Dagur - 02.08.1996, Side 7
HVAÐ E R A£> CERAST?
Föstudagur 2. ágúst 1996 - DAGUFt - 7
Veflist í Galleríi
AllraHanda
Föstudaginn 2. ágúst verður opn-
uð sýning á veflist eftir Guðnýju
G.H. Marinósdóttur. Sýningin er
þema við ljóð eftir Guðnýju og
sámanstendur af röð mynda, sem
allar eru ofnar úr jurtalituðu
bandi.
Sýningin stendur til 15. ágúst
og verður opin á opnunaríma
Galleríi AllraHanda.
Bogomil Font og
Geirmundur á
HótelKEA
Hin vinsæla hljómsveit Milljóna-
mæringamir ásamt Bogomil Font
skemmtir gestum Hótels KEA á
Akureyri í kvöld, föstudagskvöld.
Bogomil Font er nýlega kominn
frá henni Ameríku, þar sem hann
hefur safnað þreki. A laugardags-
og sunnudagskvöld mætir svo
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar og heldur uppi fjörinu.
Herramenn á
Oddvitanum
Að vanda verður mikið um að
vera á Oddvitanum um helgina.
Alla verslunarmannahelgina sér
hljómsveitin Herramenn um að
skemmta gestum á Oddvitanum,
m.ö.o. í kvöld, annað kvöld og á
sunnudagskvöld. Öll þessi kvöld
verður opið til kl. 04. Aldurstak-
mark er 20 ár og snyrtilegur
klæðnaður áskilinn.
Hallsteinn
sýnir á Kópa-
skeri
Á laugardag og sunnudag, 3. og 4.
ágúst n.k., verður Hallsteinn Sig-
urðsson, myndhöggvari, með sýn-
ingu í Grunnskólanum á Kópa-
skeri, og verður sýningin opin frá
kl. 14:00-18:00 báða dagana. Á
sýningunni verða tíu myndverk úr
steinsteypu auk ljósmynda. Hall-
steinn Sigurðsson nam við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands auk
framhaldsnáms í Englandi. Hann
hefur haldið 10 einkasýningar og
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Meðal verka eftir Hallstein Sig-
urðsson er „Ægir“, minnisvarðinn
um drukknaða sjómenn, sem
stendur við Húsavíkurkirkju. GKJ
Danskur fiðluleikarí á
sumartónleikum
Elisabeth Zeuthen Schneider,
fiðluleikari frá Danmörku, held-
ur tónleika í Reykjahlíðarkirkju í
Mývatnssveit annað kvöld, laug-
ardagskvöld, kl. 21 og í Akur-
eyrarkirkju nk. sunnudag, 4.
ágúst, kl. 17. Tónleikamir í
Reykjahlíðarkirkju eru þeir 40.
sem haldnir eru þar í tónleika-
röðinni Sumartónleikar á Norð-
urlandi.
Á efnisskránni verða verk eft-
ir Sergeij Prokofiev, Áskel Más-
son, Anders Nordentoft og J.S.
Bach.
Elisabeth Zeuthen Schneider
nam við Det Kgl. Danske
Musikkonservatorium í Kaupa-
mannahöfn hjá Milan Vitek og
Endre Wolf. Hún stundaði fram-
haldsnám í Bandaríkjunum hjá
Stanley Ritchie í Bloomington
og Isidore Cohen í New York.
Elisabeth hélt glæsilega Debut-
tónleika árið 1981 og hefur síðan
leikið einleik með öllum helstu
hljómsveitum Danmerkur og
hlotið fjölda danskra verðlauna
og viðurkenningu fyrir leik sinn.
Hún hefur haldið einleikstón-
leika og leikið kammertónlist í
Bandaríkjunum og á íslandi,
m.a. með Tríói Reykjavíkur.
Auk tónleikahalds kennir hún nú
við Det Kg. Danske Musikkons-
ervatorium. Elisabeth leikur á
fiðlu sem smíðuð er árið 1701, af
Giovanni Grancino í Mílanó.
