Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1994, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
Fréttir
Eigandi Gýmis um niðurstöðu rannsóknar varðandi staðdeyfilyfið litocaine:
Bara ágiskun hjá RLR
- menn verða að vera hundrað prósent vissir um svo alvarlega hluti gagnvart mér
„Ég gaf hestinum ekki þetta lyf
innan við tíu klukkustundum áður
en hann var felldur. Gýmir fékk þetta
lyf hins vegar á laugardegi viku fyrir
mótið. Ég er búinn að lesa þessa nið-
urstöðu. Þar stendur ekkert sem þeir
geta staðfest - að hesturinn hafi feng-
ið lyfið tíu tímum fyrir keppni. Þetta
er meira ágiskun. Þetta er ekki sam-
kvæmt stöðluðum niðurstöðum,"
sagði Hinrik Bragason, eigandi
Gýmis, sem var felldur á landsmót-
inu eftir að hann fór úr Uði á fætí í
keppni. Hinrik er staddur í Þýska-
landi og var spurður um niðurstöðu
rannsóknar sem var gerð á vegum
rannsóknarstofu Háskólans í lyfja-
fræði. Samkvæmt upplýsingum RLR
leiddi hún í ljós að hestinum var gef-
ið staðdeyfilyfiö litocaine innan við
tíu klukkustundum áður en hann
var felldur. Ástæða þess að rann-
sóknin var gerð var einmitt gnmur
þessa efnis enda hefði hesturinn vart
fundið fyrir þeim fæti sem fór úr liði
í keppninni vegna staðdeyfingar. Því
hefði farið sem fór. Fram hafði kom-
ið hjá sjónarvottum að hesturinn var
haltur landsmótshelgina. Þessu hef-
ur Hinrik neitað.
- Rannsóknaraðilar skilgreina lyfia-
niðurstöðuna á þann hátt að hestin-
um hafi verið gefið lyfið innan við
tíu klukkustundum áður en hann
var felldur.
„Það er að mínu mati bara ekki
rétt.“
- Þeir segja innan við tíu klukku-
stundum en þú hefur sagt viku fyrir
keppni. Er þetta ekki fullmikill mun-
ur?
„Þriðjudaginn eftir slysið afhent-
um við yfirlýsingu frá dýralæknin-
um mínum sem meðhöndlaði hest-
inn allan tímann. Þar kemur fram
hvenær Gýmir fékk þetta tiltekna
lyf. Við áttum því alltaf von á að lyf-
ið fyndist í hestinum. En það sem
stendur í rannsóknargögnunum er
ekkert sem getur fengið menn til að
staðfesta að hesturinn hafi fengið
þetta tíu tímum fyrir keppni.“
- Það er gert engu að síður.
„Minn dýralæknir er búinn að
skoða þetta og yfirfara. Að því er ég
best veit er ekkert þama sem segir
fast til um að hestinum hafi verið
gefið þetta lyf inn tíu stundum fyrir
keppni eða fyrr.“
- Er það þá beinlínis rangt að Gými
hafi verið gefið litocaine innan við
tíu klukkustundum fyrir keppni?
„Það eru engar niðurstöður í rann-
sókninni sem sanna það.“
- Er fullyrðingin þá röng?
„Að minu mati er hún röng. Þetta
verður að vera hundrað prósent. Það
má enginn vafi leika á neinu þarna.
Við erum aö tala um mjög alvarlega
hluti sem snúa að mér. Menn verða
að geta staðið algjörlega fastir á því
sem hefur verið haldið fram - en
þeir geta ekki gert það. Ég veit best
sjálfur hvaö hesturinn fékk og hve-
nær. Samkvæmt minni vitímd var
þetta ekki svona," sagði Hinrik
Bragason. Ekki náöist í Helga Sig-
urðsson dýralækni sem meðhöndlaði
Gými fyrir keppni.
