Dagur - 17.08.1996, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 17. ágúst 1996
Það eru margir sem muna eftir Atla ungum að
árum spilandi á trompetinn t skóla-
hljómsveitum Tónlistarskólans á Akureyri,
á fjölum Gaggans með skólahljómsveitinni
Fjörkörlum, þar sem hann var farinn að gutla
við hljómborðið, og með Kalla bróður í
Stuðkompaníinu. Margir sjá hann einnig fyrir
sér á fjólum Sjallans í einni þekktustu
hljómsveit landsins, Sálinni hans Jóns míns.
En þeir eru fœrri sem vita að Atli hefur lagt
stund á nám í kvikmyndatónlist við einn
frœgasta tónlistarskóla Bandaríkjanna og að
honum hlotnaðist sá heiður fyrr á árinu,
um leið og hann var brautskráður frá
skólanum sem kvikmyndatónskáld, að vera
veitt sérstök afmœlisorða skólans fyrir
glœsilegan árangur og framlag sitt til skólans.
Atli er fæddur á Akureyri 7. júlí
árið 1970. Tónlistarferill hans og
skólaganga eru að mörgu leyti
samofin því að þegar hann var
fimm ára og byrjaði í skóla hóf
hann einnig nám í Tónlistarskól-
anum á Akureyri. Þar byrjaði fer-
illinn á blokkflautunni en sex ára
snéri hann sér að trompetinum.
Þegar unglingsárin fóru að gera
vart við sig og Gagginn varð
samastaðurinn dalaði áhuginn á
trompetinum og píanóið tók við
ásamt hljómsveitabrasi. Mennta-
skólaárin komu í kjölfar Gaggans
og klassíska tónlistamámið vék að
mestu fyrir poppstússi og enn
frekara hljómsveitarbrasi. Að
loknu stúdentsprófi snéri Atli al-
gerlega við blaðinu og hélt sem
skiptinemi til Ungverjalands en
tónlistin var geymd en ekki
gleymd og hann ákvað að snúa sér
enn frekar að henni og setjast á
skólabekk í Tónlistarskóla FÍH.
Þar stundaði hann nám í jassdeild
skólans í tvö ár en að þeim árum
liðnum varð ekki aftur snúið og
fara að læra tónlist var hálf-óum-
flýjanlegt því það er mikið tónlist-
arfólk bæði í föður- og móðurætt-
inni. Faðir minn hefur verið at-
vinnumaður í tónlist í mörg ár og
mamma hefur alltaf haft mikinn
áhuga og sungið í kórum.“ Atli
byrjaði snemma að feta sig áfram
á tónlistarbrautinni og 12 ára gam-
all var hann búinn að stofna sína
fyrstu hljómsveit. „Þetta var bfl-
skúrshljómsveit með vinum mín-
um úr Gagganum, þeim Steindóri
Það er ágæt tilbreyting að
koma heim annað slagið og
spila á nokkrum villtum
böllum með Sálinni enda
gjörólíkt því lífi sem ég lifi í
Bandaríkjunum. Þar tekur
námið allan minn tíma og
spilamennskan fer fram
heima í stofu þegar ég er
einn með sjálfum mér.
Atli hélt til Boston í Bandaríkjun-
um í nám í kvikmyndatónlist.
Hann hefur nú lokið BM-prófi í
þeirri grein með framúrskarandi
vitnisburði og hyggur nú í haust á
mastersnám í sömu grein í Norð-
ur-Carolínu.
Háleit markmið og heimsfrægð
með Bandalaginu
„Ég fékk snemma áhuga á tónlist
og þegar ég lít til baka þá hafði ég
alltaf áhugann sem til þurfti þótt
hann væri auðvitað upp og niður
eins og hjá öllum krökkum. En að
og Ármanni. Við vorum eitthvað
að spila saman en eftir þetta fer ég
fljótlega að að spila með Kalla
bróður í hljómsveitum eins og
Bandalaginu. Við höfðum ákaf-
lega háleit markmið og fórum í
stúdíó gagngert til þess að ná
heimsfrægð því okkur fannst við
svo góðir. Á þessum tíma var líka
starfandi hin merka skóla- og
gleðihljómsveit Fjörkarlar en síð-
an kom Stuðkompaníið sem náði
töluverðum vinsældum á sínum
tíma og sigraði í Músíktilraunum
Tónabæjar."
- Atli Örvarsson kvikmynda-
tónskáld ræðir um tónlistina,
góðan námsárangur í Boston
og framhaldsnám í
kvikmyndatónlist í Banda-
ríkjunum
Dugnaður og staðfesta komið
Sálinni áfram
Veturinn 1990 hóf Atli nám við
Tónlistarskóla FÍH. „Ég fór í jass-
deild skólans og lærði á trompet
og píanó. Samhliða náminu spil-
aði ég í ballhljómsveit á Hótel ís-
landi en þegar ég var búinn að
vera í Reykjavík í 3 mánuði fór ég
að spila sem aukamaður með
Todmobile. Það samstarf stóð til
vors 1991 en þá fór ég að spila
með Sálinni hans Jóns míns. Sálin
hefur hins vegar annað slagið ver-
ið að taka sér pásur og í einni