Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1994, Síða 12
12
Spumingin
Hver er uppáhaldsstaður
þinn á íslandi?
Brynja Sævarsdóttir: Bláa lóniö.
Helga Friðriksdóttir: Svartifoss.
Linda, Signý og Gerða: Tálknafjörð-
ur.
Guðrún og Bjarki: Berserkjahraun.
Eva og Bjartur: Ásbyrgi.
Mjöll og Frosti: Bræðraborg í Borg-
arfirði.
Lesendur
Hálf áttræður kransæða-
sjúklingur gengur aftur
Andrés H. Valberg malari skrifar:
Ég var fluttur í sjúkrabíl á hjarta-
deild Landspítalans árið 1990, en
hafði þjáðst áður í mörg ár af ýmsum
meltingarsjúkdómum, svo sem
magabólgum, skeifugamarsári, rist-
ilbólgu og gylbnæð. - Með þessa
heilsu gat gamall maðurinn ekki
unnið nema hálfan dag og þótti gott.
Vegna þessa sótti á mig þunglyndi
og algjör uppgjöf var á næsta leiti.
Þessi erfiðismaður, sem ég var, hafði
þrælaö frá barnsaidri eða í 70 ár og
kveið mest fyrir því að þurfa að leggj-
ast fyrir sem sjúklingur á annarra
framfæri, gleypa í mig margar teg-
undir af rándýrum meðulum og
reyna margar sortir af erlendum,
dýrum pakkamat eins og gæludýr,
og vera hafður að féþúfu þeirra fram-
leiðenda.
Til að stytta þessa raunasögu fór
ég austur í sveitir til að leita að and-
legum sólargeisla hjá fólkinu á Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum, og
komst þar m.a. í kynni við Maríbygg-
iö sem búið er að rækta þar í nær
40 ár án þess að sá mikh lækninga-
máttur sem í því er væri kannaður.
Ég fékk því nokkur kfió af bygginu
tíl prufu, handmalaöi það og byijaöi
að borða; 2 kúfaöar matskeiðar að
morgni og 1 að kvöldi út í súrmjólk
eða graut. Fór ég og með hluta af því
til rannsóknar á Rannsóknastofnun
landbúnaðarins í Keldnaholti.
Kom í ljós að þar bar mest á trefja-
efni, eitthvað um 28%, ásamt öUu því
sem nauðsynlegt er hverjum manni,
svo sem prótein, steinefni, kalíum,
fosfór, kalk, magníum og natríum. -
Strax á fyrsta degi fór þetta að verka
og síöastliðin 3 ár hef ég, þessi aldr-
aði unglingur, varla unnið skemur
en 12 tíma á dag.
Nú eru möluð mörg tonn af korni
á ári á Þorvaldseyri og þaö notað
bæði í grófu (t.d. út í súrmjólk) og
eins fínmalað tU baksturs. Þetta er
eina komið á íslandi sem er þurrkað
við heitan blástur frá hitaveituvatni
og er því alveg laust við mengun frá
olíubrennsluhita.
Nú langar þennan afturgengna
mann, sem ég er orðinn, að láta gott
af sér leiða og hjálpa fólki á öUum
aldri tíl að ná tapaðri heUsu eða tU
að halda því sem guð gaf, og tU þess
þarf að kenna fólki á rétt mataræði
og lifnaðarhætti, sem er mjög frá-
brugðið því sem tíðkast í dag. Eg var
skoðaöur hjá Hjartavemd nýlega og
borin saman rannsókn frá 1990, og
er útkoman einstaklega hagstæð
þrátt fyrir hækkandi aldur, enda orð-
inn þjáningalaus með öUu. Þökk sé
Trefjarnjöli, bygginu frá Þorvalds-
eyri. Óska ég svo öllum langra líf-
daga með guös hjálp og góðra manna.
R *.t <* : 3 !: V R t R M 1 1. 1 1 S «: l: N \ j TREFJA 1 s,
li
Andrés, sem kveið þvi að leggjast fyrir sem sjúklingur á annarra framfæri, tók til við neyslu á grófu byggi frá
Þorvaldseyri og telur sig síðan í hópi aldraðra ungiinga.
Bankinn minn og debetkortið
Daddi skrífar:
Bankinn minn hefur búið til debet-
kort fyrir mig með kennitölu, mynd
og tilheyrandi. - Þegar ég fékk þetta
spjald í hendur hélt ég að komist
hefðu á gagnkvæmir samningar um
það að ef ég héldi öll skUyrði bank-
ans, hvaö snertir notkun á kortinu,
sæi bankinn minn um að ég gæti
notað kortið við mín viðskipti, svipaö
og væri ég með tékkheftið mitt góða.
Sannarlega er það ekki svo. - Eftir
lestur á sex siðna bæklingi um debet-
kort - Reglur og skiimálar, útgefiö
af öUum kortaútgefendum, snýst aUt
um ábyrgð mína á kortinu. Einnig
týndu og stolnu, en bankinn minn í
gegnum 45 ár er „ekki ábyrgur fyrir
tjóni né óhagræði, sem verður vegna
þess að móttöku debetkortsins er
hafnað" (bls. 3, grein 7.4).
Eftir stutta athugun á tékkheftinu
get ég notað debetkortið í u.þ.b. 10%
þeirra greiðslna sem ég inni af hendi
mánaðarlega og hef því aldrei annaö
en óhagræöi af notkun kortsins í öU-
um hinum tilfeUunum.
Ég vildi láta þetta sjónarmið koma
fram í umræðunni um debetkortið
og aUt ruglið í kringum það, án þess
þó að nafn mitt eða kennitala kæmi
fram við yfirskrift þessa pistils, til
þess aö koma í veg fyrir að starfsfólk
debetkortaútgefendanna geti hugs-
anlega farið inn í sínar tölvur og
skoðað bankaviðskipti mín í hvaða
banka sem er eða í öUum bönkum
og upplýst almenning um innstæðu
eða innstæðuleysi á reikningum
mínum - í dagblöðum.
