Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Page 18
26
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994
Iþróttir
„Lét boltann
vaða á markið“
- Fram í fiórða sætið eftir sigur á Stjömunni, 1-2
Jón Kristján Sigurösson skrifar:
„Það var ekki um annað að ræða
en að láta boltann vaða á markið.
Ég vissi að leiktíminn var að í]ara
út og það var góð tilfmning að sjá
boltann hafna í netinu. Við áttum
inni svona einu sinni að vinna sigur
í blálokin," sagði Framarinn Helgi
Sigurðsson sem skoraði sigurmarkið
gegn Stjörnunni í Garðabæ í gær-
kvöldi. 15 sekúndur lifðu af leiktím-
anum þegar Helgi skoraði og gerðu
Stjörnumenn ekki meira en að byrja
á miðjunni, þá gall í flautu dómar-
ans. Fram sigraði í leiknum, 1-2, og
vann þar með sinn annan sigur í röð
í deildinni og skaust fyrir vikið upp
í fjórða sætið.
Leikur liðanna var svo sem ekki
mikið fyrir augað. Framarar voru
beittari framan af fyrri hálfleik. Guð-
mundur Steinsson átti skot í innan-
verða stöngina í upphafi leiks, Gauti
Laxdal átti síðar hörkuskot sem Sig-
urður Guðmundsson varði meistara-
lega og loks átti Hólmsteinn Jónas-
son skot í þverslá úr aukaspyrnu.
Stjörnumenn komust meira inn í
leikinn án þess þó að skapa sér veru-
lega hættuleg færi. Markið, sem Leif-
ur Geir skoraði, gaf Stjörnuliðinu
gott öryggi og liðið varðist vel.
' Síðari hálfleikur hófst með svipuð-
um hætti og sá fyrri. Framarar öllu
hættulegri í sóknaraðgerðum. Birgir
Sigfússon bjargaði á marklínu eftir
aö Helgi Sigurðsson hafði vippað yfir
Sigurð markvörð. Eftir jöfnunar-
marki Fram sótti Stjarnan í sig veðr-
iö og munaði ekki miklu að Leifur
Geir bætti við öðru marki sínu þegar
skallabolti hans fór hárfint yfir
markiö.
Stjarnan fékk síðan alla möguleika
á að komast yfir þegar dæmd var
vítaspyrna eftir að Framari haföi
handleikið knöttinn innan vítateigs.
Valgeir Baldursson tók spyrnuna en
Birkir Kristinsson gerði sér htið fyr-
ir og varði. „Vinstrifótarmenn skjóta
að öllu jöfnu í 80% tilvika í vinstra
hornið. Ég sá hvað í stefndi og hafði
heppnina með mér,“ sagði Birkir sem
hafði ekki varið vítaspyrnu síðan í
leik gegn Þór 1991, þá frá Bjarna
Sveinbjörnssyni.
Varnarleikur Stjörnunnar var
sterkasti hlekkur liðsins í leiknum.
Lúðvík Jónasson og Birgir Sigfússon
voru traustir í sínum hlutverkum.
Baldur Bjarnason var einnig hættu-
legur þegar hann náði sér á strik á
vinstri kantinum. Sigurður Guð-
mundsson átti ágætan leik í mark-
inu.
„Jafntefli hefði ekki
verið ósanngjarnt"
„Þetta var opinn leikur og sigurinn
gat lent hvorum meginn sem var.
Við tókum áhættu og fengum á okk-
ur mark í staðinn. Leikurinn var
kaflaskiptur og jafntefli hefði þvi
ekki verið svo ósanngjarnt. Við lát-
um ekki deigan síga enda nóg eftir
af mótinu,“ sagði Leifur Geir hjá
Stjörnunni eftir leikinn.
Framliðið lék ekki sannfærandi að
þessu sinni. Liðið náði ágætri ógnun
á stuttum leikköflum en alla heildar-
mynd vantaði í leik liðsins. Hólm-
steinn Jónasson var yflrburðamaður
hjá Fram, barðist allan tímann og
var upphafsmaður í öllum sóknar-
aðgerðum liðsins. Gauti Laxdal á
einnig hrós skilið fyrir sitt framtak.
