Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1994, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1994, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 Spumingin Tekur þú þér vetrarfrí? Páll Ólafsson: Ég tek aldrei frí, aðeins 2 daga á sumrin. Sæmundur Gíslason: Nei, ekki í vet- ur. Guðmundur Karlsson: Ég er alltaf í fríi. Ég er á eftirlaunum. Elma Finnbogadóttir: Já, stundum. Sigriður Valdimarsdóttir: Nei, ég er að vinna og í skóla. Ásta Jónsdóttir: Nei, aldrei. Lesendur Tannlækna- menntun úr landi -hvaðnæst? Gunnar Árnason skrifar: Þjóðmálaumræðan hér á landi hef- ur löngum tengst menntun og sjálfs- bjargarviðleitni landsmanna. Þetta tvennt fer auðvitað saman þegar allt er skoðað. Það þarf menntun og kunnáttu til ef þjóð ætlar að halda sjálfsforræði sínu til lengdar. Við höfum barist hart fyrir því að halda sjálfstæði og aukin menntun á flest- um sviðum hefur hjálpað til í ríkum mæh. Við höfum flest það sem til þarf svo að við getum kallast sjálf- bjarga. Undirstaðan er vinna og menntun. - Á sviði læknisþjónustu stöndum við jafnvel þegar jafnfætis sumum þjóðum í nágrenni við okkur enda heilbrigðiskerfið í raun það sem við oftast bendum á okkur til hróss. Nýjasta dæmið úr þessum rekstri var þegar við fluttum heim hjarta- skurðlækningar sem áður voru al- farið framkvæmdar erlendis á sjúkl- ingum okkar. Krabbameinsrann- sóknir eru einnig í allgóðu horfi eða meir og eftirlit er mikið með þessari tegund sjúkdóma. Fleira má nefna, svo sem tannlæknaþjónustu, sem er orðin hátt skrifuð á alþjóðamæli- kvarða. Forvarnir þar eru með þeim hætti sem annars staöar þekkist best. Nú er hins vegar áð rísa alda sem hrífur með sér hug sérhvern sem tíerst fyrir spamaði á öllum sviðum og í tíma og ótíma. Allt skal sparað og skorið niður. Það er auðvitað meira en sjálfsagt þegar frá eru skil- in atriði sem snerta heilsu og heil- brigði. Ef hvorugt er fyrir hendi er vart ástæða til að hugsa frekar um framtíðina, þjóðin deyr bara út. Kannski besta leiðin til spamaðar? í máh þingmanns sem er í forsvari fjárlaganefndar Alþingis segir m.a.: „Hins vegar vil ég nefna að við þurf- um að efla menntun í landinu...“ - í hans næstu setningu segir svo, m.a.: „Ég sé til dæmis fyrir mér að leggja mætti niöur tannlæknadeildina." - Þetta eru að vísu glefsur úr ræöu þingmannsins en segja þaö sem fram þarf að koma hér. En hvernig er dæmið reiknaö? Ef sagt er að það kosti 44 milljónir að reka tannlæknadeildina og spara megi það fé við að leggja hana niður, skyldi það þá ekki kosta neitt að senda okkar tannlæknanema til náms erlendis? Eða viljum við kannski enga til náms í tannlækn- ingum? - Og hvað næst? Verða það nemendur á raunvísindasviði sem næst skulu út úr Háskólanum? Eða eigum við að senda fisktækninema til Noregs? Hvað eigum við að ganga langt í sparnaði í menntun þjóðar- innar? Auðvitað er hægt að fá alla þessa menntun erlendis. En kostar hún þá lítið sem ekkert? Eigum við ekki að gá að þessu öllu áður en lengra er haldið? Bókakjot í hátíðamatinn Sigurbjörg skrifar: Nú er það svart maður - eða kannski bara alveg prýðilegt þegar nánar er að gáð. Eg á auðvitað við nýja „trixið" hjá bóksalanum sem býður kjöt með hverri bók sem hann selur. Hér er líklega verið að keppa við verslanimar Hagkaup og Bónus, sem fremur eru nú þekktar fyrir sölu matvæla og nauðsynja til heimihs- reksturs en bóka. Auðvitað er þetta sjallt hjá bóksalanum sem er kona. Hún veit hvar skórinn kreppir fyrir jóhn. Allir þurfa að borða en færri þurfa nauðsynlega að lesa. Ég heföi hins vegar frekar viljað fá verulega niðursett verð á kjöti og öðrum matvælum og fá svo góða bók í kaupbæti. Eða hvers vegna tekur enginn kjötkaupmaðurinn það upp hjá sér að bjóða bók eða t.d. inniskó með hamborgarhryggnum á niður- settu verði? - En er á meðan er og ég er hæstánægð með uppátæki kon- unnar í bókaversluninni að bjóða kjötið meö bókinni. Bókakjötið í hátíðamatinn er vissu- lega vel þegiö og frábært fordæmi. Ég vona bara að þetta leiði til veru- legs framtaks í svona skiptimarkaði til frambúðar og á öhum sviðum viö- skipta hér á landi. Ekki veitir nú af. Hringið í síma millikl. 