Sálin á Akureyri, Miðgarði og
Vopnafirði
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns leik-
ur fyrir dansi í Sjallanum á Akureyri í
kvöld, föstudagskvöld, og henni til full-
tingis verða hljómsveitimar Sóldögg og
Dj. Bigfoot. Á laugardag verður spilað í
Miðgarði í Skagafirði, en þar verða sér-
stakir gestir hljómsveitin Númer Núll
frá Sauðárkróki. Að lokum heldur Sálin
austur á Vopnafjörð og treður upp á
Vopnaskaki.
Síðasta sýningarhelgi á
Sjávarháttum
Sýningin Sjávarhættir hefur í allt sumar
verið opin í íþróttahúsinu á Dalvík kl.
13 til 17, en nú dregur að lokum hennar
og er síðasti opnunardagur nk. mánu-
dagur, frídagur verslunarmanna. Á sýn-
ingunni eru sýnd yfir 50 skipslíkön
smíðuð af Grími Karlssyni auk fjölda
áhalda tengd útgerð og fiskvinnslu.
Mjög vel hefur verið látið af þessari
sýningu og full ástæða til að hvetja fólk
til að missa ekki af þessu síðasta tæki-
færi til að berja hana augum.
Kafflsala í Tunguseli
í Svarfaðardal
Kvenfélagskonur í Kvenfélaginu Tilraun
í Svarfaðardal hafa á undanfömum ámm
selt kaffi í réttarhúsinu við Tungurétt
um verslunarmannahelgina, sem nefnist
Tungusel, og svo verður einnig nú.
Kvenfélagskonur þar selja kaffi sunnu-
daginn 4. og mánudaginn 5. ágúst kl. 14
til 17 báða dagana.
Kaffihlaðborð í Brekku
Um verslunarmannahelgina, nánar til-
tekið á sunnudag og mánudag, verður
boðið upp á kaffihlaðborð á veitingahús-
inu Brekku í Hrísey.
Laufey sýnir á Hótel Hjalteyri
Laufey Pálsdóttir sýnir verk sfn þessa
dagana á Kaffihúsinu á Hótel Hjalteyri
og verður síðasta sýningarhelgi um
helgina.
Verslunarmannahelgin á Café
Olsen
Ingi Gunnar Jóhannsson, trúbador,
skemmtir gestum Café Olsen á Akureyri
í kvöld og annað kvöld. Á sunnudags-
kvöldið skemmta þeir Gunnar Tryggva-
son og Júlíus Guðmundsson á Café 01-
sen.
Gönguferð um Innbæinn á
sunnudag
Á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum í
sumar fram til 20. ágúst er flutt Söng-
vaka í Minjasafnskirkjunni frá kl. 21 til
22. Á Söngvöku em flutt sýnishom úr
íslenskri tónlistarsögu. Flytjendur em
Ragnheiður Ólafsdóttir og Þórarinn
Hjartarson. Miðaverð á Söngvöku er
600 krónur og er aðgangur að Minja-
safninu innifalinn en það er opið sömu
kvöld frá kl. 20 til 23.
Næstkomandi sunnudag, 5. ágúst,
verður boðið upp á gönguferð um Inn-
bæinn og Fjömna undir leiðsögn. Lagt
verður af stað frá Laxdalshúsi Hafnar-
stræti 11 kl. 14 og gengið um elstu hluta
bæjarins. Þátttaka í gönguferðinni er
fólki að kostnaðarlausu.
Minjasafnið er opið um verslunar-
mannahelgina eins og alla aðra daga frá
kl. 11 til 17 og að auki á þriðjudags- og
fimmtudagskvöldum frá 2. júlí til 20.
ágúst frá kl. 20 til 23. Aðgangseyrir er
250 krónur en frítt er inn fyrir börn
yngri en 16 ára og eldri borgara.
