Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1995, Síða 29
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1995
37
Sigurður Skúlason og Pálmi
Gestsson í hlutverkum sinum í
Gaukshreiðrinu.
Helgi Skúlason
tekur við hlut-
verki Scanlons
í kvöld hefjast sýningar á ný á
Gaukshreiðrinu eftir nokkurra
vikna sýningarhlé. Þær breyting-
ar hafa nú orðið á hlutverkaskip-
an aö Helgi Skúlason tekur við
hlutverk Scanlons, eins af sjúkl-
ingunum á geðsjúkrahúsinu, en
Erlingur Gíslason lék það áður.
Gaukshreiðrið var frumsýnt á
síðastliðnu leikári og var tekið
Leikhús
upp aftur í upphafi þessa leikárs
og hefur verið sýnt síðan við
miklar vinsældir. Sýningum fer
nú fækkandi, bæði vegna
þrengsla í leikmynda- og leik-
munageymslum Þjóðleikhússins
og vegna þess aö leikarar í
Gaukshreiðrinu þurfa að snúa
sér að öðrum verkefnum innan
hússins.
Ávextir og grænmeti er misjafn-
lega næringarríkt.
Næringarrík-
astog næring-
arminnst
Næturgalinn:
Skemmtanir
gestur með hljómsveitinni. Tony Moro er fæddur og
uppalinn í Panama en hefur um árabil búiö og starf-
að í Evrópu. Hann á heimili í Lúxemborg en hefur
síðastliðin fimm ár starfað sem skemmtanastjóri á
næturklúbbi í París.
Tony Moro syngur þekkt lög á borð við New York,
New York, My Way, Bye Bye Black Bird og önnur
álíka, auk latin laga frá Suöur-Ameríku. Söngvarinn
verður aðeins þessa einu helgi á Næturgalanum.
Tony Moro hefur sungið áður á íslandi, var í Holly-
wood fyrir nokkrum árum og svo á Skálafelli á Hót-
el Esju með hljómsveitinni Kaskó. Hann fer héðan
tilNewYorkogMexikóþarsemhannmunskemmta. Tony Moro hefur tvisvar áður skemmt á
íslandi.
Hljómsveitin SÍN, sem skipuð er þeim Guðmundi
Símonarsyni, söngvara og gitarleikara, og Guðlaugi
Sigurðssyni, hljómborðsleikara, mun leika á Næt-
urgalanum í Kópavogi í kvöld og annað kvöld. Bæði
kvöldin veröur söngvarinn Tony Moro sérstakur
Efnagreining á 38 tegundum
ávaxta, sem eru að jafnaði etnir
ferskir (en ekki þurrkaðir), leiðir
í ljós að avocado er orkuríkast.
Það er með 163 hitaeiningar í
hverjum 100 grömmum. Avocado
á að líkindum rætur að rekja til
Mið- og Suður-Ameríku og inni-
heldur A-, C- og E-vítamín og 2,2%
hvítu. Gúrkur hafa fæstar hita-
Blessuð veröldin
einingar, í þeim eru aðeins 16
hitaeiningar í 100 grömmum.
Ýmsar grastegundir
Algengasta grastegund heims er
bermúdagrasið, en sú grastegund
er ekki til hér á landi. Blendingur
að þessu kyni, sem nefndur er
Callie og kom fram við kynbætur
árið 1966, vex allt að 15 sentí-
metra á dag. Á íslandi er túnving-
ull algengasta grastegundin, ef
með er tahnn rauðvingull, sem
stundum telst til sömu tegundar.
Blávingull, sem skyldur er tún-
vingli, er einnig mjög algengur á
íslandi.
Fljótvöxnustu og
hæst
Komið hefur í ljós að sumar teg-
undir hinna 45 bambusættkvísla
vaxa allt að 90 sentímetra á sólar-
hring. Bambus af tegundinni
Bambusa Arundinacea, sem
felldur var á Indlandi í nóvember
1904, mældist 37 metrar á hæð.
Éljagangur á
Hellisheiði
Nokkur éljagangur er á Hellisheiði
og í Þrengslum en þó þokkalega fært.
Vestanlands er þungfært um Bröttu-
brekku en slæmt ferðaveður er á
heiðum. Á sunnanverðum Vestíjörð-
um er hafinn mokstur á veginum
Færðávegum
fyrir Gilsfjörð og í Reykhólasveit.
Norðanlands er víða vonskuveður.
Slæmt ferðaveður er á Holtavörðu-
heiði og ekki talið ferðafært eins og
er á Vatnsskarði 06 Öxnadalsheiði
og beðið átekta með snjómokstur
þar. Austan Akureyrar er fært um
Víkurskarð og Þingeyjarsýslur og
með ströndinni til Vopnafjarðar.
