Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Síða 18
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
Iþróttir unglinga
Landslið íslands í borötennis keppir
þessa dagana á mjög sterku, alþjóð-
legu móti sem fer fram í Malmö
(Kavlinge-leikarnir), og hélt liðið ut-
an í gær. - Þar mun Guðmundur E.
Stephensen reyna að verja þá þrjá
titla sem hann vann í janúar 1994,
en þá sigraði hann í flokki pilta 12
ára og yngri, í flokki drengja 14 ára
og yngri og í flokki drengja 15 ára
og yngri.
Til styrktar ferðinni til Svíþjóðar
spilaði liðið maraþon-borðtennis í
heilan sólarhring og hófst hann í
Umsjón
Halldór Halldórsson
TBR-húsinu laugardaginn 14. janúar
kl. 15 og lauk á sunnudaginn kl. 15.
Að sögn tókst mjög vel og safnaðist
vel á annað hundrað þúsund króna.
Landsliðið
Landslið íslands er þannig skipað:
Bjöm Jónsson, 17 ára, Eva Jósteins-
dóttir, 17 ára, Guðmundur Stephen-
sen, 12 ára, Ingólfur Ingólfsson, 17
ára, Kristján Jónasson, 32 ára, Jón
Ingi Ámason, 17 ára, og Lilja Rós
Jóhannesdóttir, 16 ára. Af þessari
upptalningu má sjá að allir leikmenn,
að undanskildum Kristjáni, skipa
einnig unglingalandsliðið. Þjálfari
liðsins er Svíinn Peter Nilsson.
Spilum of lítið
Peter Nilsson, 25 ára, þjálfari ungl-
ingalandsliösins, A-landsliðsins og
Víkings, hefur verið starfandi hér á
landi í þrjú ár og var fyrstu tvö árin
hjá KR.
Hann æfði borðtennis og lék fyrir
Malmö FF, en það er eitt öflugasta
borðtennisfélag Svíþjóðar - en félag-
ið er með margar íþróttagreinar á
sinni stefnuskrá og hefur til dæmis
oft orðið sænskur meistari í knatt-
spymu. - Nilsson lék fyrir Malmö
FF í 7 ár en slasaðist illa í baki 1990
og þar með lauk ferli hans sem topp-
leikmanns - en hann hefur spilað
með sænska unglingalandsliðinu.
Þegar Nilsson var upp á sitt besta
var hann talinn meðal fimm bestu Guðmundur Stephensen, 12 ára, í Víkingi, hefur vakið mikla athygli i Svíþjóð fyrir frábæra frammistöðu sina á
borðtennisspilara Svía. hinu alþjóðlega móti í Kavlinge á sl. ári. Hann hefur nú þrjá titla að verja i Svíþjóð.
Er í góðu formi
Guðmundur Stephensen sigraði í
þrem unglingaflokkum á Kavlinge-
mótinu í fyrra, eins og áður segir, en
hvernig líst honum á að verja þá titla
núna?
„Mér líst bara vel á það - því ég er
í góðu formi núna og hef lagt mikla
áherslu á sóknarleikinn að undan-
fomu. Hvort mótið er sterkara núna
en í fyrra er svolítið erfitt sð segja
til um. Maður sér bara til,“ sagði
Guðmundur.
Byrjaði að æfa 11 ára
Björn Brynjar Jónsson, Víkingi, hef-
ur æft borðtennis í 6 ár:
„Þetta mót í Svíþjóð er mjög góð
æfing fyrir Evrópumót unglinga sem
fer fram í júlí-ágúst.
Mér hefur farið mjög mikið fram
frá því í fyrravetur - og þakka ég það
sérstaklega hvaö ég æfði vel síðast-
liðið sumar - svo er þjálfarinn okkar
mjög fær - og finnst mér. mjög gott
að skipt var um þjálfara því þá er
alltaf viðbúiö að læra eitthvað nýtt.
