Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1994, Page 33
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
41
Fréttir
Tryggingastofnun:
Endurgreiðsla
á ferðakostnaði
skorin niður
„Ég fór suöur í ágúst og svo aftur
í lok nóvember. Eftir fyrri ferðina
sótti ég um endurgreiðslu á ferða-
kostnaði til Tryggingastofhunar rík-
isins. Ég fékk svarið ekki fyrr en eft-
ir seinni ferðipa og þá var það synj-
un. Læknir í Tryggingastofnun sagði
mér að ferðakostnaðurinn væri ekki
greiddur nema maður færi mörgum
sinnum suður vegna alvarlegra veik-
inda. Ég á að fara í eftirlit í janúar
en ég ætla að fá að fara í það hér
fyrir austan því að þetta er svo dýrt,“
segir Sigurbjörg Erlendsdóttir, 24 ára
fiskverkakona á Breiðdalsvík.
Sigurbjörg hefur þurft að fara
tvisvar til Reykjavíkur á þessu ári
út af krepptri taug í hendi og til að
láta fjarlægja aukabein í fæti sem
háði henni verulega og fyrirsjáanlegt
að hún þurfi að fara í eftirlit í jan-
úar. Þegar Sigurbjörg fór suður til
Reykjavíkur í ágúst fór hún í mæl-
ingar en hún fór ekki í aðgerðina
sjálfa fyrr en 25. nóvember. Ef Sigur-
björg fer til Reykjavíkur í janúar
nemur ferðakostnaðurinn samtals 48
þúsundum króna fyrir hana eina eða
16 þúsund króna flug frá Egilsstöðum
til Reykjavíkur og til baka.
„Reglurnar eru síðan í febrúar
1991.1 útdrætti frá tryggingaráði seg-
ir að meginreglan sé sú að endur-
greiða kostnað vegna ferða innan-
lands þegar um sé að ræða langvar-
andi og erfiða sjúkdóma sem krefjist
reglubundins eftirlits. Það er sá kal-
eikur sem okkur ber að bergja af.
Þegar ég tók við í haust voru nánast
allar ferðir endurgreiddar og þá ætt-
um við ekki að þurfa neinar reglur.
Ég túlka reglumar. Allar ákvarðanir
geta orkað tvímæhs og fólk getur þá
áfrýjað til tryggingaráðs," segir Vig-
fús Magnússon, læknir hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins.
Ottar Ármannsson, heilsugæslu-
læknir á Fáskrúðsfirði, segir að
læknar á Austurlandi hafi sent
tryggingaráði bréf til að mótmæla
því að túlkun á reglum um endur-
greiðslu er þrengd skjólstæöingum
sínum í óhag. Þessar breytingar
tryggi ekki jafnan aðgang lands-
manna að heilbrigðisþjónustu.
DV-mynd Ægir Már
Eiríkur Tómasson og Gnúpur.
Gamla Guggan til Grindavíkur
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Togarinn verður gerður út sem
frystitogari og mun veiða það sem
hann hefur heimildir til. Við munum
stíla á úthafskarfa og síðan rækju.
Hann hefur talsverðan rækjukvóta
og búið er að kaupa rækjuvinnslu-
hnu í hann,“ sagði Eiríkur Tómas-
son, framkvæmdastjóri Þorbjarnar
hf. í Grindavík, við DV.
Fyrirtækið hefur keypt fiskiskip,
sem kom til heimahafnar á dögunum
og er stærsta skip sem komið hefur
í Grindavíkurhöfn. Hefur það fengið
nafnið Gnúpur en var áður Guðbjörg
ÍS 46 ísafirði, 594 tonn. Var skipið
keypt af skipasmíðastöð í Flekke-
fjord í Noregi, sett þar upp í nýjustu
Gugguna. Þorbjörn hf. setti sinn
gamla Gnúp GK 436, sem einnig var
áður Guðbjörg ÍS, upp í kaupverðið.
Nýi Gnúpur mun halda til veiða
strax eftir áramót en nú er verið að
setja í hann fyrstitæki fyrir bolfisk,
karfa, grálúðu og rækju. Kvótinn er
2100 þorskígildi. Skipið var smíðað
1981 og verða 25 í áhöfn. Þorbjörn á
einn frystitogara fyrir, Hrafn Svein-
bjarnarson, sem landar í Hafharfirði
en hann kemst ekki inn í Grindavík-
urhöfn. Heildarkvóti fyrirtækisins
er 3700 þorskígildi.
