Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Side 29
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
37
Langlífu Kvennaskólastelpumar:
Rifjum stöð-
ugtupp
námsárin
- segir Margrét E. Schram, níræð
„Við vorum tuttugu og íjórar bekkj-
arsystur í Kvennaskólanum sem út-
skrifuðumst vorið 1923 og sjö okkar
eru enn á lífi. Við vorum alla tíð
miklar vinkonur og hittumst ævin-
lega á fimm ára fresti. Ein bekkjar-
systir okkar, Helga Helgadóttir, lést
á þessu ári en við hittumst síðast
heima hjá henni,“ segir Margrét E.
Schram sem varð níræð í sumar en
þá komu þrjár bekkjarsystur hennar
til að fagna með henni á þessum
merka degi. Þaö voru þær Dagmar
Lúðvíksdóttir, Dóróthea Stephensen
og Kristín Högnadóttir.
Aðrar bekkjarsystur á lífi eru Ásta
Oddsdóttir, sem býr í Danmörku,
Katrín Brynjólfsdóttir og Kristín
Helgadóttir. „Einu sinni kom ég
bekkjarsystrum mínum á óvart með
leynigesti sem var Ásta, hún var þá
í heimsókn hér á landi frá Danmörku
þar sem hún hefur búið frá því stuttu
eftir aö við lukum Kvennaskólan-
um,“ segir Margrét. „Við höfum líka
heimsótt hana þar sem hún býr á
Jótlandi."
Margrét segir að þær hafi verið tvo
vetur saman í Kvennó og það hafi
verið mjög skemmtilegur tími. „Við
rifjum cdltaf upp námsárin þegar við
hittumst og höfum ávallt um nóg að
tala enda voru þetta allt saman mjög
góðar stelpur. En það verður að segj-
ast eins og er að langlífið er sennilega
einstakt í þessum bekk.“
Margrét á ekki svar við þvi hvers
vegna svo er og segist sjálf aldrei
hafa lifað eftir einhverjum hollustu-
kenjum. Hins vegar hafi Kristín .
Högnadóttir alltaf verið í hollustunni
enda sé hún langsprækust þeirra.
„Ég held að hún geti meira að segja
bitið í tærnar á sér,“ segir Margrét
og hlær. „Ætli við höfum bara ekki
haft það svona gott í gegnum tíðina.
Að minnsta kosti finnst mér ég aldr-
ei hafa gert neitt.“
Margrét rifjar upp hversu fröken
Bjamason hafi verið strangur skóla-
stjóri á þessum tíma. Námsstúlkum-
ar komu af öllu landinu og þær voru
á misjöfnum aldri. „Margar þeirra
bjuggu á heimavistinni en ég bjó í
Reykjavík og gat hlaupið á milli."
Þegar Margrét var spurð út í skóla-
dansleikina sagðist hún hafa boðið
bróður sínum, Gunnari, með sér þar
sem hann hafi verið svo góður dans-
herra. „Þetta var ógurlega gaman því
að allir strákar sem maður kannaðist
við vom á ballinu. Ég man eftir að
fröken Bjamason skólastjóri hafði
engan herra og ég lánaöi henni
Gunnar bróður sem dansherra," rifj-
ar hún upp. „En böllin voru ekki
mörg á þessum tíma. Á síðasta ári
mínu í Kvennó fór fröken Bjarnason
á Alþingi og fröken Ragnheiður
wwwwvwwv
SMAAUGLYSINGADEILD
OPIÐ:
Virka daga
laugardaga
sunnudaga
frákl. 9-22,
frákl. 9-16,
frá kl. 18-22.
ATH.! Smáauglýsing
i helgarblað DV verður
að berast okkur fyrir
kl. 17 á föstudag.
Jónsdóttir leysti hana af. Hún við-
hélt aganum í skólanum," segir
Margrét sem tók á móti 85 gestum á
afmæli sínu í sumar en hún dvelur
nú á Gmnd.
Skólasysturnar hressu úr Kvennaskólanum. Frá vinstri er Dagmar Luðvíksdóttir, þá Margrét E. Schram, Dóróthea
Stephensen og Kristín Högnadóttir.
ERILOFA IAGK>
AÐ EIGNAST EINN
FRÁ ERICSSON
Nú gefst þér kostur á
að nýta þér nýtt frelsi í
samskiptum. Með
lófastórum GSM
farsíma opnast þér ný
tækifæri til að sinna
erindum þínum hvar
og hvenær sem þér
hentar.
Ericsson 337 er léttur og handhsgur
GSM farsími sem þægilegt er að hafa
með sér. Ericsson 337 vegur aðeins
225 gr. og sendistyrkurinn er 2 wött.
kr. 115.900 stgr.
GSM
FARSÍMAR
c'ða kr. 5.809 ci monuðl' 1 : , .1 rðn kl. .
Ericsson 198er meðfærilegur 325 gr.
GSM farsími með 2ja watta sendistyrk.
Ericsson 198 er á hreint frábæru verði
og höfðar því til mjög margra.
kr. 69.920 stgr.'
Fjöldi fólks byggir atvinnu sína á þvl að geta með skjótum hætti
átt gagnkvæm samskipti við viðskiptavini slna. Má þar nefna menn
í stjórnunarstöðum, iðnaðarmenn, bifreiðastjóra og fleiri. Með
því að nýta sér nýjustu tækni í fjarskiptum gefst nú þessum
aðilum kostur á að ná tafarlaust sambandi við starfsmenn eða
viðskiptavini með nýrri gerð farsíma. GSM farsímarnir eru svo
sannarlega tæknibylting í fjarskiptum. Notkunarmöguleikar þeirra
eru meiri en áður hefur þekkst en það sem skiptir mestu máli er
hversu meðfærilegir þeir eru. Nú má hafa farsímann með sér
hvert sem er. Þessum lófastóru slmum má auðveldlega renna f
jakkavasann eða bera þá í belti. GSM farsíminn er ekki bundin við
notkun hér á landi því þú getur notað hann víðast hvar erlendis.
Þú ert því í góðu sambandi með GSM farsímanum, hvar og
hvenær sem er.
Nýherji hf. býður fjölbreytt úrval GSM farsíma. Áhersla er lögð
á tæknilega fullkomnun, gæði og gott verð. Þú getur því verið
viss um að finna síma við þiH hæfi hjá okkur.
Við vekjum athygli á fjölbreyttum
afborgunarmöguleikum, s.s. með
Staögreiðslusamningi Glitnis og
raögreiðslum greiðslukorta.
(*) Afborgunarveröið er miöaö við að viðskiptin ..
fari fram með Staðgreiðslusamningi N YH E R J I
Glitnis og að afborgunartímabil sé
24 mánuðir. VSK og allur kostnaður er
innifalinn I afborgunarverði.
SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan
SSON
VERSLUNIN EROPIN 10-16
ALLALAUGARDAGA
147 mm