Dagur - 24.08.1996, Blaðsíða 9

Dagur - 24.08.1996, Blaðsíða 9
Laugardagur 24. ágúst 1996 - DAGUR - 9 1963 þegar við Svana bjuggum á Ólafsfirði. Jú, það eru oft erfið sjóveður héma.“ Og talið berst að öðru sjóslysi sem varð miklu fyrr og þar með fæddist frægur draug- ur. „Kleifarhomsdraugurinn hefði nú oft getað komið upp að manni þegar maður var að berjast héma í illviðrum," segir Jón og hlær. Og Sigurfinnur: „Það hafa jú oft verið réttu skilyrðin fyrir draugsa.“ Jón vill ekki gera mikið úr draugasög- unni en lætur til leiðast að segja hvemig hún er tilkomin. „Það fórst skip hérna á Múlanum sem hét Gefjun og var frá Siglufirði. Afi minn finnur síðan lík af manni en það var aðeins hálfur skrokkur- inn. Hann bar líkið heim og kom því fyrir á bakkanum og lét vita. Pabbi fullyrti alltaf að Kleifar- hornsdraugurinn hefði orðið til í þessu slysi. Þegar draugahræðslan var við lýði var hægt að spinna allt upp. Sniðugasta notkunin á draugsa var þegar kertið var sett í skaflinn héma út frá um jólin einu sinni. Þá bjuggu nokkrir strákar til holu í skaflinn og settu kertið í og úr varð hin kyndugasta drauga- birta. Svo voru einhverjar stelpur á vesturleið sem aldrei þorðu framhjá, handvissar um að draugsi sæti fyrir þeim,“ og allir hlæja. Norðaustanáttin leiðinlegust „Það eru mildari veður en áður“, segir Sigurfmnur. „Aðallega felst breytingin þó í því að veðurfarið er óstöðugra núna.“ Jón segist muna eftir viku lil hálfsmánaðar stórhríð þannig að ekki sá út úr augum og síðan hafi komið jafn langur kafli með frosti og stillum kannski. „Já, nú er veður mislynd- ara.“ Og Svana bætir við að ekki sé eins hlýtt á sumrin og hér áður fyrr. „Fjörðurinn liggur beint við hafi þannig að maður fær að vita fljótt af því þegar hann er að norð- austan,“ segir Jón. „Jú, ætli norð- austanáttin sé ekki leiðinlegust segja Kleifabúamir fjórir að lok- um. Viðtal og myndir: Marín Guðrún Hrafnsdóttir Klcifarnar. Ljóð eftirjón Ámason á Syðri-Á sem hann orti nýlega. Við útskagans svalvoga undrum skreytta átti mitt hjarta skjól. Þar sem í œsku óskimar mínar yngstu ég haftnu fól. Þar átti ég drauma og daga bjarta við dásemd hins Ijúfa vors sem ennþá geymist i minni mínu meitlað til síðsta spors. Ég undi þar löngum - um aftanstundir - og einnig í morguns vin. Sá daginn birtast af beði ncetur við bjartasta sólarskin. Enginn sem hefur við úthafið lifað unir í dalanna ró. Draumar mínir um dásemd lífsins dvelja við nyrsta sjó. Snjólaug Ásta Sigurfinnsdóttir, dóttir Svönu og Sigurfinns, orti óðinn í tilefni að Kleifamóti 1991. Þessi mót eru haldin á þriggja ára fresti og eru afar vinsæl. „Mamma safnar öllu sem hún eignast meira en tvennt af,“ segir dóttir Svönu og Sigurfinns, Ásta. Hér er Svana og flöskusafnið hennar en hún á ógrynnin öll af kynlegum flöskum sem margar eru komnar langt að. hvenær kæmu ljós fram í garð en var þá að horfa í vitlausa átt og hefði kolvillst hefði Sigurfinnur ekki komið fljótlega." Jón segist nú líka hafa týnt Ingibjörgu einu sinni en bætir við að það hafi nú verið hrekkur og hlær. Ingibjörg keyrði sleðann yfirleitt sjálf þegar hún þurfti að komast leiðar sinnar. Vatn í krana og matur í frystikistunni Kleifabúarnir vilja ekki gera mik- ið úr einangruninni. Þau hafa nóg að starfa og segjast lítið finna fyrir fámenninu. En hver er lengsti ein- angrunartíminn sem þau muna eft- ir? „Það eru fimm vikurnar í fyrra“, segir Svana. „Það er með því lengsta frá því farið var að moka hingað." Og Jón segir að það sé ekki mjög langt síðan farið var að moka reglulega. „Annars er þetta miklu fljótlegra núna með þessum stórvirku vélum og snjó- blásurum." Hvað með vistir eftir fimm vikna ófærð? „Fólk var að hringja og spyrja hvort allt væri í lagi, ég sagði að það væri vatn í krana og matur í frystikistunni og að ekkert amaði að okkur,“ segir Svana. „Já, og rafmagn,“ bætir Sigurfinnur við. „Við höldum þeim gamla sveitasið að birgja okkur upp af mat á haustin.“ „Já, það er alltaf nóg til að éta, það er aðallega mjólkin,“ segir Jón en Svönu finnst það nú ekki gera mikið til þó vanti mjólk í nokkra daga. Finnst öðrum þið ekkert ein- angruð héma? Nú hlæja Kleifabú- amir og segjast ekki skilja í að margir séu að hugsa um það. Og Sigurfinnur segir. „Það voru til menn í bænum sem vildu flytja okkur nauðug í burtu eða að öðr- um kosti ekkert gera fyrir okkur.“ „Þeim fannst víst of dýrt að moka þetta,“ segir Ingibjörg og Svana bindur enda á umræðuna með því að segja að þau hafi ekkert gefið eftir. „Við ákveðum sjálf hvar við viljum vera.“ „Við kunnum vel við plássið og landslagið, - kyrrðina á stund- um og stórhríðina á vetuma. Þetta er allt saman sjálfsagður hluti af lífinu," segir Jón. „Hér er líka gott útsýni, hvað sagði ekki maðurinn sem kom í heimsókn þegar hann leit út um gluggann: „Þið þurfið ekki málverkin á veggina héma.“ „Já, það er dásamlega fallegt héma þegar gott er veður og heið- skírt,“ segir Svana. „Kostirnir eru ótvírætt þeir að maður er ekki fyr- ir neinum, maður býr að sínu,“ segir Ingibjörg. „Hér hrekkur maður ekki upp við neinn gaura- gang.“ Og Jón bindur enda á um- ræðuna með því að segja að það felist visst frjálsræði í að búa á Kleifum. Kleifarhornsdraugurinn „Maður hefur lent í vondum veðr- um eins og allir sem stunda sjó,“ segir Sigurfinnur. „Einu sinni vor- um við svo lánsamir að geta bjargað fjórum mönnum sem lent höfðu í sjávarháska," segir þá Jón. „Þetta voru menn frá Dalvík en bátinn átti Sigurfinnur.“ Og Sigur- finnur heldur áfram með frásögn- ina. „Þetta var í ofsaveðri árið 1 ý k u r í d a g Ódýrara en þig grunar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.