Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1994, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
25
Iþróttir
Iþróttir
Heimsmeistaramót unglinga í snóker:
íslandi stillt upp
ífyrstasæti
Jóhannes B. Jóhannesson er einn
af okkar bestu snókerspilurum af
yngri kynslóðinni - og hefur verið
valinn til þess að keppa fyrir íslands
hönd á Heimsmeistaramóti, 21 ára
og yngri, sem fer fram í Finnlandi
21. ágúst til 3. september. Jóhannes
mun haida út á morgun.
Það vekur mikla athygh að Jó-
hannesi er stillt upp í fyrsta sæti fyr-
ir keppnina og er það í fyrsta skipti
sem ísland er sett svo ofarlega á
Heimsmeistaramóti í snóker.
í samtali við DV sagðist Jóhannes
vera tilbúinn í slaginn:
„Ég er í mjög góðu formi núna og
ætla mér í það minnsta að ná fram
í undanúrslitin," sagði Jóhannes.
Jóhannes B. Jóhannesson er hér til vinstri ásamt Kristjáni Helgasyni sem
varð heimsmeistari unglinga hér á islandi fyrir tveimur árum.
Markverðir beggja liða, þær Sig-
friður Sophusdóttir Breiðabliki og
Sigríður F. Pálsdóttir KR, hafa
skorað í bikarkeppninni í sumar.
Sigfríður skoraði úr vítaspyrnu
gegn Haukum og Sigríður skoraði
úr vitaspyrnu gegn Fjölni.
Fimmtán hafa skorað
Bæði lið hafa skorað 21 mark í bik-
arkeppninni hingað til. KR hefur
fengið á sig 5 mörk en Breiðablik
ekkert Olga Færseth, Breiðabliki,
og Helena Ólafsdóttir, KR, hafa
skoraö mest eöa sjö mörk hvor.
TekstKRað skora?
Sigfríður Sophusdóttir, markvörð-
ur Breiðabliks, hefur ekki fengið á
sig mark í bikarkeppninni hingaö
til og samkvæmt spá hennar um
úrslit í leiknum á sunnudag ætlar
hún aö halda hreinu í keppninni.
Ásta B. með í 6. sinn
Ásta B. Gunnlaugsdóttir leikur til
úrsiita í bikarkeppni KSÍ í sjötta
sinn á sunnudag. Er hún eini leik-
maöur Breiðabliks sem hefur orðið
bikarmeistari með því liði. Vanda
Sigurgeirsdóttir þjálfari og Sigfríð-
ur Sophusdóttir markvörður hafa
báðar orðið bikarmeistarar með
ÍA.
Helena, Guðlaug og Sigurlín
Helena Ólafsdóttir, Guðlaug Jóns-
dóttir og Siguriín Jónsdóttir urðu
allar bikarmeistarar með ÍA 1992.
Helena og Guðlaug iéku eitt ár með
ÍA en Sigurlín er alin þar upp og
lék með KR í fyrsta sinn 1993.
Barátta á ölium vígstöðvum
Það verður örugglega barátta á öll-
um vígstöðvum á sunnudaginn.
Þar mætast landshðsmarkverðirn-
ir tveir, öftustu varnarmenn beggja
liða eru jafnframt þjálfarar lið-
anna, inni á miöjunni mætast fyrr-
um félagar úr Breiðablikí, þær
Margrét R. Ólafsdóttir, UBK, og
Ásthildur Helgadóttir, KR, og í
framlínu beggja liða eru tveir
markahæstu leikmenn 1. deildar
kvenna
Ingibjörg Sólrún
helðursgestur
Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi-
björg Sólrún Gisladóttir, veröur
heiðursgestur KSÍ á leiknum.
Á sunnudaginn klukkan þrjú
Leikurinn hefst á sunnudaginn kl.
15.00 á Laugardalsvelli. Miðaverði
er mjög stillt í hóf, þaö kostar 500
krónur fyrir fullorðna og 100 krón-
ur fyrir böm og gilda aliir miðar í
stúku. Sjónvarpað verður beint frá
leiknum i Ríkissjónvarpinu.
„Stærsti dagur í sögu Fram“
Knattspyrnufélagið Fram tekur á
sunnudaginn kemur í notkun nýtt
og glæsilegt íþróttahús á félags-
svæðinu við Safamýri. Hátíðarat-
höfn hefst í íþróttahúsinu klukkan
15 en það verður opnað fyrir gesti
klukkan 14.30. Eftir vxgslu hússins
verður það til sýnis tii klukkan 17.
