Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Blaðsíða 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
99»56»70
Hvernig á
að svara
augiýsingu
í svarþjónustu
Þú hringir í síma 99-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess aö svara smáauglýsingu.
^ Þú slærð inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
Þá heyrir þú skilaboö
auglýsandans ef þau eru fyrir
hendi.
Þú leggur inn skilaboö aö
loknu hljóömerki og ýtir á
ferhyrninginn aö upptöku
lokinni.
^ Þá færö þú aö heyra skilaboöin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægö/ur meö skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur
þú talaö þau inn aftur.
Hvernig á að
svara atvinnu-
auglýsingu
í svarþjónustu
Þú hringir í síma 99-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess aö svara
atvinnuauglýsingu.
^ Þú slærö'inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
^ Nú færö þú aö heyra skilaboö
auglýsandans.
^ Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á
1 og heyrir þá spurningar
auglýsandans.
^ Þú leggur inn skilaboö aö
loknu hljóömerki og ýtir á
ferhyrninginn aö upptöku
lokinni.
^ '
y Þá færö þú aö heyra skilaboöin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægö/ur meö skilaboöin
geymir þú þau, ef ekki getur þú
talað þau inn aftur.
^ Þegar skilaboöin hafa verið
geymd færö þú uppgefiö
leyninúmer sem þú notar tii
þess aö hlusta á svar
auglýsandans. Mikilvægt er aö
skrifa númeriö hjá sér því þú
ein(n) veist leyninúmerið.
^ Auglýsandinn hefur ákveöinn
tíma til þess aö hlusta á og
flokka svörin. Þú getur hringt
aftur í síma 99-5670 og valiö
2 til þess aö hlusta á svar
auglýsandans.
Þú slærö inn leyninúmer þitt
og færö þá svar auglýsandans
ef þaö er fyrir hendi.
Allir í stafræna kerfinu
með tónvalssíma geta
nýtt sér þessa þjónustu.
99 •56*70
Aöelns 25 kr. mínútan. Sama
verö fyrlr alla landsmenn.
Smáauglýsingar
Fréttir
Tilsölu
JCPenney sumarlistinn ‘95 kominn.
1400 síður. Fatnaður, amerískar
rúmdýnur, rúmgaflar o.m.fl.
Verð kr. 600 án buróargjalds.
Pöntunarsímar 581 1490 og 581 1492.
SEARS sumarlistinn ‘95 kominn.
Fatnaður, húsgögn, likamsræktartæki
o.m.fl. Ath. útsölulistar fylgja. Pöntun-
arsímar 581 1490 og 581 1492.
Verslun
Hitaveitur, vatnsveitur. Þýskir rennslis-
mælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís
s/f, símar 91-671130,91-667418
og 985-36270.
Jeppar
Toyota Hilux double cab, dísil, árg. ‘91,
ekinn 85 þús., 38” dekk, turbo, inter
cooler Q.fl. Veró 1.950 þús. Uppl. í
símum 91-674588 og 91-695500, Hjölli.
Sendibílar
MMC L-300 dísil, high roof long, árg. ‘91,
ekinn 67 þús. km, skráður 6 manna,
með veltibekk, vsk-bíll, lftur mjög vel
út. Verð 970 þús. með vsk. Upplýsingar
veitir Bílasala Keflavíkur í síma
92-14444 og eftir kl. 19 í síma
92-14266.
Tími
þinn er
dýrmætur!
99*56*70
Aöeins 25 kr. mínútan.
Sama verö fýrir alla landsmenn.
Á þriöja hundrað björgunarmenn á leiö sjóleiöis til Súðavíkur:
Veður og óhöpp töfðu
för fimm hjálparskipa
Fjöldi björgunarsveitarmanna hélt
til aðstoöar Súðvíkingum í gær og
nótt og voru skip notuð til að flytja
þá á vettvang. Ferð þeirra skipa gekk
ekki þrautalaust enda vonskuveður
á sjó og landi.
