Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994
52
Afmæli
Kristján Finnsson
Kristján Finnsson, bóndi aö Grjót-
eyri í Kjós, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Kristján fæddist í Reykjavík.
Hann stundaði nám við Bændaskól-
ann á Hvanneyri og lauk þaðan
búfræöiprófi 1962 en hann hefur
stundað búskap að Grjóteyri frá
1963.
Kristján hefur gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum í sinni sveit, m.a. setið
í stjórn Hestamannafélagsins Harð-
ar, verið formaður Veiðifélags Kjós-
arhrepps, situr í hreppsnefnd frá
1990 og í stjórn Búnaðarsambands-
ins. Þá hefur Kristján sungið mikið
með kórum, eins og t.d. Karlakórn-
um Stefni og Álafosskórnum.
Fjölskylda
Kristján kvæntist 5.6.1964 Hildi
Axelsdóttur, f. 12.2.1944, leikskóla-
stjóra og húsmóður. Hún er dóttir
Axels Halldórssonar, kaupmanns í
Vestmannaeyjum ogí Reykjavík, og
Sigurbjargar Magnúsdóttur, versl-
unarmanns og húsmóður.
Börn Kristjáns og Hildar eru Re-
bekka Kristjánsdóttir, f. 6.5.1963,
framkvæmdastjóri í Mosfellsbæ, en
maður hennar er Karl Björnsson
skrifstofumaður og eru synir þeirra
Kristján og Hinrik; Svanhvít Krist-
jánsdóttir, f. 30.10.1965, tamninga-
maður og kjólameistari á Selfossi,
en maður hennar er Einar 0der
tamningamaður og er dóttir þeirra
Hildur 0der; Sigurbjörg Kristjáns-
dóttir, f. 18.5.1967, uppeldisfræðing-
ur í Mosfellsbæ, en maður hennar
er Lárus Sigvaldason, starfsmaður
hjá Vöruborg, og er sonur þeirra
Axel; Anna Kristín Kristjándóttir,
f. 3.5.1973, nemi í Reykjavík; Finnur
Bjarni Kristjánsson, f. 8.9.1977,
nemi í Reykjavík.
Systkini Kristjáns eru Marta
Finnsdóttir, bóndakona í Kársnesi í
Kjós, en maður hennar er Pétur
Lárusson og eiga þau fjögur börn;
Guðfinna Finnsdóttir, gjaldkeri hjá
Mjólkursamsölunni í Reykjavík, en
maður hennar er Gunnar Oskars-
son og eiga þau þrjú börn; Kristín
Finnsdóttir, kennari í Reykjavík, en
maður hennar er Hilmar Einarsson
og eiga þau tvö börn; Þorleifur
Finnsson, rafvirkjameistari í Kópa-
vogi, en kona hans er Hrafnhildur
Jósefsdóttir og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Kristjáns voru Finnur
Bjami Kristjánsson, f. 6.3.1913, d.
20.10.1974, rafvirkjameistari í
Kristján Finnsson.
Reykjavík, og Svanhvít Thorlacius,
f. 5.2.1913, d. 9.5.1972, húsmóöir.
Kristján verður fjarverandi á af-
mælisdaginn.
Guðmundur Bergmann Magnússon
Guðmundur Bergmann Magnús-
son, bóndi að Vindhæli í Vindhælis-
hreppi í Austur-Húnavatnssýslu,
verður sjötíu og fimm ára á morgun.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á Dverga-
steini á Skagaströnd og ólst upp hjá
foreldrum sínum á Skagaströnd og
víðar í Vindhælishreppi en lengst
af bjuggu þau að Bergsstöðum,
Þverá og Sæunnarstööum í Hallár-
dal á Skagaströnd.
Guðmundur hóf búskap með for-
eldrum sínum og bræðrum að Sæ-
unnarstöðum og bjuggu þau þar til
1944 er þau fluttu að Vindhæli á
Skagaströnd. Þar hefur Guðmundur
búið siðan í félagi við bræður sína,
þá Guðmann ogPál.
