Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
11
Fréttir
Mokveiði af norsk-íslenskri síld í innQörðum Norður-Noregs:
Þetta er allt norsk sfld
og tilheyrir okkar kvóta
- segir deildarstjóri hjá norska sjávarútvegsráðuneytinu
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Þetta er allt norsk síld, tekin af
norskum kvóta,“ segir Eilif Sund,
deildarstjóri og eftirlitsmaður með
sddveiðum hjá norska sjávarútvegs-
ráðuneytinu, í samtali við DV. Und-
anfama daga hafa norskir síldveiöi-
bátar mokveitt síld í Lófótfirði og
Týsfirði, tveimur innfjörðum inn af
Lofoten í Norður-Noregi. Síldin er úr
norsk-íslenska síldarstofninum sem
hefur vetursetu á þessum slóðum.
Að sögn Odds-Gunnars Olaisen, hjá
norsku síldareinkasölunni í Harstad,
er aflinn nú mun meiri en undanfar-
in ár. Þegar séu komin á land um 50
þúsund tonn.
„Það eru mun fleiri bátar við þess-
ar veiðar en áður. Einnig virðist vera
mun meira um sUd en við eigum að
venjast," segir Odd-Gunnar.
Aflinn fer að stórum hluta til
Sjúkraliðar:
Samið um
allt land
„Það hefur verið samið við sjúkra-
liða um allt land. Því verki var lokiö
fljótlega eftir að skrifað var undir
aðalsamninginn fyrir áramótin."
sagði Birna Ólafsdóttir hjá Sjúkra-
liðafélaginu í samtali við DV.
Enda þótt Sjúkraliðafélag íslands
sé landsfélag eru kjarasamningar
sjúkraliða ekki eins um allt land, þar
koma ýmiss konar sérsamningar til,
en sem fyrr segir er allri samnings-
gerö lokið.
Jón eða Kristján
í ef sta sætið
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kjördæmissamband Alþýðuflokks-
ins á Norðurlandi vestra mun á
næstunni ganga frá skipan í sæti á
framboðslista flokksins vegna kosn-
inganna tU Alþingis í vor.
Horfið var frá því að halda prófkjör
í kjördæminu og mun kjördæmis-
sambandið því velja á milli Jóns F.
Hjartarsonar, skólameistara á Sauð-
árkróki, og Kristjáns Möllers, forseta
bæjarstjórnar Siglufjarðar, en þeir
tveir hafa gefið kost á sér í efsta
sæti listans, og einnig verður raðað
í önnur sæti listans. Alþýðuflokkur-
inn fékk ekki mann kjörinn í kosn-
ingunum til Alþingis 1991, því flokk-
urinn tapaði þá þingsætinu sem
hann átti þar til Sjálfstæðisflokksins.
Snorri Sturluson inn
ílandhelginaáný
„Við höfum ákveðið að taka Snorra
Sturluson inn í landhelgina aftur. Það
er svo áformað að hann fari í miklar
endurbætur í haust þar sem skipt
verður um aðalvél og spU,“ segir Sig-
urbjöm Svavarsson, útgerðarstjóri
hjá Granda hf„ vegna frystitogarans
Snorra Sturlusonar sem stimdaði út-
hefsveiðar á síðasta ári en fer nú tíl
veiða á kvótabundnum tegundum.
Hann segir ekki ljóst hvort skipiö
verði lengt í leiöinni en það sé í at-
hugun. Engey RE, sem stundað hefur
karfaveiðar og siglt með aflann,
verður nú lagt tímabundið að sögn
Sigurbjöms. -rt
neyslu. Verð er gott að sögn Odds-
Gunnars en hann segir aflann hafa
verið svo mikinn undanfarna daga
að það hafi orðið að senda fimmtung
hans í bræðslu.
Hann segist skilja áhyggjur íslend-
inga vegna sUdveiða Norðmanna. A
það bæri þó að líta að þetta væri síld
sem héldi til við Noreg allt árið - í
það minnsta enn um sinn - og að
Norðmenn gættu þess að taka ekki
of mikið úr stofninum.
fyrstu tvær
bækurnar
komnar!
Miðaldamunkurinn ógleymanlegi er þegar
kominn í flokk sígildra sögupersóna og
höfundinum, Ellis Peters, er skipað á bekk með
snillingum spennusögunnar eins og Agöthu
Christie og Arthur Conan Doyle.
ITV sjónvarpið breska hefur gert
sjónvarpskvikmyndir eftir fjórum bókanna með
Sir Derek Jacobi í aðalhlutverki. Vinsœldirnar
eru þvíiíkar að 6 í viðbót eru í undirbúningi!
Fyrsta sjónvarpskvikmyndin
verður sýnd í Sjónvarpinu hér
20. janúar.
Bróðir Cadfael 1: Líki ofaukið
BróðirCadfael'2: Bláhjálmur
Aðeins 895 krónur bókin
- eða sérstakt kynningarboð:
Báðar saman í pakka á 1.340!
/
A næsta sölustað
SiSSífSSiÖSi í
- .4-.
FRJÁLS R 1 FJÖLMIÐLUN HF.
11 1