Ég var mikið í fótbolta þegar ég var
yngri - en ég tel mig hafa fundið
mína íþrótt og ætla ég að stunda
borðtennis af fullum krafti í framtíð-
inni,“ sagði Björn Brynjar.
Unglingalandsliðið í borðtennis lék maraþonkeppni um síðustu helgi. Frá vinstri, Björn Brynjar Jónsson, Jón Ingi Árnason, Peter Nilsson, þjálfari, Ingólf-
ur Ingólfsson, Pétur Stephensen, Guðmundur Stephensen, Eva Jósteinsdóttir og Sigurður Valur Sverrisson, formaður Borðtennissambands íslands.
DV-myndir Hson
„í þau þrjú ár sem ég hef verið við
þjálfun í borðtennis á íslandi hef ég
orðið var við miklar framfarir. Það
sem einna helst stendur í vegi fyrir
enn meiri framförum er að það er
ekki spilað nærri nógu mikið. Það
skapar aukna reynslu og leikæfingu,
sem er mjög mikilvægt.
Þessi ferð til Svíþjóðar er fyrst og
fremst hugsuð sem æfingabúðir og
munum við dvelja hjá mínum gamla
klúbbi, Malmö FF. Þaðan munum við
sækja leiki í Kavhnge-mótinu - en
það er útborg Malmö.
Landslið íslands er mjög ungt aö
árum og veröur spennandi að fylgj-
ast með framvindu mála,“ sagði Nils-
son.
Auka þarf útbreiðsluna
Sigurður Valur Sverrisson, formað-
ur Borðtennissambands íslands:
„Mér finnst borðtennis vera í mik-
illi framfór í landinu - en betur má
ef duga skal. Stefnan er að gera
íþróttina öfluga á landsvisu. Til
marks um það get ég nefnt að á döf-
inni er að koma á landshluta-deildar-
keppni og er mikill áhugi fyrir því
úti á landi - og í byrjun febrúar mun
landsliðsþjálfarinn, Peter Nilsson,
ásamt hinum 12 ára Guðmundi
Stephensen, vera meö námskeið á
Akureyri og í beinu framhaldi verð-
ur haldið mót. Stefnt er að því að
halda slík námskeið á fleiri stöðum
úti á landi.
í sambandi við uppbyggingu
landshðanna þá tel ég ferð sem þessa
mjög mikilvæga.
Vert er og að geta þess að til liðs
við íslenska landsliðið í Svíþjóðar-
ferðinni koma þeir Adam Harðarson,
sem æfir og keppir í Svíþjóð, og
Kjartan Briem, sem er viö nám í
Danmörku og æfir og spilar með
sterku, dönsku liði. Munu þeir að
sjálfsögðu styrkja landshðið mjög, en
A-landsliðið mun keppa í Evrópu-
keppni landsliða í næsta mánuöi og
fer hún fram í Lichtenstein," sagði
Sigurður Valur.
Glíma:
Bikarglíma
Reykjavíkur
Bikarghma Reykjavíkur fór
frara í fimmta sinn í íþróttahúsi
Melaskólans síðasthöinn laugar-
dag.
í drengjaílokki sigraði Bjöm
Helgi Karlsson, Ármanni, lagði
aha sína andstæðinga á glæsileg-
um glímubrögðum.
í sveinaflokki sigraði Júlíus
Benediktsson, Ármanni.
Greinilegt er að þjálfari Ár-
manns, Ingibergur Sigurðsson,
er að vinna mjög gott unghnga-
starf hjá félaginu.
Reykjavíkurmót-
íð í knattspyrnu
Reykjavlkurmótinu í knatt-
spymu, innanhúss, er nýlokið.
Meistarar í 2. flokki karla urðu
Framarar. í 3. flokki karla sigraði
Fram einnig. í 4. flokki karla
vann KR og í 5. og 6. flokkí sigr-
aði Fjölnir.
Borðtennis:
Unglingalandsliðið keppir á
alþjóðlegu móti í Svíþjóð
- Guðmundur E. Stephensen, Víkingurinn 12 ára, hefur þrjá titla að verja