Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 Neytendur „Útíræktin er komin í fullan gang og gæöin á grænmetinu hafa ekki verið meiri í mörg ár. Kína- kál, blómkál og spergilkál er með þvi allra fallegasta sem ég hef séð. Tíðarfarið hefur verið mjög hagstætt i sumar, hlýtt og bjart,“ segir Kolbeinn Ágústsson hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Hann segir kínakálið vera að koma á fullu á markað og veröið á því sé á hraðri niöurleið. Að sögn Kolbeins verður hægt aö anna eftirspurn á íslensku kína- káli fram í janúar og á blómkáli fram í nóvember, allt eftir því hversu góðar geymslur menn hafl. Uppskera á rófum ætti að verða mjög góð. Metupp- skera á kartöfl- um? Allt bendir nú til þess að upp- skeran á kartöflum verði sú besta í mörg ár og útlit er fyrir að birgð- ir muni endast fram að nýrri uppskeru á næsta sumri, Spurn- ingin er hvort bændur hafi nægi- lega góðar geymslur til þess að geyma kartöflurnar svo lengi. Bændur eru nú í óða önn að taka upp kartöflur og anna sölu- aðilar ekki enn eftirspurn. Að- eins er fljótsprotnasta afbrigðið, sk. premier afbrigði, komið upp úr jörðinni og þrátt fyrir að heill mánuður sé eftir af vaxtartíma- bili kartaflna eru menn þegar farnir að tala um mctuppskeru. Næturfrost á næstu \dkum getur þó sett strik í reikninginn. munur í könnun, sem DV geröi í gær á verði á íslenskum kartöflum, má sjá að 92% munur er á hæsta og lægsta verði á kílói. Bónus selur kartöflurnar ódýrastar á 129 krónur en dýrastar eru þær f Garðakaupum, 248 kr. kg. areru Um þetta leyti ár hvert keppast verslanimar í landinu við að bjóða sem bestar útsölur. Áriö í ár er engin undantekning og þessa dagana eru neytendur að- eins farnir að sja útsöluskiltun: um bregða fyrir í gluggum. í Kringhtnni eru flestar stærri verslanirnar farnar af staö en einhverjar hyggjast bíða þar til eftir verslunarmannahelgi. Þar á bæ miöa menn jafnan við að byrja ekki fyrr en eftir 11. júlí en á Laugaveginum er ekki um neitt slikt samráö að ræða. Þar gildir lögmálið um að „efein kýrin piss- ar þá pissa hinar lika“, eins og verslunarmaður á Laugavegin- um orðaöi það. Nú þegar nokkrar hafa byrjaö má búast við að aörar fylgi í kjölfariö. Yfirlýst markmið 10 -11 að vera lægri en Hagkaup Matarkarfan samt ódýrari í Hagkaupi - munurinn þó aðeins 6 krónur Þrátt fyrir yfirlýst markmiö 10-11 að bjóða upp á lægra verð en Hag- kaup hefur Hagkaup vinninginn þeg- ar kemur að því að reikna hvað mat- arkarfa kostar í könnun sem DV gerði í verslununum tveimur á mið- vikudag. Ótrúlega litlu munar, 6 krónum, og þrátt fyrir dýrari körfu er 10-11 með lægra verð í 14 tilvikum af 22. Hagkaup er þrisvar ódýrara og fimm sinnum er verðið það sama. Matarkarfan í Hagkaupi kostar 5259 krónur en 5265 í 10-11. 14sinnum innan við 1 % munur í þeim tilvikum þar sem Hagkaup var dýrara munar mestu á 2 kg af Ariel Color þvottadufti, 9 krónum. Mesti verðmunurinn í allri könnun- inni var Hagkaupi í hag. Pítubrauð- ið, Jakobs píta, var 15 krónum dýr- ara í 10-11. Athyglisvert er hversu litlu munar á verði í verslununum tveimur og vel fylgst með í 10-11 að fara ekki upp fyrir Hagkaup. í alls 14 tilvikum er munurinn innan viö Verðkönnun í Hagkaupi og 10-11 Vörutegund Hagkaup 10-11 %mism. Bananar, 1 kg 128 138 7,8 Kók, 21 155 154 0,65 Cheerios, 425 g 239 239 0 Frón mjólkurkex 105 104 0,96 River hrísgrjón, 907 g 159 158 0,63 Bláberjaskyr, 500 g 137 137 0 Ömmupitsur m/skinku 395 395 0 Smjörvi, 300 g 124 123 0,81 Pamper's Dry Boy, 8-18 kg, 36 stk. 899 898 0,11 Hreinól uppþvottalögur, 0,51 96 95 1 Ariel Color þvottaduft, 2 kg 698 689 13 Sykur, 1 kg 64 64 0 Pylsubrauð, Samsölu 77 77 0 Ýsuflök, 1 kg 518 515 0,58 Grænarbaunir, !4,Ora 46 44 4,54 SS-sinnep, 200 g 54 53 1,88 Colgate Total tannkrem, 75 ml 169 168 0,59 Pítubrauð, Jacob's pita, hveiti 133 148 11,28 Dömubindi, Libresse Normal, 20stk. 319 318 0,14 Freyju rískubbar, 12 stk. 161 159 1,26 El Marino kaffi, 500 g 205 213 3,9 Nýjar ísl. kartöflur, 2 kg 378 376 0,53 DV gerði verðkönnun á Kringlusvæðinu; í 10-11 og í Hagkaupi. 