Byggðaverk hf„ sem hefur annast
byggingu íþróttahússins, mun af-
henda félaginu það formlega til
notkunar. Alfreð Þorsteinsson,.
formaður Fram, mun lýsa húsinu
og tilurð þess. Hið nýja íþróttahús
Fram er reist með verulegu fjár-
framlagi Reykjavíkurborgar, skv.
samningi miili Rnattspymufélags-
ins Fram og borgarinnar sem und-
irritaður var 12. nóvember 1992.
Markús Öm Antonsson, þáverandi
borgarstjóri í Reykjavík, tók iyrstu
skóflustunguna aö grnnni hússins
14. mars 1993 og Ingibjörg Sólrún
Gíslasdóttír, núverandi borgar-
stjóri, flytur ávarp við opnun
íþróttahússins á sunnudaginn
kemur.
Hið nýja íþróttahús Fram er
fyrsta íþróttahúsið sem Knatt-
spyrnufélagiö Fram hefur eignast
frá því það var stofnað í Lysthúsinu
á bak við Aðalstræti 16 í miðbæ
Reykjavikur hinn l. maí árið 1908.
Önnur mannvirki í eigu félagsins
eru Framheimilið við Safamýri,
æfinga- og keppnisvellir viö Álfta-
mýri og glæsilegur skíðaskáli í Eld-
borgargili í Blátjöllum.
Vígsluleikur íþrottahússins í
handknattleik hefst klukkan 17 og
mæta þar Framstúlkur íslands- og
bikarmeistumm Víkings. Auk þess
munu yngstu leikmenn félagsins
sýna listir sínar en þennan sama
dag veröur haldinn hinn árlegi
Fram-dagur.
Eins og áður sagði mun Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
flytja ávarp viö opnun hússins. Eli-
ert B. Schram, forseti ÍSÍ, flytur
kveðju og Sveinn Ragnarsson flyt-
ur ávarp af hálfu eldri Framara.
„Þetta er tvímælalaust stærsti
dagur 1 sögu félagsins þegar nýja
íþróttahúsið verður tekiö í notkun.
Þaö hefur háð félaginu í gegnum
tíðina að þurfa að leita annaö meö
æfingaaðstöðu og kappleiki en með
tilkomu nýja hússins opnast nýir
möguieikar. Húsið sjálft verður
strax klárt til æfinga en væntan-
iega munu áhorfendapaliar veröa
reistir áður en langt um líður. Hús-
ið mun gjörbreyta allri aðstöðu fé-
lagsins og það mun koma fram á
næstum árum með bættum ár-
angri. Hugsanlegt er aö félagið taki
upp á nýjan leik grein eins og
körfuknattleik sem legið hefur
niðri í nokkur ár. Það var einmitt
vegna aðstöðuleysis á sínum tíma
sem körfuknattleikurinn lagðist af
hjá okkur. Það opnast sem sagt
ýmsir möguleikar með tilkomu
hússins," sagði Alfreð Þorsteins-
son, formaður Knattspymufélags-
ins Fram, í samtali við DV.
Verið að gera klárt fyrir vígslu hússins á sunnudaginn kemur.
ALÞJÓÐLEGA OPNA HOTEL
SELFOSS MÓTIÐ 1994
Firma- og hópakeppni í knattspyrnu fer fram á Selfoss-
velli laugardaginn 27. ágúst nk. og hefst keppni klukkan
10.00.
Leikið verður í riðlum á litlum völlum með 7 leikmenn,
2x10 mínútur. Leyfilegt er að nota 2 leikmenn sem leikið
hafa í Islandsmóti 1994.
Þátttökugjald er 10.000 krónur.
Glæsileg verðlaun í boði, auk þess sem verðlaunaður er
eftirtektarverðasti leikmaðurinn og fallegasta markið.
Skráning í síma 98-22499 fyrir þriðjudagskvöld 23. ágúst.
Knattspyrnudeild UMF Selfoss
2. deild Selfossvöllur
P.s. Selfoss-Þróttur, Rvík, i dag, föstudag, kl.18.30
hÓPðl Mætum öll á völlinn
SELFOSS
UMF
SELFOSS
1936
Tveir dagar í maraþon
Sigfríður Sophusdóttir, markvörður Breiðabliks, og Helena Ólafsdóttir, fyrirliði KR,
með bikarinn góða á milli sín.
