Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1994, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1994
25
Fréttir
Anna Þorsteinsdottir, kona Olafs Vilhjálmssonar á Höfn í Hornafirði, með
stærsta laxinn úr Breiðdalsá 19,5 punda, hann tók svartan tóbý.
DV-mynd Júlía Ismland
Enn þá er möguleiki:
Margar veiðiár
opnar lengur
Veiðimenn sem ekki veiddu mikið
í sumar eiga enn þá möguleika því
nokkrar veiðiár verða opnar lengur.
Reynar er laxinn orðið leginn og sil-
ungurinn líka. En flugan getur verið
skemmtileg þegar hausta tekur og
fiskurinn tekur marglitaðar flugur.
„Það er allt á fleygiferð hjá okkur
enda komnir 220 laxar og um 600
bleikjur," sagði Sæmundur Kristj-
ánsson í Hvolsá og Staðarhólsá í
Dölum í gær en þar hefur veiðitíminn
verið framfengdur.
„Við ætlum að veiða fram að mán-
aðamótum og seljum daginn á fimm
þúsund og leyfum fjórar stangir. Það
er töluvert aif flski enn þá í ánum,“
sagði Sæmundur enn fremur.
19,5 punda úr Breiðdalsá
„Það eru komnir um 70 laxar og
stærsti laxinn er fiskur Ólafs Vil-
hjálmssonar 19,5 punda. Hann veiddi
fiskinn í Litluklöpp en staðurinn á
milli Ármóta og Gunnlaugshlaups,"
sagði Skafti Ottsen á Hótel Bláfelli á
Breiðdalsvík í gær. En veiðitíminn í
Breiðdalsá hefur verið framlengdur.
„Það hafa margir spurt um þessa
auka veiðidaga enda laxar að koma
enn þá í ána. í gær veiddust 4 og 7
punda nýir fiskir,“ sagði Skafti í lok-
in.
Flekkudalsá gaf
aðeins 99 laxa
„Það veiddust 99 laxar hjá okkur í
sumaer og stærsti laxinn er 12 pund.
Þetta var ells ekki nógu gott,“ sagði
Ólafur Pétursson í Galtartungu í gær
er við spurðum um lokatölur.
Yfirsjö þúsund
bleikjur í Fljótaá
Fljótaá í Fljótum eru yfir 6500
bleikjur og 79 laxar, stærsti l'axinn
er 22 pund. Fyrir skömmu voru þeir
félagar Pálmi Gunnarsson, Jóhannes
Guðmundsson, Engilbeh Jensen og
Rúnar Marvinsson með marglitar
flugur. Þeir veiddu 257 bleikjur og
þrjá laxa á einum og hálfum degi.
Fiskifræðingar hafa mælt meö lengri
veiðitíma Fljótaá en veiðifélagið hef-
ur ekki enn þá kveðið upp sinn dóm.
Sviðsljós
Bjarnheiður Jóhannsdóttir listamaður opnaði sýningu á verkum sínum í
Stöðlakoti við Bókhlöðustíg um helgina. Þetta er fyrsta einkasýning Bjam-
heiðar og á henni eru leirskúlptúrar sem innihalda að mestu leyti gamla
járnhluti og leir. Verkin eru öll unnin í Ungverjalandi þar sem Bjarnheiður
hefur starfað og lært að undanfórnu. Á myndinni er hún ásamt dóttur sinni,
Sunnevu Þórarinsdóttur.
Leikhús
\(lHk
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Sími 11200
SALA ÁSKRIFTARKORTA
STENDUR YFIR TIL 25. SEPT.
Stóra sviðið kl. 20.00
Óperan
VALD ÖRLAGANNA
eftir Giuseppe Verdi
2. sýn. í kvöld, þrd. 20/9, uppselt, 3. sýn.
sud. 25/9, uppselt, 4. sýn. þrd. 27/9, upp-
selt, 5. sýn. föd. 30/9, uppselt, 6. sýn, Id.
8/10, uppselt, 7. sýn., mán. 10/10, upp-
selt, 8. sýn. mvd. 12/10, uppselt.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
NÆSTA SÝNINGARTÍMABIL - miðasala
hefst i dag - föd. 25/11, sud. 27/11.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Föd.23/9, ld.24/9, fid.29/9.
Smiðaverkstæðið kl. 20.30
SANNAR SÖGURAF
SÁLARLÍFISYSTRA
eftir Guðberg Bergsson i leikgerð Viðars
Eggertssonar.
Frumsýning fid. 22/9 kl. 20.30.
2. sýn. sud. 25/9,3. sýn. föd. 30/9.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga frá kl. 13-20 meðan á kortasölu
stendur. Tekið á móti simapöntunum alla
virka daga frá kl. 10.00.
Græna.linan 99 61 60. Bréfsími 61 12 00.
