Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Page 17
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994
25
n sjást Stefán Arnarson, markvörður FH,
DV-myndir Brynjar Gauti
óðst
lina
tjafntefllgegnÍA
og það þýddi ekkert að fara að selja sig
gegn þeim. En við verðum að bæta okk-
ur, það er alveg ljóst,“ sagði Ólafur H.
Kristjánsson, fyrirliði FH, við DV.
Skagamenn voru lengi í gang en eftir
að þeir urðu manni fleiri fékk Sigur-
steinn Gíslason frelsi vinstra megin sem
hann nýtti sér vel í samvinnu við Har-
ald Ingólfsson. Það var hrein og klár
óheppni að þeirra vinna skyldi ekki skila
mörkum.
„Okkur skorti
ekki færin“
„Okkur skorti ekki færin, viti, einir á
móti markmanni, og allt þar á milli, og
það hefði átt að duga til að skora eitt
mark. Við réðum ferðinni allan leikinn
en maður var hræddur við skyndiupp-
hlaupin þeirra. Ég er ánægður með
spilamennskuna að mörgu leyti, við vor-
um á fullu tempói allan leikinn en það
var hrikalegt að geta ekki skorað eitt
helv. mark,“ sagði Hörður Helgason,
þjálfari ÍA.
___________________________íþróttir
Sumarliði með f imm
- Eyjamenn léku Þórsara sundur og saman og sigruðu, 6-1
Þorsteinn Gunnarsson, DV, Eyjum;
„Ég held að það sé bara ekki í lagi
með mig. Ég hefði frekar viljað dreifa
þessu niður á nokkra leiki. Það er
erfitt að lýsa tilfmningunni, ég er
bara ekki búinn að átta mig á þessu
ennþá. Ég skoraði nokkrum sinnum
fimm mörk í leik í 4. deildinni en ég
lét mig aldrei dreyma um að gera það
í 1. deild. Þetta er búið vera stórt
stökk úr 4. deild í 1. deild. En ég er
farinn að aðlagast hraðanum og þá
láta mörkin ekki á sér standa. Ég gef
engar yfirlýsingar um markakóngs-
titil, mér finnst það svo fjarri raun-
veruleikanum. Það var loksins að
allt small saman hjá okkur og nú
tökum við stefnuna upp á við,“ sagði
Sumarliði Ámason, hinn hógværi
framherji ÍBV, sem gerði sér lítið
fyrir og skoraði fimm mörk í 6-1 sig-
urleik ÍBV á Þórsurum.
Sigur Eyjamanna var dýrkeyptur
því að tveir varnarmenn, Magnús
Sigurðsson og Heimir Hallgrímsson,
fengu rauða spjaldið hjá umdeildum
dómara leiksiifs, Gylfa Orrasyni.
Þeir verða í leikbanni ásamt Bjarn-
ólfi Lárussyni og Dragan Mano-
jolovic gegn Grindavík í bikarnum á
mánudaginn.
Það var allt annað að sjá til ÍBV-
liðsins en í undanfórnum leikjum.
Þórsarar vom hins vegar ótrúlega
slakir og með ólíkindum að þarna
væri 1. deildar lið á ferð. Þeir léku
án þriggja lykilmanna, þeirra Lárus-
ar Orra Sigurðssonar, Ólafs Péturs-
sonar og Dragan Vitorovic og var
leikur hðsins hvorki fugl né fiskur.
Sóknin byggðist á kýlingum fram á
völhnn og vörnin var mjög ótraust
með hinn unga og óreynda markvörð
Brynjar Davíðsson fyrir aftan sig.
Þórsarar léku leikmanni færri
nærri allan síðari hálfleik eftir að
Júlíus Tryggvason fékk að líta rauða
spjaldið. Eyjamenn léku framar á
velhnum en þeir hafa gert í undan-
fömum leikjum og voru drjúgir að
senda stungusendingar inn fyrir
vömina þar sem Steingrímur og
Sumarhði vom sífelld ógnun og í
banastuði. Steingrímur skoraði eitt
og átti þátt í tveimur.
Yfirburðir Eyjamanna vora mikhr
í leiknum enda vora leikmenn liðsins
staðráðnir í því að vinna sér inn
punkta hjá þjálfaranum fyrir þjóðhá-
tíðina th að geta tekið þátt í gleðinni
í Herjólfsdal! Sumarhði, markakóng-
ur íslandsmótsins í fyrra í 4. deild,
með 32 mörk, sýndi og sannaði að
hann er th alls líklegur í 1. dehd-
inni. Hann naut einnig góðs hraða
Steingríms sem átti stórkostlegan
leik. Zoran Ljúbicic átti frábæran
leik á miðjunni og Jón Bragi var út
um allan vöh. Allt Eyjahðið á hrós
skilið fyrir frammistöðuna sem lofar
góðu um framhaldið.
