Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994 Kvikmyndir í True Lies ieikur Arnold Schwarzenegger njósnara á sömu línu og James Bond. Bandaríkin: Metaðsókn í bíó yfir eina helgi Metaðsókn var í kvikmyndahús yfir eina helgi í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Þá var miðasal- an 101 milljón dollarar og er þaö i fyrsta skipti sem þessi upphæð fer yfir eina milljón. En taka veröurfram að aðsókn hefm- ver- ið meiri þegar aukafrídagur bæt- ist við. Eins og flestir bjuggust við fór True Lies, kvikmynd þeirra James Cameron og Arnold Schwarzenegger beint í 1. sæti og tók hún 26,2 milljónir dollara og lofar þaö góðu. Það ætti ekki að skemma fyrir að myndin hefur einnig fengiö ágæta dóma. i öðru sæti var kvikmynd þeirra Ro- berts Zemeckis og Tom Hanks, Forrest Gump og tók hún inn 24,3 milljónir dollara. í þriðja sæti var svo The Lion King, komu inn 17 milljónir dollara þessa helgi og er hún komin í 174 millj- ónir á fáum vikum og stefrúr í aö verða vinsælasta kvikmynd ársins. Á eftir þessum kvímynd- um komu: Angels ín the Outfleld (9,200.000), Speed (5.000.000), I Know Trouble (3.500.000), Blown Away (3.000.000), The Shadow (2.500.000), Wolf (2.200.000) og The Flintstones (1.300.000). Þess má geta að The Flintstones hefur halað inn samtals 119,4 milljónir doliara. Tómas, aðalpersónan í Bíódög- um, safnar leifum af áfengi í gosllösku. Bíódagar í aðalkeppninni í Locarno Friðriki Þór Friðrikssyni hefur verið boðið að vera með Bíódaga í aðalkeppninni á kvikmyndahá- tíðinni í Locarno i Swiss og hefur hann þegið boðið. Mun þá verða fyrsta sýning á Bíódögum fyrir ulan ísland. Hátiðin í Locarno er meðal virtustu kvikmyndahátiða heimsins og hafa margir þekktir leikstjórar fengiö sína fyrstu við- urkenningu þar, má nefna Woody Allen, Michelangelo Antonioni, Milos Forman, Rainer Wemer Fassbinder og Stanley Kubrick. Formaöur dómnefndarínnar að þessú sirrni er Peter Bogdano- vitch og meðal meðdómara hans er John Waters en hann korn sem sérstakur gestur á kvikmyndhá- tíð hér á landi og belgíski leik- stjórinn Chantal Akerman, en hún er vel þekkt í Evrópu fyrir kvikmyndir sínar. Bíódagar er ein tuttugu kvikmynda sem keppa til fernra verðlauna. DV Það er endalaust hægt að plata í kvikmyndum - segir leikstjóri Forrest Gump, Robert Zemeckis Forrest Gump tekur í höndina á John F. Kennedy Bandarikjaforseta. Það er aðeins Kennedy sem er ekta, forseta- skrifstofan er nákvæm eftirlíking af skrifstofu Kennedys og leikarar eru í bakgrunninum. Robert Zemeckis á að baki glæsi- legan feril sem leikstjóri, handrits- höfundur og framleiðandi. Kvik- myndir eins og Romancing the Stone, Back to the Future myndirnar þrjár og Who Framed Roger Rabbit vitna um frumleik og áræði. Það sem hefur einkennt kvikmyndir Zemeckis er hrifning hans á tæknimöguleikum í kvikmyndagerð og virkar það stund- um eins og það sé það eina sem skipt- ir hann máli. Honum heppnaðist í Kvikmyndir Hilmar Karlsson ofangreindum kvikmyndum að sam- eina tækni og skemmtun en segia má að tæknin hafl í síðustu kvik- mynd hans, Death Becomes Her, drepið þá skemmtun sem annars hefði mátt hafa af frumlegri sögu. í nýjustu kvikmynd sinni Forrest Cump er Zemeckis enn við sama heygarðshornið, tæknin skiptir mestu máh. Og eins og oftast áður ætlar hann að komast upp með það. Á fjórum vikum er Forrest Gump búin að hala inn 74 milljónir dollara og á eftir að gera enn betur. Forres Gump er engin venjuleg kvikmynd. Titilpersónan er suður- ríkjamaður með gáfnavísitölu fyrir neðan meðaflag. Gump hefur leikið í bandaríska fótboltanum, varð hetja í Víetnam-stríðinu, hitti þrjá forseta Bandaríkjanna og tvær rokkstjöm- ur, varð ástfanginn af glæsilegri konu með sjálfseyðingarhvöt og græddi milljónir dollara á rækju- veiðiútgerð. Tom Hanks