Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1994, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1994 15 Skattsvik Þaö er orðinn árviss atburður að fjármálaráðherra afgreiði ríkis- íjárlögin með 10-15 milljarða halla. Ráðuneytum og íjárveitinganefnd er falið við hverja fjárlagagerð að draga saman seghn. Þaö hlýtur öll- um að vera mikið áhyggjuefni sú mikla skerðing sem er til skóla og sjúkrahúsa. Hvers eiga börn og sjúkir að gjalda á sama tíma og tugmilljarða skattsvik viðgangast með undan- skoti á virðisauka- og tekjuskatti? Þessir skattaþjófnaðir blasa hvar- vetna við og eru reyndar varla feimnismál lengur nema ef vera skyldi hjá fjármálaráðuneytinu og skattayfirvöldum. Dugleysi stjórnmálamanna Það er eins og stjórnmálamenn vanti allan dug og kjark til að taka á þessum málum eða jafnvel telji aö aðgerðir gegn skattsvikum geti skaðað „orðstir" þeirra. Hin al- menna þátttaka í skattsvikum get- ur skapað ákveðin hagsmuna- tengsl sem virðast koma fram í viljaskorti og andlegum doöa lang- þreyttra alþingismanna. Það má sjálfsagt lengi velta fyrir sér per- sónu- og félagslegum ástæðum fyr- ir aðgerðarleysi íslendinga al- mennt gagnvart skattsvikum en eitt hljótum við að vera sammála um; að gerbreytinga er þörf og að ríkissjóður eigi ekki að þurfa að afgreiða fjárlög með tugmilljarða halla vegna skattsvika. Hvaðertil ráða Hundruð stóreigna- og hátekju- manna greiða skatta áratugum saman samkvæmt uppgefnum launum á bilinu 50-100 þúsund kr. á mánuði. Allir vita þó að þessi laun eru aðeins brot af rauntekjum þeirra og í hróplegu ósamræmi við lífsstíl þeirra. Húseignir og bif- reiðakostur upp á marga tugi millj- óna og gífurleg einkaneysla eru í alls engu samræmi við uppgefin laun á skattaframtali. Af hverju láta skattayfirvöld svo augljós skattsvik afskiptalaus! Af hverju eru þessir skattlausu stóreigna- menn ekki látnir gera grein fyrir eignamyndun og einkaneyslu sinni! Skattrannsóknarstjóri ætti að upplýsa þjóðina um orsakir og „Það er eins og stjórnmálamenn vanti allan dug og kjark til að taka á þessum málum eða jafnvel telji að aðgerðir gegn skattsvikum geti skaða „orðstír" þeirra." KjaUarinn það verða mín síðustu verk á sviði sakamála að helga mig þessum brotamálum. Við skattsvikara vil ég segja þetta Biðraðir sjúkra eftir aðgerðum og hvers konar samdráttur í lækn- is- og heilbrigðisþjónustu er að stórum hluta af ykkar völdum. Tvísetnir skólar og vöntun á dag- vistarrými er einnig af ykkar völd- skerf til þjóðfélagsins. Það sem að öllum snýr Hættum skattsvikum m.a. með þátttöku í nótulausum viðskiptum. Með þeim hætti eflum við okkar eigin sjóð, ríkissjóð og gerum hon- um kleift að standa undir þeim fé- lagslega rekstri og þjónustu sem jafnrétti og mannréttindi eiga að grundvallast á. Samábyrgð okkar í skattsvikum viðheldur þessum „Ég hef stundum hugleitt aö kæra nokkra tugi skattleysingja úr rööum stóreigna- og hátekjumanna til skatt- rannsóknarstjóra til aö fá fram við- brögð hans og fjármálaráðherra.