Úrslitaleikur í Mjólkurblkarkeppni kvenna:
KR-ingar í fyrsta
sinn í úrslitum
- en Breiðablik á möguleika að vinna í Qórða sinn
Ingibjörg Hinriksdóttir skriíar.
Boðið verður upp á nudd í Reykjavíkurmaraþoninu eins og í fyrra og sér
Sjúkranuddarafélag íslands um þann þátt.
Úrslitaleikur Mjólkurbikarkeppni
kvenna fer fram á Laugardalsvelli á
sunnudag kl. 15.00. Þar mætast tvö efstu
Uð 1. deildar kvenna; Breiðabhk og KR.
Þessi lið hafa haft nokkra yfirburði yfir
önnur lið undanfarin ár. Breiðablik varð
íslandsmeistari 1990-1992 og KR varð ís-
landsmeistari í fyrsta sinn í fyrra. í ár
hafa bæði lið sýnt góða knattspymu og
verið tvö bestu Uö 1. deildar.
Breiðablik í úrslitum
bikarkeppninnar í sjötta sinn
Breiðabhk mun á sunnudag leika til úr-
shta í bikarkeppninni í sjötta sinn. Blika-
stúlkumar urðu bikarmeistarar þrjú
fyrstu árin sem keppt var í bikarkeppni;
árin 1981-1983 og hafa síðan leikið tvívegis
til úrslita en tapað fyrir Val 1986 og fyrir
ÍA1992. Það era því 11 ár síðan Blikastúlk-
urnar urðu síðast bikarmeistarar. Flestir
leikmenn Breiðabliks léku með liðinu í
úrslitaleiknum 1992 og eru því ekki óvanar
þeirri spennu sem skapast í kringum bik-
arúrslitaleik.
KR í fyrsta sinn í úrslitum
KR er að leika í fyrsta sinn til úrshta í
bikarkeppninni og hefur því brotið blað í
sögu félagsins í annaö sinn á tveimur
ámm en KR-stúlkur uröu íslandsmeistar-
ar í fyrsta sinn 1993. Þær hafa jafnan ver-
ið í hópi bestu kvennaknattspyrnuliða
landsins og náðu loks í titil í fyrra. KR
hefur á að skipa ungu og efnilegu liöi sem
eflaust á eftir að verða í baráttunni næstu
ár. Nokkrir lykfileikmenn í liði KR hafa
leikið úrslitaleik og þrír þeirra urðu bikar-
meistarar með ÍA 1992.
Ætlum að brjóta hefðina
Helena Ólafsdóttir, fyrirliöi KR, er bjart-
sýn fyrir leikinn á sunnudag.
„Viö ætlum aö brjóta hefðina í annað
sinn og vinna bikarinn, þaö er engin
spurning. Ég reikna með að við getum
stillt upp okkar sterkasta liði. Gulla (Guð-
laug Jónsdóttir) hefur verið meidd í baki
og hún og Ásthildur (Helgadóttir) hvíldu
gegn ÍA í deildinni. Viö hefðum viljað geta
stillt upp okkar sterkasta liði í þeim leik
og undirbúið okkur þannig fyrir bikar-
leikinn en það var ekki hægt.
Leikurinn á sunnudaginn ætti að geta
gefið góða mynd af því besta sem kvenna-
boltinn býður núna upp á. Ég tel aö KR
og Breiðablik ásamt Val eigi bestu hðin á
landinu eins og er. Ef liðunum tekst að
yfirvinna stressiö þá ættu þau að geta
sýnt mjög góða knattspyrnu. Það er ákveð-
in reynsla að fara í bikarúrslitaleik, ég
fann það vel þegar ég lék með ÍA 1992. Ég
hugsa að leikurinn á sunnudag komi til
með að jafnast á við leikinn það ár, sem
var frábær, og það muna margir eftir hon-
um.
Við ætlum ekki að láta Blikana taka tvo
titla í sumar og við vinnum bikarúrslita-
leikinn meö einu marki!“
Reynslan kemur til með
að skipta miklu máli
Sigfríður Sophusdóttir, markvöröur
Breiðabliks, er að leika sinn þriðja bikar-
úrslitaleik á jafnmörgum árum. Hún lék
með Breiöabliki gegn IA1992, með ÍA gegn
Stjömunni 1993 og nú með Blikunum að
nýju gegn KR.
