Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Page 23
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994
23
Sviðsljós
Jólasveinar á heimsþingi:
I uppreisn gegn ESB
og konum í stéttinni
- óttast bleik jólatré og tjull
Jólasveinar eru í uppreisnarhug
gegn Evrópusambandinu, ESB. Þeir
eru óánægöir með lágmarksstærð
sambandsins á jólakökum og kon-
fekti. Almenn afskipti sambandsins
af jólasveinum eru orðin það mikil
að rætt er um staðlaða lengd á skeggi
jólasveina í Evrópu. Þetta kom fram
á heimsþingi jólasveina sem haldið
var í Kaupmannahöfn í vikunni.
Þar kom jafnframt fram að jóla-
sveinamir eru andvígir jafnrétti
kynjanna í faginu og benda á að kon-
ur geti heimtað bleik jólatré, tjull og
annað kvenlegt. Fjöldi loftneta á hús-
þökum í stórborgum veldur einnig
jólasveinunum áhyggjum því vegna
þeirra eiga þeir í erfiðleikum með að
geyma sleða sína á þökunum. Ails
sátu 156 jólasveinar frá 14 löndum
heimsþingið en þeir skildu allir eftir
sleða og hreindýr heima að þessu
sinni.
Eitt af heitustu málunum á þinginu
var eins og fyrr upprunaleg heim-
kynni jólasveinsins. Norskir jóla-
sveinar eru ekki í vafa um að Noreg-
ur sé heimaland jólasveinsins en
danskir starfsbræður þeirra benda á
að flestir jólasveinar heimsins séu
sammála um að ættfaðir jólasvein-
anna búi á Grænlandi. Finnar, sem
hafa reist sérstakt jólasveinaþorp hjá
sér, eru harðir á því að jólasveinninn
komi frá Finnlandi.
Formanni félags norskra jóla-
sveina var ekki boðið á þingið og
þótti honum það súrt í broti. Þegar
framkvæmdastjóra heimsþingsins
urðu mistökin ljós hringdi hann í
formanninn og bað hann að koma
en sá norski afþakkaði sármóðgaður.
Honum var svo heitt í hamsi að hann
fór til Norður-Noregs til að kæla sig.
Norðmenn sendu samt fjóra fulltrúa.
Þetta var í 31. skipti sem heimsþing
jólasveina er haldið í Kaupmanna-
höfn. Alltaf er þingað á sumrin því
að veturnir eru allt of annasamur
tími hjá jólasveinum til slíks.
Jólasveinar vilja láta taka sig al-
Nýgift og yfir
sig ástfangin
írski leikarinn Liam Neeson og
breska leikkonan Natasha Richard-
son giftu sig leynilega í New York
fyrir skömmu og var aðeins nánustu
vinum þeirra eins og Miu Farrow,
Spielberg-hjónunum og Emmu
Thompson boðið í brúðkaupið.
Hjónakornin héldu því næst í brúð-
kaupsferð til Suður-Frakklands,
Feneyja og Englands þar sem þau
reyndu að láta sem minnst fyrir sér
fara til að fá frið fyrir ljósmyndurum
og blaðamönnum.
varlega og benda í því samhengi á
hversu miklum hluta ævinnar er
varið til jólahalds. „Ef við göngum
út frá því að meðalævilengd sé 80 ár
og að 10 prósent af hverju ári fari í
jólaundirbúning og jólahald þá erum
við að tala um samtals 8 ár,“ segir
framkvæmdastjóri heimsþingsins,
Pierot, sem í einkalífinu heitir Ib
Rasmussen.
A jólasveinaþingi í Kaupmannahöfn.
OM '\^0-
s*“'
''v“Si«n"'Sí»,’nS»''
rJZsssz*
e(U'IÖ(U(0 V