Togarinn Margrét EA, sem sótti sjö
björgunarsveitarmenn til Þingeyrar
undir kvöld í gær, fékk á sig brot í
mynni Dýrafjarðar. Gluggar brotn-
uðu í brúnni með þeim afleiðingum
að öll siglingatæki urðu óvirk og
aðalstýri en samband var við skipið
í gegnum neyðarstöð. Engan sakaði
en neyðarstýri virkaði og aðalvél
gekk. Skipiö hélt í var inn á fjörðinn
í fylgd tveggja skipa og var þar enn
í morgun.
Ætlunin var að Margrét E A safnaði
saman björgunarsveitarmönnum í
byggðarlögum á Vestfjöröum og tók
togarinn Júlíus Geirmundsson ÍS
upp þráðinn þar sem Margrét EA
skildi við og náði í 11 björgunarsveit-
armenn á Tálknafirði og 7 á Bíldu-
dal. Á Flateyri tóku þeir um 10 björg-
unarsveitarmenn en á leiöinni út tók
togarinn niðri á sandrifi og sat þar
fastur. Að sögn stýrimanns um borð
voru GPS-staðsetningartæki dottin
út vegna ísingar og voru menn að
berja ísingu af þegar skipiö tók niðri.
Skuttogarinn Bessi frá Súðavík
strandaði í innsiglingunni við
Sundahöfn á ísafirði í ferð sinni frá
Súðavík í gærkvöldi. Skipið losnaði
þó fljótlega af strandstað af sjálfsdáð-
um.
Þá gekk ferð Týs, sem flutti björg-
unargögn og mannskap á flóðasvæð-
in í Súðavík, mjög seint vegna ísingar
og fárviðris. Ugphafleg áætlun gerði
ráð fyrir að skipið kæmi til Súðavík-
ur í nótt en snemma í morgun var
talið að þaö kæmi ekki til Súðavíkur
fyrr en um hádegisbiliö. Loks má
geta þess að ferð Múlafoss, sem flutti
30 björgunarsveitarmenn frá Skaga-
strönd, sóttist seint vegna veðurs.
Engey RE flutti 75 björgunarsveit-
armenn frá Reykjavík. Sú ferð gekk
hægt og er ekki búist við að skipið
komi vestur á snjóflóðasvæði í Súða-
vík fyrr en í dag.
-PP
Kristín Lilja Kjartansdóttir í Eyrardal:
Má segja að við séum innilokuð
„Það má segja að við séum innilok-
uð en björgunarsveitarfólkið í
grunnskólanum er hérna rétt hjá.
Maður bara er hérna. Ég býst ekki
við að við sofnum mikið í nótt en það
fer alis ekki illa um okkur,“ sagði
Kristín Lilja Kjartansdóttir sem
hafðist við ásamt fimm öðrum að
bænum Eyrardal í Súðavík í nótt.
Talsverður fjöldi fólks, þó mest
björgunarsveitarmenn sem hvíldust
í grunnskólanum, hafðist við syðst í
Súðavíkurbæ í nótt. Að sögn Kristín-
ar voru sex á bænum Eyrardal, fernt
að Árnesi en 38 björgunarsveitar-
menn voru í grunnskólanum.
Síðara snjóflóðið, sem féll í gær-
kvöldi, fór norður fyrir byggðina þar
sem bæirnir og grunnskólinn eru og
takmarkaði möguleika fólksins á að
halda til skipa í höfninni.
„Það er ekkert um annað að ræða
en að vera hérna í nótt en við erum
í stöðugu sambandi við stjórnstöð-
ina,“ sagði Kristín Lilja.
-Ótt
Matthias Bjarnason um Súövíkinga:
Samstæðari hópur ekki
til bjáti eitthvað á
„Ég þekki hvert hús í Súðavík
þannig að ég hef þetta fyrir augunum
þó ég sé hér fyrir sunnan. Flest fólk-
ið þekki ég í sjón. Ég verð að segja
að fyrst í morgun fannst mér fréttirn-
ar ekki eins yfirþyrmandi. Það er
eins og maður hafi eitthvaö dofnað.
