Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
Fréttir
Vandræðalegustu málin á stjómmálaferli Guðmundar Ama:
Misvindasöm ráðherratíð
og umdeildar ákvarðanir
- galdrabrennur og ofsóknir, segir Guðmundur Árni Stefánsson
Stjórnmálaferill Guðmundar Árna
Stefánssonar félagsmálaráðherra
hefur verið misvindasamur undan-
farið ár eða frá því hann tók við ráð-
herraembætti i heilbrigðisráðuneyt-
inu sumariö 1993. Ákvarðanir ráð-
herrans hafa gjarnan verið umdeild-
ar og má segja að hvert hneyksliö
hafi rekið annað á þessum stutta ráð-
herraferli. Mörg málanna eiga rætur
að rekja til þess sem sumir myndu
kalla einræðistíma Guðmundar
Árna í bæjarstjórastól Hafnarfjarð-
ar. Ekki verður farið í smáatriðum í
ráðherraferil Guðmundar Árna
heldur aðeins tæpt á vandræðaleg-
ustu málunum.
Málefni húsnæðisnefndar Hafnar-
fjarðar hafa verið ofarlega á baugi
undanfarin ár og má segja að ráðning
Jónu Óskar Guðjónsdóttur, flokks-
systur Guðmundar Árna Stefánsson-
ar, í starf forstööumanns haustið
1990 haíi verið lognið á undan storm-
inum. Ráðningin var umdeild á sín-
um tíma og lauk forstöðumannsferli
Jónu Óskar í sumar eftir að úttekt
var gerð á fjármálum nefndarinnar.
Jóna Ósk var ráðin stjómarformað-
ur Hollustuverndar ríkisins í byrjun
þessa árs en Hollustuverndin heyrir
undir heUbrigðisráðuneytið.
Guömundur Árni Stefánsson tók
við ráöherrastólnum í heilbrigðis-
ráðuneytisins sumarið 1993 og voru
miklar vonir bundnar við framtaks-
sama bæjarstjórann úr Hafnarfirði.
Fljótlega kom í ljós að ráðherrann
fékk þriggja mánaða biðlaun frá
Hafnarfjarðarbæ. Hann réð mág sinn
til sín sem aðstoðarmann og Steen
Johansen, samstarfsmaöur hans úr
Hafnarfirði, var ráöinn upplýsinga-
fulltrúi. í sumar kom í Ijós að ráð-
Vaxtaskiptasamningur:
við 1,07
- næstu fjóra mánuði
Seölabankinn hefur gert nýjan
samning við banka og sparisjóði
um vaxtaskipti fyrir tímabilið 1.
september til áramóta. Samning-
urinn byggist á þeirri forsendu
aö verðbólga næstu fjóra mánuði
svari til 1,07% verðbólgu á ári á
mælikvarða lánskjaravísitölu. Er
það í samræmi viö nýjustu verð-
lagsspár Seðlabankans.
I samkomulaginu er gert ráð
fyrir að bankar og sparisjóðir
greiði Seðlabankanum 5,33%
nafnvexti af samningsfjárhæö og
að Seðlabankinn greiði þeim
4,25% vexti ofan á verðtryggðan
höfuðstól.
Tilgangurinn með vaxtaskipta-
samningi Seölabankans er að
draga úr áhættu innlánsstofnana
af óvæntri hækkun verðbólgu og
hefur hann m.a. stuðlað að lækk-
un nafnvaxta þeirra.
í fréttatilkynningu frá Seöla-
bankanum segir að forsendur
nýja samningsins staöfesíihorfur
um litlar verðhækkanir á næstu
mánuðum.
Fortíðarvandi úr Firðinum
- vandræöaleg mál á stjórnmálaferli Guðmundar Árna Stefánssonar -
Október 1990: Ráðning Jónu Óskar
Guöjónsdóttur bæjarfuiltrúa í stöðu
forstööumanns húsnæöisnefndar
veldur miklum deilum innan
nefndarinnar.
Nóvember: Eyðsla bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar hefur fariö verulega
fram úr heimildum. Bæjarstjóri og
embættismenn fá tekjur umfram
umsamin laun.
Febrúar 1992: Guðmundi Árna
Stefánssyni bæjarstjóra afhentar
5.300 undirskriftir gegn nýja
hðhýsinu í miðbæ Hafnarfjarðar.
Fyrri byggingaráformum haldiö til
streitu.
Júní 1993: Guömundur Árni
Stefánsson sest á þing og tekur viö
sem heilbrigðisráöherra. Segir
bæjarsjöö vel staddan þrátt fyrir
skutdir upp á tvo milljarða króna.
Ágúst: Heilbrigöisráðherra hefur
rúm 470 þúsund krónur í
mánaðartekjur eöa um hundrað
þúsund krónuryfir
ráöherrameöaltali.
September: Karl Steinar Guönason
þingmaður ráöinn forstjóri
Tryggingastofnunar rikisins. Eggert
G. Þorsteinsson, þáverandi forstjóri,
heldur áfram störfum. Guömundur
Árni þiggur biölaun hjá
Hafnarfjaröarbæ þrátt fyrir
ráöherralaun og fær nýjan
ráöherrabíl, Pajero 1991. Ræöur
tengdafööur sinn sem húsvörö í
Hvaleyrarskóla án þess aö staðan
hafi veriö auglýst.
