði
víti frá Clive Wilson, Rony Rosent-
hal og lokavítið frá Teddy Shering-
ham en Ian Walker, markvörður
Spurs, varði einungis víti Hollend-
ingsins Bryan Roy. Stuart Pearce,
Ian Woan og Steve Chettle skoruðu
út vítum Forest en Ruel Fox var
einn um að nýta vítaspymu fyrir
Spurs. Þetta er bara spurningin um
að giska rétt, sagði Crossley í leiks-
lok.
Þrír leikir fóru fram í úrvals-
deildinni. Aston Villa lagði QPR
og West Ham átti ekki í vandræð-
um með Middlesbrough en Coven-
try virðist vera að bjarga sér frá
falli og náði jafntefli á síðustu
stundu gegn Everton.
Savo Milosevic hefur fundið
leiðina í markið og skoraði þriðja
mark sitt í tveimur leikjum gegn
QPR. Daniel Dicho jafnaði fyrir
QPR og fékk síðan gullið færi til að
bæta við marki en skallaði framhjá.
Kevin Gallen fór betur með sitt
færi og kom gestunum yfir en Villa
var ekki á því að tapa stigum á
heimavelli. Dwight York jafnaði og
kom liðinu yfir á ný með tveimur
mörkum og til að kóróna allt saman
skoraði Steve Yates sjálfsmark
undir lokin. Lokastaðan 4:2 fyrir
Villa.
Villa varð fyrir áfalli í leiknum
þegar miðvörðurinn Gareth South-
gate haltraði útaf meiddur á ökkla
og líklega verður hann ekki með
liðinu þegar það mætir Forest í
fjórðungsúrslitum FA bikarsins á
miðvikudag.
Gamla brýnið Gordon Strachan
var maðurinn á bak við glæsilega
endurkomu Coventry gegn Ever-
ton. Duncan Ferguson hafði komið
Everton í 2:0 um miðjan fyrri hálf-
leik en miðvörðurinn Liam Daish
náði að minnka muninn með skalla
fyrir hlé. Noel Whelan, leikmaður
Coventry, fór meiddur útaf í fyrri
FA bikar-
keppnin
6. umferð
Leeds-Liverpool 0:0
Chelsea-Wimbledon 2:2
0:1 Robbie Earle (54.)
1:1 Mark Hughes (70.)
2:1 Ruud Gullit (81.)
2:2 Dean Holdsworth (82.)
5. umferð
Tottenham-N. Forest 1:1
(Forest sigraði 3:1 í vítakeppni)
0:1 Bryan Roy ( 9.)
1:1 Teddy Sheringham (33.)
Úrvalsdeild:
Úrslit
Aston Villa-QPR 4:2
l:0Savo Milosevic (18.)
1:1 Daniel Dichio (50.)
1:2 Kevin Gallen (59.)
2:2 Dwight Yorke (65.)
3:2 Dwight Yorke (80.)
4:2 Sjálfsmark Yates (82.)
Everton-Coventry 2:2
LODuncan Ferguson (17.)
2:0 Duncan Ferguson (25.)
2:1 Liam Daish (38.)
2:2 Paul Williams (85.)
West Ham-Middlesbrough 2:0
1:0 Iain Dowie ( L)
2:0 Julian Dicks ( 59,/víti)
Staðan
Newcastle 28 19 4 5 52:26 61
Man. United 29 18 6 5 56:29 60
Liverpool 28 16 7 5 56:24 55
Aston Villa 3016 7 7 46:28 55
Arsenal 2913 9 7 39:27 48
Tottenham 28 13 9 6 35:25 48
Everton 3013 8 9 46:32 47
Chelsea 2911 10 8 35:31 43
N.Forest 2811 10 7 38:39 43
Blackburn 2912 61143:3442
West Ham 3012 612 35:39 42
Leeds 2711 51133:39 38
Middlesbr. 30 9 7 14 28:4134
Sheff.Wed. 29 7 814 39:4929
Coventry 29 5 12 1237:53 27
Wimbledon 28 6 814 40:56 26
Man.City 29 6 815 21:4326
Southampton 27 5 1012 27:40 25
QPR 30 6 4 2026:48 22
Bolton 29 5 4 2029:5819
DÉIl
■ Ian Wright hefur farið fram á að
verða seldur frá Arsenal vegna ósætt-
is við Bruce Ioch, framkvæmdastjóra.