leikur For- est Gump og eru margir á því að hann sé jafnvel enn betri en í Phila- delphia. Myndin gerist á íjörutíu ámm og einhver sagði aö Forest Gump væri að hluta til eins og Being There, að hluta til eins og Zehg og með smáskammt af The World Acc- ording to Garp. Það sem aðgreinir Fomest Gump frá öðrum kvikmyndum er að þær frsegu persónur sem Gump hittir á lífsferli sínum eru ekki leiknar, áhorfendur verða vitni að því þegar Gump heilsar John F. Kennedy for- seta svo dæmi sé nefnt. Áhorfandinn upp- götvar aldrei brellurnar „Allt er gert til að plata áhorfand- ann,“ segir Robert Zemeckis, „og hvers vegna ekki, hugmyndin að baki kvikmyndum er tæknileg fols- un. Ég skil ekki leikara sem alltaf vilja halda því fram að þeir séu að fmna raunveruleikann í persónum sem þeir túlka. Það sem ég meina er, hvernig er hægt að vera raunveru- legur þegar þú ert með allar þessar vélar í kringum þigog 20 til 30 karl- menn í ermalausum bolum horfandi á þig?“ Tæknin sem Zemeckis notar við gerð atriða þar sem Gump hittir fræga fólkið er ekki flókin en rán- dýr. Hann náði sér í gamlar frétta- myndir, lagfærði þær og tók síðan allan bakgrunninn út. Gerði síðan nákvæmlega eftirlíkingu af bak- grunninum og lét leikara túlka allar persónurnar nema þá frægu per- sópnu sem Gump er að heilsa eða ræða við. „Þetta er ósköp venjuleg myndfólsum. Við vitum að í dag er ekki hægt að sanna neitt með mynd- um, það er hægt að falsa hverja ein- ustu ljósmynd á allan þann hátt sem óskað er.“ Tæknin getur virkað einföld þegar þú veist hvað á gera við hana. Til að mynda í þeim atriðum þar sem sést hundruð þúsunda fagnandi múgur, þá röðuöu Zemeckis og aðstoðar- menn hans nokkur hundruö mönn- um upp, kvikmynduð og létu svo tölvur margfalda þangaö til fyrir- myndin var komin. „Það er ég viss um að ef David Lean væri á lífl og enn að gera kvikmyndir, þá myndi hann segja sem svo: „Hvar hefur þetta verið allt mitt líf‘,“ segir Ro- bert Zemeckis. „Lean þurfti að dvelja í eyðimörkinni í mánuði ásamt þús- undum aukaleikara og bíða eftir rétta sólsetrinu. Nú höfum við tölv- urnar til að gera þetta allt fyrir okk- ur og ef við gerum þetta rétt og af alúð þá tekur enginn eftir því að ver- ið er að plata.“ Ezio Greggio og Charlene Tilton í atriði sem örugglega kemur kvikmyndaáhugamönnum kunnuglega fyrir sjónir. Væntanlegt í Regnbogann: Svínin þagna í næstu viku mun Regnboginn taka til sýningar farsakennda gaman- mynd, Svínin þagna (The Silence of the Hams), sem er í anda Naked Gun, Hot Shots og Airplane. Rauði þráður- inn í sögunni er leit FBI-mannsins Jo Dee Fostar að kærustu sinni Jo sem hefur horfið á dularfullan hátt eftir að hafa leigt sér herbergi númer 13 í Cemetery Model. Um leið er hann að rannsaka fjöldamorð sem eiga að hafa átt sér stað. Sú leit ber lítinn árangur þar til hann fær ábendingu um að ekki sé allt með felldu í The Holly- wood Nuthouse, þar sem ræður ríkj-. um Dr. Animal Cannibal Pizza. Sá sem er allt í öllu í Svinin þagna heitir Ezio Greggio og er einn vinsæl- asti gamanleikari ítala í dag, hann leikstýrir myndinni, skrifar handrit- ið, framleiðr myndina og leikur eitt aðalhlutverkið. Vinsældir Ezio eru miklar á ítaiu, bæði í sjónvarpi og í kvikmyndum, og hefur hann leikið í vinsælustu sjónvarpsseríum í ítalska sjónvarpinu, gamanmyndir þær sem hann hefur leikið í hafa flestar slegið í gegn í heimalandi hans og hefur hann fengið mörg verðlaun fyrir leik sinn. Svínin þagna er fyrsta alþjóð- lega kvikmynd hans og gekk honum vel að manna kvikmyndina því í öll- um hlutverkum eru þekktir banda- rískir leikarar, má þar nefna Dom DeLuise, Billy Zane, Joanna Pacula, Charlene Tilton, Martin Balsam, John Astin, Philhs Diller, Larry Storch og Shelley Winters.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.