Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Page 12
12 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994 Kiljur fyrir sumarleyfið Erlend bóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Joanna Trollope: A Spanish Lover. 2. Patricia D. Cornwell: Cruel and Unusual. 3. John Grísham: The Client. 4. Tom Clancy: Without Remorse. 5. Roddy Doyle: Paddy Clarke Ha Ha Ha. 6. Wilbur Smíth: River God. 7. Jilly Cooper: The Man Who Made Hus- bands Jealous. 8. Sebastian Faulks: Birdsong. 9. Tad Williams: Storm: Go Green Angel Tower Part 2. 10. SueTownsend: Adrian Mole: The Wilder- ness Years. Rit almenns eðlis: 1. JungChang: Wild Swans. 2. J. McCarthy 8i J. Morrell: Some Other Rainbow, 3. W.H. Auden: Tell MetheTruthabout Love. 4. Bill Bryson: Neither here nor there. 5. Alan Clark: Diaries. 6. Bob Monkhouse: Crying with Laughter. 7. Russell Davis: The Kenneth Williams Diaries. 8. Brian Keenan: An Evil Cradling. 9. Robert Calasso: The Marriage of Cadmus and Harmony. 10. Howard Rheingold: Stereogram. (Byggt á The Sunday Times) Danmörk Skáldsögur; 1. Peter Heeg: Froken Smillas fornemmelse for sne. 2. Dorothy L. Sayers: Peter Wimsey i Oxford. 3. Alice Walker: Ándetemplet. 4. Troels Klpvedal: Oerne under vinden. 5. Dan Turéll: Vrangede billeder. 6. Peter Heeg: Fortællinger om natten. 7. Bret Easton Ellis: American Psycho. (Byggt á Politiken Sendsg) Það er handhægt að grípa með sér pappírskilju í sumarleyfið, hvort sem ferðast er innanlands eða utan. Framboðið á enskum kiljum er hins vegar mikið. Sumir veðja auðvitað á nýjustu bók höfunda sem þeir þekkja. Þetta á ekki síst við um spennusögur. Ganga má út frá því sem vísu að King, Arc- her, Grisham og hvað þeir nú heita allir saman séu enn við sama hey- garðshornið í nýjum bókum sínum. En margt bitastæðari bóka er á markaðnum. Nýverið birti Sunday Times í Bretlandi lista um nýlegar enskar kiljum sem gagnrýnendur þar á bæ mæla með í ferðalagið. í þyngri kantinum Fyrst bækur um alvörumál. Some Other Rainbow er eftir John McCarthy og Jill Morell og lýsir raunum þeirra meðan McCarthy var í margra ára gíslingu hjá hryðju- verkamönnum í Líbanon. Bókin þyk- ir með afbrigðum áhrifamikil og hef- ur lengi verið á metsöluhstum. Önnur metsölubók er Diaries eftir Alan Clark, fyrrum ráðaherra í bresku ríkisstjórninni. Hér hefur hann einkum komist í fréttir fyrir að hafa haldið samtímis við eigin- konu og dætur bresks dómara. John Updike nefnir nýjustu skáld- sögu sína Memories of the Ford Adm- inistration. Þar segir frá sagnfræð- ingi sem er beðinn að skrifa um for- setatíð Geralds Fords og tengir þá lýsingu saman við frásögn af valda- dögum annars forseta Bandaríkjanna sem var uppi fyrir hundrað árum. Philip Roth er einnig með nýja skáldsögu: Operation Shylock. Hún fjallar um mann sem kallar sig Philip Roth, fer til ísraels og leggur til að allir gyöingar af evrópskum ættum verði reknir úr landi. Remembering Babylon er skáld- saga eftir David Malouf. Hún gerist Umsjón Elías Snæland Jónsson í Ástralíu á nýlendutímanum og seg- ir frá hvítum manni sem snýr aftur eftir að hafa búið í 16 ár meðal frum- byggjanna. Hann kemur óneitanlega róti á hugi landnemanna. Af léttara tagi Nokkrar nýlegar pappírskiljur sem Sunday Times telur af léttara tagi: Paddy Clarke Ha Ha Ha er Booker- verðlaunabók írska rithöfundarins Roddy Doyle. Hún hefur náð miklum vinsældum í Bretlandi og víðar, en hér fiallar Doyle um æskuár í fá- tækrahverfum Dyblinnar. The Night Manager er ný metsölu- bók eftir