Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Síða 27
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
35
I draumnum kemur fram hugarsýn um skjótan frama, sigra, ógnanir, niðurlægingu og takmarkalausa tor-
tímingu.
Draumar
„Segðu mér eitthvað um drauma
og gildi þeirra?" sagði miðaldra
þunnhærður maður við Nökkva
lækni. „Ernauðsynlegtað
dreyma?“ bætti hann við. Nökkvi
svaraði að bragði: „Allir þurfa að
sofa til að halda heUbrigði og kröft-
um. Meðalsvefntími fullorðins ein-
staklings er 7,5 klst. og breytist lítið
með árum og árstíðum. Nauðsyn-
legasti hluti svefnsins er drauma-
tíminn þegar augnhreyfmgar eru
líflegar og svefninn grunnur
(REM-svefn = rapid eye move-
ment). Draumatímabilin koma
reglulega alla nóttina og nema um
fimmtungi svefntímans. Sjálfboð-
aliðar sem sviptir voru draum-
svefni höguðu sér eins og þeir
hefðu misst allan svefn. Þeir urðu
uppstökkir, taugaveiklaðir og ergi-
legir. Allir eru sammála um að
nauðsynlegt er að dreyma. Það fer
eftir því á hvaða stigi svefnsins fólk
vaknar hvort menn muna drauma
sína.“
Um drauma
Nökkvi hélt áfram og horfði
dreymandi augum á feita fiskiflugu
sem suðaði á glugganum: „Draum-
ar eru einkennilegt samsafn tákna,
svipmynda og furðulegra skynj-
ana. í draumnum kemur fram hug-
arsýn um skjótan frama, sigra,
ógnanir, niðurlægingu og tak-
markalausa tortímingu. Meðal
Grikkja voru draumar áhtnir vera
böm næturinnar, Nyx, og Svefns-
ins, Hypnosar. Þeir skiptu þúsund-
um og bjuggu í helli einum undir
stjóm Hypnosar. Greindastur
þeirra var Morfeus sem líkti eftir
mönnum en Icelus hermdi eftir
ófreskjum. Guðirnir nýttu sér
drauma til að villa um fyrir mönn-
um og hver öðmm enda voru þeir
áhtnir hafa forspárghdi. Á íslandi
voru menn kahaðir draumspakir
sem ráðið gátu drauma. Þekktastur
ahra íslenskra draumaráðninga-
manna var-Gestur Oddleifsson í
Haga á Barðaströnd í Laxdælu.
Guörún Ósvífursdóttir fór th hans
og bað hann ráða fjóra drauma. í
fyrsta draumnum hafði hún krók-
fald á höfði sem hún kastaði í læk,
í öðmm hafði hún silfurhring á
hönd sem hún týndi í vatn. í þriðja
draumnum átti hún guhhring sem
brotnaði og í þeim íjórða átti hún
gullhjálm sem hún tapaði. Gestur
réði draumana þannig að Guðrún
mundi eignast fjóra eiginmenn og
fengju þeir alhr óbhð örlög. Þessi
draumaráðning var undanfari
hörmunga Laxdælasögu. Gísli
Á laeknavaktmni
Óttar
Guðmundsson
læknir
Súrsson var berdreyminn og átti
hann sér tvær draumkonur. Önnur
var honum hhðhoh en hin spáði
hlu einu. Hann réði af hátterni
þeirrahvað framtíðin bæri í skauti
sér. En líta má á drauma á annan
hátt.“
Önnur
túlkun drauma
Nökkvi hélt áfram enda kominn
á gott skrið: „Sigmundur nokkur
Freud lagði gmndvöh að nútíma-
sálgreiningu. Hann gaf út árið 1899
bókina Die Traumdeutung
(Draumatúlkanir). Fyrir þetta verk
sitt hlaut hann hðlega 4000 krónur
auk ódauðleika í heimi drauma-
rannsókna og sálfræði. Hann taldi
drauma eiga upptök sín í dulvitund
einstaklingsins. Þeir væm „via
regia“ (hinn konunglegi vegur) til
undirheima sálarinnar. Með hjálp
drauma væri hægt að komast fram-
hjá ýmsum vörnum sjálfsins og
uppgötva þannig ýmsa leyndar-
dóma. Freud taldi að draumar end-
urspegluðu löngu liðin atvik sem
lifðu í undirmeðvitund einstakl-
ingsins og væru oft rót al varlegra
truflana." Maðurinn skaut nú inn
orði: „Hvað heldur þú, Nökkvi, að
Freud hefði sagt við Guðrúnu
Ósvífursdóttur?" Nökkvi svaraði:
nHann hefði spáð í draumana og
tahð þá eiga rætur í sálardjúpum
hennar; hún væri síhrædd við
höfnun og missi. Hann hefði talið
Guðrúnu hafa stöðvast í þroska á
frumskeiði æviferhsins þegar ein-
stakhngurinn lærir að lifa með
hvötúm sínum og kynnist þörfum
sínum og löngunum. Þessi truflun
gerði Guðrúnu ákaflega óörugga
og kvíðna og það væri aðalvanda-
mál hennar. Hann hefði senrúlega
htið á krókfaldinn og gullhjálminn
sem reðurtákn og hringana sem
kynfæri Guðrúnar. Draumarnir
hefðu þannig endurspeglað kyn-
ferðislegt öryggisleysi konunnar. í
samtalsmeðferð hjá Freud hefði
Guðrún eflaust sagt honum frá öh-
um sínum hjónaböndum. Hann
hefði að bragði rakið þessa við-
burðaríku hjúskaparsögu th þessa
öryggisleysis og spennu en ekki
farið hina leiðina eins og Gestur."