Sókn hðsins, sem hefur verið aðals-
merki þess í síðustu leikjum, náði sér
ekki á strik.
„Sætursigur"
„Þetta var sætur sigur með marki á
síðustu sekúndunni. Við byrjum vel,
sköpuðum okkur færi en síðari hálf-
leik lékum við illa. Síðasta sending
rataði sjaldnast á samherja. Stigin
þrjú skiptu öllu máli,“ sagði Mar-
teinn Geirsson, þjáhari Fram, í sam-
tali við DV eftir leikinn.
Baldur Bjarnason, Stjörnunni, sækir að Pétri Marteinssyni sem bægir hættunni frá. DV-mynd Brynjar Gauti
Stjaman-Fram
(1-0) 1-2
1-0 Leifur Geir Hafsteinsson (35.). Fékk sendingu inn fyrir vörn Fram einn
og óvaldaður, lék síöan boltanum áfram og skaut framhjá Birki í hægra
hornið.
1-1 Gauti Laxdal (56.). Hólmsteinn tók hornspyrnu, lagði boltann til Gauta
sem skaut viðstöðulausu skoti fyrir utan vítateig og hafnaði boltinn í blá-
horninu.
1-2 Helgi Sigurðsson (90.). Upp úr innkasti barst boltinn til Helga, sem var
staddur rétt fyrir utan teig, lét umsvifalaust vaða á markið, óverjandi skot.
Lið Stjömunnar: Sigurður Guðmundsson - Ottó K. Ottósson, Hermann
Arason (Ingólfur Ingólfsson 70.), Goran Micic, Lúðvik Jónasson, Birgir Sigf-
ússon - Baldur Bjarnason, Ragnar Gíslason, Valgeir Baldursson - Bjami
Sigurðsson, Leifur Geir Hafsteinsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson - Helgi Björgvinsson, Pétur Marteinsson,
Ágúst Ólafsson, Gauti Laxdal - Steinar Guðgeirsson, Kristinn Hafliðason,
Hólmsteinn Jónasson, Guðmundur Steinsson (Valur Fannar Gíslason 63.)-
Ríkharður Daðason, Helgi Sigurðsson.
Stjarnan: 7 markskot, 4 hom. Fram: 10 markskot, 7 horn.
Gul spjöld: Hermann (Stjaman), Baldur (Stjaman), Lúðvik (Stjarnan),
Ragnar (Stjarnan), Pétur (Fram), Gauti (Fram).
Rautt spjald:Enginn.
Dómari: Kristinn Jakobsson, stóð sig vel.
Áhorfendur: Um 300.
Skilyrði: Milt fallegt kvöldveður en völlurinn mjög slæmur, ósléttur og
vart boðlegur 1. deildar leik.
>Xv Hólmsteinn (Fram).
'v Sigurður (Stjörnunni), Lúðvík (Stjörnunni), Baldur (Stjörnunni).
_______Gauti (Fram), Birkir (Fram), Helgi (Fram).______________
Maður leiksins: Hólmsteinn Jónasson (Fram). Sýndi geysilega góða bar-
áttu frá upphaft til enda. Mjög hugmyndaríkur í sóknarleik liðs síns.
Leiðrétting frá Ólafi B. Schram
Ólafur B. Schram, formaður HSÍ,
hefur sent íþróttadeild DV eftirfar-
andi bréf:
Vegna frétta af húsnæðismálum í
Laugardal, og þá sérstaklega fyrir-
sögn í DV á íþróttasiðu í gær, en þar
segir: „Ætlum okkur að byggja hús
fyrir 270 milljónir", vildi ég koma
eftirfarandi á framfæri:
Sjálfsagt er þessi fyrirsögn rétt eft-
ir mér höfð og ætla ég ekki að rengja
fréttamenn DV. Hins vegar hefur
mér verið bent á það af borgaryfir-
völdum að að því er segir í sam-
þykkt borgarráðs: .....að þvi til-
skyldu að HSÍ geti tryggt þátttöku
ríkisvaldsins og annarra aðila vegna
byggingarinnar með samsvarandi
flárframlagi", þýði það að borgin
fari ekki út í byggingarframkvæmd-
ir á húsi sem áætlanir benda til aö
kosti 540 milljónir, án framlags frá
ríkinu.
