Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1995, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995
Fréttir
Dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að misnota 15 ára pilta í nokkra mánuði:
Kynferðisbrotamaður nýtti
sér vínhneigð unglinga
- veitti þeim áfengi og fór síðan með þeim út úr bænum á afvikna staði
Héraðsdómur Suðurlands hefur
dæmt 49 ára karlmann í 8 mánaða
fangelsi fyrir að hafa veitt tveimur
15 ára piltum áfengi og síðan misnot-
að þá kynferðislega. Sakborningur-
inn er fjölskyldumaður en hann var
dæmdur fyrir að hafa notfært sér
vinnuaðstöðu sína og vínhneigð pilt-
anna til að svala afbrigðilegri kyn-
hneigð sinni.
Umræddum manni var gefið að sök
að hafa átt ýmis brotleg samskipti
við tvo pilta á þriggja mánaða tíma-
bili í bæjarfélagi á Suðurlandi árið
1993. Þegar kennari varð þess
áskynja að öðrum piltinum leið mjög
illa andlega fór barnavemdarnefnd
í málið sem síðan kærði umræddan
mann til lögreglu. Rannsókn hófst
þegar i staö. Hún stóð meira og
minna yfir á síðasta ári, meðal ann-
ars skýrslugeröir fagmanna, s.s. sál-
fræðinga, og var ákæra síðan gefin
út á hendur manninum.
Ákærði rak veitingahús og not-
færði hann sér aöstöðu sína með því
að bjóða drengjunum til sín og veita
þeim áfengi. Hann er síðan dæmdur
fyrir aö hafa farið með piltana út
fyrir bæinn og haft i frammi kynferð-
islegar athafnir fyrir framan þá eða
sem hann fékk þá til að gera þrátt
fyrir mótmæh.
Dómurinn komst meðal ánnars að
þeirri niðurstöðu að lostugt athæfi
ákærða í orði og æði virtist hafa
markað djúp spor í viðkvæmt tilfinn-
ingalíf pUtanna. Óhikað hélt hann
áféngi að drengjunum þótt hann vissi
að þeir ættu við áfengisvandamál að
stríða, segir í dóminum.
Jón Ragnar Þorsteinsson, héraðs-
dómari á Suðurlandi, kvað upp dóm-
inn.
-Ótt
Stuttar fréttir
Flutningur málaf lokks
Ríkisstjómin ákvaö í gær aö
flytja yfirsfjóm vátryggingamála
til viðskiptaráðuneytis frá trygg-
ingaráöuneytinu. Aö sögn RUV
tekur breytingin gildi 1. mars.
Andstaða við tilvísanir
Meirihluti þjóðarinnar, eða
58,2%, er andvígur því að tekið
verði upp tilvísanakerfi sam-
kvæmt nýlegri skoðanakönnun
þjá Gallup. Fylgjandi kerfinu eru
34,3% en 7,5% eru hlutlaus. Sjón-
varpið skýrði frá þessu.
Vigdísiútlöndum
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, fer f dag til Strassborgar
á ráðstefnu Evrópuráðsins um
jafnrétti og lýðræði. Vigdís mun
flytja lokaskýrslu ráöstefnunnar.
Hagkvæmni endurmetin
Bygging kísilmálmverksmiöju
á Reyðarfirði er nú aftur komin
á dagskrá. Ætlunin er að endur-
meta fyrri hagkvæmniútreikn-
inga. Stöð tvö skýrði frá þessu.
Stjáni Meik smíðar bíl
Smíði ahslensks flahabfls í
smiðju Stjána Meik mun Ijúka
innan 2 ára standist allar áætlan-
ir. Bíllinn verður gæddur ýmsum
eiginleikum sem ekki hafa sést
áður í bílum. Stöð tvö skýrði frá.
Heiðursborgari kosinn
Bæjarstjórn Hornaflarðar kaus
í gær Ásgrím Halldórsson heiö-
ursborgara Hornaflarðar vegna
framlags hans til atvinnuupp-
byggingar og annarra starfa.
RUV greindi frá þessu.
Forsetinnfórútaf
Forsetabíllinn hafnaði utan
vegar á þjóðveginum að Gullfossi
og Geysi þegar forsetinn var þar
á ferö í vikunni. Að sögn Tímans
var forsetinn á heimleið eftir að
hafa setið fyrir hjá ljósmyndara
tímaritsins Heho.
VerksmiðjaiGarðabæ
Norma hf. undirbýr áburðar-
pinnaverksmiðju í Garöabæ í
samvinnu viö sænska fyrirtækið
Bio Bícf. Mbl. greindí frá þessu.
Bilunísímkerfinu
Rafmagnsleysi í Vesturbergi f
Reykjavík olli því að um 10 þús-
und síroanúmer duttu út eina og
hálfa klukkustund f gær. Að sögn
Tímans duttu númerin út um 8
tímum eftir rafmansleysið, eða
þegar vararafhlöður stöövarínn-
artæmdust. -kaa
Þannig var umhorfs í íbúðinni eftir innrás mannanna þriggja.