Simi 1 12 00-Greiðslukortaþjónusta.
Tjarnarbíó
DANSHÖFUNDAKVÖLD
Höf.: Hany Hadaya, Lára
Stefánsdóttir, David Greenall
3. sýn. 23. sept. kl. 20,4. sýn. 24. sept.
kl. 20,5. sýn. 25. sept., sunnud., kl. 15.
Miðasala opnuð kl. 16.00 alla daga nema
sunnudaga kl. 13.00, i sima 610280
eða889188
ÍSLENSKIDANSFLOKKURINN
Tilkyimingar
Bólstaðarhlíð 43
Félags- og þjónustumiðstöð aldraðra.
Spilað á miðvikudaginn frá kl. 13-16.30.
Állir velkomnir.
Tónleikar á Ara í Ögri
Tríó Bjöms Thoroddsens, skipað Bimi á
gítar, Gunnari Hrafnssyni á kontrabassa
og Ásgeiri Óskarssyni slagverksleikara
mun halda tónleika á veitingastaðnum
Ara í Ögri í kvöld, þriðjudagskvöldið 20.
september. Gestur tríósins verður stór-
mennið og söngvarinn Bogomil Font og
mun hann heiðra tríóið meö ásláttar-
vænni nærvem sinni. Bogomil Font
hyggst m.a. leita í smiðjur Kurts Weills
og Coles Porters eftir sönglögum sem
henta þessu tilefni. Tónleikarnir hefjast
kl. 22.30 og aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Félag eldri borgara í Kópa-
vogi
í kvöld kl. 19 verður spilaður tvimenning-
ur að Fannborg 8 (Gjábakka).
Bridge:
Stórmótá
Höfn í
Hornafirði
Dagana 23.-25. september verður
haldið að Hótel Höfn opna Homa-
fjarðarmótið í bridge. Spilaður verð-
ur tvímenningur og heildarverðlaun
vegleg, samtals 400.000 krónur.
Keppnisstjóri á mótinu verður
Sveinn Rúnar Eiríksson. Þátttaka í
mótið tilkynnist til Árna Stefánsson-
ar á Hótel Höfn í s. 97-81240 og þjá
Bridgesambandinu í s. 91-619360.
Boðið er upp á pakkaferðir frá Flug-
leiðum. Spilamennskan hefst klukk-
an 19.30 fóstudaginn 23. september
en lýkur um klukkan 15 sunnudag-
inn 25. september.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litlasviðkl. 20.00
ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
eftir Jóhann Sigurjónsson
Þriðjud. 20. sept., uppselt.
Miðvikud. 21. sept., uppselt.
Föstud. 23. sept., uppselt.
Laugard. 24. sept., uppselt.
Sunnud. 25. sept., uppselt.
Miövikud. 28. sept.
Fimmtud. 29. sept.
Föstud. 30. sept., örfá sæti laus.
Laugard. 1. okt.
Stóra svið kl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Leikmynd: Jón Þórisson, búningar:
Þórunn Elisabet Sveinsdóttir, lýsing:
Ögmundur Þór Jóhannesson, leik-
stjóri Ásdis Skúladóttir.
Leikarar: Guðlaug E. Ólafsdóttir,
Guðmundur Ólafsson, Guðrún Ás-
mundsdóttir, Hanna María Kartsdótt-
ir, Jakob Þór Einarsson, Jón Hjartar-
son, Karl Guðmundsson, Katrín Þor-
kelsdóttir, Magnús Jónsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Sigurður Karls-
son, Þórey Sigþórsdóttir og Þröstur
Leó Gunnarsson.
Börn: Eyjólfur Kári Friðþjófsson, Kar-
en Þórhallsdóttir, Kári Ragnarsson,
Tinna Marina Jónsdóttir.
Frumsýning fimmtud. 22. sept., uppselt, 2.
sýn. föstud. 23. sept., örfá sæti laus. Grá
kort gilda 3. sýn. laud. 24. sept., örfá sæti
laus. Rauð kort gilda. 4. sýn. sunnud. 25.
sept., örfá sætl laus. Blá kort gilda.
ATH. Sala aðgangskorta stendur
yfir til 20. sept.
6 sýningar aðeins kr. 6.400.
Miðasala er opin alla daga kl. 13.00-
20.00 á meöan kortasalan stendur
yfir. Pantanir i sima 680680 aila virka
daga frá kl. 10.
Munið gjafakortin, vinsæl
tækifærisgjöf.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Hrímgull að Vitastíg 10
Hrímgull hefur nú opnað nýja náttúru-
og heilsuvöruverslun að Vitastig 10 í
Reykjavík. Verslunin hefur á boðstólum
nokkurt úrval af náttúruvörum: náttúru-
lega málningu frá Livos fyrirtækinu,
náttúrulegar snyrtivörur frá Logona sem
er þýskur framleiðandi. Maharishi Ay-
urveda sem eru heilsuvörur og byggjast
á ævafomri þekkingu Ayurveda, einnig
silkivörur og metravöru í silki. Þá er
Hrímgull söluaðili fyrir handsmíðuð
norsk bjálkahús sem eru fáanleg í stöðl-
uðum útgáfum eða eftir sérteikningum.
