Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1994, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1994 3 Fréttir Verkalýðsarmurinn VÍ112. sætið í Reykjavík: Hef áður þurft að berjast fyrir þingsæti - segir Guðrún Helgadóttir alþingismaður „Ég er svo sem ekkert farin að setja mig i stellingar fyrir komandi forval eða prófkjör að öðru leyti en því að ég hef þegar lýst því yfir að ég gefi kost á mér áfram og tel mig eiga heilmikið verk óunnið. Svo verður máður bara að lúta því hvort einhver vill mann,“ sagði Guðrún Helgadótt- ir, þingmaður Alþýðubandalagsins í Reykjavík, í samtali við DV. Því er haldið fram að verkalýðs- armur flokksins ætli að koma manni í 2. sætið á listanum viö næstu kosn- ingar. Til þess þarf að sigra Guðrúnu Helgadóttur í forvali en hún skipar nú 2. sætið á listanum. „Ég hef aldrei gert neina kröfu til þess að eiga eitthvert sæti. Ég hef bara orðið að lúta niðurstöðu for- vals. í upphafi fór ég inn á þing úr fjórða sæti á listanum. Þar næst fór ég inn úr þriðja sætinu og tvisvar hef ég verið í öðru sæti,“ sagði Guð- ;rún. Hún benti á að hafi menn hug á að vega að sér og koma einhverjum úr verkalýösarminun í 2. sætið þá hafi það svo sem verið reynt fyrr. „Einu sinni gerði Ásmundur Stef- ánsson, þáverandi forseti ASÍ, atlögu að því sæti sem ég sat í. Hann til- kynnti það meira að segja opinber- lega. Ég fór í slaginn við hann og bar sigur úr býtum. En eins og ég segi geri ég ekki kröfu til aö ég eigi eitt- hvert sæti en ég berst fyrir sætinu sem ég er í. Ég tel heldur enga ástæðu til aö ætla að kjósendur í Reykjavík hafi sérstakan áhuga á því að ég hætti á þingi. Ég vil hins vegar endi- lega benda þeim mönnum á, sem hafa áhuga á að koma fólki úr verka- lýðsarmi flokksins á þing, að berjast fyrir því að Alþýðubandalagið fái fleiri menn kjörna í Reykjavik en ekki að vera að berjast innbyrðis um sætin," sagði Guðrún. Lára V. Júlíusdóttir: Fylgi Jóhönnu úr flokknum „Ég fylgi Jóhönnu út úr Alþýðu- flokknum. Ég gekk í flokkinn fyrir tilstilli Jóhönnu og til að vinna með henni. Ég hef reynt að gera það eftir bestu getu og hef staðið með henni í þessum hremmingum. Mér finnst skorta á einlægni hjá stjórnmála- mönnum og að þeir vinni að sínum málum af fullum hug. Ég held áfram að styðja Jóhönnu því að hún er ekta og einlæg í sínum málum en ég ætla ekki í framboð sjálf,“ segir Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur. Ekki er búist við því að mikill fiöldi fólks gangi úr Alþýðuflokknum í kjölfar úrsagnar Jóhönnu Sigurðar- dóttur úr flokknum. Það er þó ljóst að hörðustu stuðningsmenn Jó- hönnu, til dæmis Lára V. Júlíusdótt- ir, Þorlákur Helgason og Sigurður Pétursson og Ólína Þorvarðardóttir, munu ganga úr flokknum. Ekki hef- ur náðst í Braga Guðbrandsson, fyrr- verandi aðstoðarmann Jóhönnu, og því ekki vitað hvaða afstöðu hann tekur. Nokkrir félagar í Jafnaðarmanna- félagi íslands yflrgáfu Alþýðuflokk- inn