Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1995 Fréttir Skoðanakönnun DV um fylgi ríkisstjórnarinnar: Fylgið stöðugt meðal kjósenda - andstæðingar stjórnarinnar ívið íleiri en stuðningsmenn Stuðningur kjósenda við ríkis- stjóm Davíðs Oddssonar hefur hald- ist stöðugur undanfarnar vikur og em vinsældir hennar nánast þær sömu og í febrúar. Þetta er niður- staða skoðanakönnunar sem DV framkvæmdi í gær og í fyrradag. Af þeim sem afstöðu tóku í könnuninni sögðust 45 prósent vera fylgjandi rík- isstjóminni en 55 prósent andvíg. Vinsældir ríkisstjómarinnar um þessar mundir eru mun meiri en verið hefur lengst af á kjörtímabil- inu. Niðurstöður könnunarinnar urðu annars á þann veg að 38,5 prósent sögðust fylgjandi ríkisstjórninni, 47 prósent sögðust andvíg, 11,5 prósent sögðust óákveðin og 3 prósent neit- uðu að gefa upp afstöðu sína. Úrtakið í skoðanakönnun DV var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja og eins á milh landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins. Spurt var: „Ertu fylgjandi eða andvígur ríkis- stjóminni?" Skekkjumörk í könnun sem þessari eru um þrjú til fjögur prósentustig. Óvinsældir í lágmarki Miðað viö síðustu könnun DV, sem fram fór um miðjan febrúar, hefur stuðningsmönnum ríkisstjórnarinn- ar fækkað örlítið, eða um 0,6 pró- sentustig. Miðað við kannanir þar á undan hefur stuðningsmönnum stjómarinnar hins vegar vaxið vem- lega fiskur um hrygg. -kaa Fylgi ríkisstjómarinnar Niöurstöður skoöanakönn- unarinnar urðu þessar: óákv. Svara ekki ándi Andvígir Ef aöeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu veröa niðurstöðurnar þessar: Fylgjandi Andvígir Fylgi kjósenda við ríkisstjórnina. Niðurstööur skoðanakönnunarinnar urðu þessár (í %): 1391 má sepL des. Fylgjandi 43,8 33,8 38,2 Andvígir 38,3 47 44,6 1392 1993 1994 1395 feb. apri jíri sept náv Jaa mas júní sept 4es. mars. júni ágúst okt nín jan. feb. mars. Svara ekki 0,8 2,2 1,8 30,5 34,7 34,7 35,3 30,8 55.7 53,8 50,3 53,2 55,7 11,1 10,2 12,7 2.7 1,3 2,3 0,3 2,3 22,3 28,7 29,5 25,5 29,7 63 57,2 56,5 60,2 57 ,7 2 2 30.8 36,8 36,8 34 33 54,7 49,5 46,2 53 53,5 I 1.8 2 2,3 2 2,2 33,7 39,3 38,5 52,2 47,0 47,0 12,6 11,2 13,5 1,5 2,5 3,0 Ef aðeins era teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar (í %): 1991 ma' sept rfes. Fylgjandi 53,3 41,9 44,6 Andvígir 46,7 58,1 55,4 1992 feb. apr júri sept nón 35,4 39,2 40,8 39,9 35,6 64,6 60,8 59,2 60,1 64,4 1993 jan. mats júi sept des. mats. jiri' ágúst okt náv jan. feb mats. 26,2 33,4 34,3 29,8 34,2 73,8 66,6 65,7 70,2 65,8 36,1 42,7 44,4 39,1 38,2 63,9 57,3 55,6 60,9 61,8 39,2 45,6 46,7 60,8 54,4 53,3 Ummælifólks íkönmntinni „Ríkisstjórnin hefur tekist á við erfið verkefni og ætti að fá umboö til að gera það áfram,“ sagði karl á Vesturlandi. „Ég er viðriðni í pólitík og get ekki dæmt um hvort jiessi ríkisstjórn er góð eða slæm,“ sagöi kona í Reykjavík. „Þessi ríkisstjóm hefur gert margt gott og ég styð hana alfar- ið,“ sagði miðaldra karl í Reykja- vik. „Eg er alfarið á móti þessari ríkisstjórn. Hún hefur ekki haft neina tilburði til að leysa kenn- araverkfallið," sagði eldri kona í Reykjavík. „Ég er andvígur öllu þessu niðurbroti sem þessi ríkis- stjórn hefur staðið fyrir,“ sagði karl í Reykjavik. „Ég er andvíg þessari rikisstjórn en liún hefur þó gert margt gott,“ sagði kona á höfuðborgarsvæðinu. „Þótt ég kjósi Sjálfstæðisflokkinn þá er ég andvig þessari ríkisstjóm," sagði kona á Suðurlandi. „Ríkisstjórn- in er klikkuö, jafnvel verri en við gamla fólkið," sagði kona á Aust- urlandi. „Þjóðin