njósnasagnahöfundinn John le Carré. Hér segir frá hótel- stjóra sem þarf að takast á við óprútt- inn vopnasala. Michael Dibdin er einnig með nýja spennusögu: The Dying of the Light. Hún er sögð í stíl Agötu Christie en uppfull af gálgahúmor. After All These Years er eftir Susan Isaacs og að sögn blaðsins ein skemmtilegasta spennusaga ársins. Hjón halda upp á silfurbrúðkaup sitt. Eiginmaðurinn segir bless og ætlar til ástkonunnar en endar sem lík. Og eiginkonan er auövitað grunuð um verknaðinn. The Man Who Made Husbands Je- alous eftir Jilly Cooper fiallar um framhjáhald og aðgerðir eigin- kvenna til að ná athygli manna sinna. Metsölubók. Joanna Trollope er líka mjög vin- sæl í Bretlandi um þessar mundir. Nýja sagan hennar heitir A Spanish Lover og segir frá tveimur systrum. Önnur er gift og í vandræðum en hin leitar ástarinnar í sólinni á Spáni. I>V Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Tom Clancy: Without Remorse. 2. John Grisham: The Client. 3. Michael Crichton: A Case of Need. 4. Scott Turow: Pleading Guilty. 5. Judith McNaught: Perfect. 6. E. Annie Proulx. The Shipping News. 7. John Grisham: A Time to Kill. 8. Kevin J. Anderson: Dark Apprentice. 9. Mary Higgins Clark: ITI Be Seeing You. 10. Robert Ludlum: The Scorpio lllusion. 11. John Le Carré: The Night Manager. 12. Carl Hiaasen: Strip Tease. 13. Dominick Dunne: A Season in Purgatory. 14. Jeffrey Archer: Honor Among Thieves. 15. Anne Rivers Siddons: Hill Towns. Rit almenns eðlis: 1. Thomas Moore: Care of the Soul, 2. Bailey White: Mama Makes up Her Mind. 3. Peter Ð. Kramer: Listening to Prozac. 4. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 5. M. Hammer 8i J. Champy: Reengineering the Corporation. 6. Maya Angelou: I Know why the Caged Bird Sings. 7. Joan W. Anderson: Where Angets Walk. 8. Lewís B. Puller Jr.: Fortunate Son. 9. Susanna Kaysen: Girl, Interrupted. 10. Cornelius Ryan: The Longest Day. 11. Cornel West: Race Matters. 12. Peter Mayle: A Year in Provence. 13. Benjamin Hoff: The Tao of Pooh. 14. Deborah Laake: Secret Ceremonies. 15. Gail Sheehy: The Silent Passage. (Byggt á New York Times Book Review) Vísindi _______________________ dv Auðvelt að innræta minningar um FFH Eru fijúgandi furðuhlutir raunverulegir eða bara hugarfóstur? Stærsta ein- ing alheims Franskir stjarnvísindamenn hafa fundið stærstu eininguna sem vitaö er um í alheiminum og samanstendur hún af 27 þúsund stjörnuþokum eða klösum af stjörnum og plánetum sem ekki er hægt að skýra með þeim vís- indakenningum sem tiltækar eru nú. Radíus fyrirbærisins er 290 milfión ljósár. Stjömuþokan, sem jörðin er í, sjálf Vetrarbrautin, er inni í þess- ari miklu einingu sem er í laginu eins og spmnginn fótbolti. Ef menn ímynda sér að klasi þessi sé á stærö við hnefastóran bolta i alheitni sem er einn rúm- metri þá er Vetrarbrautin okkar ekki nema á stærð við sykurkom. Kettir sýna undirgefni Dýraatferlisfræöingurinn Hil- ary Feldman við Berkeleyhá- skóla í Kalifomíu var liissa þegar hún sá unga villiketti velta sór á bakið með lappirnar út í loftiö fyrir framan fullorðna högna og liggja þannig hreyfingarlausir i nokkrar mínútur. Hún teiur að ungu kettimir hafi með sýnt þeim eldri undir- geftii í þeirri von að ekki yröi ráðist á þá. Fullorönu kettimir réðust aldrei á kettlingana sem lágu á bakinu en alloft á hina. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson Sharon Filip í Seattle í Bandaríkj- unum man skýrt og greinilega eftir því þegar hún komst í nána snert- ingu við fljúgandi furðuhlut þegar hún var barn og var síðar rænt af geimverum sem komu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Chris X man þá skelfilegu lífs- reynslu þegar hann týndi foreldrum sínum í verslunarmiðstöð. Hann var aðeins fimm ára gamall en góðlátleg- ur gamall maður í köílóttri skyrtu kom honum til hjálpar. Bæði Sharon og Chris eru sann- færð um að lífsreynsla þeirra sé raunveruleg af því að þau muna hana svo vel í smáatriðum. Því er þó ekki að heilsa þar sem minningin er plat í öðru tilvikinu að minnsta kosti. Um þessar mundir er fátt sem sál- fræðingar um heim allan ræða af meiri ákefð en sá eiginleiki manns- heilans að búa til falskar minningar um atburði sem á einhvern hátt greypa sig djúpt í hugskot manna. Þar eru atburðir eins og kynferðisleg misnotkun eða fundir með geimver- um kannski fremstir í flokki. „Með nægilegri sefiun er hægt að fá fólk til að trúa að þaö hafi upplifað hluti sem aldrei gerðust. Þeir eru margir sem nú fást við falskar minn- ingar,“ segir Elisabeth Loftus, sál- fræðingur við háskólann í Seattle. Á ráðstefnu, sem nýlega var haldin þar í borg, lýstu vísindamenn fiölda tilrauna sem sýna hversu auðvelt það er að koma fyrir minningum sem líkja eftir endurminningum af raun- verulegum atburðum. Chris X er gott dæmi um það því atburðurinn, sem segir frá hér að ofan, átti sér aldrei stað heldur fengu Loftus og aðrir vísindamenn hann til að trúa því með ýmsum leiðandi spurningum. Chris fór ekki aðeins að trúa því að hann hefði orðið við- skila við foreldra sína heldur fór hann að skálda upp ýmis smáatriði. Þegar honum var svo sagt hið sanna í málinu trúði hann því ekki. „Ég er ekki að segja að sérhver frá- sögn af fundi með geimveram eða kynferðislegri misnotkun verði til á þennan hátt en þetta getur orðið til að hjálpa okkur að skilja hvers vegna falskar minningar kunna að vera búnar til,“ segir Loftus og bætir við að menn eigi kannski erfiðara með að trúa sögum um raunverulega mis- notkun vegna þessa. Falskar minningar geta lagt líf manna í rúst þegar þær koma upp á yfirborðiö í tilvikum þar sem um meinta kynferðislega misnotkun er að ræða. Þær eyðileggja heilu fiöl- skyldurnar og koma saklausu fólki í fangelsi. Og eftir því sem fólk er yngra þeim mun auðveldara er að koma inn hjá því fólskum minning- um. Yemdargegn húðkrabba Vísindamenn í Ástralíu hafa búið til skyrtuboli sem veita eig- endum sínum mun meiri vemd gegn skaðlegum geislum sólar- innar en bolir gera almennt Verndarstuöull venjulegra bola er milli fimm og fimmtán en í nýju bolunum er hann fimmtíu. Þeir veita því allt að tíu sinnum meiri vernd. Það sem hér býr að baki er nýtt efni, rayosan, sem visindamenn- irnir hafa búið til og dýfa bolun- um ofan i. Það hefur engar aúka- verkanir og breytir ekki eigin- leikum fataefnisins eða lit þess. Þetta ættu að vera kærkomnar fréttir þeim sem hafa gaman af að vera úti í sólinni því tíðni húð- krabba hefur fariö vaxandi aö undanfömu. Hiartaaföll & mánudögum Hinum vinnandi manni er miklu hættara við að fá hjartaá- fall á mánudögum en aðra daga vimmvikunnar. Samkvæmt rannsókn, sem gerð var í þýsku borginni Augsburg, era iíkurnar 33 prósentum meiri. „Ef þessar niðurstööur fást staðfestar í öörum bæjarfélögum kann það aö leiða til þess að menn uppgötvi hvaö kemur hjartaáfóll- um af stað og kannski verður þá hægt að auka fyrirbyggjandi að- gerðir,“ segir í grein visinda- mannanna í tímariti bandarísku hjartasamtakanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.