um leið og félagið sagði sig úr Alþýðuflokknum. Loönuvertíöin: Af lahæsta skipið nálg- ast 10 þúsund tonn Sigurður VE er aflahæsta skipið það sem af er loðnuvertíðinni. Veiðin hefur verið afar dræm að undan- fömu og t.d. bárust ekki nema tæp- lega 7 þúsund tonn á land í síðustu viku. Loðnan finnst ekki en menn eru vissir um að þegar hún kemur í leitirnar muni færast mikið líf í veið- arnar. Afli Sigurðar VE er nú 9.405 tonn en næstu skip era; ísleifur VE 8.855 tonn, Húnaröst RE 8.363 tonn, Hólmaborg SU 7.781 tonn, Bjarni Ól- afsson Ak 7.770 tonn, Hákon ÞH 7.499 tonn, Börkur NK 7.367 tonn, Örn KE 7.325 tonn og Grindvíkingur GK 7.174 tonn. Alls hafa 43 skip fengið úthlutaðan loðnukvóta og hafa 38 þeirra hafið veiðar. Ungir framsoknarmenn: Vilja jöf nun atkvæðavægis „Það er ekki hægt að búa til lengd- ar við kosningalög sem mismuna þegnunum. Kosningalög eru horn- steinn lýðraeðis í hverju landi og þar eiga alUr að sifia við sama borð,“ segir í ályktun sem samþykkt var samhljóða á miðstjórnarfundi Sam- bands ungra framsóknarmanna sem fram fór á Hvalfiarðarströnd um helgina. I ályktuninni segir að þó lands- mönnum sé víða mismunað eftir búsetu verði slíkt ekki lagfært með misvægi atkvæða. Þá segir að núver- andi kosningalög séu ekki á vetur setjandi. Þingmenn eru sagðir van- hæfir í máhnu og því þurfi að leita aðstoðar manna sem ekki stunda pólitísk hrossakaup. Þjóðvegahátíðinni er lokið en viö höldum áfram.. Hátíðakvöldverður með þjóðlegu ívafi. Létt ekemmtidagekrá með dar\eis eöng og gamanmálum. Óevikin hátíðardagekrá með íelenekum etjörnufane. Þjóðhátíðardaneleikur fram á rauða nótt. Z/y/y/i d As//ú)/stst/ //trd Áf’///t/////ff///// -íÁ/z/i/////////'//)/ y//////////////^, y/y// /'f/y// y/'///s//\ //■//. ■ //’ ■j//// v/<///// Edda "Edda' ' Björgvinsdóttir fjallkona, ráðskona og kvenréttindakona Sigurður £>iggi Sigurjónsson aerobikkennari, garðyrkju- og tamningamaður Þjórhallur "Laddi' ' Sigurðsson glímu-, brennu- og fjallkóngur og sláturhússtjóri með meiru. Dagskrárstjórn er í höndum þjóðhátíðarnefndar Sögufélagsins Mímis en formaður hennar er Haraldur "HalH" Sigurðsson hreppstjóri, djákni og hundahreinsunarmaður héraðsins. ötjórnin er í höndum Björns G. Björnssonar. Auk þeirra koma fram söngvararnir Guðrún Gunnarsdóttir og Reynir Guðmundsson, með einni bestu danshljómsveit landsins Saga og tugir annarra þekktra persóna úr þjóðlífi og fjölmiðlum. 9 HUMARFYLLT LAXAVEFJA HREPPSTJÓRANS eða KAMPAVÍNSBÆTT þJÓÐHÁTÍÐARSÚPA MEÐ KjÚKLlNGUM OG ÞISTLUM ORILLSTEIKTUR LAMBAHRYGGUR FRAMREIDDUR MEÐ SMjÖRRlSTUÐUM JURTUM FJALLKÓNGSINS eða HUNANGSGLJÁÐUR GRÍSAHRYGGUR FJALLKONUNNAR eða GRÆNMETISRÉTTUR SÖGUFÉLAGSINS _________ HINDBERJATERTA KVENRÉTTINDAKONUNNAR, MEÐ VANILLUSÓSU eða ÍSRÉTTUR DJÁKNANS, Á SÚKKULAÐIGRUNNI SllRlfiJW Verð: 4.700 kr. Pantið tímaniega í síma 91-29900 (söludeild) Sértilboð á gistingu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.