Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
9
Fréttir
Ógnvekjandi snjóflóðahætta á Vestflörðum og gífurlegt rask:
Á áttunda hundrað
íbúar yf irgáf u heimili sín
- um er að ræða um 200 hús eða íbúðir og þriðjung allra á Patreksfirði
A sjöunda hundrað íbúar á Vest-
fjörðum, frá Patreksfirði til Drangs-
ness, þurftu að yfirgefa heimili sín í
gærdag og nótt. Um er að ræða um
200 íbúðir og hús, langflest á Patreks-
firði eða 110, en þar þurftu um 300
íbúar að leita ásjár hjá vinum og
vandamönnum. Á Súðavík þurftu
allir íbúar, 230 talsins, að yfirgefa
heimili sín.
„Hér er um að ræða hús sem eru
að okkar mati á hættusvæði, atburð-
irnir í dag hafa sýnt okkur að núver-
andi hættumati er ekki hægt að
treysta að fullu. Fólk hefur sýnt
þessu mikinn skilning og flestir gista
hjá vinum og ættingjum en einhverj-
ir eru enn í félagsheimilinu, í fjölda-
hjálparstöð sem þar er staðsett, en
telja má víst að þeir fái inni í heima-
húsum yflr nóttina," sagði Jónas Sig-
urðsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar
á Patreksfirði og formaður almanna-
varnanefndar staðarins, í samtali við
DV í gærkvöld.
Jónas sagði veðurspá ekki góða en
ástandið yrði endurmetiö um leið og
veður skánaði. Almannavarnanefnd
væri í stöðugu sambandi.
Á Bíldudal hafa 27 íbúar yfirgefið
Hundruð . _ %%%*£* r~''1
SÍn 20*hús o o# Súðavík
Bíldudalur rýmdar . ^
heimili sín, samtals 11 hús. Öllu fleiri
hafa þurft að yfirgefa samtals 20
heimili á Flateyri eða 62 íbúar. Þá
þurftu 16 íbúar að yfirgefa 7 hús í
Drangsnesi í gær. Á Isafirði og í
Hnífsdal hafa 16 íbúðir og hús verið
jnrraj
rýmd vegna snjóflóðahættu og má
ætla að þeir flutningar snerti hátt í
30 íbúa.
Á Bolungarvík var veður mjög
slæmt í gær og nótt og þakplötur
farnar að fjúka af húsum. Minnihátt-
Hátt í eitt hundrað aðstoðarmenn börðust vestur á varðskipi:
Þrautþjálfaðir björgunarmenn koma í dag
„Við búumst við hinu versta en
vonum það besta. Það greip okkur
óneitanlega mikill óhugur þegar við
fréttum af snjóflóðinu," sagði Hörður
Már Harðarson, forsvarsmaður tíu
björgunarsveita frá höfuðborgar-
svæðinu, sem voru á leið til Súðavík-
ur, í samtali við blaðamann DV um
borð í varðskipinu Tý.
Um borð voru hátt í eitt hundrað
björgunar- og aðstoðarmenn sem
fara áttu í land, ýmist á ísafirði eða
í Súðavík til leitar. Hér er um að
ræða þrautþjálfaða snjóflóðaleitar-
menn með allan sinn búnað, meðal
annars tvo hunda, snjóbíla, hljóðleit-
artæki, vararafstöðvar og fleira.
Gert var ráö fyrir að björgunar-
sveitarmenn gætu strax hafist handa
með mjög skipulögðum hætti þegar
Týr kæmi til Súðavíkur. Með i ferð-
inni vestur voru einnig samtals 11
læknar, hjúkrunarfræðingar og
prestar. Tiu sjúkraflutningamenn
frá slökkvihði á höfuðborgarsvæð-
inu voru einnig með tæki úr neyðar-
bílum tilbúnir að fara í land í Súða-
vík.
Ferðin vestur sóttist heldur seint
vegna fárviðris út af Vesturlandi og
Vestfjörðum. Komið var við á Pat-
reksfirði til að sækja mjög veikan
sjúkling sem þurfti að komast strax
á sjúkrahús. ís var barinn af skipinu
þegar tækifæri gafst til inni á Pat-
reksfirði. Rúðuþurrkur í brú varð-
skipsins urðu óvirkar vegna ágjafa.
Þeir sem voru um borð í varðskipinu
voru margir hverjir sjóveikir í nótt
en vonast var til að menn næðu sér
fljótlega þegar komið yrði vestur.
18 manna áhöfn er á Tý en um
borð voru einnig þrír farþegar sem
eru aðstandendur Súðvíkinga. Með í
för voru auk þess 13 fjölmiðlamenn.
-kaa/Ótt
Björgunarsveitarmaður með leitarhund við varðskipið Tý um hádegisbilið
í gær þegar skipið var að búa sig til brottfarar til Súðavíkur. Um borð eru
hátt í eitt hundrað björgunar- og aðstoðarmenn sem væntanlegir eru vest-
ur um hádegisbilið í dag. DV-mynd Sveinn
Ástandið skelfilegt
- segir sýslumaöur
„Þær fréttir sem ég hef frá Súðavík
eru á þá lund að ástandið er skelfi-
legt. Það hafa fallið þar 13 hús og það
er verið að leita þar að fólki eins og
fram hefur komið. Aðstæður eru
mjög erfiðar en við höfum verið lán-
samir að því leytinu til að það hefur
ekki skort menn til björgunarstarfa
en hér er fjöldi manna í sárurn,"
sagði Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður og formaður almanna-
varnanefndar á ísaflrði, í samtali við
DV í gærkvöld.
