Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Side 5
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994 5 Laugavegi 178 Kvöldveröartilbod vikuna 22/7-29/7 * Eldsteikt humarkjöt í estragonrjómasósu * Glóðað lambafillet m/villtum jurtum og piparsoðsósu * Isdúett m/hnetum og ávöxtum Kr. 1.950 Borðapantanir í síma 88 99 67 Halla Einarsdóttir, verðlaunahafi í grilluppskriftasamkeppninni, vildi ekki láta mynda sig við gamla kola- grillið og því fékk ívan Bjarni Jóns- son, tveggja ára sonur hennar, að vera með. DV-mynd Robyn Redman Grilluppskriftasamkeppni: Karlarnir eiga að grilla - segir vinningshafmn Grilluppskriftasamkeppni DV, SS, Nýrra eftirlætisrétta, Skeljungs, Ferðaþjónustu bænda, Bílaleigu Ak- ureyrar og Bylgjunnar er nú lokið og valdi dómnefnd glóðaöar svína- lundir með fyllingu, uppskrift Höllu Einarsdóttur frá Akureyri, bestu uppskriftina. „Uppskriftina tók ég saman af þessu tilefni en hún er ekkert sér- staklega í uppáhaldi hjá mér. Ég set næstum þvi hvað sem er á grillið en hef ekki haft aðstöðu til þess að grilla af neinu viti fyrr en nú í sumar. Mér finnst að karlarnir eigi að grilla en get svo sem gert það ef svo verkast. Við konurnar þurfum síðan að gera allt klárt og ganga frá,“ sagði Halla Einarsdóttir, ánægður handhafi glæsilegra verðlauna fyrir uppskrift- ina. Verðlaunin eru bílaleigubíll í sjö daga og gisting hjá Ferðaþjónustu bænda í 7 daga með morgunverði, gasgrill og kjötvörur til ferðalagsins. Uppskriftin er sérlega bragðgóð og var dómnefnd á einu máh um að sú besta hefði unnið. Uppskriftirnar í 2.-5. sæti verða birtar á Neytenda- síðu DV á næstunni. Grillaðar svínalundir með fyll- ingu (fyrir 4) Hráefni: 1 msk. ólívuolía 2" soyasósa 1" sætt sinnep 1 " tómatsósa Kryddlögur: 1" hunang 1 " safi af niðursoönum apríkósum 1" Worchestersósa 1 marið hvítlauksrif Fylling 4-5 sveppir, smátt saxaðir 10 apríkósuhelmingar, stappaðir 8 steinlausar sveskjur, smátt saxaðar 100 g gráðostur, stappaður 'á tsk. salvía Aðferð Skohð lundirnar og þerrið, fjarlægið himnur og skerið þær til helminga. Stingið djúpa vasa í hvert stykki ofan í sárið. Leggið kjötiö í skál og hellið kryddleginum yfir. Látið marinerast í u.þ.b. tvo tíma og snúið kjötinu af og til. Hrærið fylhnguna vel saman og fylhð kjötið (ágætt er að nota sprautupoka). Lokið nú opinu með kjötnál, kryddið með salti og pipar og glóðið í u.þ.b. 15 mínútur. Snúið kjötinu oft svo það brenni ekki. Berið fram með bökuðum kartöfl- um, fersku salati og kaldri sósu: Hrærið saman til helminga sýrðan rjóma og þeyttan, bætið varlega sam- an við stöppuðum apríkósum og bragðbætið með svörtum pipar, salti og hvítlauk. Bókin sem íslendingar lesa á þjóðhátíðarári: íslandskiukkan í kilj u! lílvalinn ferðafélagi innan lands sem utan á aðeins 990 kr íslandsklukkan á meira erindi við íslendinga en flest önnur skáldverk, — ekki síst á fimmtíu ára afmæli lýðveldisins. Nú er hún komin út í vandaðri, nýrri og handhægri útgáfu, — í kiljuformi. íslandsklukkan er allt í senn: Stórbrotin, skemmtileg, spennandi og harmræn skáldsaga sem höfðar til allra aldurshópa! Oll þrjú bindi þessa mikla verks í einni bók: íslandsklukkan, Hið ljósa man og Eldur í Kaupinhafn, samtals á fimmta hundrað blaðsíður! íslandsklukkan, - kilja sumarsins! Fullt verd: 1490 kr. VAKA-HELGAFELL Síðumúla 6, 108 Reykjavík Tilbodsverð: 990 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.