Tilkyimingar
Félag eldri borg-
ara í Kópavogi
Spiluð verður félagsvist og dansað í Fé-
lagsheimili Kópavogs í kvöld kl. 20.30.
Þöll og félagar spila fyrir dansi. Húsiö
öllum opið.
Félag eldri borgara
í Rvík og nágrenni
í dag er síðasti dagur í opnu húsi í Risinu
fyrir jóþ Félagsvist kl. 14 og jólavaka kl.
20. Hefðbundin dagskrá hefst aftur
fimmtudaginn 5. jan. Skrifstofa félagsins
er lokuð frá 19. des. til 2. jan. Göngu-
Hrólfar fara í síðustu göngu ársins kl. 10
laugardaginn 17. des.
Leikhús
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað
molakaffi.
Húnvetningafélagið
Félagsvist laugardaginn 17. des. kl. 14 í
Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Baháíar í Reykjavík
Baháíar bjóða á opið hús laugardags-
kvöldið 17. desember í Álfabakka 12 í
Mjódd kl. 20.30. Allir velkomnir.
Fjölbreyttjóla-
hátíð á Eiðistorgi
Sunnudaginn 18. des. mun Fróði hf.
standa fyrir jólahátið á Eiðistorgi og mun
hátíðin hefjast kl. 14. Fram koma ýmsir
þekktir skemmtikraftar og má nefna þá
Bubba Morthens, Pálma Gunnarsson og
Ómar Ragnarsson. Einnig mun Gáttaþef-
ur koma við, syngja og gefa krökkum
glaðning frá Nóa-Síríusi. I tengslum við
bókina „NBA-stjörnurnar“ verður víta-
keppni í körfubolta fyrir gesti og geta
þeir unnið til ýmissa verðlauna. Nýr leik-
ur, Pox-leikurinn, veröur kynntur og
gestir fá tækifæri til að taka þátt í hon-
um. Ýmislegt verður í boði fyrir gesti og
mimu verslanir vera meö ýmis spenn-
andi tilboð.
Tímaritið Nýirtímar
Fjórða tölublað tímaritsins Nýir timar
er komið út, sem er jafnframt áramóta-
blað. í þessu tölublaði eru m.a. magnaðir
spádómar fyrir ísland 1995 og ná fram
yfir árið 2004, gerðir af sex eínstaklingum
sem notast við mismunandi spáaðferðir.
Viðtöl eru við Láru Höllu Snæfells spá-
miðil og Ástu Ólu Halldórsdóttur sem
leggur stund á indverska stjömuspeki.
Að auki eru 19 greinar og umfjallanir.
Allt efhi tímaritsins er frumsamið og inn-
lent. Tímaritið Nýir timar fæst í áskrift
og á helstu blaðsölustöðum.
Tapaðfundið
Leðurjakki tapaðist
Svartur leðuijaklá tapaðist á skemmti-
staðnum 22 við Laugaveg. Þetta gerðist að-
faranótt sunnudagsins 11. des. Leðurjakk-
inn er frekar lítíll og inniheldur persónu-
skilríki. Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band í síma 610511 (Sara).
IIREINSUN OQ HAMFARIK
TÁRRÓT, 'IA1.NA- OQ STIORNU
SPEKISPÁR FYRIR ÍSLAND lí|fffl]
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litla svið kl. 20.00
ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
eftir Jóhann Sigurjónsson
Föstud. 30. des.
Laugard. 7. jan.
Stóra svió kl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emii
Thoroddsen og Indriða Waage.
Föstud. 30. des.
Laugard. 7. jan.
Litla svið kl. 20;
ÓFÆLNA STÚLKAN
eftir Anton Helga Jónsson.
Fimmtud. 29/12, sunnud. 8. jan. kl. 16.
Söngleikurinn
KABARETT
frumsýning i janúar.
Miðasala er opin alla daga nema
mánudaga frá ki. 13.00-20.00. Miða-
pantanir i sima 680680 alla virka daga
frá kl. 10-12.
Gjafakortin okkar
eru frábær jólagjöf!