-PP
Langar þig í skemmtilegan skóla
eitt kvöld í viku?
□ Langar þig aö fara í vandaðan og frjálslyndan einka-
skóla sem ekki hefur sömu ömurlegu fordómana og
allt ríkisskólakerfiö hefur um meint samband okkar
við framliðna og dulræn mál?
□ Langar þig í öðru vísi skóla þar sem reynt er á víðsýn-
an hátt að gefa nemendum sem besta yfirsýn yfir
hverjar hugsanlegar orsakir dulrænna mála og trúar-
legrar reynslu fólks raunverulega eru í víðu sam-
hengi og í ljósi sögunnar?
□ Langar þig að fara í skemmtilegan kvöldskóla einu
sinni í viku þar sem helstu möguleikar hugarorkunn-
ar eru raktir í ljósi reynslu mannkynsins á fordóma-
lausan og skemmtilegan hátt?
□ Og langar þig ef til vill að setjast á skólabekk með
bráðhressu og skemmtilegu fólki þar sem reynt er að
gefa sem besta yfirsýn yfir hvað miðilssamband raun-
verulega er, svo og hverjir séu helstu og þekktustu
möguleikar þess - en líka annmarkar?
□ Og langar þig svona einu sinni á ævinni að setjast í
mjúkan skóla eitt kvöld í viku þar sem flest þessi fræði
eru kennd á lifandi hátt og skólagjöldunum er svo
sannarlega stillt í hóf?
Ef svo er þá áítu ef til vill samleiö meó okkur og mörgum
öörum nemendum Sálarrannsóknarskólans. Tveir byrjun-
arbekkir hefja brátt nám í Sálarrannsóknum lnúá vor-
önn ’95. Hringdu ogfáöu allar nánari upplýsingar í sím-
um skólans 5-619015 og 5-886050.
Yflr skráningardagana er að jafnaði svarað í síma Sálarrannsóknarskólans
alla daga vikunnar kl. 15 til 21.
Skrifstofa skólans verður hins vegar opin alla virka daga kl. 17 til 21.
ilvSálarrannsóknarskólinn
^1" ^ - Öðru wísi skóli -
Vegmúla 2, S. 5-619015 og 5-886050.
ar skemmdir urðu á 10 fil 15 húsum
í bænum en 50 hús og íbúðir voru
rýmd og þurftu um 200 manns að
yfirgefa heimili sín.
Að sögn Jóns Guðbjartssonar í
stjórnstöð björgunarsveitarinnar
Ernis í Bolungarvík óttuðust menn
mikla snjósöfnun í Traðarhyrnu í
gærdag. Spá var slæm og aðstæður
svipaðar í Bolungarvík og í Súðavík
og á Seljalandsdal, hvað snjóílóða-
hættu varðar.
Björgunarsveitir í Bolungarvík,
sem ætluðu til aðstoðar í Súðavík í
gær, voru veðurtepptar. Þær höfðu
því tök á að afstýra frekara eigna-
tjóni þar en 15 til 20 menn voru viö
björgunarstörf innanbæjar og aðrir
10 við að aöstoða fólk við að komast
á milli staða.
í samtali við DV í nótt vonaðist Jón
til þess að björgunarsveitarmennirn-
ir, sem ekki komust til Súðavíkur í
gær, kæmust af stað í morgunsárið.
Þar sagði hann um að ræða 25
óþreytta björgunarsveitarmenn og
lækni, sem gætu brúað bilið þar til
varðskip kæmi á vettvang undir há-
degi með mannskap.
-pp
9 9 • 1 7 • 5 O
Verð kr. 39,90 mín.
Dregið daglega og
stjörnumáltíð fyrir tvo frá
McDonald's fyrir þá heppnu!
Munið að svörin við
spurningunum er að finna í
blaðaukanum DV-helgin
sem fylgdi DV síðasta
fóstudag.
2. leikvika, 15. jan. 1995
Nr. Lelkur:
Rööln
1. Fiorentina - Parma -X-
2. Juventus - Roma 1 - -
3. Inter - Sampdoria 1 - -
4. Lazio - Foggia 1 - -
5. Napoli - Cagliari -X-
6. Reggiana-Torino 1 - -
7. Genoa - Padova 1 - ■
8. Cremonese - Brescia -X
9. Verona - Piacenza -X ■
10. Lucchese - Salernitan -X
11. Ancona - Cesena 1 -
12. Venezia - Fid.Andria -X
13. Atalanta - Cosenza 1-
Heildarvinningsupphæð:
14 mllljónlr
13 réttir^g^gj kr.
12 réttirpK^l kr.
11 réttiriJHKEEl kr.
10 réttir^mi kr.
Allar vinningsupphæðir eru áætlaðar
2. leikvika, 14. jan. 1995
Nr. Lelkur:
Rööln
1. Blackburn - Notth For. 1 - -
2. Arsenal - Everton -X-
3. West Ham - Tottenham - -2
4. Chelsea - Sheff. Wed -X-
5. Norwich - Wimbledon - -2
6. Aston V. - QPR 1 --
7. Man. City - Coventry -X-
8. C. Palace - Leicester 1 - -
9. Charlton - Derby - -2
10. Watford - Bolton -X -
11. Oldham - Sunderland -X -
12. Notts Cnty - Burnley 1 - -
13. Barnsley - Luton 1 - -
Heildarvinningsupphæð:
107 mllljónlr
13 réttiri
12 réttir|
11 réttirE
1.796.980
41.800
3.260
kr.
kr.
kr.
10 réttirj^|^Kjj?il kr.
Allar vinningsupphæðir eru áætiaðar