Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994
Fréttir__________________________________________
Dómur á ummæli skipaverkfræðingsins í Svíþjóð vegna hönnunar Herjólfs:
Stóryrðin ómerk en
annað talið réttmætt
- Skipatækni telur sig hafa tapað viðskiptiim upp á um 15 millj ónir
Sigurður Ingvarsson, skipaverk-
fræðingur í Svíþjóð, var í gær dæmd-
ur til að greiða Skipatækni hf. sam-
tals 550 þúsund krónur vegna ýmissa
ummæla sem hann lét falla í ijölmiðl-
um varðandi smíði og hönnun Vest-
mannaeyjaferjunnar Herjólfs í mars
og apríl 1991. Hann var jafnframt
dæmdur til að greiða ríkissjóði 50
þúsund króna sekt.
Ummælin sem hér um ræðir voru
dæmd dauð og ómerk - t.a.m. „mann-
drápsfleyta“, en dómurinn féllst að-
eins á að dæma hluta þeirra ómerk
- annað hefði m.a. verið réttmæt
gagnrýni. Ummælin komu ýmist
fram á Stöð 2 og Bylgjunni, Ríkisút-
varpinu, Morgunblaðinu eða DV.
Stuttar fréttir
Byrðisligar
Greiðslubyrði lána og erfitt
þjóðfélagsástand er að shga
marga kaupendur verkamanna-
bústaða í Reykjavík samkvæmt
frétt Mbl. Menn eiga sífellt erfið-
ara með að standa í skilum.
Stórkarfastofn
Viðamestu rannsókn á djúp-
hafskarfanum á Reykjaneshrygg
til þessa er lokið. Hún bendir til
að stofninn sé a.m.k um 2,2 millj-
ónir tonna. Mbl. greindi frá.
Kaupárafmagni?
Stjómarformaður raforkuvera
Hamborgar hefur velt fyrir sér
þeim möguleika að kaupa raf-
magn frá Islandi. Mbl. hefur þetta
úr þýska tímaritinu Der Spiegel.
Milljónir til Rúanda
Rauði krossinn og Hjálpar-
stofnun kirkjunnar hafa sent um
3,5 milljónir til hjálparstarfs i
Rúanda. Engar safnanir hafa þó
verið skipulagðar samkvæmt
frétt Mbl.
Nýttlánríkissjóðs
Fjármálaráðherra undirritaði í
gær samning um nýtt lán ríkisins
hjá Norrænafjárfestingabankan-
um að andvirði um 670 milljóna
króna. Láninu verður varið til
endurfjármögnunar á lánsfé.
Nýmaveiki i laxi
Nýmaveiki hefur greinst í lax-
eldisstöðinni Miklalaxi í FJjótum.
Óttast er aö smitið sé einnig kom-
ið i seiöastöðina. Fyrir nokkru
var öllu starfsfólki stöðvarinnar
sagt upp störfum, þó af öðrum
ástæðum.
Kaupmenn efia sjóð
Kaupmenn eru staðráðnir í aö
efla pokasjóð Landverndar eða
jafnvel stofna nýjan Land-
græðslusjóð skv. Sjónvarpinu.
Hraðiorsökslysa
Of mikill ökuhraði er orsök
meginhluta umferðarsiysa að
sögn aöstoðaryfirlögregluþjóns-
ins áAkureyri. Löggæslumenn á
Norðurlandi hafa sameinast um
umferöarátak sem gefist hefur
vel. Mbl. greindi frá.
