Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Page 14
14 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Bandalag erkiklerka Athyglisvert afturhaldsbandalag hefur myndazt milli kaþólsku kirkjunnar í Vatíkaninu og róttækra leiðtoga íslams gegn uppkasti undirbúningsnefndar að ályktun mannfiölda- og þróunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í Kaíró í Egyptalandi á mánudaginn. Orðalagið, sem fer í taugar hinna róttæku afturhalds- manna, er í rauninni varfæmislegt, enda hefur það út- vatnazt í meðfórum 170 ríkja, sem hafa tekið þátt í undir- búningi ráðstefnunnar. En það miðar að auknum áhrif- um einstaklinga, einkum kvenna, á fjölskyldumál. Hinir guðfræðilegu róttækhngar telja, að orðalagið leggi blessun yfir fóstureyðingar og vestrænt lauslæti í kynlífi. Þessi túlkun þeirra er einkar frjálsleg, því að ályktunin íjallar fremur um, hvemig megi draga úr þörf fóstureyðinga og stuðla að ábyrgðartiifmningu fólks. Flestir aðrir en róttæklingamir telja, að nauðsynlegt sé að draga úr fólksfjölgun í heiminum. Bent er á Rú- anda sem dæmi um vandann. Þar fjölgaði fólki frá 1950 til 1994 úr 2,4 milljónum í 8,4 milljón manns. Landið stóð ekki undir þessu, svo að úr varð illræmd borgarastyijöld. íbúafjöldi jarðar hefur tvöfaldazt síðan 1950 og nemur nú 5,6 milljörðum. Mest hefur fólksfjölgunin orðið í ríkj- um, þar sem minnstir em möguleikar á að brauðfæða íjölgunina. 70% aukningarinnar em í löndum, þar sem fjölskyldutekjur em innan við 4.000 krónur á mánuði. Andstaða klerka Vatíkansins og íslams við aðgerðir gegn fólksfjölgun endurspeglar kvenhatur þeirra. Það hefur farið vaxandi í Vatíkaninu í páfadæmi Jóhannesar Páls, sem hefur á mörgum sviðum reynt að færa klukk- una aftur á bak. Og kvenhatur íslamsklerka er alþekkt. Klerkabandalagið hefur gengið svo langt, að sendimað- ur Páfastóls fór til írans til að samræma aðgerðir með erkiklerkum Persa, sem þykja klerka fjandsamlegastir öllu því, sem minnir á vestrænan nútíma. Stjóm írans sjálf hyggst þó taka þátt í ráðstefnunni í Kaíró. Mörg ríki íslams hafa tekið þátt í fj ölskylduáætlunum í anda fmmvarpsins að Kaíró-ályktuninni, flest önnur en afturhaldsríki olíufursta á Arabíuskaga. Hin nýja andstaða er því afturhvarf frá nútíma, eins og hann hef- ur verið í löndum á borð við Egyptaland og Tyrkland. Bakslag íslams birtist meðal annars í, að afturhaldsrík- in Sádí-Arabía og Súdan ætla ekki að taka þátt í ráðstefn- unni og þjóðarleiðtogamir Tansu Ciller frá Tyrklandi og Khalida Zia frá Bangladesh hafa hætt við komu. Presta- háskóhnn A1 Azhar í Kaíró hamast gegn ráðstefnunni. Sagnfræðingar leika sér að getgátum um, að þriðja heimsstyrjöldin muni geisa milli veraldlegra, vestrænna lýðræðisríkja annars vegar og hins vegar trúarlegra og afturhaldssamra ríkja íslams. Þeir benda á vaxandi bar- áttu róttækra íslamsklerka gegn vestrænum áhrifum. Þótt afturhaldið kunni ekki að fara svo mikið úr bönd- um, er ástæða til að vekja athygli á þeim félagsskap, sem afturhaldssemi Jóhannesar Páls páfa hefur kahað yfir kaþólsku kirkjuna. Hann er að skipa henni í sveit gegn vestrænum nútíma, sem er eina birtan í nútímanum. Hin veraldlegu nútímaríki á Vesturlöndum hafa fund- ið leið úr miðaldamyrkri fátæktar og grimmdar inn í vestrænt lýðræði, þar sem