Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Side 3
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 3 Fréttir Ómar Smári Ármannsson vegna Lindumálsins: Lögreglan ekki verið með neinar dylgjur - og hefur ekki lekið út skýrslum „Lögreglan sem slík hefur ekki verið meö neinar dylgjur í þessu máli. Þá hefur lögreglan heldur ekki átt frumkvæði að því að fjalla um þetta mál opinberlega, það veit Gísli manna best. Hann hefur það heldur ekki staðfest að lögreglan hafi lekið út skýrslum um þetta tiltekna mál til fjölmiðla," segir Ómar Smári Ár- mannsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn vegna ummæla Gísla Gísla-. sonar, lögmanns Lindu Pétursdóttur, í DV í gær þar sem hann segir lög- regluna hafa lekið út skýrslum um mál umbjóðanda síns og krefst afsök- unarbeiðni frá þeim. Ómar Smári segir þessa yfirlýsingu Gísla svipa til þess að gjaldþrot eins lögfræðings þýddi gjaldþrot allrar stéttarinnar og ef Gísli hefði eitthvað við umfjöllunina að athuga yrði hann að finna annan blóraböggul en lög- regluna sem heild. „Ég veit ekki hvaðan þessar skýrsl- ur eru komnar. Þæt^ geta veriö komnar frá hverjum þeim sem hafa þau gögn undir höndum þá stundina. Það gilda ákveðnar reglur varðandi aðgengi og meðhöndlun á skýrslum og það er ekkert sem bendir til ann- ars en þær reglur hafi verið virtar. Lögreglunni þykir miður að gögn úr málinu skuli hafa farið á stjá, hvaðan sem þau hafa komið," segir Ómar Smári. „Það eru til menn, ónafngreindir, sem vita að það er ekki erfiðara að koma frétt á framfæri við fjölmiðla en að búa til eggjaköku úr eggjum. Þeir hinir sömu vita líka að það er jafn erfitt aö leiðrétta ranga frétt og að búa til egg úr eggjaköku," segir Ómar Smári. Árásin á Lauga- veginum óupplýst - ólj óst hvort um nauögun var að ræða Árásin á stúlkuna sem var slegin í andlitið á Laugaveginum snemma síðasthðinn sunnudag er ennþá óupplýst. Grunur leikur einnig á að stúlkunni hafi verið nauðgað. Eins og greint var frá í DV gaf stúlkan sig á tal við tvo unga menn sem buðu henni í teiti. Hún þekktist ekki boðið og slógu þeir hana þá í andlitið þannig að hún missti meðvit- und. Þegar stúlkan kom til meðvit- undar á ný var hún stödd í bakgarði við Laugaveginn og hafði verið átt við föt hennar. Hún gat gert lögreglu viðvart og óku þeir henni á neyðar- mótöku Borgarspítala. Tveir menn voru handteknir í nágrenni vett- vangs en þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum og þykir ljóst að þeir tengjast ekki málinu. Samkvæmt upplýsingum Rann- sóknarlögreglu ríkisins var lýsing sú sem stúlkan gaf á piltunum tveimur mjög almenn. Enn fremur fengust þær upplýsingar að óstaðfest væri að um nauðgun hefði verið að ræða. Rannsókn málsins heldur hins vegar áfram. Fjármálaráðherra: Misskilningur Friðrik Sophusson hafði samband við blaðamann DV og sagði hann hafa misskilið orð sín um laun sjúkr- aliða í utandagskrárumræðu á Al- þingi síðastliöinn miðvikudag. Frið- rik segist hvorki hafa sagt né meint með orðum sínum að sjúkraliðar væru ekki láglaunastétt. í allri umræðunni töluðu þing- menn um og fullyrtu að sjúkrahðar væru láglaunastétt. Þegar fjármála- ráðherra kom í ræðustól seint í um- ræðunni sagði hann orðrétt. „Ég ætla ekki hér að ræða um það hvort laun eru há eða lá, þeirra sem eiga í verkfalli." Sömmu síðar sagði ráðherra samanburð alltaf erfiðan en sagði að sjúkraliðar hefðu ekki dregist aftur úr öðrum stéttum síðan 1992, laun þeirra hefðu hækkað held- ur meira en á almennum vinnu- markaði og hjá ríkinu. Af þessum ummælum dró blaða maður þá ályktun að fjármálaráð- herra teldi sjúkraliða ekki láglauna- stétt eins og allir aðrir þingmenn sem tóku þátt í umræðunni sögöu þá vera. Skjalatösku með peningum stolið Brotist var inn í bíl í Breiðholti í í peningum. Enginn hefur verið gærkvöld og stohð úr honum skjala- handtekinn vegna innbrotsins. tösku sem í voru 60 þúsund krónur Tveir handteknir vegna innbrots Tveir menn eru í haldi lögreglu eftir að þeir voru handteknir í nótt. Mennirnir eru grunaðir um innbrot í fyrirtæki í Sigtúni í nótt en þeir voru handteknir í nágrenni inn- brotsstaðar. Á þeim fundust verk- færi sem grunur leikur á að þeir hafi notað til innbrotsins. Þeir hafa áður komið við sögu lögreglu vegna innbrota. m BJOÐUM URVALS- HAGSTÆOU VERUI06 TÆKIÁ SÉRLEGA OREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI! . Samsung SP-R914S Þráðlaus sími með 10 nr. minni, innanhúss-samíali, aukarafhlöðu, endurvali á síðasta númeri, 20 tíma ending á rafhlöðu o.m.fl. Samsung SP-R915S Þráðlaus sími með 10 númera minni, innanhúss samtali, auka-rafhlöðu, endurvali á síðasta númeri, 20 tíma ending á rafhlöðu o.m.fl. iiiiiiiiiiiiuiiiiiniiíiniimmm yf, O ■&> p • — Y 'p p o i , ..w ó ..... .. I ' víÞ -<2> O 4QÞ j Samsung SF-40 er faxtœki með síma, hágœðaupplausn, tengjan- legt við símsvara,10 nr. minni o.fl. Hraðþjónusta við landsbyggðina: Grœnt númer: 996 886 (Kostar innanbœjarsímtal og v vörumqr eru sendar samdœgursl y Grensásvegi 11 Sími: 886 886 Fax: 886 888

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.