14ogI6 ~eða skrifið Nðfn og stmanr. veidur ad fylgla bréfum Snjómokstur frá aðkomu húsa kemur fyrir að það er sama fólkið sem virðist halda hreinum og snjó- lausum tröppunum fyrir aha íbúa hússins. - Við bréf- og blaðbera vil ég segja þetta: Neitið með öllu að stofna lífi og limum í hættu hjá þess- um trössum sem láta ykkur klöngr- ast upp og niður snjóskaflana og yfir hálkublettina. Það verða eigendur að gera á eigin ábyrgð. Það má minna á að eigendur eru sjálfir skaðabótaskyldir ef af hlýst slys vegna þessara aðstæöna. Þá er nú hætt viö aö höndin vilji kreppast um budduna. Oft eru slík slys óbæt- anleg þótt bætt séu fjárhagslega. Hver vih hafa á samviskunni ör- kumla fólk vegna manns eigin trassaskapar og beinnar leti? Slysum af þessum völdum má næstum líkja við líkamsárásir sem eru nú að verða daglegt brauð hér í borg. Og enn og aftur: Snúum frá þeim húsum sem eru með tröppur sem ekki sést móta fyrir eöa eru flughálar vegna svellbunka. Fólk verður að fara að læra umgengnishætti sem tíðkast hjá siðuðum þjóðum. Sirrý skrifar: Þar kom að þvi að það barst „SOS“ frá blað- og bréfberum í borginni í thefni af þeim dæmalausa trassaskap og sérkenni í fari íslendinga að moka illa eða sjaldan frá húsum sínum, tröppum eða aðkomu að húsunum. Sem betur fer eru ekki allir undir sömu sök seldir enda sluppu þeir við að fá áminningu í formi blaðsnepils um máhð inn um hurðalúguna. Það er auðvitað meö öllu óviðun- andi aö fólki sem er að inna af hendi skyldustörf sé boðið upp á þennan ósóma. Það er hka óviðunandi í sam- býhshúsum eins og oft og iðulega Skaðabótaskylda getur skapast vegna slysa sem rekja má til óviðun- andi aðstæðna við hús. 13 V Erflðskjalaöflun fráSelfossi E.S. hringdi: Það er erfitt að n'álgast skjöl, þinglýsingar, veðbókarvottorð, o.s.frv. frá sýslumannsembætt- inu á Selfossi, ef maður er stadd- ur td. í Reykjavík og þarf nauð- synlega á shkum gögnum að halda. Ég tek fram að starfsfólkið er elskulegt og það er ekki þess sök. En að ná sambandi við rétta aðila og fá skjölin send tekur oft sinn tíma. Bæði er aö sambandi er oft ekki hægt að ná við embætt- ið og svo er eins og um afgreiöslu- tregðu sé að ræða loks þá beiðni er lögð inn. Hátekjuskattur aðeilíful Ben. S. skrifar: „tekjuskatturinn" svokahaði virðist nú kominn th að vera. Það er með er hann líkt og aðrar álög- ur og gjöld, sem sett eru til bráða- birgða, aö þau vara að eilífu. Eng- ir skattar eru felldir niður eins og oft eraþó lofað í upphafi. Það eina sem*má treysta á hér á landi er það að aldrei er hægt aö gera neinar langtimaáætlanir. Grund- vellinqm er alltaf kippt undan þeim áður en varir. - Þetta er nú stöðugleikinn á fslandi, takk fyr- ir! Skuldastaða Reykjavíkurborgar Helga Sigurðardóttir skrifar: Er Reykjavikurborg þá svona hla stöd fjárhagslega eftir aht? Hvaö vitum við, borgaramir? - Þvi er ýmist haldið fram aö borg- in sé með best reknu og best settu sveitarfélögum á landinu eða þá að barist sé við að borga af lánum fortíðarinnar og því veröi að skattleggja íbúana sem aldrei fyrr. Samstaða þeirra sem nú stjóma borginni og hirrna sem áður stjómuðu; virðist þó aðeins um eitt; að þegja vandlega yfir skoldastöðunni. Hún yrði mjög eldfim varðandi lánstraust borg- arinnar um ófyrirsjáanlegan tima. Þar liggur falinn eldur fyrir núverandi jalnt og fyrrverandi borgarstjómarmeirihluta. Sendiráðið í London PáU Ólafsson skrifar: Þá er komið aö skuldadögunum vegna menningarveislunnar í sendiráðí okkar í London. Skyldi nokkurn furða? Hvaö hefur þessi menningarviðleitni, m.a. með bumbuslætti á bera buka, haft upp á sig? Kostnað fyrir fámenna og skulduga þjóð, annað ekki. Kannski verður enginn gerður ábyrgur, fremur en í Þingvalla- máhnu frá því í sumar en niöur- staöan varð: Mistök við ferða- stjórn! - En þaö er nú ekki nýtt aö þar sem kratar fara með fé sé það uppuriö á skömmum tíma. London er ekkert einsdæmi, að- eins sýnishorn af bruðlinu. Einokuná tannburstum? S.H.H. skrifar: Það er ekki hlaupið að því að fá almennilega tannbursta hér. Svo virðist sem einhverjir, kannski tveir eða þrír tann- burstaframleiðendur hafi náö hér einokunaraðstööu og a.m.k. i mínum munni er engin þeirrar framleiðslu góð. Auk þess er erf- itt aö fá harðan tannbursta sera hentar mér best. Fyrir nokkrum árum fékkst hér tegund sem nefndist „Jess“ og bar af öðrum tegundum, einkum þeim sem merktar voru „hard“. Ekki fást þessir burstar lengur. Eina leiðin th að fá almennhega tannbursta er því aö kaupa þá erlendis. En skyldu „Jess“-tannburstar vera væntanlegir aftur?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.