Jökulsárlón-
ið stöðuvatn
- hægt að aka fram hjá lóninu án þess að nota brúna
Einar R. Sigurðsson, DV, Öræfumj
Undanfarin misseri hafa menn haft
af því áhyggjur að Jökulsárlónið
væri að breytast í óbrúandi flörð en
nú ber nýrra við. Jökulsárlónið hef-
ur breyst í stöðuvatn og Jökulsáin,
þessi stysta á Evrópu, er ekki til í
dag. Milli lónsins og sjávar hefur
myndast fjörukambur svo að nú er
unnt að ganga og aka fram hjá Jök-
ulsárlóni án þess að nota brúna.
Ekki mun þó ráðlegt að leggja
brúna niður því að það er næsta víst
að með hækkandi sól muni áin fæð-
ast á ný og verða eins vatnsmikil og
ihvíg og ferðalangar fyrri alda fengu
að reyna.
Að sögn Sigurðar Björnssonar á
Kvískerjum kemur þessi staða upp í
ánni svo til á hverjum vetri. Ekki
hafa forfeðurnir notið þess sem sam-
göngubótar því að hún byrjaði ekki
að haga sér svona fyrr en um 1950
enda varð Jökulsárlónið ekki tii fyrr
en eftir 1934.
Loðnan að verða
frystingarhæf
Jóhann Jóhannsson, DV, Seyöisfiröi:
Loðan sem Örn KE landaði hér í
fyrrinótt - um 1000 tonn - var þokka-
lega stór. Hrognafylhng reyndist 11 %
og styttist því óðum í að loðnan sé
frystingarhæf á Japansmarkað.
Sigurjón Sveinbjörnsson, stýri-
maður á Erninum, sagði að Hjálmar
fiskifræðingur Vilhjámsson væri
þeirrar skoðunar og miðað við
ástand loðnunnar ætti hún að vera
komin vestar og nær landi en raunin
er. Það bendir ótvírætt til aö loðnan
sé seinna á ferðinni en eðhlegt er
talið og því von að brátt lifni yfir
veiðunum.
Kæra lögö fram fyrir mjög alvarlegt húsbrot, rán og líkamsárás:
Ruddust inn og rændu
og börðu heimilisfólk
- sími slitinn úr sambandi og kona kýld og barin með flösku í höfuðið
aht á rúi og stúi eftir innrás þriggja
„Við sátum tvö inni í stofu ásamt
vini okkar þegar dyrabjöhunni var
hringt. Þegar ég opnaði dymar rudd-
ust þrír menn inn í íbúðina. Þeir réð-
ust á mig og byrjuðu að slá mig og
sneru upp á hálsinn á mér og síminn
var slitinn úr sambandi. Konan stóð
upp og ætlaði að ganga á milh en þá
var hún kýld niður. Hún stóð upp
og spurði hvað væri að gerast en þá
var hún slegin með flösku í höfuð-
ið,“ sagöi íbúi aö Hverfisgötu í sam-
tah viö DV.
Maðurinn og sambýhskona hans
hafa kært líkamsárás, húsbrot og rán
að heimih þeirra á mánudagskvöld.
Þegar DV kom á staðinn í gær var
manna fra kvöldinu aður. Konan
hlaut djúpan skurð á höfuð eftir
flöskuna og sauma þurfti átta spor.
Maðurinn hlaut hins vegar talsverð-
ar skrámur í andht.
„Þeir rótuðu öllu og grýttu til í
íbúðinni og sögðu að ef ég kærði
myndu þeir drepa mig. Þeir sögðu
einnig að þeir myndu fylgjast með
okkur og ef við færum út úr íbúðinni
næsta klukkutímann myndu þeir
senda á okkur dæmdan morðingja
sem þeir nafngreindu," sagöi maður-
inn.
Maöurinn sagði aö þremenning-
arnir hefðu tekið tvo leðuijakka, leð-
urstígvél, veiðihníf og kjöthníf, 4-5
þúsund krónur í peningum, ferðaút-
varp, leðurvesti, myndavél, gull-
hálsmen, bíhykla, húslykla, tvö
bankakort og fleira. Skemmdir voru
unnar á vegg og húsgögnum, skjala-
tösku og ýmsum smámunum.
Fólkið fór út úr íbúðinni og gerði
lögreglunni viðvart eftir að þre-
menningarnir hurfu í burt. Kæra var
lögð fram í gærmorgun en málið hef-
ur nú veriö sent Rannsóknarlögreglu
ríkisins. Einn hinna grunuðu er tal-
inn vera á fimmtugsaldri en hinir
um þrítugt. Samkvæmt upplýsingum
yfirlögregluþjóns RLR er máhð í
rannsókn. -Ótt
SH samdi
um lækkun
„Það eru engin vandræði með
sölu á loðnu á Japan. Það blasir
aftur á móti við sú hryggilega
staðreynd aö búið er að semja um
25 prósent verðlækkun áður en
búið er aö gefa út veiðikvóta.
Sölumiöstöðm samdi um þetta án
samráðs við neinn og það er ijóst
að sá samningur mun ganga yfir
aðra,“ segir Sæmundur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
þjá íslenskum sjávarafuröum,
vegna sölu á Irystri ioðnu á Jap-
ansmarkað.
„Við erum með samning um
sölu á 12 tíl 15 þúsund tonnum
af loðnu. Það má nefna til saman-
burðar að við seldum í fyrra á
bilinu 4 til 5 þúsund tonn,“ segir
Sæmundur. _rt