Dagur - 17.08.1996, Blaðsíða 20
wmm,
Akureyri, laugardagur 17. ágúst 1996
Verið viðbúin
vinningi!
Skiptar skoðanir
um „Halló Akureyri“
Hagsmunaaðilar í ferðaþjón-
ustu á Akureyri boðuðu til
fundar á Hótel KEA sl. fimmtu-
dagskvöld um nýliðna verslun-
armannahelgi, og þá sérstaklega
hátíðina „Halló Akureyri" sem
var mikið í umræðunni í fjöl-
miðlum.
Magnús Már Þorvaldsson,
framkvæmdastjóri hátíðarinnar,
sagði að börn hafi ekki hafið
drykkjuna á Akureyri þrátt fyrir
að svo hefði mátt skilja á sumum
en það væri orðin venja hjá stór-
um hluta þjóðarinnar að vera á
kennderíi um þessa helgi og því
hefðu bömin fyrirmyndina. Magn-
ús sagði að ákveðnir þættir hefðu
bmgðist í framkvæmdinni, m.a. of
margir á tjaldsvæði, of fáir starfs-
menn, of fá salemi o.s.frv. en
fleiri gengið vel m.a. skemmti-
atriði fyrir alla aldurshópa, dans-
leikir, flugeldasýning o.fl.
Magnús upplýsti að söfnun til
hátíðarinnar gekk betur en áður,
og söfnuðust 2,8 milljónir króna á
móti 2 milljónum króna á sl. ári,
og nýttist féð að fullu enda aldrei
eins miklu til tjaldað og nú og
hefði framlag veitingahússins
Greifans verið langmest eins og
undanfarin ár. í undirbúningi er
opin ráðstefna á Akureyri í haust
þar sem fjallað verður um ung-
lingadrykkju og hvort einhverjar
leiðir séu til úrbóta. Meðal fyrir-
lesara á þeirri ráðstefnu verður
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Vogi.
Benedikt Sigurðarson, skóla-
stjóri, var ekki ánægður með há-
tíðina, sagði hana slys, allt hefði
farið úrskeiðins nema það að ná
10 þúsund manns til bæjarins.
Benedikt sagði að ruslið í bænum
hefði verið yfirgengilegt, og hann
þakkaði drottni allherjar það að
hafa hellt niður regni til að þvo
ósómann og eyða lyktinni sem
varð er víða var kastað af sér
þvagi. Benedikt sagðist vera hags-
munaaðili, ekki í ferðaþjónustu
heldur sem íbúi og hann væri al-
gjörlega ósammála því að fjöl-
miðlar hefðu málað dökka mynd
af ástandinu hér, heldur hefðu þeir
farið mjúkum höndum um allt
klúðrið.
Benedikt sagðist ekki trúa því
að á fundinum væri nokkur mann-
eskja sem vildi að ungir íslending-
ar fengju þá hugmynd um Akur-
eyri að það væri staður sem hægt
væri að koma til og ganga öma
sinna hvar sem er, stunda kynlíf
með hverjum sem er, skemma,
berja og eyðileggja að eigin geð-
þótta.
Fleiri tóku til máls á fundinum
en nánar verður sagt frá honum í
Degi í næstu viku. GG
Framkvæmdir hafnar á Fljótsheiði:
Fylling keyrð í mýrlendi
til að framkalla sig
Framkvæmdir vegna nýlagn-
ingar vegar um Fljótsheiði
milli Bárðardals og Reykjadals á
þjóðvegi 1 eru nýhafnar en á
þessu ári á að vinna fyrir 25
milljónir króna við að keyra út
fyilingu á nýja hlutann sem ligg-
ur um mýrlendi til að framkalla
sig. Upphaflega stóð til að vinna
fyrir 91 milljón króna á þessu
ári á Fljótsheiði samkvæmt
vegaáætlun en framkvæmdirnar
voru skornar niður í 25 milljónir
króna. Nýr vegur kemur sunnan
þess sem nú er, en löngu er orðið
tímabært að endurnýja hann,
bæði er hann lítt upphækkaður
og eins þolir hann ekki mikla
þungaflutninga og hafa stærstu
flutningabílarnir orðið að fara
norður fyrir á Kísilveginn um
Reykjahverfi austur í Mývatns-
sveit.
