Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Síða 21
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ1994
21
„Langstærstí hluti þeirra hunda
sem hingað kemur er ræktunar-
hundar, það eru hundar sem hafa
verið sérræktaðir og flestir koma
þeir frá Bretlandi, Svíþjóð og Nor-
egi. Hvaða tegundir innfluttra eru
algengastar er erfitt að segja til um,
það eru tískusveiflur í þessu og um
þessar mundir virðast t.d. litlir
hundar og mjög litlir vera í tísku,"
sögðu Aðalbjörg Jónsdóttír, dýra-
læknir í Hrísey, og Stefán Björns-
son, bústjóri í einangrunarstöðinni
þar. í einangrunarstöðinni hafa
lengi verið ræktuð naut af gallowa-
y-kyni, nú nýlega komu þangað
norsk svín sem eru í einangrun og
frá árinu 1990 hafa hundar, sem
fluttir hafa verið til landsins, verið
þar í einangrun, oftast um 50 á ári.
Hundarnir í stöðinni eru yfirleitt
8 talsins enda ekki aðstaða til að
taka við fleirum hverju sinni. Þeg-
ar einhver ákveður að flytja hund
til landsins þarf fyrst að hafa sam-
Smávaxnir hundar, eins og sá sem Stefán er hér með af tegundinni
yorkshire terrier, eru mjög vinsælir um þessar mundir. DV-myndir gk
Tískusveiflur í hundarækt:
litlir hundar
vinsælir nú
- getur kostað hátt í hálfa milljón að flytja inn hund
Stefán með einn hundinn, tík af einhverri collie-tegund.
band við landbúnaðarráðuneyt-
ið, sem úthlutar leyfum til inn-
flutningsins, og að því búnu er
hægt að hafa samband við einangr-
unarstöðina í Hrísey sem úthlutar
aðstöðu þcu: fyrir hundinn á ein-
hverjum ákveðnum tíma.
í einangrun
í 2-3 mánuði
Þegar viökomandi hefur flutt
hundinn til landsins tekur tollgæsl-
an á Keflavíkurflugvelli við dýrinu
og sér um að koma því til Akur-
eyrarflugvallar. Þar tekur svo Stef-
án Björnsson við, flytur dýrið út í
Hrísey þar sem það dvelur í 2-3
mánuði og fer sá tími m.a. eftir því
hvaðan dýrið var keypt.
Listinn yfir hundategundir, sem
komið hafa í einangrunarstöðina í
Hrísey, er langur og ef nefna á ein-
hverjar tegundir sem oftast hafa
komið þangað má nefna irish setter,
labrador, schafer og papiiiion. Af teg-
undum sem hafa komið einu sinni
og eru sjaldgæfar hér á landi má
nefna briard, rhodsian ridgeback og
strýhærðan german pointer.
Dýr innflutningur
Kostnaðurinn við að kaupa hund
erlendis og koma honum alla leið
heim og í gegnum Einangrunar-
stöðina er misjafn. Leyfi ráðuneyt-
isins kostar 25 þúsund krónur,
kaupverðið á hundunum erlendis
er einnig mjög mismunandi og
nefndi Björg Valtýsdóttir hjá toll-
gæslunni á Keflavíkurflugvelli sem
dæmi að hundar, sem fluttir væru
frá Bretlandi, væru oftast á bilinu
100-500 pund eða 10-50 þúsund
krónur. Hún sagði hins vegar að
þetta væri sú upphæð sem væri á
þeim pappírum sem innflytjendur
hundanna framvísuðu og þá papp-
íra væri ekki hægt að rengja. „Mið-
að við gæði dýranna og þá meðferð
sem þau þurfa að fá mætti hins
vegar mjög oft ætia að um mun
dýrari skepnur væri að ræða,“
sagði Björg.
Þegar öll leyfi, flutningar til
landsins og norður í Hrísey, virðis-
aukaskattur og uppihald hund-
anna þar hafa verið greidd, hleypur
því upphæðin, sem verið er að ræða
um, oftast á hundruðum þúsunda
króna og jafnvel hátt í hálfa milljón
þegar allt er talið. Þannig getur t.d.
gjald fyrir einn hund í Einangrun-
arstöðinni í 3 mánuði verið hátt í
100 þúsund krónur.
Aldrei nein vanda-
mál
Stefán Björnsson segir að aldrei
hafi komið upp nein vandamál með
hundana, saursýni, sem tekin eru
úr þeim og greind á tilraunastof-
unni aö Keldum, hafa aldrei sýnt
neitt hættulegt og aldrei hafa kom-
ið upp nein vandamál meö hund-
ana í stöðinni. Þess er og vandlega
gætt að engir utanaðkomandi kom-
ist nærri dýrunum og gildir það
jafnt um hundana í stöðinni og
svínin, nautin og kettina sem þar
eru.
„Jú, eigendur hundanna fylgjast
vel með þeim hér. Heimsóknir eru
leyfðar eftir sérstöku samkomulagi
þegar hundamir hafa veriö hér í
14 daga og fólk hringir mikið. Það
er um að gera og við hvetjum fólk
til þess að fylgjast með hvernig
dýrunum vegnar hér.
51 XI m
Staðgreiðsluafsláttur
MIKIÐ URVAL TÆKJA
OG VERKFÆRA
ÓTRÚLEG VERÐ!
OPIO ALIA VIRKA DACA FRÁ KL9 - 18.30
OG LAUGARDAGA FRÁ KL 10 • 17.00
KÁPUHRAUNI5* 653090
HAFNARFIRÐI
ISBR0T4
Má bjóða rauðan bistro?
Sumar í Grillinu
Þríréttaður kvöldverður á 2.200 krónur
ísumar bjóðum viðþrenns konarþríréttaðan kvöldverð,
hvítan, bláan og rauðan bistro,
til viðbótar við hejðbundinn matseðil. Bistro er létt
ogsumarleg máltíð og vitaskuldgerum við sömu
gaðakröfur til bistrorétta ogannarra rétta í Grillinu.
Sumarkvöld i Grillinu á Hótel Sögu er gott kvöld.
Þar njótiðþið máltíðarinnar, útsýnis til allra átta,
þjónustunnar,— líjsins.
Borðapantanir í síma 91-25033.