Sigurður sagði m.a. í viðtölum að
Herjólfur, sem þá var fyrirhugað að
smíða, væri „stórgallað og hættu-
legt“ og' „manndrápsfleyta". Orðin
töldust ekki geta verið skilgreind
sem gagnrýni og voru dæmd dauð
og ómerk. Málið snerist að miklu
leyti um að Sigurður lét sterkiega að
því liggja í fjölmiðlum að Skipatækni
hefði notfært sér einkarétt hans á
skipateikningum og með því svikið
loforð. Varðandi þetta atriði taldi
dómurinn ósannað að Skipatækni
hefði nýtt sér einkaleyfi hans
ómerkti dómurinn þau ummæli. Á
hinn bóginn taldi dómurinn að margt
benti til þess í gögnum málsins að
hönnun Skipatækni hefði farið ná-
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
„Ég er að hugsa mitt mál. Það er
ekki hlaupið aö því að bjóða fram í
öllum kjördæmum landsins," sagði
Jóhanna Sigurðardóttir aiþingis-
maður í samtah við DV í gær á Eski-
firði.
„Fer Ingi Björn fram með þér?“
spurði starfsmaður í rækjuvinnsl-
unni á fundi meö Jóhönnu. „Um það
hefur ekkert verið rætt,“ svaraði
Jóhanna „en það hafa ýmsir gefið sig
fram og eru reiðubúnir að taka þátt
lægt einkaleyfi Sigurðar. Því þætti
ekki tilefni til að beinlínis refsa hon-
um fyrir þau.
Forsvarsmenn Skipatækni hf.
sögðu við réttarhöldin að Sigurður
hefði með ummælum sínum vegið á
ósvífinn hátt að mannorði fyrirtæk-
isins. Varðandi skaðabótakröfu í
málinu taldi Skipatækni varlega
áætlað að ijártjón vegna ummæla
Siguröar hefði numið 15 milljónum
króna. Veltan hefði minnkað um 13,6
milljónir á árs tímabih. Skaðabóta-
krafan nam hins vegar 5 milljónum
króna - hún væri því hóflega áætluð.
Þetta féllst dómurinn hins vegar ekki
á. Ekkert haldbært og rökstutt hefði
komið fram í málinu hjá Skipatækni
í framboði." Á fundinum sagði Jó-
hanna að hún væri hlynnt því að
flytja þjónustuverkefni frá ríkisvald-
inu yfir til sveitarfélagana. Fundur-
inn var fjörugur og starfsfólk rækju-
vinnslunnar framlengdi kaffitíma
sinn vegna komu Jóhönnu. „Við vilj-
um hafa tveggja flokka kerfi hér á
landi og demókrata í stjóm,“ sagði
Benedikt Halldórsson og greinilegt
að Jóhönnu líkaði það vel.
Jóhanna heilsaði upp á Hrafnkel
A. Jónsson, verkalýðsleiðtoga og
varaþingmann Sjálfstæðisflokksins,
sem gæfi tilfefni til að dæma fyrir-
tækinu skaðabætur.
Eins og að framan greinir var
skaðabótakrafa vegna tapaðra við-
skipta ekki tekin til greina. Vegna
ummælanna sem voru dæmd dauð
og ómerk var Sigurður dæmdur til
að greiða fyrirtækinu 250 þúsund
króna miskabætur, 100 þúsund krón-
ur í kostnað við að birta niðurstöðu
dómsins „í opinberu blaði", 200 þús-
und krónur í málskostnað. Refsingin
telst hins vegar 50 þúsund krónur
sem Sigurður er dæmdur til að
greiða í ríkissjóð.
á Eskifirði. Er fréttamaður vildi fá
mynd af þeim saman sagði Hrafnkell.
„Maður verður víst að passa sig á
að láta sjá sig opinberlega með þér,
Jóhanna, það gæti misskilist". „Hvað
er þetta maður, hvað áttu við? Held-
urðu að þú komir bara ekki með mér
í sameiginlegt framboð ásamt öðrum
jafnaðarmönnum á íslandi og vinnir
þannig í þágu jafnaðarstefnunnar?"
sagði Jóhanna þá. „Ja, það er aldrei
að vita - best ég hugsi málið,“ sagði
Hrafnkell.
