Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1994, Side 4
Fréttir
Jeltsín Rússlandsforseti:
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
Sendi einkaþotu til Islands
til að ná í Ladaforsfjórann
- sem er samstarfsmaöur og ráðgjafi forsetans
Aðalforstjóri Lada-verksmiðjanna
í Rússlandi, Vladimir Kadanikov,
var staddur hér á landi frá 5. til 14.
ágúst sl. í boði Gísla Guðmundsson-
ar, forstjóra Bifreiða og landbúnað-
arvéla. Kadanikov, sem er náinn
samstarfsmaður Jeltsíns forseta,
varð í flórða sæti við val forsætisráð-
herra Rússlands á síðasta ári. Hann
hefur verið þingmaður síöustu árin.
Kadanikov ferðaðist vítt og breitt
um landið að þessu sinni en hann
hefur tvisvar áður komið til lands-
ins, fyrst árið 1989. Hann þurfti hins
vegar að fara fyrr heim nú en ráð-
gert hafði verið til viðræðna við
Jeltsín en forsetinn sendi einkaþotu
eftir Kadanikov.
„Hann var hér í fríi með fjölskyld-
una. Þau voru öll sammála um að
ísland væri paradís á jörðu,“ segir
Gísh.
Kadanikov hefur verið forstjóri
Lada í 6 ár. Höfuðstöðvar verksmiðj-
anna eru í borginni TogUatti sem er
við Volgubakka, eina 1000 km frá
Moskvu. Verksmiöjurnar framleiða
800 þúsund bíla á ári og hefur borgin
verið köUuð „Detroit" Rússlands. í
borginni búa 350 þúsund manns og
þar af vinna 150 þúsund í Lada-
verksmiðjunum. Áhrif Kadanikovs
eru því mikil í borginni.
Tekjur hestamanna
— mánaóartekjur í þúsundum króna á árinu 1993 —
28 Oli Herbertsson
36 Baldvin Ari Guðlaugsson
56 Ásgeir Herbertsson
54 Albert Jónsson, Votmúla
I I
64 Indriði Ólafsson, Þflifu
i i . -
69 Einar E. Gíslason, Varmahlíð
| j
69 Reynir Sigurstefnsson, Hlíðarbergi
i i
93 Hafliði Halldórsson
I í ,
102 Sveinn Guðmundsson, Sauðárkróki
117 Ágúst Sigurösson, Kirkjubæ
150 Einar Bollason
173 Hinrik Bragason
249 Gunnar Arnarsson
SHHH
274 Sigurbjörn Bárðarson
i ! f;
0 50 100
150
200
250 300
rmiU
Bandaríski togarinn:
Farinn á Svalbarðasvæðið?
„Hann var að veiðum í Smugunni
innan um okkur. Hann hííði og fór
eitthvað, ég veit ekki hvort hann fór
á Svalbarðasvæðið," segir Guð-
mundur Gíslason, stýrimaður á
Skagfirðingi SK, við DV.
Einn bandarískur togari er að veið-
um í Barentshafmu. Skipið, sem heit-
ir Ocean Hunter, mun hafa tilkynnt
norsku gæslunni að hann viður-
kenndi ekki lögsögu Norðmanna á
Svalbarðasvæðinu. Guðmundur
sagðist hafa heyrt þetta haft eftir
honum.
Nú velta menn fyrir sér hvort tog-
arinn sé á fiskverndarsvæðinu og þá
hvort Norðmennirnir muni ganga að
honum á sama hátt og íslendingum.
Umboðsaðili bjórs
ítrekar kröf u sína
Þorsteinn Halldórsson, umboðs-
maöur Bitburger bjórs, hefur í bréfi
til fjármálaráðherra ítrekað kröfu
sína að fá að leysa úr tollvörugeymsl-
unni vörusendingu frá umbjóðanda
sínum án afskipta ÁTVR.
Eins og greint hefur verið frá í DV
telur Þorsteinn það einungis á færi
fjármálaráðuneytis að leggja gjöld á
áfengi samkvæmt gildandi tollskrá
og í samræmi við EES-samninginn.
Þorsteinn sendi tollstjóranum í
Reykjavík bréf þessa efnis og sendi
tolistjórinn erindið til fjármálaráð-
herra tU „þóknanlegrar athugunar".
Svar fjármálaráðherra hefur hins
vegar ekki borist.
Þorsteinn segir að langt sé liöið frá
því aö erindið var sent ráðuneytinu
og minnir hann á í nýjasta bréfi sinu
að vara umbjóðanda síns sé með tak-
markað geymsluþol. Því sé orðið að-
kallandi að það fái eðlUega afgreiðslu
án frekari tafa.
Minnir hann að að í stjómsýslulög-
um sé kveðið á um að ákvörðun í
máh skuU tekin svo Ujótt sem unnt
er, að öðmm kosti beri samkvæmt
sömu lögum að skýra frá ástæðum
tafanna og hvenær ákvöröunar sé
að vænta.
Úttekt á tekjum hestamanna:
Þekktir hestamenn
vart matvinnungar
- Sigurbjöm Bárðarson tekjuhæstur með 274 þúsund á mánuði
AthygU vekur að tekjur hesta-,
tamningamanna, reiðkennara og
sölumanna hesta á síðasta ári eru
frekar lágar miðað við það sem ætla
mætti af umfangi starfsemi þeirra.