Markmið Hrímgulls er að bjóða vandaðar
náttúruvörur á sem flestum sviðum
ásamt þekkingu í formi bæklinga, fyrir-
lestra og námskeiða um vistvæna og
heilsusamlega lifnaðarhætti. Hrímgull er
til húsa aö Vitastíg 10 og er opiö 10-18
virka daga og 10-14 á laugardögum.
Aukatónleikar hjá rússneska
stúlknakórnum
Vegna fjölda áskorana mun rússneski
stúlknakórinn frá Moskvu halda auka-
tónleika í Fella- og Hólakirkju í kvöld,
þriðjudagskvöldið 20. sept., kl. 20.30. Að
sögn Þórunnar Björnsdóttur kórstjóra er
söngur kórsins á heimsmælikvarða og
er þessi heimsókn einstakur tónlistarvið-
burður sem enginn ætti að láta fram hjá
sér fara. Aðgangseyrir á tónleikana er
kr. 800.
Leikfélag Akureyrar
KARAMELLUKVÖRNIN
Gamanleikur með söngvum fyrir
alla fjölskyiduna!
Höfundar: Evert Lundström og Jan Moen
íslensk þýðing: Árni Jónsson
Lög: Birgir Helgason og Mlchael Jón
Clarke
Söngtextar: Kristján frá Djúpalæk og
Þórarinn Hjartarson
Lýsing: Ingvar Björnsson
Lelkmynd og búningar: Hallmundur
Kristinsson
Leikstjórn: Þórunn Magnea Magnúsd.
Leikendur: Dofri Hermannsson, Bergljót
Arnalds, Aðalsteinn Bergdal, Sigurþór
Albert Heimisson, Þórhallur Gunnars-
son, Rósa Guðný Þórsdóttir o.fl.
Frumsýning laugard. 24. sept. kl. 17.
2. sýning sunnud. 25. sept. kl. 14.
Kortasala stendur yfir!
AÐGANGSKORT
kosta nú aðeins kr. 3.900 og gilda
á þrjár sýningar:
ÓVÆNT HEIMSÓKN eftir J.B. Pri-
estley
Á SVÖRTUM FJÖÐRUM eftir Davíð
Stefánsson og Erling Sigurðarson
ÞAR SEM DJÖFLAEYJAN RÍS eftir
Einar Kárason og Kjartan Ragnars-
son
Frumsýningarkort
fyrir alla!
Stórlækkað verð. Við bjóðum
þau nú á kr. 5200.
Kortagestir geta bætt við miða
á KARMELLUKVÖRNINA fyrir
aðeinskr. 1000.
Miðasala í Samkomuhúsinu er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Simi 24073. Simsvari fekur við
miðapöntunum utan afgreiðslutima.
Greiðslukortaþjónusta.
Kvíðastjórnun
Nú um mánaðamótin eru að hefjast nám-
skeið í kvíðastjómun. Samkvæmt ís-
lenskum rannsóknum má ætla að um 8%
þjóðarinnar eigi við kvíða- eða fælni-
vandamál að stríða, eða um 20.000 manns.
Á námskeiðinu eru kenndar ákveðnar
aðferðir til að takast á við kviða, fælni
og spennu í samskiptum. Námskeiðin
hafa verið haldin reglulega um árabil og
er stjórnandi þeirra Oddi Erlingsson, sér-
fræðingur í klínískri sálfræði. Námskeiö-
in eru haldin um helgar og allar nánari
upplýsingar er að fá í síma 91-39109 á
kvöldin og um helgar.
Tapaöfundiö
Köttur týndist
frá Fálkagötu fyrir 3^4 dögum. Kötturinn
heitir Nasi og er hvítur og svartur á lit.
Nasi er stór fress með furðulegt nef. Ef
þú hefur séð til ferða Nasa þá hafðu sam-
band í síma 10520.
Blátt hálsmen
Aðfaranótt laugardagsins 10. sept. tapað-
ist blátt hálsmen, (sem liggur upp að
hálsinum), í indiánastil inni á skemmti-
staðnum Berlin eða þar fyrir utan. Þetta
hálsmen er eigandanum mjög kært og
biður harm fmnandann vinsainlegast um
að hafa samband við sig í síma 91-650043
(Kristín).
Bestu þakkir til allra sem glöddu mig
á 100 ára afmæli mínu þann
8. september sl.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 2.
hæð á Sólvangi.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Guðmundsdóttir /
Áifaskeiði 60