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Sýningar
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg
Borgarstjóri New York borgar lýsti íbú-
um borgarinnar eitt sinn sem „litfagurri
manniegri mósaikmynd". Hugmynda-
fræði mósaíkmynda byggist á að fegurð
mósaíklistaverks í heild sinni er mörgum
sinnum meiri en fegurð hvers og eins
stykkis fyrir sig. Myndmenntakennarar
á Eyjafjaröarsvæðinu kynntu þetta fyrir
nemendum sínum og afsprengi þeirrar
vinnu er nú til sýnis í anddyri Menning-
armiðstöðvarinnar Gerðubergs. Sýning-
in er opin kl. 9-21 mánud. til fimmtud.
en fóstud. til sunnud. kl. 13-16.
Tónleikar
„Fæðing frelsarans“
í Hallgrímskirkju
Laugardaginn 17. des. kl. 17 verða haldn-
ir orgeltónleikar í Hallgrímskirkju á veg-
um Tónskóla þjóðkirkjunnar, orgelnem-
endur Harðar Áskelssonar flytja verkið
„Fæðing frelsarans" eftir franska tón-
skáldiö OUver Messiaen (1908-1992).
Verkið skiptist í nlu þætti og flytjendur
eru: Bjarni Þ. Jónatansson, Douglas A.
Brotchie, Guðmundur Sigurðsson, Gunn-
ar Gunnarsson, Halldór Óskarsson,
Helga Þórdís Guömundsdóttir, Hrönn
Helgadóttir og Jóhann Bjarnason. Að-
gangur er ókeypis og aliir velkomnir.
2>
Sinfóníuhljómsveit Islands
sími 622255
Jólatónleikar
Háskólabíói
laugardaginn 17. desemben kl. 14.30
Hljómsveitarstjóri:
Gerrit Scnuil
Bnleikari: ,
Guðmundur Hafsteinsson
Kór:
Kór Kársnesskóla
Kórstjóri:
Þórunn Björnsdóttir
Söngflokkur:
Voces Tules
Kynnir:
Sverrir Guðjónsson
Lesarar:
Guðmundur B. Þorsteinsson
og Gunnhildur Daðadóttir
Efnisskrá:
Leroy Anderson: Sleðaferðin,
Henry Purcell: Trompetkonsert.
jólalög frá ýmsum löndum,
jólasálmar og Jólaguðspjallið.
Miðasala á skrifstofutíma og við innganginn
við upphaf tónleika. Greiðslukortaþjónusta.
Tili.Ý
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
FÁVITINN
eftir Fjodor Dostojevskí
Frumsýning 26/12 ki. 20.00, örfá sæti laus,
2. sýn. fid. 29/12,3. sýn. föd. 30/12.
SNÆDROTTNINGIN
eftir Evgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen
Mvd. 28/12 kl. 17.00, nokkur sæti laus,
sud. 8. jan. kl. 14.00, nokkur sæti laus.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Föd. 6. jan. Ath. fáar sýningar ettlr.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Föd. 13. jan. Ath. Sýningum ter fækkandl.
GJAFAKORT í LEIKHÚS -
SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÚF.
Afsláttur fyrir korthala
áskrlftarkorta.
Miðasala Þjóöleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og
Iram aö sýningu sýningardaga. Tekið á
móti simapöntunum alla virka daga frá
kl. 10.00.
Græna línan 99 61 60. Bréfsimi 6112 00.
Sími1 12 00-Greiöslukortaþjónusta.
1
t
»
ftígyi
''*7iT*i. S? Sí'jsijísii
9 9*17*00
Verð aöeins 39,90 mín.
JLj Fótbolti
2 Handbolti
3 ( Körfubolti
41 Enski boltinn
1,51 ítaiski boltinn
61 Þýski boltinn
71 Önnur úrslit
:81 NBA-deildin
^MÉyimÆÉ
[1| Vikutilboð
stórmarkaðanna
2] Uppskriftir
lj Læknavaktin
2 : Apótek
[3] Gengi
1 Dagskrá Sjónv.
2} Dagskrá St. 2
[3] Dagskrá rásar 1
' 4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5[ Myndbandagagnrýni
6 j ísl. listinn
-topp 40
7 j Tónlistargagnrýni
5j
:1| Krár
2 [ Dansstaðir
3 j Leikhús
4 [ Leikhúsgagnrýni
_5JBÍÓ
6 j Kvikmgagnrýni
H Lottó
2j Víkingalottó
3j Getraunir
eíljll
DV
99*17*00
Verð aðeins 39,90 mín.