Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
3
Fréttir
Um 250 metra breitt snjóflóð féll á Súðavík snemma I gærmorgun. Lagði það I rúst kjarnann í þorpinu
við Túngötu og Nesveg. Fióðið féll á svæði sem hingað til hefur að mestu verið talið utan hættumarka
en alls lentu 26 manns í flóðinu og var fimm manns enn saknað í morgun. Ætla má að hundruð þús-
unda tonna af snjó hafi ruðst yfir bæinn og mikil höggbylgja, sem fór á undan flóðinu, valdið þvi að þau
11 hús sem mest skemmdust hreinlega sprungu við höggkraftinn. Annað flóð féll á bæinn úr Traðargili
á milli klukkan 20 og 21 í gærkvöld. Það var um 100 metra breitt og stórskemmdi nokkur hús til viðbótar.
Mannskæðasta snjóflóð á íslandi í tvo áratugi:
Kjarninn í Súðavík í rúst
- örvænting greip um sig
- flóðin féllu á svæði sem talin voru utan hættumarka
Tvö snjóflóð féllu á Súöavík í gær.
Fyrra flóðið lagði í rúst kjarnann í
þorpinu við Túngötu og Nesveg.
Flóðið féll á svæði sem hingað til
hefur að mestu verið taliö utan
hættumarka. Alls lentu 26 manns í
flóðinu og greip mikil örvænting um
sig meðal þorpsbúa.
Flóðið, sem féll klukkan 6.25 í gær-
morgun, féll úr Súðavíkurhlíð norð-
an Traðargils og var um 250 metra
breitt. Þykkt þess við Pósthúsið, sem
varð í vegi flóðsins, er um hálfur
annar metri en mikið þykkara efst í
bænum. Ætla má að hundruð þús-
unda tonna af snjó hafi ruðst yfir
bæinn. Um var að ræða blöndu af
fleka- og kófflóði en að sögn kunn-
ugra myndast mikil höggbylgja á
undan slíkum flóðum þannig að ekki
er ólíklegt aö þau 11 hús sem mest
skemmdust haii hreinlega sprungið
við höggkraftinn.
Annað flóð féll á bæinn úr Traöar-
gili á milli klukkan 20 og 21 í gær-
kvöld. Það var um 100 metra breitt
og samkvæmt upplýsingum al-
mannavamanefndar á ísafirði urðu
menn þess ekki varir þegar flóðið
féll á kauptúnið. Flóðið féll við kaup-
félagið á staðnum og stórskemmdi
-nokkur hús til viðbótar en olli ekki
mannskaða.
í morgun, þegar 5 var enn saknað,
er ljóst að um er að ræða mannskæð-
asta snjóflóð á íslandi í tvo áratugi
en 20. desember 1974 létu 12 manns
lffiö í tveimur snjóflóðum sem féllu
á Neskaupstað.
Skipulögð byggð
á snjóflóðasvæði
Súðavik er kauptún við vestan-
verðan Álftafjörð. íbúar eru um 230
og sjávarútvegur meö áherslu á
rækjuveiðar og -vinnslu aðalat-
vinnuvegur.
í bókinni Landið þitt ísland segir
að í Súðavík hafi tekið að myndast
þéttbýli er Norðmenn hófu mikla
útgerð á Langeyri, þar sem bryggjur
og fiskverkunarhús eru nú, og víðar
við fjörðinn. Það þéttbýli hefur ekki
verið laust við snjóflóð en á seinasta
áratug hafa tvö snjóflóð fallið á
skipulögð svæöi í Súðavík. -pp
Fyrstu tilraunir til leitar að fólki:
Þegar búið var að moka
frá kom í Ijós barn á Irfi
- segir Heiðar Guðbrandsson 1 Súðavik
„Það ríkti algjör ringulreið fyrst
eftir að flóðið féll og á meðan fólkiö
var að ná því hvað hafði gerst. Þegar
mesta ringulreiðin var afstaðin þá
hóaði ég saman nokkrum mönnum
inn í frystihús og sýndi þeim hvernig
ætti aö nota stikur til leitar. Við fór-
um svo upp eftir og menn byrjuðu
að stinga niður þar sem þeir töldu
að eitthvað væri undir. Það var svo
fljótlega að menn sáu í beran fót. Þaö
var kallað á skóflumenn og þegar
búið var að moka frá kom í ljós að
þarna var barn á lífi,“ segir Heiðar
Guðbrandsson, eftirhtsmaður Súða-
víkurhrepps með snjóalögum, þar
sem hann var staddur í Súðavík í
nótt. Heiðar lýsir því þarna þegar
leit að fólki hófst í rústunum í gær-
morgun.
„Þegar baminu hafði verið bjargað
voru björgunarmenn komnir á vett-
vang með leitarhunda. Þá fórum við
neðar í plássið, þar sem leitað var
með sama hætti, og þar fundum viö
einstakling sem var látinn,“ segir
Heiðar.
Hann segir að það hafi veriö ljóst
um nóttina aö það væri veruleg snjó-
flóðahætta að myndast á staðnum.
„Ég hafði sterka tilfinningu fyrir
því að það væri hættuástand að skap-
ast. Það var búið að nefna það um
kvöldið að fólk við ofanverða Tún-
götu myndi rýma hús sín. Við vorum
orðnir sammála um það, ég og menn
á snjóflóðadeild Veðurstofunnar, að
það væri hættuástand hér klukkan
þrjú um nóttina. Þá höfðu allir verstu
hlutir sem gátu gerst orðið og öll þau
teikn á lofti að hætta væri orðin á
snjóflóði," segir Heiðar Guðbrands-
son í Súðavík í nótt.
-rt
Fagrane&r
(stjórnstöi
Snjoflooio i Suða
200
metrar
Fyrra snjóflóöiö
féll kl. 6.25 aö
morgni þess
16. janúar
Siöara snjo-
flóðið féll
um kl. 21.00
þann
16. janúar
Hus gjoreyðilogð
eða skemmd
1. Barnaheimili
2. Stjórnsýsla
3. Póstur og sími
4. Frystihús
5. Heilsugæsla