Er mark að
draumum?
“ Já,“ sagði maðurinn, „en er eitt-
hvað að marka drauma? Mig
dreymdi um daginn að Gullfoss
rynni upp í móti. Gæti það vitað á
lottóvinning?" Nökkvi svaraði
spekingslega: „Svo rætist hver
draumur sem hann er ráðinn segir
í Þjóðsögum Jóns Ámasonar. Stöf-
uðu hjónabandsraunir Guðrúnar
Ósvífursdóttur af ofurtrú hennar á
spá Gests Oddleifssonar eða tauga-
veiklun sem gerði hana óhæfa að
njóta einhverrar hamingju? Gat
hún helgað sig hjónabandi sem hún
trúði að fengi fljótlega bráðan endi?
Hefði henni hðiö betur ef hún hefði
hitt Freud og fengið aðra drauma-
ráðningu og innsæismeðferð eða
hefði þetta allt farið á sama veg.
Hefði Freud eyðhagt aha dramatík-
ina í Laxdælu? Þetta vitum við
aldrei. Gulifossdraumurinn gæti
auðvitað vitað á lottóvinning eða
sigur íslendinga í heimsmeistara-
keppni í handbolta. Nú eða draum-
urinn endurspegh ótta þinn við
væntanlega blöðruhálskirthssjúk-
dóma sem fylgja karlmönnum á
þínum aldri. Gleðstu yfir því að þig
dreymir skemmtilega drauma.
Gullfoss væri sennhega fahegri og
gróðavænlegri fyrir þjóðarbúið ef
hann rynni í öfuga átt.“ Nökkvi
þagnaði og ákvað að kaupa sér góða
draumaráðningabók og bjóða fram
krafta sína á einhverri útvarpsstöð
landsmanna í næturþætti um
drauma.
Verzlunarskóli Islands - Iþróttahús
Enn er nokkrum tímum óráðstafaö um helgar
í íþróttasal Vl næsta vetur.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans
í síma 688400.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Stuðningsstarf
Fóstra, þroskaþjálfi eða starfsmaður með aðra upp-
eldismenntun óskast strax í stuðningsstarf vegna
barna með sérþarfir I leikskólann Brekkuborg v/Hlíða-
arhús.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma
679380.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
JAPANSKAR SKYIAÍINGAR
IAIDO ■_
LIST JAPANSKA SVERÐSINS, FELST í
EINSTAKLINGSBUNDNUM ÆFINGUM Á
FYRIRFRAMÁKVEÐNUM HREYFIMYNSTRUM (KATA) SEM
ERU AFRAKSTUR ÞROTIAUSRAR VIÐLEITNI SAMURAIANNA
TIL FULLKOMNUNAR Á LIÐNUM ÖLDUM.
KENNARhTRYGGVI SIGURÐSSON 4. DAN
KENDO
SKYLMINGAR I HLÍFÐARBÚNING ÞAR SEM ÁSTUND ER
SETT OFAR KEPPNI. GÖFUG OG KREFJANDI ÍÞRÓTT
SEM EFLIR LÍKAMA OG HERÐIR HUG.
KENNARI: INGÓLFUR BJÖRGVINSSON 2. DAN.
MEISHINKAN DOJO
UPPIÝSINGAR OG SKRÁNING i SÍMA 668866/657247
c'C^ansskóli Jóns Péturs og Köru
Bolholti 6, sími 36645
I
‘-\5anssk0li Heiðars Ástvaldssonar
Brautarholti 4, sími 20345
azzballettskóli Báru
Stigahlíð 45, sími; 8^730
^^ansskóli Hermanns Ragnars
simi 687580
vansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Auðbrekku 17, sími 641111
■
I 'f' '
| ý- Dansráð Islands
| tryggir rétta tilsögn
ffFrétta- og íræðsluþjónustan
c*C^ansskóli Auðar Haralds
Grensásvegi 12, sími 39600
Cytfýi dansskólinn
Reykja\41íurvegi 72, ámi 652285
^^anslína Huldu
Þarabakka 3, sími 71200
°^agný Björk, danskennari
Smiðjuvegi 1, sími 642535
^^anssmiðjan
Engjateigi 1, sími 689797
Ðanss£ó(amir
þar sem dansinn er fyrir alla