Fjölskylda
Systkini Guðmundar eru Stein-
grímur, b. á Eyvindarstöðum í
Blöndudal, nú látinn: Sigurður,
verkstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga á Sauðárkróki: María, áður
ljósmóðir á Sauðárkróki, nú búsett
í Hafnarfirði: Guðmann, b. á Vind-
hæh, og Páll, b. á Vindhæh.
Foreldrar Guðmundar voru
Magnús Steingrímsson, f. 3.4.1881,
b. á Bergsstöðum, og k. h., Guðrún
Einarsdóttir, f. 8.8.1879.
Ætt
Systkini Magnúsar voru Páll, rit-
stjóri Vísis, Páh, b. á Njálsstöðum á
Skagaströnd, ogFriðrika, húsmóðir
á Kagaðarhóh á Ásum.
Magnús var sonur Steingríms, b.
á Njálsstöðum á Skagaströnd, bróö-
ur Þorgríms, afa Önnu Sigurðar-
dóttur, forstöðumanns Kvenna-
sögusafnsins. Annar bróðir Stein-
gríms var Davíð, afi Brynleifs Stein-
grímssonar, læknis á Selfossi, og
langafi Davíðs Oddssonar forsætis-
ráöherra. Steingrímur var sonur
Jónatans, b. á Marðarnúpi í Vatns-
dal, Davíðssonar, b. í Hvarfi í Víði-
dal, Davíðssonar, hreppstjóra á Spá-
konufelh á Skagaströnd, Guð-
mundssonar. Móðir Jónatans var
Ragnheiður Friðriksdóttir, prests á
Breiðabólstað í Vesturhópi, Þórar-
inssonar, sýslumanns á Grund og
ættföður Thorarensenættarinnar,
Jónssonar. Móðir Friöriks var Sig-
ríður Stefánsdóttir, móðir Jóns
Espólín sagnaritara og systir Ólafs,
stiftamtmanns í Viðey, ættföður
Stephensenættarinnar. Móðir
Ragnheiðar var Hólmfríður Jóns-
dóttir, varalögmanns í Víðidals-
tungu, Ólafssonar, lögsagnara á
Eyri og ættfóður Eyrarættarinnar,
Jónssonar. Móðir Hólmfríðar var
Þörbjörg Bjarnadóttir, sýslumanns
á Þingeyrum, Halldórssonar, og k.
h., Hólmfríðar Pálsdóttur, lögmanns
í Víöidalstungu, Vídalín.
Móðir Magnúsar var Anna Guð-
rún, dóttir Carls Friðriks Schram,
b. á Kornsá í Vatnsdal, Christians-
sonar Schram, verslunarstjóra í
Höfðakaupstað, ættföður Schram-
ættarinnar. Móðir Önnu var Mar-
grét Stefánsdóttir frá Hofi í Vatns-
dal, amma Árna Pálssonar prófess-
ors.
Systkini Guðrúnar voru Gísh, sjó-
maður á Skagaströnd, og Sigþrúður,
húsmóðir á Skagaströnd.
Guðrún er dóttir Einars, b. á Haf-
urstaðakoti í Vindhælishreppi,
Gíslasonar, b. í Köldukinn á Ásum,
Jónssonar, b. á Höllustöðum í
Blöndudal, Halldórssonar, frá Foss-
um í Svartárdal, af „Harðabónda-
ættinni". Móðir Guðrúnar var Mar-
ía Guðmundsdóttir, systir Guð-
mundar á Torfalæk, föður Páls
Kolka læknis og Elínborgar á
Kringlu í Torfalækjarhreppi, móður
Guðrúnar Teitsdóttur, ljóSmóður á
Skagaströnd. Móðir Maríu var Guð-
rún Guðmundsdóttir, smiðs á Síðu
í Víðidal, Guðmundssonar, og k.h.,
Guðrúnar Sigfúsdóttur Bergmann,
b. og hreppstjóra á Þorkelshóli í
Víöidal, Sigfússonar, ættföður Berg-
mannsættarinnar.
Friðrik Ágústsson
Tómas Aldar
Baldvinsson
Friðrik Ágústsson prentari, Heiðar-
lundi 7A, Akureyri, verður sjötugur
á morgun.
Starfsferill
Friðrik fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann hóf nám í prentun í
Gutenberg 1942, lauk þar sveins-
prófi 1946. Þá sótti hann tæknileg
verkstjórnar- og hagræðingarnám-
skeiðlMSÍ 1968.