„Leikurinn leggst vel í mig og við emm
staðráðnar í að vinna. Við tökum þessum
leik eins og hverjum öömm, okkur hefur
gengið vel í sumar og við sjáum enga
ástæðu til þess aö breyta til fyrir þennan
leik. Það em allir leikmenn okkar í topp-
standi og við ætlum að spila okkar fót-
bolta eins og viö höfum gert í allt sumar.
Það kemur örugglega til með að hafa
sitt að segja að við höfum flestar leikið
bikarúrslitaleik áður og erum því reynsl-
unni ríkari. Það verður vonandi góð
stemning á leiknum, ég hef orðið vör viö
mikinn áhuga fyrir honum í Kópavogi og
það er ástæða fyrir fótboltaáhugafólk aö
mæta á þennan leik og sjá tvö bestu
kvennalið íslands leika fallegan fótbolta.
Viö ætlum að taka tvo titla í sumar og
vinnum á sunnudaginn, 2-0.“
Lendir bikarinn þnðja
árið í röð á Old Trafford?
GísQi Þór Guðmundsscm, DV, Englaxvdi;
Nú um helgina hefet fyrsta um-
ferð ensku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu þar sem 22 lið beijast
um enska meistaratitilinn. Margir
sparksérfræðingar, sem óttuðust
að slakt gengi enska landsliðsins
að undanfórnu og nýafstaðið
heimsraeistaramót myndi leiða af
sér litlaust tímabfi og almennt
áhugaleysi um enska boltann, hafa
tekíð gleði sína að nýju. Megin-
skýringamar er að finna í kaupum
enskra liða á mörgum frægum er-
lendum leikmönum og breyttum
dómarareglum sem eiga eflaust eft-
ir aö breyta enskri knattspyrnu
mikiö. íslenskir áhangendur enska
boltans mega því eiga von á jöfnu
og skemmtilegu tímabili.
Cantona brautisinn
Siðastliðin þrjú keppnistímabil
hefur Frakkinn Eric Cantona orðið
enskur deildarmeistari, í>Tst með
Leeds og síðan tvisvar sinnum með
Manchester United. Honum hefur
veriö þakkað meira en nokkrum
öðmm velgengni Manchester iiðs-
ins og hæfileikar hans iiafa ýtt við
mörgum knattspyrnuáhugamann-
inum. Síðastliöin tvö ár ár hefur
Bretum (eins og íslendingum) verið
gefið tækifæri til að sjá ítalska bolt-
ann í sjónvarpinu og séð bestu
knattspyrnumenn heims leika list-
ir sínar þar sem tækni og útsjónar-
semi hefur fengið að ráða. Þetta
hefur m.a. leitt af sér þá útbreiddu
skoðun að ensk knattspyma verði
skemmtilegri og árangusríkari.
Svo virðist sem grmidvallarbreyt-
inga sé að vænta i þá vem að ensk
knattspyrna muni byggja meira en
áður á erlendum fyrirmyndum.
Ensk lið kaupa stjömur
Á sumrin er mest um kaup og sölu
á leikmönnum og félögin keppast
við að gera sem best kaup. Ofiast
er um sölu á milli breskra félaga
að ræða, en einn og einn útlending-
ur fær að spreyta sig í ensku deild-
inni, en sjaldan er um fræga er-
lenda leikmenn að ræða. Liöin hafa
þess í stað keypt ódýrari leikmenn
frá Norðurlöndum og Austur-
Evrópu. Kaup Leeds á Eric Can-
tona áríð 1991 voru fyrstu stjörnu-
kaup enskra liða frá þvi að þeir
Ossie Ardiles, núverandi stjóri
Tottenham, og Ricki Villa úr
heimsmeistaraliöi Argentínu vora
keyptir til Tottenham árið 1978.
í sumar varð þó breyting á og
fyrstir til vora nýliðamir hjá Nott-
ingham Forest sem keyptu Hol-
lendinginn Bryan Roy frá Foggia á
ítaliu fyrir 2,5 millijónir punda. Það
var þó ekki fyrr en Tottenham til-
kynnti um kaup á Þjóðverjanum
Júrgen Klinsmann til liðsins að
íþróttasíður ensku dagblaðanna
tóku við sér og hófu að skrifa um
alla erlenda leikmenn sem væra
hugsanlega á leið til landsins.