einstaklingar og fjölskyldur hafa margfalt betri möguleika en nokkru sinni áður í veraldarsögunni til að njóta fegurðar og menningar. Með andstöðu sinni við grandvaharhugsjónir einstakl- ings- og íjölskyldufrelsis era erkiklerkar kaþólsku og ís- lamstrúar að tefla sér í hlutverk Satans í nútímanum. Jónas Kristjánsson Mannfjölda- ráðstefna vek- ur trúardeilur Um síöustu aldamót voru jaröarbú- ar tveir milljaröar talsins eftir því sem næst verður komist. Um alda- mótin sem nú eru skammt fram- undan er gert ráð fyrir að mann- kynið verði komið upp í sex millj- arða. Með sama áframhaldi nær mannfjöldinn á hnettinum tíu milljörðum um miðja næstu öld. Á þéttbýlustu svæðum Asíu, fjöl- mennustu heimsálfunnar, er ör- tröðin orðin slík að stjórnvöld hafa gripið til verstu óyndisúrræða til að hamla gegn fólksíjölguninni. í Kína hefur ríkisvaldið látið það boð út ganga að hjón skuli ekki eignast nema eitt barn og valdboðinu er þegar verst lætur fylgt eftir með því að neyöa konur til fóstureyð- inga. Á Indlandi hefur verið beitt ófrjósemisaðgerðum í stórum stíl, jafnt á konum og körlum og stund- um með nauðung. Sameinuðu þjóðirnar hafa efnt til tveggja alþjóðaráðstefna um mann- fjölgun og sú þriðja á að heíjast í Kaíró á mánudaginn. Fyrri ráð- stefnumar sættu ekki miklum tíð- indum en öðru máli gegnir um þá sem stendur fyrir dyrum. Trúar- leiðtogar með Jóhannes Pál páfa annan og íslamskar trúarstofnanir í fararbroddi hafa síðustu mánuði farið hamforum gegn þeim köflum gmndvallarskjals ráðstefnunnar sem Qalla um viðkomu mannkyns- ins. Meginástæðan til þessara hörðu viðbragða kaþólks klerkdóms og íslamskra kennimanna er niður- staða undirbúningsfundar að Manntjöldaráðstefnunni í New York í mars. Þar urðu ofan á kven- frelsissjónarmið þar sem áhersla er lögð á að aukið vald kvenna yfir eigin lífi, bæöi hjúskap og tímgun, sé skilvirkasta leiðin til að hafa hemil á mannfjölgun og skapa þar með bætt skilyrði til að auka hfs- gæðin fyrir þá sem í heiminn koma. Því er hvatt til að konur fái sjálf- ar að ráða gjaforði sínu en séu ekki seldar í hjúskap að ráði forsjár- manna, jafnvel á barnsaldri. Sömu- leiðis er lagt til að fræðsla um fjöl- skylduáætlanir og getnaðarvarnir sé þáttur í stórefldri heilsugæslu kvenna. í þessu sambandi eru not- uð orðatiltæki eins og „myndug- leiki kvenna“, „kynlífsheilsa" og „æxlunarheilsa." Fulltrúar Páfagarðs á fundinum í New York komu fram ýmsum breytingum á upphaflegum texta skjalsins en páfi ákvað að hvergi nærri nóg væri að gert. Kvaddi hann saman karíndálastefnu í júní, þar sem 114 af 139 höfuðklerkum kaþólsku kirkjunnar vöruðu við að ráðstefnan í Kaíró yrði vettvangur „menningarlegrar heimsvalda- stefnu“ þar sem samsinnt yrði Erlend tídindi Magnús Torfi Ólafsson „fóstureyðingum eftir pöntun, lauslæti og afbakaöri fjölskyldu- mynd“. Jafnframt sendi páfi menn til ísl- amskra ríkja, þar á meðal írans og Líbýu, til að leita samstöðu í Kaíró. í framhaldi af því kom yfirlýsing frá A1 Azhar-háskólanum í Kaíró, helsta fræðasetri íslams um aldir. Þar er tekið undir gagnrýnisatriðin frá Páfagarði og ýmsu bætt við, svo sem að grundvallarskjalið, sem leggja á fyrir Mannfjöldaráðstefn- una, ýti undir vændi og homma- lifnað. Alkirkjuráð kirkna mótmælenda og réttrúnaðarkirkjunnar hefur mótmælt