Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 Kvikmyndir The Mask er væntanleg í Laugarásbíó: Gríman sem gerir þig grænan og kaldan Gaman- og spennumyndin The Mask hefur verið meðal vinsælustu kvikmynda í Bandaríkjunum und- anfarnar vikur. Myndin þykir ekki aðeins bráðskemmtileg heldur eru tæknibrellumar það vel unnar að með ólíkindum þykir. The Mask fjall- ar um bankastarfsmanninn Stanley Ipkiss sem er algjör gunga og lætur alla valta yfir sig. Kvöld eitt eftir aö besti vinur hans hefur dregiö hann á næturklúbb herðir Stanley upp hugann og hendir sér fram af brú til að bjarga manneskju sem honum sýnist vera að drukkna. Það kemur í ljós að þessi manneskja er einhvers konar gína sem brotnar í höndum hans. Stanley heldur þó eftir grímu einni sem var á andlitinu. Þegar heim er komið setur Stanley á sig grímuna og viti menn, eins og hendi sé veifað breytist hann í einhvers konar mannsmynd með grænt andlit og stórar hvítar tennur og er íklædd- ur furðufotum. Ekki nóg með það, hann hefur öðlast ofurmannlega hæfileika. Það má til sanns vegar færa að Stanley Ipiss breytist úr sauðmein- Leikstjórinn Charles Russell leið- beinir Jim Carrey við gerð The Mask. lausum bankastarfsmanni yfir í teiknimyndahetju í einu vetfangi. Teiknimyndahetjan er verk tækni- Uðsins hjá því þekkta fyrirtæki Ind- ustrial Light & Magic sem er ábyrgt fyrir mörgu tækniundrinu í kvik- myndum og er þetta í fyrsta skipti sem þetta fyrirtæki er fengið til að aðstoða við gerð gamanmyndar. Það tók ekki svo langan tíma að kvikmynda með leikurum, en sex mánuðir fóru í kvikmyndatökur þar sem tölvur leika aðalhlutverkið. „Tæknin í kvikmyndum tekur fram- fórum á sex mánaða fresti,“ segir leikstjóri myndarinnar Charhe Russell, „og þessa mánuðina er al- gjör sprenging í aUri tæknivinnslu sem á eftir að hafa mikil áhrif á kvik- myndagerð í framtíðinni." Charles Russell er búinn að vera Jim Carrey íklæddur grímunni góðu Stanley Ibiss. nokkur árin í kvikmyndum en The Mask er hans langstærsta verkefni hingað til. Hann er einn margra kvikmyndagerðarmanna sem hófu vinnu við kvikmyndir hjá Roger Cor- man og segir hann að það hafi verið besti skóUnn sem hann hafi farið í. Russell leikstýrði tveimur hrylUngs- myndum, The Nightmare on Elm Street þtí, sem er ekki aðeins vinsæl- asta kvikmyndin um Freddy Krue- ger, heldur sú langbesta og The Blob, Kvikmyndir Hilmar Karlsson og til hliöar sem hinn sauðmeinlausi áður en hann tók sér fyrir hendur að vera framleiðandi við nokkrar kvikmyndir, .má þar nefna Dre- amscape og Back to School. Jim Carrey, sem leikur Stanley, hefur svo sannarlega gert það gott á þessu ári, hefur leikiö í tveimur kvik- myndum sem báðar hafa náð mikl- um vinsældum, Ace Ventura: Pet Detectíve og The Mask. Þessi ungi leikari, sem byriaði feril sinn sem gamanleikari á sviði og gerði garðinn frægan í sjónvarpsseríunni In Living Color þarf ekki að örvænta í framtíð- inni. Hann er nú heitasta stjaman í HoUywood sem aUir vilja þekkja og fá í vinnu. Næsta kvikmynd hans heitir Dumb and Dumber. Mest sóttu kvikmyndimar síðustu helgina í ágúst: Umdeild kvikmynd Olivers Stones efst á blaði Jullette Lewis og Woody Harrelson lelka morðingja ó flótta í Natural Born Killers. Nýjasta kvikmynd OUvers Stone, Natural Born Killers var mest sótta kvikmyndin í Bandaríkjunum um síðust helgi. Frekar dræm aðsókn var að kvikmyndahúsunum og 6% samdráttur var á aðsókn á milU vikna. Mikið hefur verið fjallað um Natural Bom KiUers aö undanf- ömu og þykir rnörgum hún gera oíbeldinu hátt undir höfði. Fjallar hún um tvo raðmorðingja sem em á flótta og verða hetjur í augum almennings vegna þess hvemig fjölmiölar taka á máUnu. Aöalhlut- verkin leika Woody Harrelson og JuUette Lewis og það var Quentin Tarantino sem skrifaði handritið. Natural Bom KiUers tók inn tæpar tólf miUjónir dollara framsýning- arhelgina. í næstu þremur sætum vora þijár metaösóknarmyndir sem sigla þessa dagana lygnan sjó. í 2. sæti var Forest Gump en heildar- tekjur af henni era orðnar 222 milijónir doUara, í 3. sætí er Clear and Present Danger með Harrison Ford og á fjórum vikum hefur hún halað inn 86 milljónir dollara, í 4. sætí er svo The Mask en heildar- tekjur af henni era orðnar 91 millj- ón doUara. Næstu myndir á Ustanum era: 5. Corrina, Corrina, gamanmynd með Whoopi Goldberg. 