Torfærukeppni:
Áhorfendur
á sjúkrahús
Fjórir áhorfendur á torfæru-
keppni, sem fram fór á Glerárdal of-
an Akureyrar um helgina, voru flutt-
ir á sjúkrahús eftir að hafa fengið
yfir sig möl og gijót frá einni bifreið-
inni í keppninni.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
brotnaði afturdrif í bifreiðinni þegar
hún var í síðustu þrautínni. Bifreiðin
hélt áfram upp brekkuna á framdrif-
inu en þetta óhapp varð til þess að
bifreiðin jós gijóti og möl yfir þá
áhorfendur sem næstir voru. Fiórir
þeirra voru fluttir á slysadeild til
aðhlynningar, sár tveggja þeirra
þurfti aö sauma saman en meiðsli
fólksins reyndust ekki alvarleg.
SjáKstæðis-
flokkurkominn
meðkjörfylgi
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Gallups nýtur ríkisstjómin nú 46%
fylgis. Ef kosið væri nú fengi Alþýðu-
flokkurinn tæplega 9% atkvæða,
Framsóknarflokkurinn tæplega
21%, Sjálfstæðisflokkurinn um 38%,
Alþýðubandalagið tæplega 14%,
Kvennalistinn 12% og listi Jóhönnu
Sigurðardóttur 5%.
Stuttar fréttir
Þúsundir ferðamanna hafa ferðast um Jökulsárlónið í sumar með bátum Ferðaþjónustunnar á staðnum en sigling-
ar hófust um lónið sumarið 1985. Siðasta sumar fóru um 18 þúsund manns um lónið og að sögn Sigurbergs
Arnbjörnssonar, eins þeirra sem sér um siglingarnar, má gera ráð fyrir að fjöldinn verði enn meiri í ár. „Fólk
kemur aftur og aftur til okkar og jafnvel útlendingarnir koma að ári með vini sina með sér,“ segir Sigurbergur.
Siglingin um lónið tekur hátt i klukkustund og er farið inn á milli ísjakanna. Fara þarf með varúð enda vefta jakarnir
oft til með miklum gusugangi. Fegurðin er mikil og á siglingu um lónið er ferðalöngum boðið að bragða á ísmol-
um. Talið er að klakinn hafi myndast úr snjó sem féll á Vatnajökul á landnámsöld. DV-mynd Kristján Ari Arason
Kekla þenstút
Hekla hefur þanist út í tengsl-
um \1ð jarösKjálftatirinuna við
Hveragerði. Samkvæmt Mbl.
hafa jarðskjálftar í Hveragerði
fylgt eldgosum í Hekiu.
Fæiribflar
Alls fækkaði um 4.300 bíla í bif-
reiðafloti landsmanna á siðasta
ári. Alls hefur fækkað um 9 þús-
und í flotanum síðan bílaeignin
náði hámarki 1988. Tíminn
greindi fiá þessu.
Símaskráinleiðrétt
Póstur og simi hefur sent ieið-
réttingarseðla til simnotenda
vegna villna í símaskránni. Um
er að ræða nöfn og símanúmer
lækna og nokkurra einstaklinga.
Engin nafnleynd
Forsætisráðuneytiö hefur aug-
lýst embætti umboðsmanns
bama laust til umsóknar. Um-
sækjendum er ekki boðin nafn-
leynd eins og tíðkast hefur.
Minkaveiðinjókst
Um 7000 minkar veiddust á
landinu í fyrra en það er rúmlega
þúsund minkum meira en árið
þar á undan. Venjuleg ársveiði
hefiir verið 4500-6000 minkar.
Tíminn greindi frá þessu.
Aðilar innan stjómar Kirkjugarða Reykjavíkur:
Vilji til að semja af
sér 15 milljóna dóm
- viðræður hafa fariö fram viö Ukkistuvinnustofa Eyvindar Ámasonar
Samkvæmt heimildum DV hafa
aðilar innan sljómar Kirkjugarða
Reykjavikur að undanfomu verið
i viðræðum við forsvarsmenn Lík-
kistuvinnustofu Eyvindar Áma-
sonar um að gert verði samkomu-
lag vegna dóms Héraðsdóms
Reykjavíkur þar sem kirkjugörð-
unum var gert að greiða stofunni
um 15 milljónir króna vegna ólög-
mætra viöskiptahátta. Auk þess
hefur verið rætt um að koma
rekstri útfararþjónustu kirkju-
garðanna í „varanlegt og viðun-
andi form“.
Samkvæmt heimildum DV hafa
framangreindar viðræður verið
óformlegar en rekstrarstaöa Lík-
kistuvinnustofunnar er mjög slæm
sem stendur - greiðslur vegna
dómsniðurstöðunnar hafa ekki
verið inntar af hendi.
