Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994
9
Ravi Tikkoo við undirritun samningsins við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fyrr á þessu ári. Fyrir aftan Ravi
og Jón Ingvarsson, stjórnarformann SH, standa Friðrik Pálsson forstjóri og Ólafur B. Ólafsson, varaformaður
stjórnar SH.
Indverski auðjöfurinn Ravi Tikkoo:
Byrjaði með tvær
hendur tómar
- en varð ríkur á olíuskipaútgerð
Þakleki?
Svalir? - Útitröppur?
Við leysum málið með bestu
þéttiefnum á markaðnum.
PETURSSON HF.
Sími: 91-673730
FURUHÚSGÖGN
Modelo Estocolmo furusófasett
Suðurlandsbraut 54, bláu húsin við Faxafen S. 682866.
Eins og kunnugt er gerðu Flug-
leiðir nýlega samning við ind-
verska auðjöfurinn Ravi Tikkoo
um að stofna flugfélag á Indlandi,
Indotik Airways, en Tikkoo hefur
verið talinn auðugasti Indverjinn
sem búsettur er í Bretlandi.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
SH, hefur verið í samstarfi við
Tikkoo en SH á helming í fyrirtæki
á Indlandi sem undirbýr vinnslu
og veiðar á túnfiski úr Indlands-
hafi.
Tikkoo hefur uppi stór áform
varðandi fjárfestingar í Indlandi,
m.a. í flugrekstri og það var Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna sem
benti honum á Flugleiðir. Auk
sjávarútvegs og flugrekstrar
hyggst Tikkoo fjárfesta í ferðaþjón-
ustu, orkuveitum og bjórfram-
leiðslu.
Meö háskólagráðu
í stærðfræði
Tikkoo, sem er viðurkenndur
sem brautryðjandi í alþjóðlega
skipaeigendaheiminum sem og
fjármálasnillingur, kemur frá
virðulegri fjölskyldu frá Kashmír
en hann er fæddur á Norður-Ind-
landi árið 1932. Hann útskrifaðist
með gráðu í stærðfræði frá háskól-
anum í Punjab á Indlandi árið 1952.
Tikkoo byrjaöi með tvær hendur
tómar en hann varð ríkur á olíu-
skipaútgerð. Hann fékk fyrst áhuga
á skipum þegar hann starfaði sem
yfirmaður í indverska sjóflotanum.
Þar starfaði hann í sjö ár en að því
loknu gerðist hann alþjóðlegur
skipafjármálaráðunautur og sá um
viðskiptasamninga milli banka og
skipaeigenda.
Hann kom til London árið 1964
og varð breskur ríkisborgari um
fimm árum síðar en á þeim tíma
hafði hann gert sér grein fyrir því
að hann hafði sjálfur áhuga á að
gerast skipaeigandi.
Olíutankskip í
Heimsmetabók
Guinness
Tikkoo eignaðist sitt fyrsta skip
árið 1968 en þaö var Globtik Sun,
sem keypt var frá Noregi. Ári
seinna keypti hann Globtik Venus
sem einnig var frá Noregi og þriðja
skipið, Globtik Saturn, keypti hann
svo frá Japan árið 1970. Þessi þrjú
skip mynduðu skipaflotann sem
hann notaði til að flytja olíu á milli
Miðausturlanda, Evrópu og Jap-
ans.
Árið 1968 tók Tikkoo þá ákvörðun
að hanna tvö ný olíutankskip sem
yrðu stærri en nokkur skip sem
áður höfðu verið byggð. Hugmynd-
in um svo gríöarstór olíutankskip
vakti mikla athygli í skipaheimin-
um en margir voru efms og töldu
að þetta væri aðeins draumur sem
aldrei gæti orðið að veruleika.
Úr rættist og Globtik Tokyo var
afhent í febrúar árið 1973 og systur-
skip þess, Globtik London, kom í
október á sama ári. Skipin, sem
komust í Heimsmetabók Guinness,
gengu mjög vel frá upphafi en þau
voru notuð til að flytja olíu frá
Persaflóanum til Japans. Skipin
fluttu yfir 43 milljónir tunna af olíu
á ári sem samsvarar nærri 5% af
öllum olíuinnflutningi Japans.
Olíukreppan árið 1974 varð svo
til þess að ekki varð þörf á svo stór-
um skipum og Tikkoo ákvað að
lokum að selja þau.
Að þessu loknu sneri Tikkoo sér
að því að kaupa sex minni skip sem
voru sérstaklega hönnuð fyrir am-
erískar hafnir sem voru ekki færar
um að taka við mjög stórum skip-
um. Rekstur skipanna gekk vel en
fjögur þeirra hafa nú veriö seld.
Mikill áhugamaður
um krikkett og póló
Tikkoo, sem þykir mjög hrífandi
persónuleiki, er mikill áhugamað-
ur um krikkett og varðveislu
óspilltrar náttúru en hann er vara-
forseti samtaka um verndun á villt-
um fuglum. Þá á hann veðhlaupa-
hesta og er formaður pólóklúbbs
Cambridge háskólans.
Hann á tvo syni en eldri sonur-
inn, sem er þrítugur, verður for-
stjóri Indotik Airways og sá yngri
starfar innan Tikkoo-samsteyp-
unnar.
Fjölskyldutilboð:
100% afsláttur fyrir börn og
unglinga að 16 ára aldri!
Bóka verður og staðfesta
fyrir 31. júlí.
Flucr sól og sumarsœla í áílt haust i
48.720 lr.*
á manninn, flug og gisting í 8 nætur
á Days inn Maingate West.
r ★★★★★★★
58ÆZ0 hP.*
Fyrir börn og unglinga allt að 16 ára
aldri þarfhvorki að greiða flug né
gistingu en greiða verður
flugvallarskatta. Tilboð gildirfyrir
eitt barn á hvem fullorðinn.
Bóka verður og staðfesta fyrir 31. júlí.
m.v. tvo fullorðna í 16 nætur
á Days Inn Maingate West.
Bjóðum einnig
gistingu á
Encfave Suites,
Summerfield
Suites og
Best Western
Plaza.
Flugferðir til Orlando:
Flogið 2svar íviku í sept.,
okt. og nóv.
til frá
SEPT. Lau/Mán Sun/Þri
OKT. Lau/Mán Sun/Þri
NÓV. Mán/Þri. Þri/Mið
►- Hámarksdvöl er 30 nætur.
Hægt er að gista t.d. 8 nætur á einum stað
og 8 nætur á öðrum.
Hægt er að fljúga til Orlando og heim frá
Ft. Lauderdale eða öfugt.
* Innifalið flug og gisting og flugvallarskattar.
- Flugvallarskattar á íslandi eru 1.340 kr.
f. fullorðna og 670 kr. fyrir börn 2-11 ára,
og í Bandaríkjunum 1.680 kr.
(D [.»*»
►- Ferðir skulu farnar á tímabilinu 1. sept.
til 15. nóvember.
Verð- og fjölskyldutilboð gildir í allar
brottfarir til Orlando á þessu tímabili.
Takmarkað sœtaframboð!
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land,
ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300 (svarað mánud. - föstud.
frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8-16.)
FLUGLEIDIR Jv
Traustur tslenskur ferðafélagi JSL