Dagur - 13.04.1996, Qupperneq 7
Laugardagur 13. apríl 1996 - DAGUR - 7
Á opnum dögum ’96 var nemend-
um Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra boðið að skrá sig í hina og
þessa hópa og urðu allir að velja
sér eitthvað. Reynt var að höfða
til sem flestra í vali á þeim hópum
sem starfræktir yrðu og var efnt til
eins konar atkvæðagreiðslu um
hvað yrði fyrir valinu, þannig að
flestir fyndu sér eitthvað við sitt
hæfi. Hópunum var skipt í þrjá
flokka, hálfs dags, heils dags og
tveggja daga hópa eftir því hve
viðfangsefni námskeiðanna tóku
langan tíma. Meðal þess sem boð-
ið var upp á var Vídeóhópur, sem
bjó til leiknar auglýsingar sem
voru sýndar milli atriða á árshá-
tíðinni; námskeið í skrautskrift,
þar sem nemendur fengu leiðbein-
ingar um undirstöðuatriði í skraut-
skrift, hlutverkaspil, þar sem
nemendum var gefinn kostur á að
kynna sér þessi spil undir leiðsögn
reyndra spilara, Internetnám-
skeið, þar sem kennt var á Inter-
netið og notkunarmöguleikar þess
kynntir nemendum, „streethall",
þar sem hörku spennandi keppni
var í gangi, bjargsig, þar sem
þessi mæta list var kennd undir
leiðsögn björgunarsveitarmanna
úr björgunarsveitinni Skagfirð-
ingasveit, frjálsar íþróttir, þar
sem Jón Amar Magnússon leið-
beindi nemendum og margt fleira.
Þar að auki var útvarpsstöð Nem-
endafélagsins Rás Fás með út-
sendingar báða dagana, þar sem
sendar voru út fréttir og viðtöl af
vettvangi opnu daganna af mikilli
kostgæfni. Auk þess stóðu verð-
andi stúdentar fyrir kaffihúsi í há-
tíðarsal skólans, þar sem boðið
var upp á lostætar veitingar gegn
vægu gjaldi. Auk framangreindra
hópa var boðið upp á nokkra fyrir-
lestra. Þar voru á ferðinni Skúli
Lórenzson miðill, Magnús Skarp-
héðinsson, sem fræddi nemendur
um hagi framliðinna og að lokum
Reynir Hugason, sem hélt fróðleg-
an fyrirlestur um framtíðina í
tölvumálum.
Gestakokkar héldu innreið sína
í mötuneyti heimavistarinnar hver
á fætur öðrum og elduðu kvöld-
mat fyrir soltna nemendur skólans
að eigin hætti. Fyrsta kvöldið
reyndi húsvörður skólans fyrir sér.
Næst kom að tugþrautarkappanum
Jóni Amari og að lokum kom að
aðstoðarskólameistaranum og- féll
framlag þeirra allra í góðan jarð-
veg. Að kvöldi föstudagsins 15.
mars var síðan haldin brenna nið-
ur á strönd ásamt flugeldasýningu.
Á laugardaginn var svo haldin
uppskeruhátíð í hátíðarsal skólans
auk þess sem kynning var á skól-
anum og gat almenningur þá feng-
ið sýnishom af starfi nemenda og
margir nýttu sér það.
Árshátíð
Árshátíð skólans er alltaf haldin í
lok opnu daganna og má segja að
hún sé nokkurs konar hápunktur
félagslífsins. Undanfarin ár hefur
hún verið haldin í Höfðaborg á
Hofsósi og tekist með ágætum og
svo var einnig í þetta skipti. Að
loknum skemmtiatriðum var hald-
ið ball þar sem hljómsveitin Sól-
dögg hélt upp stanslausu fjöri
langt fram á nótt.
Það efni sem hér birtist um félagslíf í
Framhaldsskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki er alfarið unnið af nem-
endum skólans. Kunnum við þeim
bestu þakkir fyrir framtakið, sem er
öðrum framhaldskólanemum til eftir-
breytni, en Dagur óskaði fyrr í vetur
eftir efni til birtingar frá framhalds-
skólum á Norðurlandi, en eftirtekjan
hefur reynst heldur rýr. Ritstjórar.
Varlega!!! Farið var í bjargsig und-
ir gömlu brúnni við Sleitustaði und-
ir leiðsögn björgunarsveitarinnar
Skagfirðingasveitar.
Hvað er manneskjan eiginlega að gera??? Ester Ingvarsdóttir „Jógari“ leið-
beinir nemenduni í jóga.
Kennaragrúppan „The Well-known People“ treður upp.
Fulltrúi skólans í Söngvakeppni framhaldsskólanna tekur lagið.
Afvegaleiddir hlutverkaspilsmenn undir stjórn Stefáns Álfs.
Það fór ekki framhjá neinum að
Rocky var á staðnum.
Brjálaðir svitafíklar að störfum. Heilbrigð sál í hraustum líkama.
Til leigu 400 fermetra ófnnréttað iönaöarhúsnæði.
Mikil lofthæð. Getum hólfað húsnæðið niður í smærri
einingar.
Upplýsingar veita Kristján, símboði 846 2620 og
Jóhannes í síma 462 5148 eftir kl. 19.
Lögreglan Húsavík
Lögreglumaður
Staða lögreglumanns við embætti sýslumannsins
á Húsavík er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. maí nk.
Nánari upplýsingar gefur yfirlögregluþjónn í síma 464
1630.
Sýslumaðurinn á Húsavík,
Halldór Kristinsson.
RAUTT L/ÓS / ' 5' RAUTT UÓS
_______V tfFÐAR___________i/ )