6. Colour of Night. 7. True Lies. Þrátt fyrir að 126 milljón doUarar séu komnar í aðgangseyri er samt talað um að langt sé í að kostnaði sé náö. 8. The Lion King. Stendur öragglega uppi sem vinsælasta kvikmynd ársins þegar er almenningur búinn að greiða 256 miUjónir í aðgangseyri. 10. The CUent en hún hefur gert það gott eins og aðrar myndir sem gerðar hafa verið eftir skáldsögum John Grisham (The Firm, The Pelican Brief) og er upphæðin fyrir greiddan aðgangseyri komin í 78 milljónir dollara. Þumalína og Kornelíus prins finna hamingjuna að lokum. Þumalína með íslenskutali Sam-bíóin hafa hafið sýningar á teiknimyndinni Þumalínu sem gerð er af Don Bluth sem á að baki teiknimyndimar An Amer- ican Tail, The Land Before Time og AU Dogs Go to Heaven. Þuma- lína er gerö eftír ævintýrinu um Utlu stúlkuna sem trúir því að fylgi hún hjartanu finni hún ást- ina. Söngvarinn góðkunni, Barry Manilow, semur tónUstina sem flutt er með íslenskum texta, erns og raunar aUur texti myndarinn- ar, en myndin hefur verið talsett og leikstýrði Ágúst Guðmunds- son. Leikarar sem ljá raddir sínar í myndinni era: Edda Heiðnín Backman, FeUx Bergsson, Öm Ámason, Jóhann Sigurðarson, Laddi, Lísa Pálsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Magnús Ólafs- son, Hanna María Karlsdóttir og Margrét Ákadóttir. WalterMatthau leikurEinstein Stutt er síðan tökur hófust á kvikmyndinni I.Q. i leikstjórn Fred Schepisi. FjaUar myndin um tilraunir Álberts Einsteins til að koma frænku sinni í híónaband meö bifvélavirkja. Meg Ryan og Tim Robbins leika parið en Walt- er Matthau leikur Albert Ein- stein. Margir leikarar vora búnir að sverma fyrir hlutverki Ein- steins, m.a. Richard Dreyfuss og Alan Arkin, en handritshöfund- urinn Andy Breckman segir að um leið og nafn Walters Matthaus haíí verið nefnt hafi þótt augljóst að hann yrði valínn. Vandræðimeð handritið Meira af I.Q. Þegar tökur hófust x New Jersey var handritiö ekki tílbúið og ríkti nokkur taugatitr- ingur í herbúöum aöstandenda myndarinnar. En hvernig staðiö var að handritsgerðimú lýsir raunar vel hvað gerist þegar of margir era að hræra í sömu skál eins og algengt er í HoUywood. Andy Breckman skrifaði fuUklár- að handrit en framleiðendur vora ekki sáttir og fengu hvem „lækn- inn“ á fætur öðram tíl að laga handritið. Má þar nefna Nora Ephron, Michael Leeson, Michael Goldenberg og MarshaU Brick- man. Að lokum var Andy Brick- man fenginn til að koma handrit- inu í samt lag aftur. Góðar framtíðarhorfur Það er fUótt að kvisast út í kvik- myndaheiminum þegar von er á góðri kvikmynd sem gætí einnig skapað mikla aösókn. Þær sögúr fara af Little Odessa, sem verður fyrst sýnd á kvikmyndahátíöinni í Feneyjum um helgina, aö þar sé um óvenju góða mynd að ræða Leikstjóri og handritshöfundur er James Grey og er hann aðeins 24 ára. Myndin var gerð af óháð- um aðUum og handritíð þótti það gott að Gray var ekki í vandræð- um með aö fá leikarana Tim Roth, Vanessu Redgrave, MaximUUan Schell og táningastjörnúna Edw- ard Furlong tíl aö leika i mynd- inni sem fjallar um atvinnumorð- ingja sem viruxur fyrir rússnesku mafíuna. Fine Line Features er þegar búið að tryggja sér Amer- Uíudreifingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.