Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR V]. JANÚAR 1995
Afmæli
Jón Albert Sigurbjörnsson, húsa-
smiður og formaður Hestaíþrótta-
sambands íslands, til heimilis að
Vesturási 17a, Reykjavík, er fertug-
urídag.
Starfsferill
Jón Albert fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann stundaði nám í
húsasmíði, lauk sveinsprófi í þeirri
grein og prófum frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1978.
Jón Albert hefur síðan lengst af
starfað við húsasmíði og verktaka-
rekstur auk þess sem hann var
framk væmdastj óri Reiðhallarinnar
í Reykjavík 1990-92.
Jón Albert starfaði að æskulýðs-
málum fyrir Hestamannafélagið
Fák 1987-89, sat í æskulýðsnefnd
Landssambands hestamannafélaga
1989, var varamaður í stjórn íþrótta-
deildar Féks 1989, formaöur íþrótta-
deildar Fáks 1990-93, var gjaldkeri
Hestaíþróttasambands íslands 1993
pg formaður Hestaíþróttasambands
íslands frá 1994. Þá hefur hann
gegnt Qölda trúnaðarstarfa fyrir
Hestamannafélagið Fák og Lands-
samband hestamannafélaga.
Fjölskylda
Jón Albert kvæntist 14.10.1978
Láru Guðmundsdóttur, f. 2.10.1955,
húsmóður. Hún er dóttir Guömund-
ar Lárussonar rafsuðumanns, sem
nú er látinn, og Guðbjargar Rósu
Guðjónsdóttur húsmóður.
Börn Jóns Alberts og Láru eru
Daníel Jónsson, f. 30.7.1976, tamn-
ingamaður; Hulda Jónsdóttir, f. 8.3.
1979, nemi; Lilja Jónsdóttir, f. 8.3.
1979.
Systkini Jóns Alberts, sammæðra,
eru Ómar Jóhannesson, f. 11.12.
1958, vélvirki í Reykjavík, kvæntur
Ingu H. Hannesdóttur og eiga þau
tvö börn og eitt fósturbarn; Guðrún
Jóhannesdóttir, f. 31.8.1961, lækna-
ritari á Akureyri en maður hennar
er Óli Þorsteinsson og eiga þau þrj ú
börn; Kristín Jóhannesdóttir, f. 31.8.
1961, húsmóðir í Reykjavík en mað-
ur hennar er Magnús R. Magnússon
og eiga þau fimm börn; Gunnlaugur
Jóhannesson, f. 30.1.1965, pípulagn-
ingarmeistari á Kjalarnesi, en kona
hans er Elín Pétursdóttir og á hann
eitt barn og tvö fósturbörn.
Systkini Jóns Alberts, samfeðra,
eru Kristín Sigurbjörnsdóttir, f. 7.6.
1960, húsmóðir í Mosfellsbæ, gift
Jens P. Atlasyni og eiga þau þrjú
böm; Bjarni Sigurbjörnsson, f. 21.12.
1962, ráðsmaður í Viðey, kvæntur
Guðrúnu Arnórsdóttur og eiga þau
eitt barn; Sigríður D. Sigurbjörns-
dóttir, f. 5.4.1982, nemi í Hafnarfirði.
Foreldrar Jóns Alberts eru Sigur-
björn H. Sigurbjörnsson, f. 25.4.
1935, bifreiðastjóri í Reykjavík, og
Hulda Þórðardóttir, f. 29.6.1935,
Jón Albert Sigurbjörnsson.
húsmóðir í Reykjavík. Fósturfaðir
Jóns Alberts er Jóhannes Gunnars
son, f. 15.12.1929, vélstjóri í Reykja-
vík.
Jón Albert tekur á móti gestum í
félagsheimili Fáks, laugardaginn
21.1. milli kl. 17.00 og 20.00.
Til hamingju með
afmælið 17. janúar
80 ára
Þórarinn Ásmundsson,
Vífilsstöðum, Tunguhreppi.
