Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 Dagur í lífi Eddu Guðmundsdóttur: Tekið upp úr töskunum Þegar blaðamaður DV hringdi til mín í morgun (sl. þriðjudag) stóð ég og horfði yfir fullar ferðatöskur, úlp- ur, stígvél, veiðigræjur, hundamat pg fleira dót og var að safna kröftum. í þeirri atrennu tók ég ekki upp úr töskunum en ákvað þess í stað að fá mér gott kaffi og ristað brauð með osti og líta í blaðabunkann sem eftir tveggja vikna fjarveru var orðinn töluverður. Ég var dágóða stund að því. Til að reyna aö fresta því leiðinda- verki að taka upp úr töskunum tók ég fram dagbókina mína. Við hjónin erum nýkomin úr heilmikilli ferð um hálendi íslands. Fórum eiginlega hringferð. Ég skrifaöi punkta eftir hvem dag en nú var eftir að full- komna verkið. Ég ákvað að fylla strax í eyðurnar meðan minning- arnar væru nokkurn veginn skýrar. Fyrst fórum við norður í land, þá suður um Kjöl og hittum kunningja okkar, þrenn önnur hjón, á Hellu. Þau voru síðan með okkur í ferð- inni. Þar næst fóram við Fjallabaks- leið syðri, með viðkomu á ýmsum fallegum og sögulegum stöðum, en þar er draugagangur í hveijum skála. Næst var haldið í Lakagíga, þann sama dag í Núpsstaöarskóg og staldr- að við í fógra veðri á báðum þessum stöðum. Skaftafell var næst á dag- skrá og þar var gist í nágrenni. í dásamlegu veðri, sól og logni, héld- um viö síðan, meö viðkomu á ýmsum stöðum, í Lónsöræfi. Þangað hggur allhrikalegur fjallvegur og eins gott að vera vel útbúinn með bremsurnar í lagi. Útsýni af fjallgörðum er stór- fenglegt og minnisstætt að standa á Illakambi og horfa yflr djúpa dahna og háa fjallatoppana 1 sérkennilegri birtu, sem gerði liti landslagsins óvenjulega og óraunveralega. Þar sést niður í dali þar sem fólk bjó áður fyrr. Þetta fórum við á einum degi með nánast öll þægindi með okkur, jafn- hjónin vorum heila tvo tíma að tína ber á leið okkar í bæinn og fundum töluvert af bláberjum. Nú var að þvo þau og hreinsa, aðailega þau sem Steingrímur maðurinn minn tínir, því hann tínir með beijatínu en ég tíni aftur á móti tvöfalt minna og bara stærstu berin. Mín ber nota ég í deserta en Steingríms í sultu og kökur. Pantað í myndlist Þetta innihaldsríka verk stóð þar til Hlíf dóttir mín birtist með Stein- grím son sinn sem hér er rétt hjá í leikskólanum Kjarrinu á daginn. Við fórum að skoða htið parhús sem hún og Eyjólfur maður hennar eru búin aö taka á leigu. Steingrímur hth er mjög hrifinn af húsinu. Þar er fjólu- blátt herbergi sem hann á að fá. Eftir þetta veraldlega vafstur ákvað ég að snúa mér að öðru. Hringdi í Rúnu myndhstarkennara og pantaði hjá henni tíma fyrir vetur- inn en þar hef ég verið mér til ánægju öðra hvoru undanfarið. Það var rólegt yfir kvöldmatnum því Steingrímur var á fundi á Þing- völlum með efnahagsnefnd Aiþingis. Nú var hann staddur þar á öðrum forsendum en áður. Og Guðmundur, yngri sonur okkar, nýfluttur að heiman. Tók reyndar tölvuna með sér svo að ég leitaði uppi gamla raf- magnsristvél til að koma þessu á blað. Þvílíkur munur á tækni nútím- ans og þeirri gömlu. Var þó raf- magnsritvélin mikil framfór á sínum tíma. Ég horföi bæði á fréttir á Stöð 2 og ríkissjónvarpinu enda htið séð af þeim að undanfórnu. Fleira freistaði mín ekki þar. Ég brá mér út í garð, þar sem rósirnar mínar, sem sumar hveijar eru orðnar yfir 15 ára, hafa blómstrað óvenju fallega í sumar. Hreinsaði burt þær sem voru farnar að visna og andaði að mér ilmi þeirra. DV-mynd Brynjar Gauti sjónvarpinu, sem hafði verið týnd um nokkurt skeið, í einni skjóðunni. Hún hafði greinilega „dottiö" ofan í hana óvart. Um hádegi kom Erla tengdadóttir mín með Steingrím Hermannsson yngri, átta mánaða gamlan, í heim- sókn. Hann fékk skeifu þegar hann sá mig, enda hefur hann ekki séð mig í þijár vikur. En svo lagaðist það og ég fékk að sjá ahar fimm tennurn- ar hans. Næsta mál snerist um bláber. Við Edda Guðmundsdóttir hlúir að rósunum í garðinum. vel síma. Ég verð yfirleitt hálfloft- hrædd þegar ég stend svona „hátt“ en hundurinn okkar, Nonni, virðist njóta þess og fer ætíð fremst fram á gnýpurnar, horfir fránum augum th ahra átta og virðist hugsa eitthvað merkilegt. E.t.v. eins og Matthías orti forðum: „Mörg skin á himni hjartans saga, sem hér er greftruð og gleymd". Fjarstýringin Það tók eins og gefur að skilja tölu- verðan tíma að fyha inn á mihi línanna í dagbókinni. Margt skemmthegt og eftirminnilegt gerð- ist. Eftir þessar skriftir sneri ég mér loks að ferðatöskunum mínum. Ég var eftir allt saman eldfljót að þessu. Hreint hér, óhreint þar, uharsokkar og peysur, veiöiúipur og flugnanet á sinn stað og svo framvegis. Ég fann mér til undranar fjarstýringuna af Finnur þú fimm breytingar? 273 Þetta hár er ekki af neinni af mínum hárkollum, Siggi. Nafn: Vinningshafar fyrir tvö hundrað sjötugustu og fyrstu getraun reyndust vera: 1. Birna Þorbjörnsdóttir, 2. Jenny Johansen, Hvammstangabraut 20, Skallagrímsgötu 3, 530 Hvammstanga. 310 Borgarnesi. Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ijós að á mvndinni til hægri hefur fimm atrið- um veriö breytt. Finnir þú þessi fimm at- riöi skaitu merkja við þau með krossi á myndinni th hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimihsfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegaranna. 1. verðlaun Grundig útvarpskiukka að verðmætí 4.860 krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf. 2. verðiaun: Fimm Úrvalsbækur. Bækumar, sem era i verðlaun, heita: Þú ert spæjarinn, Sím- iim, Á ystu nöf, í heigreípum haturs og Lygi þagnarinnar. Bækurnar eru gefnar ; út af Fijálsri fjölmiölun. Merkiö umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytiugar? 273 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.