Tekjuhæstur er Sigurbjörn Bárð-
arson, íþróttamaður ársins hjá DV,
með 274 þúsund krónur á mánuði. Á
hæla hans fylgir Gunnar Arnarsson
með 249 þúsund krónur. Hinrik
Bragason, eigandi Gýmis sem sleg-
inn var af á dögunum, er þriðji tekju-
hæsti einstaklingurinn með 173 þús-
und krónur á mánuði. AlUr þrír eru
hestakaupmenn, auk þess sem þeir
stunda önnur störf tengd hesta-
mennsku. Einar Bollason, sem rekur
umsvifamikla hestaleigu, er með 150
þúsund krónur í mánaöartekjur.
Meðal tekjulágra manna í þessu
fagi eru bræðurnir Óli og Ásgeir
Herbertssynir, Óli með 28 þúsund
krónur í mánaðartekjur og Ásgeir
með 56 þúsund krónur. Baldvin Ari
Guðlaugsson frá Akureyri var ein-
ungis með 36 þúsund krónur á mán-
uði á seinasta ári og Albert Jónsson
í Votmúla með 54 þúsund. Indriði
Ólafsson, Þúfu, einn eigenda stóð-
hestanna Þorra og Orra, var með 64
þúsunda króna mánaðartekjur.
Úttekt þessi nær einungis til tekna
en ekki launa. Um er að ræða skatt-
skyldar tekjur í fyrra eins og þær
voru gefnar upp til skatts eöa áætlað-
ar og reiknað útsvar af.
Slippstöðin Oddi:
Forstjórastaðan laus
Staða forstjóra Slippstöðvarinnar
Odda hf. á Akureyri hefur verið aug-
lýst laus til umsóknar og er leitaö
að manni með tækni- og/eða við-
skiptamenntun.
Guðmundur Tulinius, sem gegnt
hefur stöðunni, sagði í samtali við
DV að ráðning hans hefði alltaf verið
tímabundin og um það hvort hann
yrði hugsanlega á meðal umsækj-
enda um stöðuna vildi hann ekkert
segja.
Um verkefnastöðu fyrirtækisins
sagði Guðmundur aö hún hefði verið
góð aö undanfórnu og svo yrði fram
í september en þess bæri að vísu að
geta að nú störfuðu færri menn í
stöðinni en áður. Um stærri verkefni
fram undan sagði Guömundur að
engir samningar um slík verkefni
væru komnir það langt að hægt væri
að tjá sig um slíkt opinberlega. „Það
er alltaf óvissutími á haustin og við
reynum að takmarka þá óvissu eins
og við getum," sagði Guðmundur.
Grunnskólinn í Stykkishólmi:
Óánægja með ráðn-
ingu skólastjóra
- enginn til svara 1 menntamálaráöuneytinu
„Það er meö ólíkindum að ráð-
herra skuli ekki veita þeim manni
stöðuna sem hefur meiri menntun.
Þetta er í algerri andstöðu við fyrri
yfirlýsingar hans um gildi menntun-
ar,“ sagði reiður viðmælandi DV
vegna .ráðningar menntamálaráö-
herra í stöðú skólastjóra grunnskól-
ans í Stykkishólmi. Tveir umsækj-
endur voru um stöðuna, Gunnar
Svanlaugsson, yfirkennari og aðstoð-
arskólastjóri í skólanum til nokk-
urra ára, og Kristinn Breiðfjörð Guð-
mundsson, skólastjóri að Reykjum í
Hrútafriði. Skólanefnd mælti með
Kristni í starfið í skjóh meiri mennt-
unar hans en ráðherra setti hins veg-
ar Gunnar í starfið til eins árs.
„Eftir að umsóknimar' vom af-
greiddar héðan til ráðuneytisins er
kosning til sveitarstjómar dæmd
ógild og þar með var nýkjörin skóla-
nefnd ógild til umflöllunar um málið.
Að athuguðu máh tekur ráðherra þá
ákvörðun að hann vhji ekki ráða í
þessa stöðu á þessum grundvelh því
sú ráðning gæti orðið ógild vegna
þess að réttir umsagnaraðilar hafl
ekki verið til staðar. Niðurstaðan
varð sú að hvorug umsóknin er af-
greidd en aðstoðarskólastjóra skól-
ans er fahð að gegna starfinu til eins
árs. Samkvæmt gmnnskólalögum er
aðstoðarskólastjóri staðgengill
skólastjóra. Bráðabirgðaráðstöfunin
byggist á þessu óvissuástandi sem
ríkir í sveitarsjórnarmálum á staðn-
um,“ sagði Snorri Þorsteinsson,
fræðslustjóri Vesturlandsumdæmis.
Enginn hefur verið við í ráðuneyti
menntamála th þess að svara fyrir
þessi mál. Að sögn Harðar Lárusson-
ar, deildarstjóra í framhaldsskóla-
dehd, reka menn aðeins inn nefið th
þess að afgreiða mál þessa dagana
en eru að öðru leyti í fríi.