Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
17
Knicks
' í nótt
i stöðvuð af Dallas
son 30, Drexler 30.
San Antonio tapaöi fyrir Dallas á
heimavelli á sunnudagskvöldið. Leikur-
inn var æsispennandi og úrslit ekki ráð-
in fyrr en í blálokin. Þetta var fyrsti
ósigur San Antonio á heimavelli síðan
8. desember,
Brown gerði sigurkörfuna
úr hraðaupphlaupi
Dee Brown tryggði Boston Celtics sigur-
inn gegn Sacramento úr hraöaupp-
hlaupi. Þetta er þriðji sigur liðsins í fjór-
um leikjum.
Seattle vann sinn 12. sigur í 14 leikjum
þegar liðið mætti Portland
tórsvig:
i keyrði
autinni
- Nú náðir þú mjög góðum árangri á
opna hollenska meistaramótinu í risa-
svigi á dögunum og sigraðir þar heims-
þekkta Svía. Kemur þú til með að ein-
beita þér meira að risasviginu í framtíð-
inni en hingað til?
„Ég hef ekki lagt mikla áherslu á risa-
svigið hingað til og árangurinn á opna
hollenska mótinu var mjög ánægjulegur.
Það er aldrei að vita nema maður fari
að taka risasvigið fastari tökum. Ég á
eitthvað inni og get náð góðum árangri
ef ég hitti á þetta,“ sagði Kristinn.
Svíarnir, sem Kristinn skaut ref fyrir
rass á dögunum, eru þeir Nyberg og
Hellmann. Til marks um góðan árangur
Kristins á opna hollenska mótinu má
geta þess að hinn heimsþekkti Nyberg
varö í fjórða saeti i gær í keppní heims-
bikarsins í risasvigi.
r samdi
Jjmmy Jackson sækir að körfu San Antonio. Hann skoraði 37 stig fyrir Dallas í góðum útisigri í fyrrinótt en David
Robinson (50) skoraði 43 stig fyrir San Antonio og Vinny Del Negro (15) skoraði 20.
rtepptur á Akureyri
að ganga frá samningnum fyrir hönd fé-
lagsins.
Guðmundur Benediktsson úr Þór á Ak-
ureyri átti að koma til æfmga hjá úrvals-
deildarliðinu AIK í Stokkhólmi í gær.
Hann var hins vegar veðurtepptur heima
á Akureyri en vonast er til þess að hann
komist utan í dag. Guðmundur mun æfa
með AIK út þessa viku.
Heimsmet
í Kópavogi
Heimsmet í maraþontennis var
sett í tennishöllinni í Kópavogi í
gærkvöldi. Þá höfðu 26 börn á
aldrinum 8-16 ára leikið sam-
fleytt í 57 klukkustundir, eða frá
því klukkan 13.30 á laugardaginn,
en gamla heimsmetið, samkvæmt
Heimsmetabók Guinness, var 54
klukkustundir. Börnin skiptust á
um að hvíla sig og tíu þeirra fóru
ekki úr húsi allan tímann. Með
þessu söfnuðu þau fé til styrkar
Iþróttafélagi fatlaðra.
Staðan í NBA-deildinni
Atlantshafsriðill:
OrlandoMagic...........29 7 80,6%
New York Knicks.......20 13 60,6%
Boston Celtics.........15 20 42,9%
New Jersey Nets.......15 23 39,5%
Miami Heat.............11 23 32,4%
Philadelphia 76’ers...10 24 29,4%
Washington Bullets.....7 26 21,2%
Miðriðill:
Cleveland Cavaliers...23 11 67,6%
Charlotte Hornets.....22 12 64,7%
Indiana Pacers........20 14 58,8%
Chicago Bulls.........18 17 51,4%
AtlantaHawks..........15 20 42,9%
Milwaukee Bucks.......12 23 34,3%
Detroit Pistons.......10 22 31,3%
Miðvesturriðill:
UtahJazz..............25 10 71,4%
Houston Rockets.......22 11 66,7%
San Antonio Spurs.....20 12 62,5%
Denver Nuggets........18 16 52,9%
Dallas Mavericks......16 17 48,5%
MinnesotaT’wolves......7 27 20,6%
Kyrrahafsriðill:
PhoenixSuns...........27 8 77,1%
Seattle Supersonics...24 9 72,7%
LALakers..............21 11 65,6%
Sacramento Kings......19 15 55,9%
PortlandT’blazers.....18 15 54,5%
GoldenStateWarrios....10 23 30,3%
LAClippers.............5 30 14,3%
im félagaskipti
ð Tryggva, Ljubicic og Bibercic
um þau félagaskipti og þeim lyktaði með
því að KR þurfti að borga ÍBV meira en
félagaskiptagjaldi hans nam fyrir að fara
skki að settum reglum.
Tryggvi er kominn aftur til Eyja en
aú vilja KR-ingar fá meira fyrir hann
m Eyjamenn eru tilbúnir að greiða.
Mikið ber í milli, samkvæmt félagaskipt-
istuðli KSÍ er Tryggvi metinn á 250 þús-
und krónur en KR-ingar telja að þeir
íigi að fá mun meira.