Ég vil biðjast afsökunar á mistúlk-
un minni á þessari setningu og jafn-
framt árétta að það verður að sjálf-
sögðu alfarið í höndum borgarinnar
að byggja, komi til þess.
Hins vegar má bæta því við að
HSÍ, íþróttahreyfingin og borgin
sjálf eru að leita allra leiða til lækk-
unar á 540 milljónunum.
Golfklúbbur Sauöárkróks:
Einar Bjarni og
Árný Lilja unnu
-1 opna Flugleiðamótinu 1 golfi
Opna Flugleiðamótið í golfi var Kjalarness. Forráðamenn Golf- • AndreaÁsgrímsdóttirGA171högg
haldið á Hliðarendaveih Golf- klúbbs Sauöárkróks vildu koma á Sólveig Skúladóttir GH 200 högg
klúbbs Sauðárkróks um síðustu framfæriþakklætitilFlugleiðafyr- Konur með forgjöf:
helgi. Keppt var í karla-, kvenna- ir rausnarlegan stuðning. ÁmýLiljaÁrnadóttirGSSl45högg
og unglingaflokkum, með og án Úrslitin urðu þessi: Halla B. Eriendsdóttir GSS 147
forgjafar. Kariar án forgjafar: högg
Einar Bjarni Jónsson, Goliklúbbi Einar Bjarni Jónsson GKJ156 högg Andrea Ásgrímsdóttir GA149 högg
Kjalarnoss, bar sigur úr býtum í Eiríkur Haraldsson GA 157 högg Unglingar án forgjafar:
karlaflokkiogÁrnýLiljaÁrnadótt- Guðjón B. Gunnarsson GSS 162 Örvar Jónsson GSS 156 högg
ir, Golíklúbbi Sauðárkróks, sigraði högg Gunnlaugur Erlendss. GSS 160
í kvennaflokki. Þau hlutu að laun- Karlar með forgjöf: högg
um Evrópuferð með Flugleiðum og Eiríkur Haraldsson GA 139 högg Kári Emilsson GKJ 164 högg
aörir verðlaunahafar hlutu innan- Kristján Guðjónsson GH 142 högg Unglingar með forgjöf:
landsferð með Flugleiðum. Einar Örn Jónsson GÓS 144 högg Davíö Már Jónsson GKJ 128 högg
Alls tóku um 100 kyifingar þátt í Konur án forgjafar: Eggert Jóhannsson GA 128 högg
mótinu, þar af um 30 frá Golfklúbbi Árný Lilja Ámadóttir GSS169 högg Örvar Jónsson GSS 134 högg
Örn Ævar í tíma
hjá Ledbetter
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Örn Ævar Hjartarson, ungur kylf-
ingur úr Golfklúbbi Suðurnesja, fór
í mikla ævintýraferð til Bretlands í
síðustu viku þegar Evrópumóti ungl-
inga lauk en þar keppti hann með
íslcnska liðinu.
Einum ungum spilara frá hverju
Evrópulandi var boöið að koma og
fylgjast með opna breska meistara-
mótinu og jafnvel að fá að fylgjast
með bestu kylfingum heimsins við
æfingar. Þá var slegið upp móti fyrir
unglingana og gerði Ævar Örn sér
lítiö fyrir og sigraði, lék á 75 og 72
höggum en spilað var á tveimur völl-
um.
Verðlaunin fyrir sigurinn voru
einkatími hjá frægasta golfkennara
heimsins í dag, David Ledbetter, sem
hefur m.a. þjálfað Nick Faldo og ný-
bakaðan sigurvegara á opna breska
mótinu, Nick Price.
Einherjamót f golfi
á Akureyri
Hið árlega Einherjamót í golfi
verður háð á golfvelli Golfklúbbs
Akureyringa á morgun, laugardag,
og verður ræst út frá kl. 8.30-9.30 um
morguninn.
Mótið er punktamót og eru allir
þeir sem hafa farið holu í höggi full-
gildir þátttakendur. Fyrir þá ein-
herja sem ætla að taka þátt í lands-
móti, sem hefst á sama golfvelli dag-
inn eftir, er þetta mót góð æfing.