Október: Guömundur Árni hefur
fengiö milljón í biölaun og haft 700
þúsund í laun á mánuöi. Fer á
handboltaleik í staö þess að fara á
fund um lokanir leikskóla
Rlkisspttalanna. Ræöur Steen
Johansen, aðstoöarmann sinn úr
Hafnarfirði, upplýsingafulitrúa í
heilbrigöisráöuneytinu.
Janúar 1994: Guömundur Árni
skipar Jónu Ósk Guöjónsdóttur
stjórnarformann Hollustuverndar
ríkisins.
Febrúar: Guömundur Árni tekur
Valgerði Guömundsdóttur
bæjarfuiltrúa í karphúsiö á árshátíö
Alþýðuflokksins í Hafnarfiröi.
Samkomulag um aö Tryggvi
Haröarson fái annaö sæti á lista
flokksins í
bæjarstjórnarkosningunum.
Júní: Guömundur Árni Stefánsson
kjörinn varaformaður
Alþýöuflokksins á flokksþingi á
Suöurnesjum.
Júlf: Guðmundur Árni greíöir Steen
Johansen, nánum samstarfsmanni
sínum og upplýsingafuiltrúa í
heilbrigðisréöuneytinu, 600 þúsund
krönur á mánuöi. Sjóöir
ráöunéytisins þurrausnir þegar
Sighvatur Björgvinsson tekur viö.
Árni Mathiesen alþingismaöur
gagnrýnir Guömund Arna fyrir aö
hafa fariö einn milljarö fram úr
fjðrlögum og segir hann óhæfan
sem heilbrigöisráöherra.
September: Náfrænka Guömundar
Árna leigir Ibúö í eigu
Hafnarfjaröarbæjar fram hjá kerfinu
og greiöir lúsarleigu fyrir. Tryggvi
Haröarson bæjarfulltrúi fékk
bæjariögmann til aö gefa yfirlýsingu
um aö bæjarábyrgö yrði samþykkt í
bæjarráöi áöur en ráöiö fjallaöi um
erindiö. Framkvæmdastjóri
Alþýöublaösins segir aö munnlegur
samningur hafi heimilaö blaöinu aö
klippa auglýsingar út úr öðrum
blööum og birta.
Jóhann Óli Guðmundsson á leið með nýtt hlutafé í Eintak:
Borga á ógreidd laun að hluta
- starfsmenn frestuðu verkfalli
Starfsmenn Eintaks fóru í verkfall
sl. fimmtudag tíl að mótmæla því að
hafa ekki fengið greidd laun síöustu
mánuöi. AUt stefndi í að næsta
mánudagsblað kæmi ekki út. í gær
var hins vegar haldinn starfsmanna-
fundur þar sem, samkvæmt heimUd-
um DV, var tilkynnt að Jóhann Óli
Guðmundsson, forstjóri Securitas,
myndi koma með fjármagn inn í
rekstur blaðsins og stofnað yrði nýtt
hlutafélag. Ennfremur var lofað að
gera upp ógreidd laun í áföngum.
Hófu starfsmenn þá vinnu á ný.
Samkvæmt heimildum DV er
stefnt aö því að stofna nýtt hlutafélag
um rekstur Eintaks en ekki er ljóst
hvernig eignarhlutdeUdin verður.
Ljóst þykir þó að Jóhann ÓU muni
eiga meirihluta. Formlega á að ganga
frá þessu í næstu viku.
Á fundinum var lofað að greiða
vangreidd laun í þremur hiutum og
átti að greiða fyrsta hlutann í gær.
Starfsmenn hafa ekki fengið greidd
laun fyrir júlí og ágúst og sumir eiga
meira inni. Starfsmenn munu hins
vegar ekki fá nema hluta þeirra
launa sem þeir eiga inni greidd. Boð-
ið var á fundinum að þeir fengju 50%
af launum fyrir júU greidd og 70%
fyrir ágúst. Áfgangurinn yrði í formi
hlutabréfa í nýja hlutafélaginu.
Stefnt er aö því að Eintak komi
áfram út tvisvar í viku, á mánudög-
um og fimmtudögum. Breyta á
mánudagsblaðinu nokkuð. Meiri
áhersla verður lögð á fréttir en verið
hefur. í framtíðinni er svo stefnt að
útgáfu dagblaðs.
Rætt he'fur verið um að Prentsmiðj-
an Oddi muni á einhvern hátt tengj-
asthinu nýja hlutafélagi, með bein-
um eignarhlut í hinu nýja hlutafélagi
eöa með niðurfeUingu skulda en Ein-
tak skuldar Odda umtalsverðar íjár-
hæðir vegna prentunar.
„Þetta kemur ekki tíl greina. Þaö
eru alveg hreinar línur með það. Við
erum bara prentarar og erum ekki á
leið í útgáfu," sagði Þorgeir Baldurs-
son, framkvæmdastjóri Prentsmiðj-
unnar Odda, er DV bar þetta undir
hann.