Ástand vega
EJ Hálka og snjór
án fyrirstööu
Lokaö
|Aj Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
m Þungfært © Fært fjallabílum
Broðir Svovu og ]\/l(THÍICÍIT'
i - JL T JL%ÆSyM. JL ULiIFULJL Drengurinn litli sem kúrir vært á reyndist vera 3805 grömm að þyngd
myndinni fæddist á fæðingardeild þegar hann var vigtaður og 53
Wk' JOTMF w', Landspítalans 5. janúar. Hann seritímetra langur. Foreldrar hans
mi Heiga Kristin RpmharH
V1' Æ jP Bam dacrsins Gísli Jón Magnússon. Hann á tvö xxii 11 öu- systkin, Svövu, 12 ára, og Magnús,
Robert Downey jr. leikur banda-
rikjamann í Róm sem hrífst af
hinni rómantísku Faith.
í leit að
draumaprinsinum
Stjörnubíó sýnir um þessar
mundir rómantísku gaman-
myndina Aðeins þú (Only You).
Marisa Tomei leikur Faith sem
var aðeins ellefu ára þegar hún
ákvað að giftast manni sem héti
Damon Bradley, hver svo sem
hann væri. Með aldrinum gleym-
ir hún þessari ákvörðun sinni þar
til daginn sem hún ætlar að gifta
sig, þá fær hún hamingjuóskir frá
vinkonu sinni í gegnum mann
sem heitir Damon Bradley. Hún
hættir við giftinguna og heldur
Kvikmyndahúsin
til Rómar þar sem hún telur að
maður þessi sé niðurkominn
Leikstjóri Aðeins þú er Norman
Jewison, en kvikmyndir hans
hafa fengið 45 tilnefningar til ósk-
arsverðlauna og 12 sinnum hafa
þessi eftirsóttu verðlaun fallið til
kvikmynda hans. Jewison er
kanadískur og meðal kvikmynda
sem hann hefur leikstýrt má
nefna The Russians Are Coming,
The Thomas Crown Affair, In the
Heat of the Night,... And Justice
for All, Fiddler on the Roof, Jesus
Christ Superstar, A Soldier's
Story, Agnes of God og Moon-
struck.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Priscilla
Laugarásbíó: Skógarlíf
Saga-bíó: Konungur ljónanna
Bíóhöllin: Banvænn fallhraði
Stjörnubíó: Aðeins þú
Bíóborgin: Viðtal við vampíruna
Regnboginn: Stjörnuhlið
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 12.
13. janúar 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 67,740 67,940 69,250
Pund 106,520 106,840 107,010
Kan. dollar 47,730 47,920 49,380
Dönsk kr. 11,2240 11,2690 11,1920
Norsk kr. 10,1050 10,1460 10,0560
Sænsk kr. 9,0330 9,0690 9,2220
Fi. mark 14,3210 14,3780 14,4600
Fra. franki 12,7870 12,8380 12,7150
Belg. franki 2,1481 2,1567 2,1364
Sviss. franki 52,7700 52,9800 51,9400
Holl. gyllini 39,4700 39,6300 39,2300
Þýskt mark 44.2700 44,4100 43,9100
It. líra 0,04165 0,04185 0,04210
Aust. sch. 6,2860 6,3180 6,2440
Port. escudo 0,4277 0,4299 0,4276
Spá. peseti 0,5061 0,5087 0,5191
Jap. yen 0,68510 0,68720 0,68970
irsktpund 105,130 105,660 105,710
SDR 99,37000 99,87000 100,32000
ECU 83,7000 84,0400
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
Lárétt: 1 lampi, 5 kyn, 8 óviss, 9 snemma,
10 skapið, 12 dyggur, 14 eyri, 15 beita, 17
hóta, 19 forfeöur, 20 endurtekning, 21
slurkur.
Lóðrétt: 1 skaut, 2 mjög, 3 meyr, 4 flas,
5 guðir, 6 ungling, 7 hindrun, 11 hirð, 13
þyngdareining, 16 hljóð, 18 op, 19 hæð.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 blár, 5 æst, 8 einatt, 9 staglar,
10 tunna, 12 ká, 14 óri, 15 aðal, 17 síðri,
19 um, 20 asi, 21 sóma.
Lóðrétt: 1 best, 2 litur, 3 ána, 4 Ragnars,
5 ætlaði, 6 stak, 7 túr, 11 niði, 13 álma,
14 ósa, 16 aum, 18 ís.