Klippimyndir Jóns Laxdal
sýndar í Varmahlíð
Laugardaginn 3. ágúst kl. 14 verður
opnuð í Galleríinu Lundi í Varmahlíð
sýning á klippimyndum Jóns Laxdal
Halldórssonar. Sýningin ber yfirskriftina
„Dagbókarblöð“. Jón Laxdal er Akur-
eyringur f. 1950 og hefur sýnt undanfar-
in 10 ár bæði heima og erlendis. Sýning-
in stendur til 20. ágúst og er opin alla
dagafrákl. lOtil 18.
Tom Cruise
í Borgarbíói
Meðal stórmynda verslunar-
mannahelgarinnar í Borgarbíói á
Akureyri er Mission-Impossible
með Tom Cruise í aðalhlutverki.
Leikstjóri myndarinnar er Brian
De Palma, en í öðrum aðalhlut-
verkum eru Jon Voight, Emanu-
elle Béart, Jean Reno, Kristin
Scott-Thomas, Ving Rhames og
Emilio Estevez.
Borgarbíó sýnir einnig Mon-
keys, sem er leikstýrt af David
Hogan, en hann er best þekktur
fyrir að hafa stýrt upptökum á
áhættuatriðum í Batman Forever
og Alien 2.
Þá má ekki gleyma myndinni
Barbwire.
8 dvergar sýna
í Ketilhúsinu
Laugardaginn 3.ágúst kl. 14.00
opna 8 dvergar myndlistasýn-
ingu í Ketilhúsi á vegum Lista-
sumars. Dvergamir 8 em óþekkt
stærð í myndlistarelítu þjóðarinn-
ar og lausir við allt dramblæti og
stórmennskubrjálæði í mynd-
verkum og mannlegri hegðun.
Erfitt er að staðsetja þá í ismum
þar sem verk þeirra eru hvorki
maximal né minimal. Frekar
væri hægt að flokka þau undir
medimalisma með hugmynda-
fræðilegu apstrakti og súrreílísku
ívafi með örlitlu af þjóðemis-
kennd og rembu. Kemur það
meðal annars fram að 8 dvergar
eru allir karlkyns og telja sig
langskólagengna í myndlistinni.
Flestir hafa sýnt verk sín áður
hér heima og erlendis, en þetta
mun vera í fyrsta sinn sem þessi
hópur af dvergum kemur saman
og sýnir. Þeir sem vilja kynnast
verkum þeirra geta farið á Inter-
netið og skoðað verk eftir þá og
fengið frekari upplýsingar. Slóð-
in er: http://www.islandia
is/~8dwarfs/index.html. Sýningin
stendur til 25. ágúst og eru allir
velkomnir á opnun svo og á
meðan sýningin stendur yfir.
Fiðla og víóla
í Deiglunni
Sunnudagskvöldið 4. ágúst kl.
20:30 halda systkinin Sigurbjöm
Bemharðsson fiðluleikari og
Svava Bemharðsdóttir vióluleik-
ari tónleika í Deiglunni á Akur-
eyri. Á efnisskránni em verk fyr-
ir einleiksfiðlu og einleiksvíólu
ásamt dúettum fyrir bæði hljóð-
færi. Meðal höfunda á efnis-
skránni eru Paganini, Kreisler,
Mozart, Bartok og Mist Þorkels-
dóttir. Þau hafa bæði getið sér
gott orð fyrir leik sinn og era
bæði í hópi bestu tónlistarmanna
yngri kynslóðarinnar.
Sigurbjöm stundar fiðlunám í
Chicago hjá S. Askenasí (fyrstu
fiðlu Vermeerkvartettsins) og er
einn þeirra sem komust í úrslit
tónvakans, keppni ungra einleik-
ara nú fyrir skömmu.
Svava er búsett í Slóveníu og
leiðir víólur í slóvensku fílharm-
oníunni, hún lauk doktorsnámi
frá hinum heimsþekkta tónlistar-
háskóla Juilliard í New York.