Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUÐAjGUR 17. JANÚAR 1995
;)7
Fréttir
Loðnufrysting á komandi vertíð:
Utlit fyrir verðlækkun
„Það er alveg ljóst að það er útlit
fyrir verðlækkun á frystri loðnu. Það
getur farið svo að framleiðendur
verði að framleiða meira og minna
án samninga. Hvað verður skýrist
ekki fyrr en nær dregur, þessar
loðnuvertíðar eru eins duttlungafull-
ar og hægt er að hugsa sér. Það er
engin vertíð eins,“ segir Svavar
Svavarsson, framleiðslustjóri hjá
Granda hf„ vegna frystingar á loðnu
- segir Svavar Svavarsson, framleiðslustjóri Granda hf.
sem hefst væntanlega í febrúarbyij-
un. Hann spáir verðlækkun á Jap-
ansmarkaði verði framleiðslan í takt
við getuna.
Mikil ijárfesting hefur átt sér stað
í flokkunartækjum vegna komandi
loðnuvertíðar og virðist svo sem
margir ætli sér stóra hluti á vertíð-
inni. Svavar segir að framleiðslugeta
á frystri loðnu hafi tvöfaldast.
„Ef það verður treg veiði þá horfir
þetta öðruvísi við. Ef veiðin verður
hins vegar eðlileg og menn taka þetta
með trompi, þá er hætt við að það
verði ekki aðeins verðlækkun heldur
líka birgðasöfnun í landinu. Það sem
ég hef frétt af varðandi vinnsluget-
una bendir til þess að hún hafi tvö-
faldast," segir Svavar.
-rt.
Póstbíll fauk
í iðulausri
stórhríð
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesú
Olgeir H. Ragnarsson, DV, Borgarbyggð:
Póstbíll á leið norður yfir Holta-
vörðuheiði fauk á hliðina um tvöleyt-
ið aðfaranótt mánudags. Iðulaus
stórhríð var þar og í Borgarnesi þeg-
ar DV ræddi við Þórð Sigurðsson
yfirlögregluþjón í gærmorgun.
Tveir lögreglumenn fóru til aðstoð-
ar mönnunum á póstbílnum og tók
þá 210 tíma að komast til þeirra en
þeir sem sjá um póstflutninga mega
ekki yflrgefa póstinn.
Krani var kominn að póstbílnum
um hádegi í gær og reisti hann við.
Þá voru þar 8 vindstig og fór veður
heldur versnandi, aö sögn Ólafs Jó-
hannessonar lögregluþjóns. Ekkert
var að póstmönnunum þegar komið
var til þeirra en kalt var þeim.
Snjómoksturstæki Vegagerðarinnar
vonyöst norðan heiðar, í Hrútafirði.
Akranes:
Sorpið sent
til Sorpu?
Bæjarráð Akraness gerir ráð fyrir
því í fjárhagsáætlun ársins að kann-
aðir verði möguleikar á samvinnu
bæjarins og Sorpu í Reykjavík um'
eyðingu sorps.
Greinargerð um máhð á að hggja
fyrir ekki síðar en í mars svo mögu-
legt veröi að taka upp nýtt fyrir-
komulag í sorpeyðingu síðari hluta
ársins ef það þykir álitlegt. Hugsan-
legt er að tekin verði upp flokkun
sorps í bænum og því ekið til Reykja-
víkur en látið af urðun í bæjarland-
inu.
Noröurland vestra:
flokkur kom
ekki saman
listanum
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum:
Ekki tókst að ljúka röðun á lista
hjá Sjálfstæöisflokknum á Norður-
landi vestra á fundi í Varmahlíð um
helgina. Málið strandaði á Siglfirð-
ingum. Runólfur Birgisson neitaði
að taka sjötta sætið, sem hann fékk
í prófkjöri, og voru Siglfirðingar
óánægðir með það.
Til tals hefur komið að breyta röð-
un til að koma til móts við Siglfirð-
inga og á það að gerast á næstu 10
dögum.
Þeir sem leggja bílum sínum í bílahúsum þurfa ekki að hafa
áhyggjur af hrími á rúðum og frosnum læsingum.
Þeir ganga að bíinum þurrum og snjólausum og eru
mun öruggari í umferðinni fyrir vikið.
Einfalt og þægilegt
- ekki satt!
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Bílastceöi fyrir alla
Mundu eftir smámyntinni
- það margborgar sig.
Bílahúsin eru á
eftirfarandi stöðum:
• Traðarkoti
við Hverfisgötu
• Kolaportinu
• Vitatorgi
• Vesturgötu
• Ráðhúsinu
• Bergstöðum
við Bergstaðastræti