Árni Benediktsson, framkvæmda-
stjóri Eintaks, vildi ekki tjá sig um
máUö að öðru leyti en því að unnið
væri að fjárhagslegri endurskipu-
lagningu blaðsins.
Ársþing Sambands sveitarfélaga:
Vilhjálmur Þ. endurkjörinn
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var
endurkjörinn formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga á ársþingi
þess sem lauk á Akureyri í gær.
FuUum stuðningi var lýst við það
að sveitarfélögin tækju yfir rekstur
grunnskólanna með þremur fyrir-
vörum þó. í fyrsta lagi aö fullt sam-
komulag náist miUi rUcis og sveitar-
félaga um flutning verkefna og tekju-
stofna, í öðru lagi að vandi sveitarfé-
laga viö yfirtökuna verði minnkaöur
með jöfnunaraðgerðum og í þriðja
lagi að samkomulag náist um réttindi
og kjör kennara við yfirtökuna.
Nýja stjóm skipa Sigrún Magnús-
dóttir, Reykjavík, Ólafur Þór Sverr-
isson, Stykkishólmi, Ólafur Krist-
jánsson, Bolungarvík, Valgarður
Hilmarsson, Engihlíðarhreppi, Sig-
ríður Stefánsdóttir, Akureyri, Guð-
mundur Bjamason, Neskaupstað,
Magnús Karel Hannesson, Eyrar-
bakka, og Ingvar Viktorsson, Hafn-
arfirði.
herrann heíði þurrausið sjóði hefi-
brigðisráðuneytisins og borgað Steen
600 þúsund í laun á mánuði.
Nýjasta dæmið af vandræðaUsta
Guðmundar Árna er klúður með
fjögurra herbergja íbúð sem bæjar-
sjóður fékk upp í skuld vegna lóða-
gjalda. Árið 1991 var íbúðin leigð
Helgu Friðfinnsdóttur, skólastjóra og
frænku Guðmundar Árna, fyrir 30
þúsund krónur á mánuði.
. Annað dæmi af vandræðalistanum
eru nýlegar yfirlýsingar Ámunda
Ámundasonar, framkvæmdastjóra
Alþýðublaðsins, en hann segir að
munnlegur samningur hafi verið í
gUdi um að blaðið mætti klippa út
auglýsingar bæjarins úr öðrum blöð-
um og birta.
Og tU að kóróna allt hefur komið í
ljós að Tryggvi Harðarson, bæjarfull-
trúi og náinn samstarfsmaður félags-
málaráðherra, fékk bæjarlögmann
til að gefa yfirlýsingu um að ákveð-
inn einstaklingur fengi bæjarábyrgð
fyrir bankaláni daginn fyrir kosning-
ar í vor. Ekki tíðkast að gefa einstakl-
ingum bæjarábyrgðir í Hafnarfirði.
„Það er alveg ljóst að einhvers stað-
ar er einhver að leggja mig og mín
störf í fullkomið einelti. Ég býð DV
velkomið í hóp þeirra sem taka þátt
í þessum galdrabrennum og ofsókn-
um. Þessir svokölluðu fjölmiðiar
hafa varað sig á því að spyrja mig
um eitt eða neitt í þessu sambandi
eða greina frá því að langflest hefur
þetta verið fuUkomlega rakalaust og
þvættingur," segir Guðmundur Árni
Stefánsson félagsmálaráðherra.
Stuttar fréttir
Erfittaö semja
Formaður Kennarasambands
íslands telur erfitt aö sernja við
kennara um kaup og kjör á með-
an ekki er ijóst hvaö veröur um
ný grunnskóialög. RIJV greindi
frá þessu.
Vei hefur gengið hjá dótturfyr-
irtæki Islenskra sjávarafurða að
selja lýsing frá Namibíu. Sam-
kvæmt RÚV er búið að selja 2
þúsund tonn frá þvi í vor en lýs-
ingur er fiskur af þorskaætt.
ÁrmannsfeU skilaði hagnau,
fyrstu sex mánuði ársins upp á
tæpar 7 milijónir króna sem er
svípuð alkoma og í fyrra.
Svelnbjörnhættir
Sveinbirni Dagfimrssyni, ráðu-
neytisstjóra í landbúnaðai-ráðu-
neytinu, hefur verið veitt lausn
frá embætti að eigin ósk frá 1.
nóvember nk. Embættið hefur
verið auglýst laust til umsóknai*.
SýningiKítta
Fyrsta íslenska myndlistarsýn-
ingin í Kína var opnuð í Beijing
í gærmorgun. Svavar Gestsson,
fyrrum menntamálaráöherra,
flutti þar m.a. ávarp.
Sjálfvirk skitti
Vegageröin hefur tekiö í notkun
sjáifvirk viðvörunarskilti vegna
sandfoks á Mýrdalssandi. Aö
auki hefur sjálfvirk veðurathug-
unarstöð verið sett upp á sandin-
um. Þetta kom fram í RÚV,