En þegar líða tók á daginn kom þetta
allt yfir mig. Ég er þungur og leiður
og sorgbitinn yfir þessum örlögum.
En þegar eitthvað bjátar á er ekki til
samstæðari hópur en Súðvíkingar,
þar er einn vilji og einn maður,“
sagði Matthías Bjarnason, þingmað-
ur og Vestflrðingur, í samtali við DV
seint í gærkvöldi.
Matthias sagði að slæmt væri til
þess aö vita hve veðurspár væru
slæmar framundan.
„En verst er að hér eftir verður
ekki hægt að segja hvar og hvenær
snjóflóð koma,“ sagði Matthias. „Það
fann ég best á snjóflóðinu í Tungu-
dal. Ég hefði hlegið af hverjum
manni sem heföi reynt að segja fyrir
um það áður. Það var svo fjarstæðu-
kennt.
Mér finnst Súðvíkingar og Álftfirð-
ingar ákaflega dugandi fólk með
sjávarútveg sem liflbrauð. Þarna er
eitt stórt fyrirtæki sem flestir hafa
haft vinnu af, Frosti, og dótturfyrir-
tæki þess. Þetta er myndarlegt frysti-
hús og rækjuverksmiðja sem er ein
sú fullkomnasta á landinu. Þarna er
ágætur skipafloti gerður út, skuttog-
arinn Bessi og togveiðiskipið Haffari.
Á Súðavík hafa verið mjög góðir afla-
menn. Þrátt fyrir þetta áfall tel ég
að við eigum að trúa á framtíðina þó
erfitt sé fyrir okkur að sætta okkur
við það sem hefur gerst. Óvissan yfir
því að allt fólkið sé ekki fundið nag-
ar. En það leitarfólk sem hefur unnið
í allan dag (í gær) hefur gert sitt
besta. Ég ber mikla von í brjósti
gagnvart þeim sem munu halda
áfram leit,“ sagði Matthías Bjarna-
son.
-Ótt
Raufarhafnarbúar
fá mjólkina aftur
- Þingey á Húsavík býður ókeypis heimsendingarþjónustu á vörum til Raufarhafhar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Því miður er ástandið þannig að
fólk vill geta sótt til okkar þær dag-
vörur sem eru nær álagningarlausar
eins og mjólk og brauð en kaupir síð-
an aörar vörur t.d. frá Húsavík. Þótt
ég voni að til þess þurfi ekki að koma
aftur að hér verði mjólkurlaust þá
vona ég aö fólk hafl lært eitthvað af
þessu,“ segir Jóhann Þórarinsson,
einn af þremur eigendum Verslunar-
félags Raufarhafnar, einu matvöru-
verslunarinnar á Raufarhöfn.
Eftir mjólkimleysi undanfarna
daga, sem kom til vegna greiðsluerf-
iðleika VR við mjólkursamlagiö á
Húsavík, er nú mjólk að nýju fáanleg
á Raufarhöfn. Jóhann segir að versl-
unarrekstur á Raufarhöfn sé erfiður,
fólk versli mikið utanbæjar í stað
þess að versla heima og styrkja versl-
un á staðnum.
„Við erum t.d. í keppni við verslun-
ina Þingey á Húsavík sem býður fólki
hér upp á ókeypis heimsendingar-
þjónustu og er því að selja vörur
hingað á sama verði og í versluninni
á Húsavík. Þetta notfærir fólk sér og
sparar e.t.v. einhveijar krónur í leið-
inni.
Þetta fólk vill hins vegar geta geng-
ið að öllum vörum hér og vill jafnvel
fá skrifað hjá okkur standi iUa á hjá
því peningalega. Þá er gott að leita
til okkar. Það sem við viljum er að
fá fleiri aðila inn í þennan erflöa
rekstur með okkur, t.d. verkalýðsfé-
lagið sem hefur gagnrýnt okkur fyrir
hátt vöruverð. Verkalýðsfélagsmenn
gætu þá kynnst því hvernig er að
standa í þessum erflða rekstri," segir
Jóhann.