Dagur - 13.04.1996, Síða 9
Laugardagur 13. apríl 1996 - DAGUR - 9
Stálkonan
- hin frjálsa kona eða afskræming?
í dag verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri. Kven-
líkaminn er aðalmyndefni á báðum þessum sýningum en að öðru
leyti eru sýningarnar ákaflega ólíkar. Önnur samanstendur af mód-
elmyndum eftir Gunnlaug Blöndal og er yfirskrift þeirrar sýningar
Konan og nekt hennar. Á hinni sýningunni eru ljósmyndir af vaxtar-
ræktarkonum eftir Bandaríkjamanninn Bill Dobbins. Sú sýning ber
heitið Stálkonur og óhætt er að segja að ljósmyndir Bill Dobbins séu
hörð andstæða málverka Gunnlaugs Blöndal.
Kvenlíkaminn hefur verið við-
fangsefni listamanna frá örófi
alda. Eitt þekktasta kvenlíkneski
veraldar er t.d. frjósemistáknið
„Venus frá Willendorf ‘ sem er frá
því um 25.000 til 20.000 árum
fyrir Krists burð og lýsir konunni
sem algildri uppsprettu og endur-
nýjun samfélagsins. María mey
var tákn hreinleikans, trygglyndis
og fullkominnar trúfestu og and-
stæða þeirrar ímyndar var hóran
sem lifði góðu lífi meðfram meyj-
arímyndinni. Annað dæmi um
staðlaða kvenímynd er fegurðar-
drottning nútímans sem gjarnan er
notuð til markaðssetningar á ým-
iskonar tískuvamingi.
I þessu ljósi er heillandi að
virða fyrir sér nektarmálverk
Gunnlaugs Blöndal og bera saman
við Ijósmyndir Bill Dobbins af
vaxtarræktarkonum. Gunnlaugur
er eini íslenski listamaðurinn sem
hefur lagt rækt við þessa tegund
myndgerðar og í myndum hans
má greina viðhorf sem er blandað
munúð, virðingu og erótík. Ljós-
myndir Dobbins eru af alll öðrum
toga og vekja upp ýmsar spum-
ingar. Er hér komin ímynd hinnar
frjálsu konu sem hefur brotið af
sér hlekkina? Eða sýna þessar
myndir okkur úrkynjun samtím-
ans með taumlausri sjálfsdýrkun?
Pallborðsumræður eftir viku
Sjálfur segir Dobbins að vaxtar-
ræktarmenn og konur séu lista-
fólk; einskonar mennskir skúlptúr-
ar. Fyrir margar konur snýst vaxt-
arræktin hins vegar ekki aðeins
um að móta líkamann heldur
einnig um jafnréttisbaráttu. Ein
þeirra, Laurie Fierstein, segir
meðal annars: „...Margar stálkon-
ur hafa þróað líkama sinn sem
næst út að endimörkum mögu-
leika hans. Og þar með hafa þær
sýnt og sannað að konur geta brot-
ist út úr þeim fjötrum sem lagðar
hafa verið á þær á öllum sviðum
mannlífs."
Ljósmyndir Dobbins kalla á
viðbrögð allra og afstöðu óg í
næstu viku gefst tilvalið tækifæri
til að kynna sér nánar afstöðu Ijós-
myndarans og vaxtarræktarkvenn-
anna. Bill Dobbins mun koma
hingað til lands ásamt „stálkonun-
um“ Ericca Kem og Mellisu Coat-
es í boði líkamsræktarstöðvarinnar
GYM 80 og á laugardag eftir viku
verða þau í Listasafninu. Þá gefst
gesturn kostur á að spyrja þau
spjörunum úr og er hugmyndin að
setja upp nokkurskonar pallborðs-
umræður þar sem nokkrir spyrlar
leiða umræður.
Sýn Gunnlaugs Blöndal á kvenlíkamann tengist munúð og myndir hans
draga ekki aöeins fram hið erótíska heldur einnig hið móðurlcga í fari
kvenna.
Gunnlaugur BSöndal
Myndlistarmaðurinn Gunnlaugur
Blöndal fæddist árið 1893 að
Sævarlandi í Þingeyjarsýslu.