“ Kristján Pétursson fyrrv. deildarstj. ástæður þess að slíkt er ekki gert. Ég hef stundum hugleitt að kæra nokkra tugi skattleysingja úr röð- um stóreigna- og hátekjumanna til skattrannsóknarstjóra til að fá fram viðbrögð hans og fjármála- ráðherra. Samkv. skattalögum er mér þaö heimilt. Kannski ég láti um. Sama gildir um fjárskort til fatlaðra og ýmissa annarra stofn- ana. Græðgi, valdafíkn og óheft munaðarhyggja eru helstu orsakir skattsvika. Hættið þessu og leitið gæfu og gleði í heilbrigðu og heið- arlegu samfélagi þar sem enginn þarf að líða skort ef allir greiða sinn þjófnaði og eykur skuldir ríkis- sjóðs. Hveijir aðrir en börnin okk- ar verða að greiða hundruð millj- arða óráðsíu og skattsvik langt fram á næsíu öld. Hugsið um hlut- skipti þeirra næst þegar ykkur er boðin þátttaka í skattsvikum. Krístján Pétursson Ríkissjóðshallinn og framtíðin Á næstunni mun fjármálaráðherra leggja fram fjárlagafrumvarp þar sem boðaður er rúmlega 7 milljarða halli á ríkissjóði. Gangi það eftir mun samanlagður halli síðustu 4 ára verða um 23 milljarðar króna. Þrátt fyrir þetta hefur verulegur árangur náðst í ríkisfjármálum. Þrotabú Ólafs Ragnars Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók við þrotabúi úr höndum fyrri ríkis- stjómar. Hvergi var ástandið verra en í fjármálaráðuneytinu þar sem halli kosningaársins varð 13 millj- arðar. Við þetta áttu eftir að bætast ábyrgðir vegna gæluverkefnasjóða fyrrverandi ríkisstjómar: Hluta- íjársjóðs og Atvinnutryggingar- sjóðs. Áætlað tap af þessum sjóðum er um 4,2 milljarðar eða 64 þúsund krónur á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Stigið á bremsurnar En fyrri ríkisstjóm skildi ekki einungis eftir sig slóða skulda held- ur tifuðu ýmsar útgjaldasprengjur víða í löggjöf. Eitt fyrsta verkefni núverandi ríkisstjórnar var aö af- tengja þær .og hefja síðan niður- skurð. Með markvissum hætti hef- ur tekist að stíga á bremsumar og spara sem nemur um 7% ríkisút- gjalda á undanfomum árum. Það jafngildir um 8 milljarða spamaði KjaUaiinn Viktor B. Kjartansson varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins á Reykjanesi árlega og hann kemur þjóðinni til góða á hverju ári. Þessi spamaður, sem þó hefur náðst, gerði það að verkum, ásamt fleiru, að þaö tókst að ná vöxtum niður. Ná þarf hallanum niður Stærsta verkefni næstu ára er að ná niöur ríkishallanum. Þjóðin þol- ir ekki ríkissjóðshalla upp á 7-10 milljarða ár eftir ár en fara verður \ allt aftur til ársins 1984 til að finna hallalausan ríkisrekstur. Afleið- ingar þessa langvarandi halla hafa komið fram og munu koma fram í skattahækkunum ef ekkert verður að gert. Skuldir munu aukast í út- löndum og ekki verður unnt að halda vöxtum niðri. Hvaðertil ráða? Til að ná fram raunhæfum úrbót- um í ríkisrekstri þarf að endurskil- greina markmið hins opinbera. Skilgreina þarf hvaða verkefnum hið opinbera þarf nauðsynlega að sinna eða tryggja framkvæmd á og reyna að fækka verkefnum þess. Selja þarf eignir og verðmæti sem tengjast þeirri starfsemi er ríkið ætlar ekki að sinna og láta söluand- virðið renna til greiðslu erlendra skulda. Hagræða þarf í þeim rekstri sem áfram verður hjá rík- inu, ýmist með útboðum eða gerð rekstrarsamnings við stjómendur ríkisfyrirtækja. Að síðustu þarf hver ríkisstjóm að setja fram rammafjárlög til a.m.k. þriggja ára í senn. Lægri ríkisútgjöld = lægri skattar Það er ljóst að í dag er erfiðara fyrir