Klinsmann æði
Kaupin á Klinsmann, ffá franska
liðinu Mónakó, fyrir um 2,6 millj-
ónir punda þóttu ekki aðeins at-
hyglisverð fyrir það eitt að um frá-
bæran leikmann væri að ræöa
heldur ekki síður að hann er Þjóð-
verji, en þeir hafa ekki veriö algeng
sjón í enskri knattspymu. Áhang-
endur Tottenham hafa tekið hon-
um frábærlega og til aö mynda
hefur sala á Tottenham-skyrtum
merktum honum ekki stoppað.
Auk hans hefur Tottenham keypt
rúmenska landsliðsmanninn
Dumitrescu, eina af stjörnunum
HM í sumar fyrir 2,6 milljónir
punda. Ástæðan fyrir þvi að frægir
erlendir leikmenn eru tilbúnir að
koma til Englands einmitt nú og
spila í einni erfiöustu deildar-
keppni heims á sér eflaust fjárhags-
legar rætur. Þá hafa leikmenn séð
velgengni Eric Cantona sem hvatn-
ingn og lita á það sem verðugt verk-
efni að spreyta sig hér í Englandi
eftir velheppnaðan knattspymu-
feril annar staöar. Ensk knatt-
spyrna á líka eflaust eftir aö njóta
góðs af.
Milljónamæringar
við stjórnvölinn
Síðastliöin ár hefur orðiö mikil
Jiirgen Klinsmann á eftir að setja
skemmtilegan svip á enska bolt-
ann.
breyting á eign enskra knatt-
spymufélaga og mörg þeirra sem
stóðu höllum fæti fjárhagslega hafa
verið keypt. Féiög eins og Totten-
ham, Blackburn, Newcastle, Ever-
ton og Celtie í Skotlandi, era nú aö
mestu leyti í eign milljónamæringa
sem hafa sett gríðarlega fjármuni
í rekstur þeirra. Til þessa hefur
peningum verið varið í að bæta
vallaraöstæður og tíi kaupa á dýr-
um leikmönnum. Á hinn bóginn
hafa félögin fengið stórlega auknar
auglýsinga- og sjónvarpstekjur.
Ástæða þess að milljónamæring-
ar fiárfesta í knattspymufélögum
em hins vegar ekki sprottnar af
einskærum áhuga á íþróttinni,
heldur einnig á hugsanlegum arði
ef vel gengur. Til aö mynda skilaði
Arsenal 4 milljónum punda í gróða
á síðasta ári og Manchester United
3 milljónum punda.
Dómgæslunni breytt
Alþjóða knattspymusambandið
hefur gefið öllum aðildarsambönd-
um sínum fyrirskipun um aö dóm-
gæslu verði breytt á sama hátt og
var á HM í sumar. Breytingarnar
fela meðal annars í sér að leikmenn
fái rautt spjald fyrir ólöglega tækl-
ingu aftan frá, meiddir leikmenn
verði bomir af leikvelli og gert að
meiðslum þeirra þar og rangstaða
verði ekki dæmt nema línuvörður-
inn sé viss um að sóknarleikmað-
urinn sé fyrir innan innsta vamar-
mann. Þessar brey tingar koma vit-
anlega til með að breyta enskri
knattspyrnu og margir leikmenn
eiga eflaust eftir að fara af leikvelli
meö rautt spjald, enda em enskir
knattspymumenn þekktir að allt
öðru en linkind.
Vínnur United í 3. sínn?
Með öllum þessum breytingum
sem átt hafa sér stað ætti þaö að
geta orðið hin besta skemmtun að
fylgjast með enska boltanum í vet-
ur, bæði í toppbaráttunni og barátt-
unni á botninum. Vegna fækkunar
á iiðum næstu tvö árin falla fiögur
liö úr úrvalsdeildinni á þessu
keppnistímabili.
Man. Utd mun án efa verða á
toppi ensku úrvalsdeíldarinnar, en
spurningin er hvort þeim tekst aö
vinna titilinn þriðja árið í röö. Það
hefúr aðeins einu sinni áður gerst
eftir seinni heimsstyrjöld, en þá
var það Liverpool sem vann titilinn
1981-1983. Arsenal er það lið sem
enskir sparkfræðingar hallast að
að muni verða á toppi deildarinnar
og ræður þar bæði um kaup liðsin
sá Stefan Swartz og hugsanleg
kaup á Thomas Brolin.
