Dagur - 09.07.1996, Side 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 9. júlí 1996
ÍÞRÓTTIR
FROSTI EIÐSSON
Golf - Akureyrarmótið:
Ekkert mál
fyrir Sigurpál
Flestir áttu von á spennandi
keppni í meistaraflokki karla á
Akureyrarmótinu í golfí sem
lauk á laugardag. Spennan var
einungis fram í mitt mót, því á
þriðja degi skildi í sundur. Sig-
urpáll Geir Sveinsson lék þá á
69 höggum, - tveimur undir pari
vallarins en Björgvin Þorsteins-
son, helsti keppinautur Sigur-
páls var á 80 höggum. Eftir það
var nokkuð ljóst að Sigurpáll
mundi tryggja sér titilinn í
ijórða sinn á fímm árum og það
gekk eftir. Hann lék á 287 högg-
um, en Björgvin á 301 höggi.
„Eftir „Arctic open“ fór ég að
hugsa minn gang, því ég var að
spila hörmulega. Ég fór með Dav-
id (Georg Bamwell, golfkennara)
niður á æfingasvæði og hann
þurfti ekki nema tíu mínútur, þá
sagði hann mér hvað var að sveifl-
unni og ég er farinn að slá miklu
betur,“ sagði Sigurpáll. „Þetta er
einu höggi betra en á Landsmót-
inu þegar það var haldið héma
síðast og mér líst vel á framhaldið.
Landsmótið er í Vestmannaeyjum
í ár og ég hef alltaf kunnað vel við
þann völl og spilað vel þar,“ sagði
Sigurpáll.
Björgvin náði forskoti eftir
fyrsta hringinn, lék þá á 70 högg-
um en hann náði ekki að fylgja
því eftir. „Löngu höggin voru góð,
en ég var að slá jámahöggin illa.
Sérstaklega á öðrum á þriðja degi
og við það bættist að púttin gengu
ekki niður á þriðja hringnum,“
sagði Björgvin.
Erla Adolfsdóttir hreppti Akur-
eyrarbikarinn í meistaraflokki
kvenna baráttulaust, þar sem hún
var ein í flokknum.
Góð þátttaka var í mótinu. 108
kylfingar skráðu sig til leiks í
flokkana tólf. Hins vegar hefur
sjaldan verið verr mætt á lokahóf
að afloknu Akureyrarmóti eins og
nú. Aðeins þriðjungur keppenda
mætti og nokkrir verðlaunahafa
voru fjarverandi. Þá vakti það at-
hygli að nokkrir kylfingar fengu
frávísun fyrir að gleyma að skrifa
undir skorkort, þar af þrír þegar á
fyrsta keppnisdegi.
Nokkrir af sigurvegurunum á Akureyrarmótinu. Taiið frá vinstri: Haukur Jakobsson, Patricia Ann Jónsson, Anna
Freyja Eðvarðsdótitr, Njáll Harðarson, Helena Árnadóttir, Agnes Jónsdóttir, Sigurpáll Geir Sveinsson og Guðbjörn
Garðarsson.
Slakaði á
„Ég var nokkuð ánægð með fyrstu
tvo dagana, en þá tvo síðustu slak-
aði ég á, kannski vegna þess að ég
var þá komin með nokkuð gott
forskot. Ég reikna með því að ég
hefði getað spilað betur ef ég
hefði fengið meiri keppni," sagði
Patricia Ann Jónsson, sigurvegar-
inn í öldungaflokki kvenna, sem
kom inn á 410 höggum, sem var
nítján höggum færra en hjá Maríu
Daníelsdóttur, sem varð önnur í
flokknum.
Jafnir hringir
Elsti keppandinn í flokki 55-65
ára, Haukur Jakobsson, sem er 64
ára, varð öruggur sigurvegari í
sínum flokki. Hann kvaðst þakka
það góðum æfingum. „Ég saknaði
Gunnars Sólness og Gísla Braga
Hjartarsonar. Þeir eru báðir með
lægri forgjöf en ég og það hefði
verið gaman að mæta þeim. Þar
með er ég ekki að segja að ég
hefði tapað fyrir þeim,“ sagði
Haukur, sem átti mjög jafna hringi
og endaði á 332 höggum.