Unnið verður fram á haust við
@ HELGARVEÐRIÐ
í dag má búast við vest-
lægum og norðvestlægum
áttum á Norðurlandi, með
skúraveðri. Hiti verður 6 til
10 stig. Á morgun snýst í
suðaustan áttir með úr-
komu víðast hvar á land-
inu. Hiti verður á bilinu 7 til
12 stig. Þegar komið er
fram í næstu viku verða
hægar suðlægar áttir ríkj-
andi um landið, með úr-
komulitlu veðri um landið
norðanvert.
að keyra fyllinguna í nýja veg-
stæðið en hugsanlega mun verk-
takinn, Háfell ehf. í Hafnarfirði,
vinna eitthvað lengur upp í áætl-
aðar framkvæmdir á árinu 1997
og þannig lána vinnuna til verks-
ins og fá síðan greitt á næsta ári.
A næsta ári er áætlað að vinna fyr-
ir 82 milljónir króna og verður
vegurinn þá undirbyggður þannig
að veturinn 1997/1998 er stefnt að
því að nota veginn sem malarveg
en hann síðan lagður varanlegu
slitlagi sumarið 1998 en þá er
áætlað að verja til verksins 19
milljónum króna. Þessar tölur all-
ar kunna að breytast þegar vega-
áætlun verður tekin til end-
urskoðunar á komandi vetri, þ.e.
breytingar verða á forsendum. GG
Rimlaprdínur
(plast-ál-tré)
Rúllugardínur
(Sólarfilma-myrkva-venjulegar)
Strimlagordínur
Komdu og líttu ó úrvalið
KAUPLAND
Kaupangi • Slmi 462 3565
Fjölmargir sóttu fund um „Halló Akureyri“ og höfðu ýmislegt til málanna að leggja.
Mynd:BG
NI5SAN
Terrano H 4x4 7 manna meö nýrri
2,7 I túrbó díselvél. Kr. 2.659.000.
/----\
BSV
v____/
Verð frá kr. 2.254.000.-
Frumsýnum nýjan og kraftmikinn
Nissan Terrano II ‘97
laugardag og sunnudag frá kl. 14-17
báða dagana að Óseyri 5, Akureyri
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 461 2960 & 462 2520
Með hverjum nýjum Nissan jylgir frítt
þjónustuejiirlit jýrsta árið eða allt að 22.500 km.
jyrir bensínvélar og 20.000 km. fyrir díselvélar
- 7 manna rúmgóður jeþþi
~Nýtt oggjörbreytt útlit
- Nýtt grill
-Nýir stuðarar
-Ný 2,7 lítra túrbó díselvél með millikæli og
tölvustýrðri innsþýtingu 25% aflmeiri en eldri
vélin og togar 26% meira
-Nats III Nissan þjófavöm með fjarstýrðum
hurðarlæsingum
- Tvöföld öryggislæsing hurða
-Ný og smekkleg innrétting
-Nýir höfuðþúðar
-Hlífyfir farangursrými
-Ný og tœknilega vel útbúin öryggisbelti með
skynjara og sérstökum beltum aftur í sem tryggja
öryggi barna
-Með einu handtaki er hægt að taka öftustu
sætaröðina úr
■ Hljóðlátari bensín- og díselvélar með hreinni
bruna semfylgja ströngustu reglum íEvróþu um
mengunar- og hávaðavarnir
Bensínvélin er 118 din hestöfl við 4800 snúninga
Díselvélin er 125 din hestöfl við 3600 snúninga
- Fjórhjóladrifinn með háu og lágu drifi
Driflœsing á afturöxlum
Drifhæð 4:625