Hjá Þórsurum var fátt um fina
drætti. Guðmundur Benediktsson
var sá eini sem var með lífsmarki
og hinn fertugi Eiríkur Eiríksson,
sem kom í markið í seinni hálfleik,
sýndi að hann er ekki dauður úr öh-
um æðum og varði oft mjög vel.
„Það er ekkert um þetta að segja.
Þetta var svo lélegt að það segir sig
sjálft," sagði Sigurður Lárasson,
þjálfari Þórs.
„Það er ekki hægt að komast neðar
en þetta. Við verðum virkilega að
taka okkur saman í andlitinu ef við
eigum ekki að falla,“ sagði Júlíus
Tryggvason, leikmaður Þórs.
Pétur Pétursson, þjálfari Keflvíkinga:
„Megum þakka
fyrir að ná
jöf nu í restina"
- ÍBK og Valur skildu j öfn
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
„Við vorum mjög slakir í síðari
hálfleik en þá var eins og menn héldu
að þetta myndi koma af sjálfu sér.
Það var slæmt að fá á sig fyrsta
markið í upphafi síðari hálfleiksins.
Við sphuðum vel í upphafi leiks en
ég tel að við megum þakka fyrir að
við náðum að jafna í restina,“ sagði
Pétur Pétursson, þjálfari Keflvík-
inga, eftir 3-3 jafntefli við Val í fjör-
ugum leik í Trópídeildinni í Keflavík
í gærkvöldi.
Bæði hðin þurftu á sigri að halda.
Valsmenn eru nú í næstneðsta sæt-
inu og Keflvíkingar í því þriðja, og
hefðu getað nálgast efstu hðin meö
sigri.
Keflvíkingar voru miklu ákveðnari
framan af og Valsmenn náðu aldrei
að ógna marki þeirra fyrr en langt
var liðið á fyrri hálíleikinn og náðu
sér aldrei almennilega á strik. Ragn-
ar Margeirsson náöi að koma Kefl-
víkingum yflr, 1-0.
Það besta sem gat hent Valsmenn
var að skora í upphafi síðari hálf-
leiks, og það gerði Eiður Smári
Guðjohnsen. Óh Þór kom Keflavík
yfir á ný, 2-1, en þá var Davíð Garð-
arsson færður framar á vöhinn með
þeim árangri að hann skoraði tvíveg-
is á aðeins 12 mínútum og kom Val
í 2-3. Ragnar náði síðan að jafna með
sínu ööru marki undir lokin.
Valsmenn vora miklu ákveðnari í
síðari hálileik og bratu Keflvíkinga
niður en þeir náðu ekki að fylgja eft-
ir góðum fyrri hálfleik.
„Við bókstaflega hættum í lokin og
vorum ekki nógu nálægt þeim þegar
þeir jöfnuðu. Við hefðum átt að vinna
leikinn," sagði Guöni Bergsson, fyr-
irliði Valsmanna, sem hélt upp á 29
ára afmælið í gærkvöldi.
ÍBK-Valur
(1-0) 3-3
1-0 Ragnar Margeirsson (34.) fékk boltann frá Óla Þór og sendi hann út
við stöng.
1- 1 Eiður Smári Guöjohnsen (49.) fylgdi vel eftir þegar Ólafur Gottskálks-
son, markvörður ÍBK, ætlaði að sparka boltanum í burtu en hitti hann ekki.
2- 1 Óli Þór Magnússon (68.) fékk boltann frá Marko Tanasic í vítateignum
eftir góða fyrirgjöf Ragnars Steinarssonar og skoraði.
2-2 Davíð Garðarsson (74.) náði að stýra boltanum yfir Ólaf markvörð
eftir góða sendingu inn í vítateig frá Jóni Grétari Jónssyni.
2- 3 Davíð Garðarsson (84.) með skalla eftir stórgöða sendingu frá Jóni
Grétari frá hægri.
3- 3 Ragnar Margeirsson (89.) var fljótur að afgreiða boltann í markið eftir
góða fyrirgjöf Róberts Sigurðssonar frá hægri.
Lið ÍBK: Ólafur Gottskálksson - Kristinn Guöbrandsson (Sigurður Björg-
vinsson 55.), Jóhann Magnússon, Karl Finnbogason, Gestur Gylfason (Ró-
bert Sigurðsson 79.) - Marko Tanasic, Gunnar Oddsson, Ragnar Margeirs-
son, Ragnar Steinarsson - Óli Þór Magnússon, Kjartan Einarsson.
Lið Vals: Lárus Sigurðsson - Guðni Bergsson, Davíö Garðarsson, Kristján
HaUdórsson - Sigurbjöm Hreiðarsson (Bjarki Stefánsson 72.), Ath Helga-
son, Hörður Már Magnússon, Ágúst Gylfason, Jón Grétar Jónsson - Krist-
inn Lárusson, Eiður Smári Guðjohnsen.
ÍBK: 10 markskot, 6 hom. Valur: 7 markskot, 3 hom.