Arnþrúður Sigurðardóttir,
Frostafold 10, Reykjavík.
70 ára
Theódór Halldórsson garðyrkju-
fræðingur,
Trönuhjalla 1, Kópavogi.
Hann er aö heiman.
Steingrímur Gíslason,
fyrrv. auglýsingastjóri Tímans,
Lyngheiðí 22, Kópavogi.
Eiginkona hans er Ingibjörg Helga-
dóttir.
Þau eru stödd á Hótel Melia Tamar-
indos Sanagustín á Canari.
60 ára
Ásta Þorleif Jónsdóttir,
Uppsölum, Eiðahreppi.
Gestur Gestsson,
Nýlendu, Gerðahreppi.
Guðmundur Jónasson,
Hringbraut 111, Reykjavík.
Sofie Bye,
Hagamel 48, Reykjavík.
Valur Kristinsson,
Garðbraut 67, Gerðahreppi.
Trenna Ann Mulligan,
Strandgötu 34, Neskaupstað.
50ára
Ragnar V. Sigurðsson,
Lágholtsvegi 9, Reykjavík.
Snorri Jóhannsson,
Smáratúni 15, Bessastaðahreppi.
Vaigerður Jónsdóttir,
Ægisgrund 14, Garðabæ.
Eiginmaður hennar er Jónas Lúð-
víksson.
Þau taka á móti gestum í Sljörnu-
heimilinu í Garðabæ 20.1. kl. 19.00-
22.00.
40 ára
Grettir Sveinbjömsson,
Skerseyrai-vegi 3B, Hafnarfirði.
Valdimar Þ. Friðgeirsson,
Reykjasíðu 13, Akureyri.
Guðný Björnsdóttir,
Faxabraut 32 C, Keflavík.
Anna Margrét Valvesdóttir,
Hábrekku 18, Snæfellsbæ.
Jónina Stefania Sigurðardóttir,
Hraunbæ 170, Reykjavik.
Ásta Aðalheiður Ingólfsdóttir,
Grýtubakka 22, Reykjavík.
Ólöf Þórarinsdóttir,
Heiðarhrauni 54, Grindavík.
Inga Bergmann Árnadóttir,
Fannafold 146, Reykjavík.
Andlát
Valdimar Indriðason
Valdimar Indriðason, fram-
kvæmdastjóri og alþm., Höfðagrund
21, Akranesi, lést að heimili sinu að
morgni 9/1. sl. Hann verður jarð-
sunginn frá Akraneskirkju í dag,
þriðjudaginnl7.1.kl. 14. *
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent
á líknarfélög.
Starfsferill
Valdimar fæddist á Akranesi 9.9.
1925 og ólst þar upp. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Flensborg 1942,
lauk vélvirkjanámi hjá Þorgeiri og
Ellert 1946 og prófi frá Rafmagns-
deild Vélskóla íslands 1949.
Valdimar var vélstjóri á togurun-
um Bjarna Ólafssyni o'g Akurey
1949-56, verksmiðjustjóri Síldar- og
fiskimjölsverksmiðju Akraness hf.
1956-60, síðan framkvæmdastjóri
þess fyrirtækis og frá 1971 jafnframt
framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar
hf. og Heimaskaga hf., bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins á Akranesi
1962-86, forseti bæjarstjórnar
1977- 84, í bæjarráði 1970-74 og
1978- 83 og varaalþm. Vesturlands-
kjördæmis 1979-83 og alþm. 1983-87.