Sigurpáll Geir Sveinsson sigraði á sínu fjórða Akureyrarmóti á fimm árum í
meistaraflokki karla. Mynd: bg
Misjafnt golf
Meistaramót
klúbbanna
Úrslit:
Akureyrarmótið:
Meistaraflokkur karla:
Sigurpáll G. Sveinsson 287
Björgvin Þorsteinsson 301
Birgir Haraldsson 303
Bjöm Axelsson 307
Ómar Halldórsson 310
Skúli Ágústsson 310
Meistaraflokkur kvenna:
Erla Adolfsdóttir 359
1. flokkur karla:
Guðbjörn Garðarsson 323
Sævar Sævarsson 329
Kjartan F. Sigurðsson 329
1. flokkur kvenna:
Anna F. Eðvarðsdóttir 371
Hulda Vilhjálmsdóttir 379
Hildur Rós Símonard. 384
2. flokkur karla:
Njáll Harðarson 371
Smári Jónsson 379
Ragnar Sigurðsson 381
2. flokkur kvenna:
Agnes Jónsdóttir 448
Guðrún S. Jónsdótdr 458
Jakobína Reynisdóttir 468
3. flokkur karla:
Steinmar Rögnvaldsson 356
Baldvin Harðarson 369
Birgir Már Harðarson 372
4. flokkur karla:
Bjöm Ævar Guðmundsson 387
Ófeigur Marinósson 416
Njáll Trausti Friðbertss. 432
Piltaflokkur:
Finnur Bessi Sigurðsson 325
Ingvar Karl Hermannsson 335
Jóhannes Árnason 349
Stúlknaflokkur:
Helena Árnadóttir 445
Guðríður Sveinsdóttir 456
Guðbjörg Úlfarsdóttir 463
Karlar 55 - 65 ára:
Haukur Jakobsson 332
Birgir Marinósson 342
Hreiðar Gíslason 358
Karlar 65 ára og eldri:
Páll Halldórsson 191
Árni Ingimundarson 201
Hörður Steinbergsson 204
Öldungaflokkur kvenna:
Patricia Ann Jónsson 410
María Daníelsdóttir 429
Ásdís Þorvaldsdóttir 438
Golfklúbbur Húsavíkur:
Guðni og Sólveig
sigruðu 11. flokki
Björg Jónsdóttir og Pálmi Pálmason og dætur þeirra Anný Björg, Jóna
Björg og Helga Björg. Þau kepptu öll á þessu móti og urðu öll í verðlauna-
sætum.
Guðbjöm Garðarsson og Kjartan
F. Sigurðsson voru lengst af í bar-
áttunni um gullið í 1. flokknum og
þeir voru jafnir fyrir fjórða hring-
inn. Guðbjöm tók átta högg af
Kjartani á fyrri níu holunum loka-
daginn og þá var ljóst hvert
stefndi. Kjartan varð síðan að láta
2. sætið af hendi til Sævars Þ.
Sævarssonar. Báðir léku á 329
höggurn en Sævar sigraði Kjartan
í bráðabana.
„Þetta er eitt af uppáhaldsmót-
unum mínum. Mér gengur yfirleitt
vel á Akureyrarmótum," sagði
Guðbjöm, sem sigraði í 1. flokkn-
um í þriðja sinn. „Golfið var af-
skaplega misjafnt. Ég var að spila
vel einn daginn, en setti ekkert
niður á flötunum. Annan dag var
ég að spila mjög illa, en var hepp-
inn inn á milli og náði að bjarga
mér. Ég var í miklu stuði á fyrri
níu holunum lokadaginn, en missti
einbeitinguna á síðari níu holun-
um. Munurinn var hins vegar orð-
inn það mikill að það skipti ekki
máli,“ sagði Guðbjöm, sem kom
inn á 323 höggum. Anna Freyja
Eðvarðsdóttir sigraði í 1. flokki
kvenna á 371 höggi.
Meistaramótinu lauk í blíðu-
veðri seinni partinn á laugardag,
eftir harða baráttu um annað
sætið í 1. flokki kvenna. Þar átt-
ust við systur Anný Björg og
Jóna Björg, sem fóru í umspil og
mörgum sinnum bráðabana.
Keppni í piltaflokki var frestað
þar sem flestir keppenda voru á
Essó knattspyrnumóti á Akur-
eyri. Úrslit urðu sem hér segir:
Stúlknaflokkur
1. Helga Björg Pálmadóttir 199
2. Bima Dögg Magnúsdóttir 214
2. flokkur kvenna
1. Þóra Sigurmundsdóttir 195
2. Kristín Magnúsdóttir 198
3. Björg Jónsdóttir 213
3. flokkur karla
1. Kristbjöm Jónsson 404
2. Sveinn Veigar Hreinsson 404
3. Sveinbjöm Magnússon 444
2. flokkur karla
1. Pálmi Pálmason 346
2. Bjami Sveinsson 361
3. Pálmi Þorsteinsson 371
1. flokkur kvenna
1. Sólveig Jóna Skúladóttir 358
2. Jóna Björg Pálmadóttir 363
3. Anný Björg Pálmadóttir 363
1. flokkur karla
1. Guðni Rúnar Helgason 310
2. Skúli Skúlason 312
3. Axel Reynisson 318
Aðspurður sagðist Guðni Rún-
ar Helgason „auðvitað ekkert
mega vera að þessu en það væri
bara svo gaman í golfinu að það
væri bara tekinn tími hvort sem
hann væri á lausu eða ekki. Ég er
búinn að vera meiddur og hef ekki
spilað með Völsungunum síðustu
þrjá leiki en nú er ég að verða
nokkuð góður svo ég á von á að
vera með í næsta leik. Ég kom og
kláraði mitt spil í golfinu
eldsnemma í morgun áður en hinir
spilaramir mættu því ég þurfti að
vera með strákunum sem ég þjálfa
í fótboltanum. Það er þriðji flokk-
ur stráka og þeir voru að keppa
við Tindastól hér á Húsavíkur-
velli.“ GKJ