Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Síða 10
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994 „Amerikanar snobba svolítið fyrir evrópskum nöfnum sem þeir skilja ekki,“ segir Ágúst Felix Gunnarsson sem opnaði bakari í evrópskum stíl i desember sl. grenni, en í Boston búa um 120 ís- lendingar. Bakaríið, sem er með sæti fyrir 60 manns, selur einnig súpur, sal- öt, samlokur og þess háttar. Við markaðssetningu er lögð höfuðá- hersla á að bakaríið sérhæfi sig í evrópskri brauðgerð. Ein af þeim nýjungum sem Ágúst er t.d. með á boðstólum er svokall- að Reykjavík Rage sem eru lítil bökuð stykki sem hafa gengið mjög vel. „Svo er ég einnig með fullt af þýskum, dönskum og frönskum nöfnum sem ganga vel í Ameríkan- ana. Það þykir flott aö kaupa í svona evrópskum bakarííum og Ameríkanar eru einnig hrifnir af því að fá nýtt og ferskt brauð. Þeir eru vanir því að kaupa brauð úr matvöruverslunum en þau eru með miklum rotvarnarefnum í og þetta er því nýjung sem þeir hafa verið að bíða eftir.“ Hann sagði að það hefði komið f slenskur bakari gerir það gott í Boston: Selur Amerí könum kókoskúlur og snúða „Ég byrjaði að selja kókoskúlur undir heitinu Snowballs en það gekk ekki neitt svo ég prófaði að selja þær sem kókoskúlur og þá byrjuðu þær að seljast. Það sama gerðist með snúðana sem ég reyndi fyrst að selja sem Chocolate Bunch en þegar ég breytti nafninu í Ice- landic snúðar eða „snúdar“ eins og Ameríkanarnir segja það þá byrj- uðu þeir að seljast. Ameríkanar snobba svolítið fyrir evrópskum nöfnum sem þeir skilja ekki. Svo reyna þeir að lesa á miðana hvað stendur og hvað er hvað, “ segir Ágúst Felix Gunnarsson bakara- meistari sem opnaði bakarí í Bost- on í Massachusetts í Bandaríkjun- um í desember sl. Bakaríið, sem sérhæfir sig í evr- ópskri brauð- og kökugerö, hefur gengið framar vonum og segist Ágúst hafa haft meira en nóg að gera síðan hann opnaöi. „Þetta byrjaði allt með því að það var íslensk kona, sem búsett er í Bandaríkjunum, sem kom til ís- lands og hafði samband við mig þar sem ég var að vinna í Bakarameist- aranum í Suðurveri," segir Ágúst. „Þessi kona var gift Ameríkana sem var með bakarí í Washington D.C. og hún bauð mér að koma út og kanna hvort ég hefði áhuga á að koma og vinna þar. Ég fór út en þetta var þá svona meira heildsölu- bakarí sem ég hafði nú ekki áhuga á á þeim tíma. Tveimur árum seinna hafði þessi kona aftur sam- band við mig en þá var fyrirtækiö þeirra, Baker’s Place, að fara aö opna svona bakarísbúðir í evrópsk- um stíl í Washington og ég sló til og fór út sumarið 1992.“ í nóvember 1993 ákvað Ágúst svo að opna sitt eigið bakarí í Boston og var staðurinn nefndur Carberr- y’s. Meðeigendur hans í fyrirtæk- inu eru tveir Ameríkanar, annar þeirra er markaðsfræðingur frá Washington D.C. og hinn viðskipta- fræðingur frá New York. Þykir flott að kaupa í evrópskum bakaríum „Það hefur gengið mjög vel síðan við opnuðum og það er mikið að gera. Ameríkanarnir eru mjög hrifnir af þessum hollustubrauð- um og við erum t.d. með 35 tegund- ir af brauði sem þeir hafa ekki séð áður og eru ekki með þessum rot- varnarefnum og öðrum aukefnum eins og þeir eru vanir að hafa héma. Bakaríið er einnig öðruvísi að því leytinu til að viöskiptavinir geta fylgst meö því þegar verið er að baka, skreyta kökur og o.fl. Viö erum aðallega með þýsk brauð og svp einnig „íslensk." Ágúst segir að það komi einnig mikið af íslendingum í bakaríið og þá aðallega þeir, flestir námsmenn, sem búsettir eru í Boston og ná- íslendingar eru tíðir gestir hjá Ágústi og hér sést hann ásamt nokkrum þeirra þegar þeir komu til að horfa á úrslitaleikinn í HM. Urvalið hjá Agústi er mikið en hann er með 35 tegundir af brauðum, aðallega þýskum, einnig ýmislegt annað eins og t.d. islenskar kókóskúl- ur og snúða. sér vel að hafa einmitt verið úti á þessum tima þar sem mikil heilsu- umfjöllun heföi átt sér stað í Bandaríkjunum og þetta væri ein- mitt svona hollustufæði sem mælt væri meö að fólk borðaði. Ætlar kannski að opna fleiri bakarí Ágúst er með um 25 manns í vinnu hjá sér og þar á meðal er einn franskur bakari sem starfaði um tíma á íslandi og er giftur hálf- íslenskri konu, sem vinnur einnig hjá fyrirtækinu. „Hann labbaði nú eiginlega bara hingað inn fyrir tilviljun. Ég hafði sett skilti í gluggann hjá mér þar sem ég auglýsti eftir starfsfólki og hann var nýfluttur hingað til Bost- on. Ég réð hann auðvitað eins og skot því það kemur sér vel að hafa hann þar sem hann þekkir auðvit- að allt þetta íslenska." Ágúst segist ætla að vera áfram úti og það gæti jafnvel farið svo að þeir félagar opnuðu fleiri bakarí en það færi auðvitað allt eftir því hvernig vindar blésu. Aðspurður hvort hann sæi fram á að verða stórríkur maður í henni Ameríku sagðist hann nú vilja segja sem minnst um það. „Ég tel það hæpið. Það þarf eitt- hvað stórkostlegt að gerast til að svo verði, en hver veit.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.