Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1994, Side 2
2
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1994
Fréttir
Stuðningsmenn Reykjavíkurlistans í hár saman:
Stofnfundi Regnbogans
frestað vegna deilna
- furðulega að þessu staðið, segir framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins
Samtök um Reykjavíkurlistann
héldu stofnfund Regnbogans á laug-
ardaginn en félaginu er ætlað aö vera
samráðsvettvangur borgarfulltrúa
og stuðningsmanna listans. Á fund-
inum var ákveðið að fresta formlegri
stofnun félagsins um nokkrar vikur.
Bráðabirgðastjóm var kosin og var
henni falið að undirbúa formlega
stofnun félagsins. Drög að samþykkt-
um félagsins voru kynnt á fundinum.
Fyrir fundinn kom fram hörð gagn-
rýni á þá sem stóðu að fundarboðun-
inni, einkum frá forsvarsmönnum
Alþýðuflokks og Framsóknarflokks.
Bent var á að óverulegt samráð hefði
verið haft við flokkana þrátt fyrir
aðild þeirra að framboði Reykjavík-
urlistans. Samkvæmt heimildum DV
varð þessi gagnrýni til þess að ákveð-
ið var að boða til ffamhaldsstofn-
fundar.
„Mér finnst mjög furðulega að
þessu staðið. Það var ekkert leitað
til flokkanna. Mér skilst að þetta sé
eitthvert fólk úti í bæ sem hefur tek-
ið að sér að koma þessu af stað. í
sjálfu sér er ekkert óeðlilegt við það
en auövitað voru það flokkamir fjór-
ir sem ýttu Reykjavíkurframboðinu
úr vör. Án flokkanna hefði þetta
aldrei orðið til,“ segir Sigurður Tóm-
as Björgvinsson, framkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins.
Að sögn Sólveigar Ólafsdóttur
fundarstjóra sóttu um 300 manns
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ávarpaði fund stuðningsmanna
Reykjavíkurlistans á Hótel Sögu. DV-mynd JAK
fundinn sem stóð í rúma klukku-
stund. Umræður snemst einkum um
það sem betur mætti fara í drögum
að lögum félagsins og uppbyggingu
þess. Gagnrýni á tilurð félagsins kom
ekki fram. Þá tók Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri til máls og
fagnaöi stofnun félagsins.
Aðalheiður Franzsdóttir, sem kjör-
in var í bráðabirgðastjórnina, segir
að ákvörðunin um að fresta form-
legri stofnun félagsins hafi verið tek-
in til að gefa borgarfulltrúum
Reykjavikurlistans og væntanlegum
félagsmönnum tækifæri til að hafa
áhrif á samþykktir félagsins. Ástæð-
an hafi ekki verið ágreiningur um
stofnun félagsins.
Stuttar fréttir
TiKinningaleg tregða
Greiðslustöövun blasir við
mörgum loðdýrabændum þar
sem bankar hafa tregðast við að
hækka afurðalán til þeirra, rétt
eins og um tilfinningamál væri
að ræða. Sjónvarpið skýrði frá.
Landmannaiaugar heiila
Um 20 þúsund manns hafa gist
í Landmannalaugum í sumar, að
stærstum hluta útlendingar.
Sjónvarpiö greindi frá þessu.
Tilskipunarbeðið
Villidýranefnd hefur lagt til aö
heimilaö verði að veiða tjúpu frá
15. október til 22. desember. Um-
hverfisráðherra hefur enn ekki
gefið út tilskipun um veiðitíma-
biliö. RÚV greindi rá þessu.
KvBunyndverðurtð
Tökum lauk nýverið á kvik-
mynd um Jón Leifs tónskáld i
leikstjóm Hilmars Oddssonar.
Samkvæmt frétt Sjónvarpsins er
stefnt að því að fmmsýna mynd-
ina í byijun næsta árs.
Sameining samþykkt
Mikill meirihluti fulltrúa á aö-
alfundi Stéttarsambands bænda
og Búnaðarþingi samþykktu
sameiningu samtakanna um
helgina. Nýju heildarsamtökin
taka til starfa í byijun næsta árs.
Viijafrestafiutningi
Samtök fámennra skóla vilja
fresta flutningi á grunnskólanum
til sveitarfélaga. Þetta kom fram
á ársfundi saratakanna sem fram
fór um helgina.
Ólýsanleg tilfinning
- vann 14 miUjónir króna
„Þetta er ólýsanleg tilfinning. Ég datt í lukkupottinn og drengirnir okkar komu með bikarinn heim eftir 27 ára bið.