Hann nam myndlist í Kaup-
mannahöfn og Osló, ferðaðist
víða um Evrópu og var því vel
kunnugur þeim straumum sem
léku um evrópskt listalíf á þess-
um tíma. Hann bjó í París um
skeið og það var á Parísarárunum
sem hann upgötvaði nýtt mynd-
efni sem fylgdi honum feril hans
á enda; konuna og nekt hennar. í
modelmyndum Gunnlaugs opin-
berar hann konuna og nekt henn-
ar af sérstakri munóð og listrænu
innsæi og eru þessar myndir ein-
stakar í íslenskri listasögu.
Það er vissara að reita þessa ekki til reiði! Stálkonur Dobbins vísa öllum hefðbundnuin kvenímyndunum á bug og
vilja skapa nýja ímynd hinnar frjálsu sterku konu. Aðrir telja þessi kraftalegu vöðvabónt ekkert annaö en afskræm-
ingu og dæmi uin órkynjun samtímans.
Bill Ðobbins
Ljósmyndarinn Bill Dobbins er
búsettur í Los Angeles í Kalí-
forníu. Auk Ijósmyndunar fæst
hann við ritstörf og hefur haft af-
gerandi áhrif á þá veröld sem
vaxtarræktin hrærist í. Hann var
m.a. einn af stofnendum vöðva-
ritsins „FIex“, var aðstoðarrit-
stjóri, ljósmyndari og dálkahöf-
undur „Muscle and Fitness" og
hefur ritað fjölmargar bækur um
líkamshreysti og hollustuhætti,
þar á meðal bók sem hann vann í
samvinnu við vöðvatröllið Am-
old Schwartzenegger.
Aðeins á Akureyri
Ljósmyndasýninguna setur Lista-
safnið upp í samvinnu við Hannes
Sigurðsson, listfræðing, og verður
sýningin sett upp í Kringlunni í
Reykjavík. Það er hins vegar að-
eins í Listasafninu á Akureyri þar
sem þessum tveimur sýningum,
nektarmyndir Gunnlaugs Blöndal
og ljósmyndum Bill Dobbins, er
stillt upp saman. Haraldur Ingi
Haraldsson, forstöðumaður Lista-
safnsins, segir hugmyndina hafa
kviknað í safnráði Listasafnsins
þegar ljóst var að ljósmyndasýn-
ing Dobbins fengist til landsins. í
framhaldi af því hófst Haraldur
handa við að safna saman mynd-
um eftir Gunnlaug, sem flestar eru
í einkaeign, og er þetta sennilega
viðamesta sýning á módelmynd-
um hans hérlendis. „I myndum
Gunnlaugs koma fram gjörólík
viðhorf,“ segir Haraldur og bendir
á að vegna þess að báðar sýningar
fjalli um kvenlíkamann sé ekki
hjá því komist að bera þær saman
og leiða hugann að þessu forvitni-
lega fyrirbæri, kvenímyndinni.
„Þetta er mjög merkilegt um-
hugsunarefni,“ segir Haraldur um
kvenímyndina og bætir við að
sýningamar falli mjög vel að hlut-
verki Listasafnsins því tilgangur
þess sé ekki aðeins að gefa fólki
kost á að skoða myndlist heldur
eigi heimsókn í safnið að geta ver-
ið andleg líkamsrækt. Hún gefi
fólki gjaman eitthvað til að hugsa
um. Við látum Haraldi lokaorðin
eftir: „Að njóta listar er meira en
að horfa. Það gengur út á að
mynda sér viðhorf og afla sér
þekkingar.“ AI
Ekki kaupa fasteign á AkureyriH
Nema aö hafa skoðaö raöhúsin okkar
Við höfum réttu fasteignina fyrir þig,
raðhús af mörgum stærðum sem
hægt er að aðlaga að þínum óskum.
Tresmiðaverkstæði
Sveins Heiðars ehf.
Skipagötu 16 ■ Sími 461 2366 ■ Fax 461 2368 • Opið kl. 13-17.00