Friðrik starfaöi í Gutenberg til
1961, var prentmeistari og yfirverk-
stjóri í Plastprenti 1961-71 og síðan
verkstjóri við plastpokagerð Plast-
einangrunar á Akureyri.
Friðrik var garðstjóri HÍP1963-70,
stjórnskipaður í orlofsheimilis-
nefnd félagsins 1967-71 og sat í
stjórn byggingarfélagsins Miðdalur
1969-71.
Fjölskylda
Friðrik kvæntist 2.12.1944 Guð-
rúnu Jónsdóttur Scheving, f. 1.9.
1919, húsmóður. Hún er dóttir Jóns
Scheving Hanssonar, verkamanns í
Reykjavík, og k.h., Sigríðar Magn-
úsdóttur. Friðrik og Guðrún skildu.
Börn Friðriks og Guðrúnar eru
Ágúst, f. 26.10.1944, hárskurðar-
meistari; Sigríður Jóna, f. 5.7.1950,
snyrtisérfræðingur; Erla, f. 9.8.1951,
hjúkrunarfræðingur.
Friðrik kvæntist í maí 1972, Her-
dísi Gunnlaugsdóttur, f. 1.5.1942,
afgreiðslustjóra Landsbankans í
Kaupangi á Akureyri. Hún er dóttir
Gunnlaugs Jónssonar, b. að Sunnu-
hvoh í Bárðardal, og Árdísar Sig-
urðardóttur húsfreyju.
Sonur Friðriks og Herdísar er
Gunnlaugur Friðrik, f. 16.3.1972,
háskólanemi.
Foreldrar Friðriks voru Ágúst Fr.
Guðmundsson, f. 25.5.1891, d. 27.5.
1962, skósmiður í Reykjavík, og k.h.,
Maíendína Guðlaug Kristjánsdóttir,
Friðrik Ágústsson.
f. 11.5.1891, d. 12.4.1972, húsmóðir.
Friðrik verður staddur í „Sæl-
unni“ í landi Félags bókagerðar-
manna í Miðdal við Laugarvatn.
Tómas Aldar Baldvinsson múr-
ari, Þrúðvangi 31, Hellu á Rangár-
völlum, varð fertugur í gær.
Starfsferill
Tómas fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Smáíbúðarhverfinu. Hann
lauk gagnfræðaprófi frá Vogaskóla
1972 og stundaði síðan nám í múr-
verki.
Tómas stundaði sjómennsku og
fiskvinnslu áður en hann hóf iðnn-
ámið en hefur stundað múrverk frá
1988. Hann starfar nú hjá Hitaveitu
Rangæinga og hefur verið búsettur
á Hellu frá 1992.
Fjölskylda
Tómas kvæntist 4.6.1978 fyrri
konu sinni, Þorbjörgu Theodórs-
dóttur. Hún er dóttir Theodórs Ól-
afssonar vélstjóra og Margrétar Sig-
urðardóttur húsmóður. Tómas og
Þorbjörgskildu 1984.
Böm Tómasar og Þorbjargar eru
Theodór Aldar Tómasson, f. 4.4.
1978, og Hrefna Tómasdóttir, f. 3.3.
1984.
Tómas hóf sambúð í febrúar 1988
með Jónu Björgu Pálsdóttur, f. 10.10.
1966, húsmóður. Hún er dóttir Páls
Inga Jónssonar á Hellu og Þórnýjar
Guðbjargar Oddsdóttur.
Dóttir Tómasar og Jónu Bjargar
er Steina Guðbjörg Tómasdóttir, f.
9.9.1991.
Foreldrar Tómasar: Baldvin Har-
aldsson, f. 25.1.1928, d. 4.7.1992,
múrari í Reykjavík, og Guðrún Guð-
mundsdóttir, f. 27.11.1930, verka-
kona.
Hefur þú efni á □ A c 1 ormn hoccn frnrí ? Áskriftarsíminn er 63*27»00
cfl.C/ ijlv/jpjpci JpL/íjij II ícJUJHlIIcLsI 1 • Ferðaáskriftargetraun DV - Ævintýri í viku hverri! Island Sækjum það heim!