Fréttaritari spurði Jóhönnu hvem-
FormaðurHSÍ:
Allir einhuga
um að leita
allra leiða
„Allir á fundinum voru einhuga
um að hvetja yfirvöld til að berj-
ast í þessu og leita allra leiða til
að koma þessu húsi upp. í SÍ hefur
tekið ákveðna forystu í þessu
máli því þetta er ekki bara hand-
boltamál. Meiningin er að kanna
alla möguleika á að afla fiár-
magns og tala við ýmsa aðila, til
dæmis forsvarsmenn þeirra fyr-
irtækja sem standa að sýningum,
og benda á hvaða gagn mætti
hafa af þessu húsi,“ segir Ólafur
Schrara, formaður Handknatt-
leikssambands íslands, HSÍ.
Gert er ráð fyrir að forsvars-
menn ÍSÍ láti gera notkunaráætl-
un og raunhæfa byggingaráætlun
áður en ákveðið verður meö nýja
íþróttahöll í Laugardal en tals-
verð ftmdahöld hafa verið um
byggingu nýrrar sýninga- og
íþróttahallar við hliðina á Laug-
ardalshöll innan íþróttahreyfing-
arinnar og hjá borgarverkfræð-
ingi í gær þar sem þessi mál hafa
verið rædd.
Menntamálai'áðherra:
Algjörrang-
túlkun og und-
arleg viðbrögð
„Mér þykjaþessi viðbrögð nnd-
arleg og óþarflega hörð og algjör
rangtúlkun að það sé verið að lít-
ilsvirða starf fomleifanefndar
eða fomleifadeildar Þjóðminja-
safnsins. Það er auðvitað ráðu-
neytisins að ákveða hvaða sér-
fræðing það fær til að kanna þetta
mál og það var okkar mat að eðli-
legast væri að það yrði sérfræð-
ingur sem ekkert hefði komið að
þessu máli,“ segir Ólafur G. Ein-
arsson menntamálaráðherra.
í DV í gær kemur fram að Krist-
inn Magnússon, forstöðumaður
Nesstofusafns, hefur verið feng-
inn til að skoðabyggingu torfbæj-
ar á Hrafnseyri við Arnarfjörð
að tilstuðlan menntamálaráðu-
neytisins og að Vilhjálmur Örn
Vilhjálmsson, fornleifafræðingur
á Þjóðminjasafni, teiji að ráðu-
neytið geri lítiö úr þeim sem eigi
að sjá um þessi mál.
Samkvæmt upplýsingum DV
fór Kristinn Magnússon til
Hrafnseyrar strax á miðvikudag
og er búist við honum til Reykja-
víkur í dag. Gert er ráð fyrir að
haim skili ráðherra skýrslu sinni
mjög fljótlega.
ig viðtökurnar heföu verið og hún
svaraði.
„•Viðtökurnar hafa verið afar góð-
ar, hvort heldur hefur átt í hlut al-
þýðuflokksfólk eða almenningur á
vinnustöðum. Ég hef fundið veruleg-
an hljómgrunn fyrir samfylkingu
jafnaðarmanna. Ég mun ekki leggja
mat á framboð fyrr en að loknu
ferðalagi um landið. Það er mikið
átak að fara í sérframboð."
Unnið er á fullu við endurbætur á Laugardalshöll og er þessa dagana verið að leggja flísar á gólf í aðalanddyri
Hallarinnar og á salernum í kjallara. Verið er að endurbæta loftræstingu og Ijós I keppnissalnum og hafa arkitekt-
ar endurskipulagt áhorfendapallana þannig að 4.200 áhorfendur komist inn I Höllina. Starfsmenn borgarverkfræð-
ings hafa auglýst eftir tilboðum i sæti og stæði í Höllinni og verður tekin ákvörðun um hvaða tilboði verði tekið eftir
að Ijóst verður hvort HM ’95 fer fram i Laugardaishöll eða ekki. Kostnaður við verkið er um 80 milljónir króna.
DV-mynd BG
Jóhanna Sigurðardóttir á Eskifirði:
Það er mikið átak að
fara í sérframboð