Allt gerist þetta sama daginn. Þetta er vægast sagt yndislegt," segir Rósa Thorsteinsson, vert í Rauða Ijóninu á
Eiðistorgi og mikill stuðningsmaður KR. Aðfaranótt sunnudags vann hún 14 milljónir í spilakassa H.í. sem er á
veitingastaðnum. Mikið var um að vera í Rauða Ijóninu í gaer enda fögnuöu KR-ingar sigri í bikarkeppninni á
staðnum. Á myndinni eru Rósa og Rúnar Kristinsson, einn besti leikmaður KR í vinningsleiknum gegn Grinda-
vík, með mjólkurbikarinn eftirsótta á milii sin. DV-mynd JAK
Póstur og sími fer ekki eftir úrskurði ríkisskattstjóra:
Bíódagar besta
norræna myndin
Kvikmynd Friðriks Þórs Frið-
rikssonar, Bíódagar, var valin
besta norræna kvikmyndin 1994
á Norrænu kvikmyndahátiðinni
í Haugasundi í Noregi. Verð-
launaafhendingin fór fram á
laugardagskvöldið og tók Friðrik
Þór á móti hinum eftirsóttu
Amanda-verðlaunum í beinni út-
sendingu norska sjónvarpsins.
íslensk kvikmynd hefur ekki áð-
ur unnið til þessara verölauna.
Dómnefhdin var skipuð þekkt-
um kvikmyndafrömuðum utan
Norðurlandanna. I umsögn
nefndarinnar segir að í Biódögum
fari saman á einfaldan og Ijóð-
rænan hátt næmi leiksijórans
fyrir menningu þjóðar og mann-
legum gildum, óháö búsetu.
Aðrar myndir, sem tilnefndar
voru til Amanda verölaunanna
en þurftu að lúta í lægra haldi,
voru Nattevagten frá Danmörku,
Kaikki Pelissa frá Finnlandi,
Hodet over vannet frá Noregi og
Kærlekens himmelska Helvete
frá Svíþjóð.
HaHdórBlöndal:
Talaekkert
umþað
„Ég tala ekkert um það. Ég hef
ekkert um þetta mál að segja þvf
ég hef ekki séð fréttina" sagði
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra þegar DV bar undir hann
ásakanir forsvarsmanna Norma
hf. í Garðabæ um aö ráðherrann
mismunaði skipasmíöastöðvum,
annars vegar í kjördæmi sínu, á
Akureyri, og hins vegar i
Garðabæ.
Skuldar hundruð milljóna í virðisaukaskatt
- höfum engln fyrirmæli um að borga skattinn, segir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Pósts og síma
„Ríkisskattstjóri var búinn að úr-
skurða að Pósti og síma bæri að inn-
heimta virðisaukaskatt af fjölda-
dreifingu opinna ómerktra og
merktra póstsendinga en Póstur og
sími hefur ekki farið eftir því. Þetta
eru nafnlausar fiöldadreifingar og
stofnuninni bæri að greiða hundruö
mtiljóna króna í viröisaukaskatt ef
fariö væri eftir úrskurðinum. Við
höfum skrifaö samgönguráðuneyt-
inu bréf út af þessu en höfum ekki
fengið svar. Það virðist eiga að svæfa
þetta mál í stjórnkerfinu," segir Jón
J. Þorgrímsson, eigandi Póstdreifing-
ar hf.
Póstdreifing hf. hefur fariö fram á
fjárhagslegan aðskilnað á útburði
bréfa í lokuðum umslögum, sem stíl-
uð eru á nafn og dreifmgu merktra
eða ómerktra opinna fjöldasendinga,
eftir að ríkisskattstjóri komst að
þeirri niðurstöðu í vor að greiða
bæri virðisaukaskatt af fjöldasend-
ingum. Forráðamenn fyrirtækisins
telja að um ójafna samkeppnisstöðu
sé að ræða og er hugsanlegt að farið
verði fram á lögbann á starfsemi
Pósts og síma hlíti stofnunin ekki
úrskurði ríkisskattstjóra.
„Rikisskattstjóri komst að þeirri
niðurstöðu í sínu áliti að fjöldasend-
ingar væru skattskyldar en við höf-
um ekki fengiö nein fyrirmæli um
að útfæra það nánar. Núverandi fyr-
irkomulag á meðferð virðisauka-
skatts var tekið upp í fullu samráði
við embætti ríkisskattsfjóra og við
erum ekki sammála því að hægt sé
að túlka lögin upp á nýtt. Við eigum
í viðræðum við ríkisskattstjóra og
erum alls ekki að reyna að svæfa
málið í kerfinu,“ segir Kristján Indr-
iðason, aðstoðarframkvæmdastjóri
fiármálasviðs Pósts og sima
„Ég vil ekkert segja um það hvað
virðisaukaskatturinn getur numið
hárri upphceð,“ segir hann.