á þessa ríkis- stjórn skiliö enda virðist öllum sama um allt,“ sagði kona á Norð- urlandi. „Þessi ríkisstjórn er á góðri leið með að brjóta niður heObrigðiskerfið í landinu," sagði kona á Reykjanesi. -kaa Fylgi ríkisstjómarinnar — frá maí '91 til mars '95 — 80% Maí '91 * Mars '95 Skoðanakönnun DV Lögmenn kjósa í dag um aðild að Mamiréttindaskrifstofimni: Lögmenn gæti mannréttinda - segir Ragnar Aðalsteinsson, fráfarandi formaður Lögmannafélagsins Aðalfundur Lögmannafélagsins fer fram í dag. Á fundinum verður lögð fram tfilaga undir dagskrár- liðnum önnur mál um aö Lög- mannafélagið hætti aðild að Mann- réttindaskrifstofunni. Tillöguna bera fram átta fyrrverandi for- menn Lögmannafélagsins á þeim forsendum aö það samrýmist ekki ákvæðum laga um málflytjendur sem kveða á um skylduaðild lög- mann að félaginu, að það eigi aðild að eða taki þátt í starfsemi félaga- samtaka um þjóðfélagsmál. Aukin heldur að gefnar séu út álitsgeröir, ályktanir eða umsagnir þar sem pólitísk afstaða er tekin í nafni fé- lagsins í þjóðfélagsmálum sem deil- ur standa um. Algengt erlendis Að sögn Ragnars Aðalsteinsson- ar, fráfarandi formanns Lög- mannafélagsins og formanns Mannréttindaskrifstofunnar, er skylduaðild í einhverju formi aö flestum lögmannafélögum í Evr- ópu. Flest þeirra séu jafnframt aðil- ar að einhvers konar mannrétt- indastarfi þar sem meðal annars er einbhnt á að mannréttinda lög- manna og dómara sé gætt. „Lögmannsþjónustan er þannig að þaö er sjálfgefið að þeir gæti mannréttinda. Þess vegna brá mér rosalega þegar ég komst að því að það væru að minnsta kosti til 8 lög- menn sem telja að það sé ekki skylda lögmanna að fást við mann- réttindi. Það stendur í f. grein siða- reglna okkar að okkur beri að gera það. Okkur ber að veita umsagnir og skipta okkur af lagafram- kvæmdinni. Þó að þessi tillaga þeirra verði samþykkt á fundinum þá breytir hún engu því hún getur ekki breytt samþykktum félagsins. Þar er skylda lögð á stjórnina að veita umsagnir þannig að hún verður að gera það áfram hvað sem fundurinn gerir. Þetta er sennilega til komið af því að þeir kunna ekki mikið í lögfræði líklega. Því miður þá er það svo. Ég hef talað við fullt af ungum mönnum. Það þarf ekki að segja þeim þetta. Þeir hafa aldr- ei verið í stjóminni en vita allt um þetta,“ segir Ragnar. Vildu ekki tjá sig Enginn þeirra sem ber fram til- lögima var reiðubúinn að tjá sig við blaðið um hana. Ragnar segir einnig að ef tillagan verði samþykkt þá breyti það miklu hvað varðar alþjóðleg sam- skipti Lögmannafélagsins. -pp Hasip Kaplan, tyrkneskur lögmaður Sophiu Hansen, er staddur hér á landi þessa dagana til að afla gagna í forræðismáli Sophiu. Hann telur að vænta megi lokaniðurstöðu í málinu innan sex mánaða. Hér er hann á Keflavíkur- flugvelli ásamt túiki sínum og Sigurði Pétri Harðarsyni. DV-mynd Ægir Már Allt gott nema grauturinn Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Félag Árneshreppsbúa í Reykjavík hélt upp á 55 ára afmæli sitt í Rúg- brauðsgerðinni í Borgartúni 4. mars. 330 manns mættu og fengu frábæran mat nema hvað grauturinn var slæmur. Þjónusta snjöll. Pálmi Guðmundsson, formaður fé- lagsins í 20 ár, stjórnaði veislunni. Skemmtiatriði voru góð. Ungt fólk fór með brandara úr heimabyggð sinni við mikinn fognuö, Hörður Jónsson frá Stóru-Ávík spilaði og söng um sveitina sína og 10 manns, sem tóku sig til tveimur dögum f rir afmæhð, sungu skemmtilega. Allir skemmtu sér vel og voru ánægðir og montnir með framlag unga fólksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.