1%, þar af er munurinn 1 króna í sjö skipti. í þau fáu skipti sem Hagkaup er lægra er munurinn meiri, 8 krón- ur, 10 krónur og 15 krónur. Mesti verðmunurinn á því sem var skoðað var á nautakjöti en þar eð hægt hefði verið að halda því fram að ekki væri um nákvæmlega sömu afurð að ræða var ákveðið að sleppa því í útreikn- ingum. Kílóið af nautakjöti í Hag- kaupi, 8-12% fituinnihald, kostaði 689, en í 10-11 kostaði kílóið 599 krón- ur. Þar var sagt í innihaldslýsingu að um nautgripakjöt væri að ræða. Verðmunurinn er 15%. 22 vörutegundir Könnunin var annars gerð með þeim hætti að ákveðið var að kanna verð á Kringlusvæðinu og það haft í huga að yfirlýsingar hafa verið gefn- ar út af hálfu 10-11 um að hafa ætíð lægra verð en Hagkaup. Teknar voru 22 vörutegundir og í öllum tilvikum er um sama framleiðanda að ræða. Ekkert mat var lagt á gæði ýsunnar, banananna og kartaflanna að öðru leyti en því að útlitið var gott. - rjúfa útsendingu fréttatengdra þátta með auglýsingum? Starfshópur Neytendasamtakanna um íjölmiðla og auglýsingar kemst að þeirri niðurstöðu í nýlegri skýrslu að báðar sjónvarpsstöðvarnar brjóti lög með því að rjúfa fréttatíma eða fréttatengda þætti með auglýsingum. Stöð 2 rjúfi útsendingu á 19:19 og sjónvarpið hafi rofið útsendingu Dagsljóss og hvort tveggja brjóti í bága við 4. gr. útvarpslaga (2. mgr.) þar sem segir að auglýsingar skuli fluttar í sérstökum almennum aug- lýsingatímum á milh dagskrárliða. í 4. málsgrein segir að óheimilt sé „að skjóta auglýsingum inn í útsendingu á guðsþjónustu eða trúarlegri dag- skrá, fréttum eða fréttatengdum dag- skrárliðum eða dagskrá fyrir börn.“ Duldar auglýsingar í skýrslu starfshópsins segir að útvarpsstöðvar hafi að sínu leyti þann sið að rjúfa útsendingu frétta- tengdra þátta til þess að koma að auglýsingum en að þar sé stuðst við mun ríkari hefð en um sé aö ræða í sjónvarpi. Það virðist engu að síður stangast á við ákvæöi útvarspslaga. í niðurstöðum skýrslunnar er sagt að ákvæði útvarpslaga um bann við duldum auglýsingum sé iðulega brot- ið. Algengt sé að auglýsendur öðlist aðgang að notendum fjölmiðla í miðj- um dagskrárliðum með gjafir, verð- laun og þess háttar. A það er og bent að bein þátttaka utanaðkomandi að- ila í kostnaði vegna dagskrárgerðar sé vandmeðfarin og geti haft óæski- legar afleiðingar. Breyta þarf lögum Starfshópur Neytendasamtakanna telur nauðsynlegt að eftirlit með framkvæmd útvarpslaga verði eflt og að eftirlitsaðilum verði gert kleift að taka á málum að eigin frum- kvæði. Tryggja þurfi að úrskurðir til þess bærra aðila séu ávallt birtir opinberlega. Ennfremur telur hópur- inn að eyða verði allri óvissu um ákvæði um aðskilnað auglýsinga og annars efnis fjölmiðla. Þau séu neyt- endum afar mikilvæg. Hugsanlegt sé, í einhverjum tilvikum, að breyta þurfi lögum til þess að hleypa að auglýsingum í dagskrá sem tekur nokkrar klukkustundir. Þess þurfi þó að gæta að það gerðist sem sjaldn- ast og þá aðeins þegar dagskráin sé brotin upp að öðru leyti. ---w, Islenskar kartöflur B Hæsta Næst □ Lægsta lægsta Vinningshafi í áskriftargetraun DV: Nýorðinn áskrifandi Þorsteinn segist vera nýr áskrifandi að DV og vinningurinn komið þægi- lega á óvart. „Þetta kemur sér að sjálfsögðu vel. Matarinnkaupin eru stór póstur hjá okkur eins og víðar og við munum njóta þess að geta farið í 10-11 og verslaö án þess að borga,“ sagði Þor- steinn A: Ólafsson, enn einn heppinn vinningshafi í áskriftargetraun DV. Hann hlýtur 30 þúsund króna úttekt hjá 10-11. „Við erum að kaupa okkur íbúð, ég og kærastan, og höíúm ekki fengið vinning af þessu tagi áður. Við erum nýorðnir áskrifendur svo þetta er enn ánægjulegra fyrir vikið.“ Þorsteinn starfar hjá Alaska og fer og kaupir inn hjá 10-11 að vinnudegi loknum. Garöa- kaup Fjarðar- kaup Bónus Verslanir í könnuninni Hagkaup(189) Bónus(129) Fjarðarkaup (179) Garðakaup (248) Nóatún (229) 10-11 (188) Kjöt og fiskur (209) rsxtjJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.