Valdimar sat í fjölda nefnda á veg-
um Akranesbæjar s.s. í stjórn
Menningarsjóðs Akraness frá stofn-
un, í fræðsluráði um skeið og skóla-
nefnd Iðnskóla Akraness, í nokkur
ár í stjórn Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi, í stjóm Grundartanga-
hafnar, formaður stjórnar verka-
mannbústaða frá 1978, formaður
Félags íslenskra botnvörpuskipa-
eigenda 1971-76, í stjórn LÍÚ frá
1970, í stjórn Félags íslenskra fiski-
mjölsframleiðenda 1968-83, stjórn-
arformaður Skallagríms hf. 1977-78
og lengst af frá 1984, í stjórn Lífeyris-
sjóðs Vesturlands frá stofnun, for-
maður Slysavarnadeildarinnar
Hj álpin á Akranesi í nokkur ár,
formaður prófanefndar vélvirkja á
Akranesi 1962-72, í stjórn Sögufé-
lags Borgaríjarðar frá stofnun og
formaðurfrá 1985, sat í ritnefnd
Sögu Akraness sem nýlega er komin
út, sat í bankaráði Útvegsbankans
og var formaður bankaráðs um
skeið.
Fjölskylda
Valdimar kvæntist 3.7.1948 eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu
Ólafsdóttur, f. 19.7.1925, húsmóður.
Hún er dóttir Ólafs B. Björnssonar,
ritstjóra á Akranesi, sem er látinn,
og Ásu Ó. Finsen sem nú dvelur á
dvalarheimilinu Höfða á Akranesi.
Börn Valdimars og Ingibjargar
eru Indriði, f. 22.12.1948, prent-
smiðjustjóri á Akranesi, kvæntur
Sigurlaugu Guðmundsdóttur kenn-
ara og eiga þau þrjú börn og eitt
barnabarn; Ása María, f. 6.7.1950,
kennari við MR, búsett í Hafnar-
firði, var gift Svavari Haraldssyni
húsasmið og eiga þau tvo syni; Ing-
Valdimar Indriðason.
veldur, f. 4.2.1954, d. 11.12.1991, úti-
bússtjóri íslandsbanka á Akranesi
en eftirlifandi eiginmaður hennar
er Lúðvík Ibsen Helgason húsvörð-
ur og eru börn þeirra þrjú.
Albróðir Valdimars er Óskar Ind-
riðason, f. 9.9.1930, vagnstjóri hjá
SVR.
Hálfsystir Valdimars, sammæðra,
er Sigríður Kristjánsdóttir, f. 7.1.
1939, röngentæknir, búsett í
Garðabæ.
Foreldrar Valdimars voru Indriði
Jónsson, f. 2.2.1899, d. 20.1.1933,
vélstjóri á Akranesi, og k.h. Vilborg
Þjóðbjarnardóttir, f. 2.1.1903, d. 12.7.
1984, varabæjarfulltrúi og formaður
kvennadeildar SVFÍ á Akranesi.
Andlát
Guðmundur Ölafsson
Guðmundur Ólafsson, skipstjóri og
gjaldheimustjóri Hafnarfjarðar, Ás-
búðartröð 15, Hafnarfirði, lést í
Landspítalanum2.1. sl. Útfór hans
fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firðiídagkl. 13.30.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á Flateyri við
Önundarfiörð 7.11.1921 og ólst þar
upp. Hann lauk prófi frá Stýri-
mannaskóla íslands 1947 en hann
hafði stundað sjómennsku frá ungl-
ingsárunum á bátum frá Flateyri
og við Faxaflóa. Frá 1947-60 var
hann á togurum og síðan á bátum
við síld-, loðnu- og togveiðar þar til
hann fór í land í lok árs 1970. Guð-
mundur var m.a. stýrimaður á Röðli
og Guðmundi Þórðarsyni og skip-
stjóriáGróttu.
Er Guðmundur kom í land réðst
hann til starfa hjá bæjarsjóði Hafn-
arfiarðar. Hann var gjaldheimtu-
sfióri í Hafnarfirði 1985-91 er gjald-
heimtan var lögð niður og verkefni
hennar færð annað.
Guðmundur var gjaldkeri í Skip-
sfióra- og stýrimannafélaginu Kára
í Hafnarfirði og sat fyrir hönd þess
í Sjómannadagsráði. Þá átti hann
sæti í hafnarsfiórn Hafnarfiarðar.