Benny Hinn og kraftaverkin
hans og kaUa Bandaríkjamenn þó
ekki aUt ömmu sína þegar um góða
prédikara er að ræða. Þeir veröa að
vera alveg sérstakir til að ávinna sér
hyUi almennings. Ég er þess fuUviss
að Benny Hinn á marga aðdáendur
hér á landi sem þekkja hann orðið
af afspum og ekki kannski síður hjá
þeim sem hafa kynnst honum í sjón-
varpsþáttum Omega-sjónvarpsstöðv-
arinnar hér. Ég vona að þessi heim-
sókn Benny Hinns skUji eftir sig djúp
en heUlarík spor, svo mikUs vænti
ég af komu hans hingað.
Benny Hinn (t.v.) að störfum á einni af samkomum sínum vestanhafs.
Þorsteinn Sigurðsson skrifar:
Ég fyUtist gleöi við að heyra um
að bandaríski sjónvarpsprédikarinn
Benny Hinn væri væntanlegur tU
íslands. Hann mun ætla að efna tU
samkomu hér á landi nk. sunnudags-
kvöld í íþróttahúsinu í Hafnarfirði.
Þar sem hann hefur predikað er al-
gengt að þúsundir manna komi á
samkomu til hans og fjöldi manna
hefur læknast á samkomunum. Ég
varð sjálfur vitni að einni slíkri sam-
komu er ég var í Orlando fyrir rúmu
ári en þar er bækistöð þessa mikla
prédikara og andans manns.
Benny Hinn er sá bandarískur
prédikari sem mest er horft á í sjón-
varpi um þessar mundir í heimalandi
Hringið í sima
632700
millikl. 14og 16-eðaskrifíð
ATH.: Nafn og símanr. verður
að fylgja bréfum
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 '
Alþjóðadóm-
stóHinníHaag!
Árni Jónsson hringdi:
Síðan hvenær er nú Alþjóða-
dómstóllinn í Haag orðinn átrún-
aðargoð okkai- íslendinga?. Er
ekki allt í einu farið að hengja
hatt sinn og von á aö þessi dóm-
stóU, skipaöur örvasa gamal-
mennum úr hópi uppgjafa póh-
tíkusa og sendiherra, sé það skjól
sem okkur íslendingum verður
notadrýgst! Ég segi: Aldrei til
Haag með raáliö.
meðbyssuna
Gissur skrifar: . _
Fallbyssan fjarlægð af Óðni áð-
ur en hann fer í Barentshafiö. -
Er þetta nú ekki dæmigerð sýnd-
armennska og bjánaháttur eins
og hann gerist verstur í þjóðfélag-
inu? Hvaða máli skipti byssan þar
sem hún var? Eða er hugsunin
að láta útlendinga segja sem svo;
Alltaf eru íslendingar boðberar
friöar og réttlætis hvar sem þeír
fara. Mikið er þetta nú væn og
góð þjóð, hvergi vilja þeir ófriö!!
JónogséraJón
Ragnar Tómasson skrifar:
í æsku sótti ég sunnudagaskóla
og safhaði Jesúmyndum. Mér er
Ijúft að trúa og treysta á Jesú og
gæsku hans. - Seinna sóttu efa-
semdir að. Ég sá ekki að þeir trú-
uðu væru samferöamönnum sín-
um betri eða umburöarlyndari
en aörir. Kærleiksboðskapurinn
hafði gleyinst. Ástin lætur illa aö
stjórn og hvorki vald né auður
ná að tendra loga hennar eða
slökkva. Hún gerir engan mun á
Jóni og séra Jóni. - Sóknin á Sel-
fjarnarnesí stendur frammi fyrir
vali: stendur hún með presti sín-
um eða meirihluta sóknamefnd-
ar; með kærleiksboðskapnum
eða fordæmingunni? Hvaö liefði
Kristur gert?
Framtíðin í
fingraförunum
Ólafur hringdi:
: Mikiö er rætt um hin margvís-
legu greiðslukort og notkun
þeirra. Ein aöferðin veitir mönn-
um heimild til fjárúttcktar úr
hraöbönkum eöa annars staðar
með þvi að stimpla inn sérstakt
leyninúmer. Oft klúðrast þessi
framkvæmd, menn gleyma réttu
núroeri o.s.frv. Einhvers staðar
las ég að í þróun væri notkun
fingrafara í tengslum við per-
sónuskilríki og úttektir úr banka-
stofnunum. Líklega er framtíðin
fahn í fingrafórum í miklu fleiri
tilvikum en i dag er raunin.
Leiðréttingá
lesendabréfi
Sigga Vigga skrifar:
Eg er sú er sendi inn bréfið um
eldra fólkið og garðaviðhaldið í
borginni sem birtist í DV12. þ.m.
Ég sagði að þarna borguðu aldr-
aðir og öryrkjar 500 kr. fyrir
hveija aöstoð. - Hiö rétta er aö
þetta eru u.þ.b. þijú þúsund kr.
yfir sumarið og í bréfinu leit þetta
út eins og einhverjir nytu sér-
stakra fríðinda hjá borginni.
Konan sem um var rætt bað mig
svo að skila innilegri kveðju og
þökkum fyrir þessa frábæru
þjónustu borgarinnar, svo og
unglinganna sem að þessu hafa
unnið. Þetta er hennar síöasta
sumar í húsínu og nú tekur yngra
fólkið við því í hennar íbúð kem-
ur hvorkiöldungurné öryrki. En
verið getur að þá verði að opna
budduna betur.