Spá veðbankanna
Samkvæmt spám bresku veðbank-
anna er Manchester United talið
sigurstranglegast, þannig að sé
veðjað 4 pundum á þá gefur það 5
pund ef sú spá rætist. Að sama
skapi eru Ipswich og nýliðarnir úr
Leicester taldir. Spá veðbankanna
er þannig: Man.Utd 5-4, Blackbum
7-2, Arsenal 6-1, Newcastle 7-1,
Leeds 16-1, Liverpool 16-1, Sheff.
Wed 28-1, Aston Villa 33-1, Manc-
hester City 40-1, Chelsea 40-1, Ever-
ton 40-1, Tottenham 40-1, Wimble-
don 50-1, Nott, Forest 66-1, Cr.
Palace 66-1, QPR 66-1, Norwich 66-1,
West Ham 125-1, Coventry 150-1,
Southampton 150-1, ípswich 250-1,
Leicester 250-1.
Helstu kaup enskra liða
á erlendum leikmönnum:
Philile Aibert, Belgíu
........Neweastlefrá Anderlecht
Ilie Dumitrescu, Rúmeníu
.......Tottenham frá S. Búkarest
BryanRoy.Hollandi
...........Nott. Forest frá Foggia
Júrgen Klinsmann, Þýskalandi
..........Tottenham frá Mónakó
Stefan Schwartz, Svíþjóð
.............Arsenal frá Benfica
Dan Petrescu, Rúmeniu
......Sheff. Wednesday frá Genúa
Nii Lamptey, Ghana
.......Aston Villa frá Anderiecht
Marc Hottinger, Sviss
..............Newcastle frá Sion
Michael Steengard, Danmörku
..........Liverpool frá H vidovre
Phil Massinga, S-Afríku
.............Leeds frá Mamelodi
Lucas Redebe, S-Afríku
..........Leeds frá Kaiser Chiefs
Claus Thomsen, Danmörku
.............Ipswich frá Aarhus
Johan Eklund, Danmörku
......Southampton frá Barcelona
Cobi Jones, Bandaríkjunum
.....Covnetry frá Bandarikjunum
Helstu sölur á milli
enskra knattspyrauliða;
Chris Sutton
..........Blackbumfrá Norwich
Carlton Palmer
......Leeds frá Sheff. Wednesday
Paul Furlong ...Chelseafrá Watford
Vinnie Samways
..........Everton frá Tottenham
David May .Man. Utd frá Balckbum
JohnFashanu
.......Aston Vilia frá Wimbledon
Ray Wiikins...Cr. Palace frá QPR
DavidRocastle
......Chelsea frá Manchester City
Pétur meistari
Pétur Guömundsson varð í gær-
kvöldi Evrópumeistari lögreglu-
manna í kúiuvarpi þegar hann kast-
aði 19,80 metra á Evrópumeistara-
móti lögreglumanna í London. Þetta
kast hans heföi dugað til að ná brons-
sæti á Evrópumeistaramótinu sem
lauk á dögunum í Helsinki.
2. deM:
Grindavíkfær
frííkvöld
Grindvíkingar fá að hvíla lúin
bein í kvöld eftir hina löngu og
ströngu viöureign þeirra við
Stjörnuna í undanúrslitum
Mjólkurbikarkeppninnar í fyrra-
kvöld. Leik þeirra við Víking,
sem átti að vera í kvöld, hefur
verið frestað til klukkan 14 á
morgun.
Fjórir leikir eru á dagskrá 2.
deildarinnar í kvöld og hefjast
allir klukkan 18.30. Þeir era:
HK-Leiftur, Selfoss-Þróttur R,
KA~Þróttur N og ÍR-Fylkir.
TonySmithtil
Grindavíkur
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
Úrvalsdeildarlið Grindvíkinga
gekk í gærkvöldi frá samningi viö
bandarískan bakvörð að nafni
Tony Smith. Ægir Sigurösson,
formaöur körfuknattleiksdeildar
UMFG, sagöi að þeir hefðu séð
Smith á myndbandi og þar væri
á ferð fljótur leikmaöur með
mikla boltameðferð en Smith er
1,75 metrar á hæð. Hann lék í
fyrra með þýska liðinu Hanno-
ver. Hann var í háskólanum í
Virginu og skoraði að meðaltali
30 stig í leik.
ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ
Á LAUGARDALSVELLI 7. SEPTEMBER
Brolin
mætir!
HVAÐ MEÐ ÞIG? í