Fjölskylda
Eftirlifandi kona Guðmundar er
Arnfríður Arnórsdóttir, f. 23.12.
1923, húsmóðir. Hún er dóttir Am-
órs Kr. Arnórssonar og Margrétar
Guðmundsdóttur en þau bjuggu að
Villingadal á Ingjaldssandi í Önund-
arfirði.
Sonur Guðmundar frá því fyrir
hjónaband með Mörtu Sæmunds-
dóttur er Grétar, f. 3.12.1944, lækn-
ir, búsettur í Reykjavík, kvæntur
Ásdísi H. Hafstað bókasafnsfræð-
ingi og eiga þau tvö börn, Áslaugu
Sölku og Tinnu, auk þess sem dóttir
Grétars frá því áður er Árndís.
Börn Guðmundar og Arnfríðar
em Valgerður María, f. 14.7.1947,
kaupmaður og bæjarfulltrúi í Hafn-
arfirði, gift Ásgeiri Sumarhðasyni
vörubifreiðarstjóra og eiga þau þrjú
börn, Guömund, Val og Hildi Dögg;
Ólafur Guömundur, f. 20.12.1948,
pípulagningameistari í Hafnarfirði,
kvæntur Ingibjörgu Halldórsdóttur
gangastúlku en þau eiga þrjú börn,
Sigríði Dóra, Fríðu Björk og Guð-
mund; Arnór Kristján, f. 30.5.1950,
offsetprentari í Hafnarfirði, kvænt-
ur Helgu Jónsdóttur en þau eiga
þrjú böm, Harald, Amfríði Kristínu
og Sonju; Magnús, f. 14.10.1951,
pípulagningameistari í Hafnarfirði,
kvæntur Hrefnu Halldórsdóttur
eldhústækni en þau eiga þrjú börn,
Halldór Óskar, Kolbrúnu og
Thelmu; Guðmundur, f. 22.6.1953,
fisktæknir í Hafnarfirði, kvæntur
Bergrúnu Bjarnadóttur setjara en
þau eiga tvo syni, Bjarna og Davíð
Þór; Sigurborg Margrét, f. 19.1.1958,
kaupkona í Kópavogi, gift Jóni Jens-
syni rafeindavirkja en þau eiga þrjá
syni, Jens, Hlyn og Bjarka, en dóttir
Jóns frá því áður er Vigdís.
Langafaböm Guðmundar eru nú
sex talsins. Systkini Guðmundar:
Sigurðurf. 6.9.1918, d. 13.3.1985,
skólastjóri, kona hans var Guðrún
Hansen kennari, þau eignuðust fiög-
urbörn; Guðrún, f. 8.8.1920, d. 22.5.
1978, ljósmóðir, hennar maður var
Magnús Þ. Ágústsson bifreiðar-
stjóri, látinn, þau eignuðust tvö
böm; Ehn, f. 21.8.1923, maki Jón
Strandberg tollvörður, þau eiga
tvær dætur; Guðjón, f. 1.11.1925, d.
3.7.1976, kaupfélagsstjóri, kona
hans var Auður Þórðardóttir, þau
eignuðust sex börn; Ásdís, f. 8.12.
1932, maki Ingimundur Guðmunds-
son vélfræðingur, þau eiga fimm
börn.
Hálfbróðir Guðmundar, samfeðra,
var Þorsteinn, f. 1.12.1916, d. 16.9.
1984, vélvirki, kona hans var Vigdís
Jónsdóttir, þau eignuðust tvö börn.
Guðmundur Ólafsson.
Foreldrar Guðmundar: Ólafur
Guðmundur Sigurðsson, f. 31.8.
1879, d. 7.5.1948, hreppstjóri og Val-
gerður Guðmundsdóttir, f. 26.9.1893,
d. 1.11.1968.