Wright á 4 ár eftir af samningi sfnum
við Arsenal en hann segir þetta hafa
verið óumflýjanlegt. Eg hef verið
óánægður í langan tíma. Það hafa
ákveðnir hlutir gerst í vetur sem særa
mig mjög, segir Wright. Chelsea þyk-
ir líklegast til að næla í kappann en
Arsenal fer sennilcga fram á að fá um
2 milljónir punda fyrir Wright, sem
er orðinn 32 ára. West Ham hefur
einnig mikinn áhuga en sættir sig
sennilega ekki við hátt kaupverð og
launakröfur kappans.
■ Manchester City hefur bætt í út-
lendingahersveit sfna. Á föstudag
gerði City samning við svissneska
tengiliðinn Guiseppe Mazzarelli, sem
leikið hefur með FC Zuricli. Hann er
22 ára og hefur leikið með U-21 árs
landsliði Sviss. Samið hefur verið um
kaupverð en það ekki geftð upp. Til
að byrja með verður Mazzarelli í láni
til City út tímabilið.
hálfleik eftir samstuð við Neville
Southall. Sauma þurfti sex spor í
höfuð Whelan. Strachan var síðan
driffjöðurin í leik Coventry á loka-
kaflanum og hóf sóknina sem skil-
aði jöfnunarmarkinu, flmm mínút-
um fyrir leikslok.
West Ham komst yfir eftir að-
eins 67 sekúndur gegn Middlesbro-
ugh eftir hrikaleg rnistök Gary
Walsh, markvarðar Boro. Tony
Cottee náði af honum boltanum og
Iain Dowie renndi boltanum í autt
markið. Julian Dicks skoraði síðara
tnark West Ham úr vítaspymu eftir
að boltinn hafði skoppað í hönd
Neil Cox, varnamtanns Boro. Gest-
irnir reyndu að lífga upp á leik sinn
með því að senda Brasilíumennina
Juninho og Branco inn á en það
stoðaði lítið.
1. deild:
Urslit
Barnsley-Ipswich 3:3
1:0 Neil Redfearn (24./víti)
2:0 Andy Liddell (32.)
3:0 Neil Redfearn (47.)
3:1 lan Marshall (85.)
3:2 lan Marshall (88.)
3:3 Simon Milton (89.)
Charlton-Millwall 2:0
1:0 Lee Bowyer ( 5.)
2:0 Carl Leaburn (89.)
C. Palace-WBA 1:0
1:0 Dougie Freedman (30.)
Huddersfleld-Luton 1:0
1:0 Edwards (75.)
Leicestcr-Grimsby 2:1
1:0 Heskey (44.)
1:1 Steve Livingstone (84.)
2:1 Heskey (86.)
Norwich-Portsmouth 1:1
1:0 Mike Milligan (13.)
LlPauI Hall (38.)
Port Vale-Southend 2:1
1:0 Jon McCarthv (10.)
1:1 Joeren Boere (33.)
2:1 LeeGlover (54.)
Sheff. Utd.-Stoke 0:0
Sunderland-Derby 3:0
1:0 Craig Russell ( 8.)
2:0 Steve Agnew (32.)
3:0 Craig Russell (67.)
Tranmere-Birmingham 2:2
0:1 Andy Legg (39.)
1:1 John Aldridge (40.)
1:2 Jonathan Hunt (62.)
2:2 Rogers (70.)
Watford-Oldham 2:1
1:0 Craig Ramage (15.)
2:0 Craig Ramage (49.)
2:1 Sean McCarthy (72.)
Wolves-Reading 1:1
0:1 Mick Gooding (17.)
1:1 Mark Atkins (42.)
Staðan
Derby 3617 13 6 55:40 64
Sunderland 34 1612 6 44:25 60
Charlton 34 14 13 7 48:38 55
Stoke 33 14 11 8 45:34 53
C.Palace 341313 848:40 52
Huddersfield 3314 10 9 46:37 52
Leicester 341213 9 51:4849
Barnsley 34 1212 10 46:5148
Southcnd 3513 9 1340:44 48
Ipswich 32 1211 9 60:49 47
Portsmouth 35 11 11 13 55:55 44
Birmingham 33 11 11 1144:44 44
Millwall 3611 11 14 34:47 44
Norwich 35 10 12 13 45:44 42
Wolves 34 1012 12 44:45 42
T ranntere 33 1011 12 44:40 41
Shelí.Utd. 36 912 15 41:50 39
Reading 33 8 15 10 37:41 39
Grimsby 33 912 12 36:48 39
Luton 34 9 1015 31:45 37
Oldhain 32 8 1212 40:37 36
WBA 3310 617 38:52 36
PortVaie 31 8121137:4336
Watford 33 61215 34:46 30