Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Page 32
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: S63 2777
KL. 6-8 LAUGARDAGS- QG MÁNUDAGSMORGNA
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995.
Níu látnir og fimm enn leitað í Súðavik:
mm| x m wm m m mmm
Með lifsmarki eftir
sólarhring í snjónum
Unglingspiltur fannst með lífs-
marki i Súðavík í morgun eftir að
hafa verið undir snjófargi í um einn
sólarhring. Þegar DV fór i prentun
var hann í mikilli lífshættu. Fjór-
tán ára stúlka fannst einnig á lífi i
gærkvöldi eftir að hafa verið undir
snjó í um 15 klukkustundir. Sam-
kvæmt upplýsingum DV í morgun
hafði stúlkan orðið fyrir mikilli of-
kælingu en líðan hennar var eigi
aö siður nokkuð góð.
Niu hafa fundist látnir en firnm
var saknað samkvæmt síðustu
fréttum. Að sögn Friðnýar Jóhann-
björgunarmenn 1 Súðavík þrekaðir en liðsauki á leiðinni
esdóttur, læknis á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á ísafirði, dvöldu átta
af fórnarlömbum snjóflóðanna þar
í nótt. Líðan þeirra var góö eftir
atvikum.
Leitarskilyrði mjög erfið
Þrir fundust látnir um svipað
leyti í gærkvöldi og stúlkan fannst
á lifi. Skömmu síðar féll annað
snjóflóð yfir þorpið og skemmdi
meðal annars kaupfélagshúsið.
Leitarstörf hafa verið mjög erfið frá
þvi að fyrra snjóflóðið féll og var
þrek leitarmanna á þrotum í morg-
í stjórnstöö Almannavarna i
Reykjavík þar sem fylgst er með
framvindu mála í Súðavík.
un eftir gifúrlega erfiða og krefj-
andi vinnu, andlega sem líkamlega.
Varðskip og togarinn Júlíus Geir-
mundsson voru væntanleg til
Súöavlkur með mikinn íjölda
þjörgunarsveitarmanna og sérút-
búnað til að ley sa af á annað hundr-
aö björgunarsveitarmenn sem
staðið hafa vaktir í kauptúninu frá
því snemma í gær. Ferð Engeyjar
og Múlafoss, sem flytja samtals um
eitt hundrað björgunarsveitar-
menn til Súðavíkur, sóttist mjög
seint í nótt og í morgun vegna stór-
viðris.
í Súðavík hefur að mestu verið
rafmagns- og símasambandslaust í
nótt. Menn á snjóplóg voru á leið
frá ísafirði út á Arnames i morgun
til að gera við varaaflstöö til. að
hægt yrði að koma á því símasam-
bandi sem hafði verið óvirkt. Ein-
göngu var hægt að ná sam.bandi
við Súðavik í gegnum talstöð.
Veöur gekk niður á tímabili i
morgun. Mikil áhersla var lögð á
aö nýta þann tíma eins og framast
væri unnt því veður átti að versna
afturundirkvöld. -pp/Ótt/rt
Sættir í
Hafnarfirði
Sættir hafa náðst innan Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfiröi og verður
meirihluti Alþýðubandalags og Sjálf-
stæðisflokks því áfram við völd í
bænum.
Árni Grétar Finnsson, fyrrum odd-
viti flokksins, og Þórarinn Jón Magn-
ússon, formaður fulltrúaráðsins,
staðfestu þetta í morgun.
Gert er ráð fyrir að deiluaðilar hitt-
ist í dag til að ganga formlega frá
sáttum en samkvæmt áreiöanlegum
heimildum DV mun Jóhann G. Berg-
þórsson, fyrrverandi oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, draga sig í hlé í
nokkra mánuði. Samkomulag þessa
efnis mun hafa veriö handsalað á
skrifstofu forsætisráðherra í gær.
Prófkjör Framsóknar:
Kosiðtil kl. 15ídag
Kjörstaðir í prófkjöri framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
vestra verða opnir til klukkan þrjú
í dag, að ósk íbúa á Hvammstanga,
vegna veðurs á Hvammstanga í gær.
Óákveðið er hvenær talning atkvæða
hefst þar sem ófært er milli staða
fyrir norðan og veðurspá ekki góð.
LOKI
Nú hljóta þeir að gera Jóa
Begg að landsverkfræðingi!
Mjög hvöss norðan- og norðaustanátt verður áfram ríkjandi á Vestfjörðum í dag með snjókomu og éljagangi.
Reyndar dregur eilítið úr vindi og ofankoman minnkar svo að von er á að rofi til inni á milli. Haraldur Eiríksson
veðurfræðingur situr hér yfir veðurkorti sem sýnir stöðuna klukkan sex í morgun; stíf norðan- og norðaustanátt.
DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Rokeða
ofsaveður
Á morgun verður norðlæg átt,
allhvöss á Austurlandi en víða
stormur, rok eða jafnvel ofsaveö-
ur annars staðar. Snjókoma víöa
um land, síst þó sunnanlands og
skafrenningur víðast hvar.
Áfram talsvert frost, eða á bilinu
2 til 10 stig, mildast suðaustan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 28
Neskaupstaður:
Fjórum bjargað
um borð í Skúm
Skúmur ÍS kom fjórum björgunar-
sveitarmönnum í Neskaupstað til
hjálpar sem ætluðu að lóðsa erlent
tankskip til hafnar í fyrrinótt. Veður
var slæmt á Norðfirði þegar þetta
gerðist. Björgunarsveitarmennina
sakaði ekki.
Björgunarsveitarmennirnir skutu
neyöarblysi á loft, tankskipið fór að
lóðsbátnum en sneri skyndilega frá.
Skúmur var nærstaddur og þegar
skipverjar sáu að tankskipið sneri
frá lóðsinum fóru þeir til hjálpar og
komu björgunarsveitarmönnum í
land.
Hættuástandá
Patreksfirði
Almannavarnanefnd Patreksíjarð-
ar lýsti enn yfir snjóflóðahættu á
staönum eftir fund um níuleytið í
morgun. Meta átti stöðuna aftur í
hádeginu í dag. Veður var orðið skap-
legt í morgun, að sögn lögreglu.
Patreksfirðingum var ráðlagt að
halda sér innan dyra. Búið var að
rýma 100 hús í bænum og hélt fólk
til hjá ættingjum og vinum.
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Suöuriandsbraut 10. S. 686499.
K I N G
L#TY#
alltaf á
Miövikudögxun