Kirkjugarðar Reykjavíkur vora
dæmdir til að greiða Líkkistu-
vinnustofu Eyvindar Ámasonar
um 15 milljónir króna í skaðabætur
þar sem þeir töldust hafa tekið við-
skipti af fyrirtækinu á 8 ára tíma-
bili með því að nota kirkjugarðs-
gjöld til að niðurgreiða útfarar-
þjónustu. Þannig hefði líkkistu-
vinnustofan farið halloka hvaö
varðar samkeppnishæfni.
Eftir þetta var málinu áfrýjað
sem þýddi að engar greiðslur þarf
að inna af hendi. Líkkistuvinnu-
stofan hefur átt í verulegum
rekstrarörðugleikum, m.a. vegna
byggingar á húsnæði fyrir rekstur-
inn sem risið er gegnt Fossvogs-
kirkjugarðinum. Starfsmenn Toll-
stjóraembættisins stöðvuðu starf-
semi í húsinu á miðvikudag vegna
vangoldinna gjalda en opnað var á
ny í gær.
Eftir að dómurinn gekk var tals-
verðum fiármunum í eigu Kirkju-
garða Reykjavíkur ráðstafað til að
stofna sjálfstætt fyrirtæki í útfarar-
þjónustu. Kirkjugarðamir héldu
þannig starfsemi sinni áfram með
óeðlilegum hætti að áliti forsvars-
manna Líkkistuvinnustofunnar.
Eftir þetta var lagt fram erindi til
umboðsmanns Alþingis vegna
breytinganna hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkur. Málið er þar í vinnslu
en kvörtunin gengur út á að emb-
ættisfærslur dómsmálaráðherra
hafi ekki verið í samræmi við lög
um viðskiptahætti. Auk framan-
greindra aðgerða var gripið til þess
ráðs í vetur að fara fram á svokall-
aöa löggeymslu vegna málsins.
Umframeyðsla sjúkrahúsanna:
Þeir sem bera
ábyrgðina verða
kallaðir á teppið
- segirSighvaturBjörgvinsson
„Það er ekki málið að loka stofnun-
um eða hætta að taka á móti sjúkling-
um. Aðalatriðið er að finna hvað
hefur komið fyrir og reyna svo að
takast á við þann vanda,“ segir Sig-
hvatur Björgvinsson heilbrigðisráð-
herra.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar um
framkvæmd fiárlaga á fyrri hluta
ársins kemur fram aö til aö tryggja
óbreyttan rekstur sjúkrahúsanna í
Reykjavík þurfi að koma til viðbótar-
framlag úr ríkissjóði upp á 630 millj-
ónir. Helstu skýringamar á fiárvönt-
uninni era aukin útgjöld vegna
kjarasamninga, kostnaöarauki um-
fram áætlanir vegna bráðavakta,
auk þess sem sértekjur hafa verið
ofáætlaðar.
Sighvatur segir að nú þegar séu
hafnar viðræður milh heilbrigðis-
ráðuneytisins og sjúkrahúsanna þar
sem fara á ofan í saumana á vandan-
um og finna spamaðarleiöir. Þega
séu hafnar viðræður við Borgarspít
alann þar sem vandinn er mestur.
„Menn heimta skýringar. Komi
ljós að fiárþörfin stafi af því að laui
hafi hækkað vegna kjarasamning
þá hljóta viðbótarframlög að kom
til. Þaö er ekki hægt að refsa stofnun
um fyrir það sem fiármálaráðherri
gerir. Komi hins vegar í ljós a
sjukrahúsin hafi lagt út í nýja starí
semi án þess að tryggja sér nauðsyn
legt fiármagn verður rætt við þá sen
bera ábyrgðina á því.“
Aðspurður segir Sighvatur kom;
ti* sreina að skipa tilsjónarmenn ei
i á Þó síður von á því. Þrátt fyrir ai
heimild sé fyrir slíku inngripi hal
enn ekki reynt á hana. „Það er ekk
góð latína að eyða umfram efni. Þei
sem bera ábyrgð á slíku verða kallað
ir inn á teppið og kraíðir svara.“