Zoran Ljubicic fór frá HK til ÍBV fyrir
ári og gerði þá tveggja ára samning við
Eyjamenn. ÍBV og HK komust að sam-
komulagi um greiðslu fyrir Ljubicic og
ný vilja Eyjamenn fá sömu upphæð fyr-
ir hann frá Grindvíkingum, sem telja sig
ekki eiga að borga neitt. Horfur eru á
að málið komi til kasta KSÍ en sam-
kvæmt heimildum DV eru Eyjamenn
tilbúnir að fara í hart til að fá sitt fram.
Skagamenn og KR-ingar hafa ekki
komist að samkomulagi varðandi Bi-
bercic, en það mál virðist þó líklegast
af þessum þremur til að leysast án mik-
illa átaka. Það mun væntanlega verða
afgreitt af KSÍ.
ÞORRABLÓT
Þorrablót Þróttar verður haldið
í veitingahúsinu Glæsibæ
laugardaginn 28. janúar 1995.
Húsið opnað kl. 19.00 (borðhald kl. 19.30).
Matur við allra hæfi.
Þróttardansleikur á eftir borðhaldi,
opnað kl. 23.00.
Miðapantanir og afgreiðsla í íþróttaheimilinu
sími 812817.
Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Aðalstjórn Þróttar
_______________íþróttir
MarkmenníVíkmg
Víkingar, sem leika í 2. deild-
inni í knattspyrnu, hafa fengið
tvo markverði til sín fyrir næsta
tímabil. Þaö eru Sveinbjörn AIl-
ansson frá Þrótti í Neskaupstað
og Ragnar Bogi Petersen úr Völs-
ungi.
Adolftil HK
Þriðji markvörðurinn sem er á
faraldsfæti er Adolf Óskarsson,
fyrrum markvörður ÍBV og Sel-
foss. Hann hefur tekið fram
hanskana á ný eftir tveggja ára
hlé og er genginn til liðs við 2.
deildar liö HK.
GuðjóníÍR
Guðjón Þorvarðarson, einn
helsti markaskorari Selfyssinga í
knattspyrnunni undanfarin ár,
hefur ákveðið að leika með ÍR i
2. deildinni í sumar.
Mersonermættur
Enski knattspyrnumaðurinn
Paul Merson mætti á sína fyrstu
æfingu hjá Arsenal í gærmorgun
eftir að hafa verið útskrifaður af
meðferðarstofhun fyrir eitur-
lyfjaneytendur. Merson viður-
kenndi sem kunnugt er kókaín-
neyslu seint á síðasta ári.
Spilaðifótbrotinn
Julian Joachim, sóknarmaður
úr úrvalsdeildarhði Leicester,
leikur ekki meira í vetur. í gær
kom í ljós að hann er með brotið
bein í fæti, og hefur liklega spilað
þannig síðan í október!
Bickeltil Japans
Thomas Bickel, sem skoraði
sigurmark Sviss gegn íslandi í
Evrópukeppninni í knattspyrnu í
nóvember, skrifaði í gær undir
tveggja ára samning við japanska
2. deildar félagið Vissel Kobe. Bic-
kel, sem er fyrirliði Grasshopp-
ers, vildi ekki segja annað um
kjör sín f Japan en að þau væru
„mjög áhugaverð".
MótmælifráRoma
italska knattspyrnufélagið
Roma mun senda inn formleg
mótmæli vegna frammistöðu
dómarans i leik liðsins við Ju-
ventus í 1. deildinni á sunnudag-
inn. Tveir leikmanna Roma voru
reknir af velli og tvö marka Ju-
ventus í 3-0 sigri voru mjög um-
deild. Sér i lagi fyrsta markið
þegar Brasilíumaðurinn Aldair
var að taka innkast og rakst á
línuvörðinn, og nánast missti
boltann fyrir fætur Ravanellis
sem skoraði!
Batistuta rændur
Gabriel Batistuta frá Argent-
ínu, markahæsti leikmaður ít-
ölsku 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu, var rændur skartgripum
að verðmæti um 2,5 milljánir
króna í síöustu viku. Batistuta
var þá að leika með Argentínu i
álfukeppninni i Sádi-Arabíu og
eiginkona hans dvaldi í Argent-
ínu. Á meðan brutust þjófar inn
á heimiU þeirra í Flórens og létu
greipar sópa.
Raksexútaf
Mexikanski knattspyrnudóm-
arinn Alfonso Manzo er einhver
umtalaðasti maður í heimalandi
sínu eftir að hann rak 6 leik-
menn, þrjá úr hvoru Iiði, af velli
í i. deildar leik Monterrcy og
Tampico-Madero um helgina.
Gleymdur Rússi
Þegar Romario var floginn til
Brasilíu og Stoichkov í banni fékk
gleymdur leikmaður í herbúðum
Barcelona loksins tækifæri til að
njóta sín í 1. deildar leiknum við
Logrones í fyrradag. Rússneski
landsliðsmaðurinn ígor Kornejev
nýtti sér það vel og lagöí upp tvö
mörk í 3-0 sigri Barcelona.