ungt fólk að fjármagna lang- skólanám og fyrstu íbúðarkaup heldur en var fyrir 20 árum. Ástæða þess er óábyrg fjármála- stefna fyrri tíma sem unga fólkið líður fyrir. Til þess að lífskjör hér- lendis versni ekki á næstu 10 ámm þarf að snúa við þróuninni í ríkis- íjármálum. Ef tekst að koma bönd- um á fjárlagahallann 'má fara að líta til þess að lækka skatta og bæta þá um leið lífskjör almenn- ings og samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Viktor B. Kjartansson „Selja þarf eignir og verðmæti sem tengjast þeirri starfsemi er ríkið ætlar ekki að sinna og láta söluandvirðið renna til greiðslu erlendra skulda.“ Busavígslur Hefðsember að halda í Busavígslur hafa tiðkast í aldanna rás meö misjöfnu sniðiþó.Hérá ísafirði með samasniðifrá þ\ú skólinn var stofnað- ur, að því er ég best veit. Ég sé engan tilgang með því að gera breyting- ar á þessati hefð. Nú á síðustu og verstu tímum hafa æ fleiri skólar breytt síniun busavígslum þannigað þær kom- ast ekki í hálfkvisti við það sem áður var. Það hefur skapast hefð um þennan sið og þar sem flestir skólar hafa lagt þetta af er busa- vígslan orðin sérstaða fyrir þá skóla sem enn halda í heiðri þess- ' um garala sið. Þau rök aö busavígslur fæli nemendur frá skólanum eru út i hött. Flestir nýnemar sækjast eft- ir því að láta busa sig og allir hafa hina mestu skemmtan af, busar og böðlar. Ég er þess full- viss að busavígslur rýra ekki ímynd skóla út á við, þar sem þetta er einungis árleg skemmtun og saklaus ef rétt er að farið. Þetta segir ekki til um hvernig starf- seminni er háttað innan veggja skólanna. Þótt busavígslur tíðkist innan Framhaldsskóla VestQarða er hann góður vestfirskur skóli og honum ber aö halda í góðar vest- firskar busavígsluaðferðir. Hilmar Magnússon, Framhaldsskóla Vestfjarða. Viggö Örn Jónsson, Verslunarskóia ís- lands. Niðurlæging nýnema Hún er ansi undarleg þessi þörf sem nemendur - ýmissa skóla viröast hafa til að niður- lægjanýnema sína á hina ólíklegustu vegu. Það er hreint fárán- legt að nemendur þurfi að hræö- ast fyrstu vikur sínar í nýjum skóla. Vikur sem eiga einmitt að vera tími skemmtilegra uppgötv- ana og nýrra kynna. Busavígslur þessar hafa lengi verið afsakaðar sem skemmtileg hefö sem geri skólalífið litríkara og skemmtilegra. Sér er nú hver heföin. Það er frekar aumkunar- vert ef þetta er það sem þarf til að skólalífið sé skemmtilegt, Fyrstu kynnin af skólanum eru þau að einhver beljaki hnoðar skyri og lýsi í andlit manns og fót. Þaö getur vart talist skemmti- leg hefð að niðurlægja ákveðinn hóp fólks einu sinni á ári. Sumir reyna jafnvel aö halda því fram að busavígslur séu nokkurs kon- ar vígsla áður en nám er hafið á nýjum stað. Þvert á móti ætti aö taka vel á móti nýnemum eins og sem betur fer virðist verða ofan á í æ fleiri skólum. Þetta er jú einu siimi fólk sem á eftir að vera í sama skóla og böölamir í að minnsta kosti tvær annir. Með því að nýjum nemendum sé sýnt að þeir séu velkomnir á nýjan staö gerast þeir fyrr virkir þátttakendur í skóla- og félagslíf- inu. Busavígslur gera ekkert nema dýpka bilið milli nýnema og eldri nemenda, fjórðungur nemenda verða „bara busar“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.