afstöðu kennivalds ka- þólskra og íslamstrúarmanna til Kaíróráðstefnunnar og sér i lagi öfgafullri túlkun þeirra á einstök- um atriðum grundvallarskjalsins. Áhrif klerkavaldsins eru þegar farin að segja til sín. Enn einn ágreiningur hefur bæst við innan ríkisstjórnar Ítalíu og að þessu sinni um afstöðuna á ráðstefnunni í Kaíró. Saudi-Arabía, Súdan og Líbanon hafa afboðað þátttöku í ráðstefnunni. Khahda Zia, konan sem er for- sætisráðherra Bangladesh, þess þróunarríkis með ofsetið land sem talið er hafa náð bestum tökum á ofljölgun fólks með fræðslu og getnaðarvörnum, hætti við að sækja ráðstefnuna. Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakist- ans, hafði tekið að sér að flytja eina aðalræðu ráðstefnunnar en síðast þegar fréttist var óvíst að hún léti sjá sig í Kaíró. Svo hefur íslamshópurinn, egypsk hryðjuverkasamtök ofsa- trúarmanna, lýst yfir að enginn erlendur fulltrúi á Mannfjöldaráð- stefnunni í Kaíró skuli geta verið óhultur um líf sitt en búist er við að þeir nálgist 20.000 með öllu starfsliði. í þessum hamaga'ngi hefur lítið farið fyrir niðurstöðu mannfjölda- sérfræðinga Páfalegu vísindaaka- demíunnar sem birt var eftir tveggja ára starf um samá leyti og kardínálastefnunni lauk. Þar segir að óheft mannfjölgun sé óbærileg jörðinni til frambúðar og miða verði við tveggja barna fjölskyldu sem meðaltal eigi að afstýra óleys- anlegum vanda. Páfi afneitaði um- svifalaust þessari niðurstöðu sinna eigin vísindamanna. Jóhannes Páll páfi annar í áheyrn á miðvikudag, þegar Páfastóll ítrekaði í yfirlýsingu gangrýni sina á SÞ og Bandarikjastjórn fyrir undirbúning Mannfjöldaráðstefnunnar. Símamynd Reuter Skoðanir annarra Poul Nyrup þekkir Machiavelli „Leið Pouls Nyrup Rasmussen til valda sýnir að hann er vel heima í Machiavelli. Vendingar hans við undirbúning komandi þingkosninga sýna einnig að hann er vel að sér í Clausewitz. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur hann sýnt óviðjanfanlega her- kænsku sem forsætisráðherra. Eins og góðum her- foringja sæmir hefur Poul Nyrup haldið frumkvæð- inu og náð að koma andstæðingum sínum á óvart. Hann ræður hvar víghnan hggur.“ Úr forystugrein Jyllands-Posten, 28. ágúst. Clinton á undanhaldi „Tæpum tveimur vikur eftir að Bill Clinton lýsti því yfir að hann myndi aldrei láta Fídel Kastró ráða breytingum á stefnu Bandaríkjanna í málum inn- flytjenda býður forsetinn það fram sem Kúbuleiðtog- inn var að leita eftir. Eftir helgina hefjast í New York viðræður þar sem boðið verður upp á aukinn kvóta fyrir löglega innflytjendur frá Kúbu ef Kastró lofar að stööva fjöldaflótta fólks á bátræksnum yfir til Flórída. Þessi umskipti eru vandræðaleg fyrir stjórnina sem þegar er fræg fyrir hringlandahátt í utanríkismálum." Úr forystugrein The New York Times, 1. sept. Konungdæmið óhaggað „Niðurstöður skoðanakönnunarinnar um vin- sældir kosnungsfjölskyldunnar koma á óvart. Tveir af hverjum þremur Bretum bera mikla eða mjög mikla virðingu fyrir konungdæminu. Það sem þegn- ar hennar hátignar Bretadrottningar hafa fengið nóg af er ekki konungdæmiö heldur sögum af konungs- fjölskyldunni. Við byðjum því lesendur afsökunar á „konunglegri frétf ‘ okkar á forsíöunni í dag.“ Úr forystugrein Indipendent, 28. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.