Gult spjald: Jón Grétar (Val).
Dómari: Jón Siguijónsson, dæmdi mjög vel.
Áhorfendur: 460.
Skilyrði: HM-veður, sól og blíða en smágola þegar líða tók á leikinn, völlur-
inn mjög góður.
;.V,v Ragnar M. (ÍBK), Davíð (Val).
(v Jóhann M. (ÍBK), Kristinn (ÍBK), Ragnar S. (ÍBK), Gunnar (ÍBK),
________Guðni (Val), Kristján (Val), Eiður Smári (Val), Jón Grétar (Val).
Maður leiksins: Ragnar Margeirsson (ÍBK). Skoraði tvö mörk og étti sinn
besta leik í sumar. Griðarlega sterkur i návígjum og hélt boltanum vel.
Fékk sjálfstraustið sem hann hefur vantað i sumar.
KR-ingar með
10 heimaleiki
án sigurs
- Breiðablik vann í Frostaskjóli, 0-1
Þórður Gisiason skri&r:
„Eg er mjög ánægður með sigur
okkar hér i kvöld og ég held að
fæstir hafi átt von á þessum úrslit-
um, strákarnir höfðu trú á því sem
þeir voru að gera og uppskáru eftir
þvi. Við gáfum þeim eftir miðjuna
en nýttum okkur skyndisóknir og
gerðum eitt mark, og það er nóg th
að vinna leik,“ sagði Ingi Bjöm
Albertsson, þjálfari Blika, eftir að
lið hans hafði lagt KR-inga í Frosta-
skjóii. 0 1.
Það verður að teljast athyglisvert
að KR-ingar hafa enn ekki unnið
leik á heimavelli í íslandsmótinu
það sem af er, og hafa aðeins gert
eitt mark en þetta var tíundl leikur
þeirra á heimavelli í röð i íslands-
mótí án sigurs, en síðast unnu þcir
þar þann 30. júní 1993.
Leikurinn fór rólega af staö en
Porca átti góðan skalla að marki
Blika á 6. mín. sem Guðmundur
varði vel og átta mínútum seinna
átti Kristófer skot í stöng á marki
KR-inga úr góðu færi. Liðin ógnuðu
svo marki hvors annars þar th
Blikar náðu að gera mark og var
þar að verki Rastíslav Lazorik eftíi’
vel útfærða sókn. Aöeins mínútu
siðar átti Arnar Grétarsson gott
skot í stöng.
KR-ingar hófu siðari háhleikinn
af miklum krafti og áttu nokkur
góð skot að rnarkí Blika en vörn
Blika hélt vel. Þrátt fyrir að KR-
ingar stjórnuðu leiknum það sem
eftir lifði og væru meö boltann nán-
ast allan tímann náöu þeir ekki að
skapa sér næg færi og áttu Bhkar
mjög hættulegar skyndisóknir. En
Kristján Finnbogason varði mjög
vel í tvígang um miðjan hálfleik-
inn.
Hjá KR-ingum var meðalmennsk-
an ráðandi, þeir téngu nægt svæðí
úti á velli tíl aö spila boltanum og
gerðu það en náðu, eins og áður er
sagt, ekki að búa til nógu góð mark-
tækifæri. Kristján Finnbogason
var þeirra besti maður og má
kannski segja að hann hafi bjargað
þeim frá stærra tapi.
Hjá Breiðabliki léku alhr vel,
vörnin var geysilega sterk með Úlf-
ar sem besta mann, miðjuraennirn-
ir sivinnandi og Lazorik duglegur
frammi. En þó lék enginn eins vel
og Arnar Grétarsson sem lék
hreint frábærlega.
11. DEILD KARLA
í FÓTBOLTA
Akranes......10 6 3 1 16-4 21
FH...........10 5 3 2 8-5 18
Keflavik.....10 3 6 1 17-11 15
Fram.........10 3 5 2 17-16 14
KR...........10 3 3 4 13-8 12
ÍBV..........10 2 5 3 12-11 11
UBK..........10 3 2 5 10-22 11
Þór..........10 2 4 4 16-18 10
Valur........10 2 4 4 11-19 10
Stjaman......10 1 5 4 9-15 8
Markahæstir: _
Bjarni Sveinbjömsson, Þór......8
Óli Þór Magnússon, ÍBK.........7
Súmarllði Arnason, ÍBV........„7
Mihajlo Bibercic, IA...........6
Helgi Sigurðsson, Fram..........6
Leifur G. Hafsteinsson, Stjörn.5
ÍSLANDSMÓTIÐ
1. DEILD KVENNA
MIZUNO-DEILDIN
Laugardag 23. júlí
kl. 14.00
Hlíðarendi
Valur - KR
Akranes
ÍA - Dalvík
kl. 16.00
Egilsstaðir
Höttur - Stjarnan
Kl. 17.00
Kópavogsvöllur
UBK - Haukar