Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Síða 9
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1995
9
Utlönd
Smábærinn Allentown í Pennsylvaníu í Bandaríkj unum:
Tvennir foreldrar
myrtir á viku
Eins og DV greindi frá í gær myrtu
bræðurnir David og Bryan Freeman
foreldra sína og lítinn bróður í smá-
bænum Allentown í Pennsylvaníu sl.
sunnudag. Bræðurnir, sem eru 16 og
17 ára, eru nýnasistar og djöíladýrk-
endur. Þeir voru orðnir þreyttir á
sífelldum tilraunum foreldranna til
að fá þá til að gefa hugmyndafræöi
nýnasistanna upp á bátinn og misstu
endanlega þolinmæðina þegar for-
eldrarnir seldu bíiinn sem þeir voru
vanir að nota til að komast á fundi
nýnasista. Þá ákváðu þeir að drepa
foreldra sína og frömdu ódæðið að-
faranótt sl. mánudags. Þeir flúðu síð-
an en náðust í Michigan og hafa nú
verið framseldir til Pennsylvaníu og
bíða dóms.
Nokkrum dögum eftir þetta drap
unglingur í Allentown einnig for-
eldra sína. Sá bjó ekki langt frá Free-
man-fjölskyldunni. Engin tengsl
virðast þó vera milh þessara tveggja
morðmála. Jeffrey skildi hins vegar
eftir sig miða á heimili sínu þar sem
hann sagði að hann vildi að gerð
yrði um sig kvikmynd „þegar ég er
búinn að drepa alla“.
íbúar í Allentown eru almennt vel
stætt millistéttarfólk en David og
Bryan voru ekki ánægðir og gerðu
uppreisn gegn ströngu uppeldi for-
eldranna sem voru Vottar Jehóva.
Bræðurnir höfðu oft hótað að lífláta
foreldrana. Þeir réðu yfir allveglegu
vopnabúri og mættu alltaf einu sinni
í viku á skotæfingar með hinum ný-
nasistunum. í Bandaríkjunum
myrða að jafnaði 300 unglingar for-
eldrasínaáárihverju. NTB/Reuter
Carol Shaya-Castro, lögreglukonan brottrekna frá New York, segir fréttamönnum sínar farir ekki sléttar.
Simamynd Reuter
Nakta lögreglukonan 1 New York:
Kref st 600 milljóna króna í
skaðabætur og vinnuna aftur
Carol Shaya-Castro, lögreglukon-
an í New York sem var rekin fyrir
að láta taka af sér nektarmyndir fyr-
ir karlaritið Playboy, krafðist rúm-
lega sex hundruð milljóna króna
skaðabóta í gær og réttlætis.
„Ég gerði ekki neitt glæpsamlegt,"
sagði Shaya-Castro á fundi með
fréttamönnum, klædd í níðþröngar
bláar gailabuxur, skærbleika blússu
og svartan íeðurjakka, með fullt af
silfurarmböndum, bleikan varalit og
súr á svipinn. Hún sagðist ekki eiga
það skihð að vera rekin og að karl-
löggur hefðu gerst sekar um verri
hluti en þetta. Dominick Barbara,
lögfræðingur lögreglukonunnar,
sagði að brottreksturinn væri ein-
göngu byggður á kynferði.
Wihiam Bratton, lögreglustjóri í
New York, sagði þegar hann rak
Shaya-Castro, sem á myndunum var
ahsnakin nema hvað hún var með
kylfuna sína og handjámin á sér, að
orðspor lögreglunnar væri ekki til
sölu. Þá gagnrýndi hann stúlkuna
fyrir að handtaka aðeins þrjá menn
á fjórum árum.
„Ég var þjónn innan dehdarinnar.
Ég var bhstjóri varðstjórans, bílstjóri
lögregluforingjans. Ég vélritaði. Ég
hefði farið í eftirhtsferðir ef ég hefði
mátt ráða en ég fékk engu ráðið,“
sagði hin 25 ára gamla Carol sem
flutti til Bandaríkjanna frá ísrael
þegar hún var fjögurra ára. Reuter
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp að Þjóðbraut 13, Akranesi, föstudag-
inn 17. mars 1995 kl. 14.00:
GD-066 GD-493 GE-162 GP-098 HB-657 HL-646 IE-282
IÖ-998 IS-296 IT-887 MT-058 TF-718
Þá verður þar og boðið upp eftirtalið lausafé:
Funai sjónvarpstæki, Ignis frystikista, Finluxsjónvarpstæki, Kenwood hljóm-
tækjasamstæða með hátölurum, dökkur tvöfaldur stofuskápur, tveggja
pósta bílalyfta, árgerð 1988, og Alltest mótorstillitölva, árgerð 1989.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
UPPB0Ð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Suðurgötu 57, Akranesi, þriðjudaginn 14. mars 1995 kl. 11.00, á eftirtöldum eign- um: Presthúsabraut 35. Gerðarþoli Hjalti Bjömsson, gerðarbeiðendur Bygging- arsjóður ríkisins og íslandsbanki hf. Skólabraut 18, neðri hæð. Gerðarþoli Alfreð W. Gunnarsson, gerðarbeið- andi Búnaðarbanki íslands. Sóleyjargata 4, neðri hæð. Gerðarþol- ar Anna Amardóttir og Egill Guðna- son, gerðarbeiðendur Byggingarsjóð- m- ríkisins, Sparisjóður Mýrasýslu og Vogue hf.
Ægisbraut 11. Gerðarþoli Björgvin Eyþórsson, gerðarbeiðendur Akranes- kaupstaður, Landsbanki íslands og Sameinaði lífeyrissjóðurinn.
Vallholt 1 (endi að Vesturgötu), 1/2 hús. Gerðarþoli Eiríkur Óskarsson, gerðarbeiðandi Byggðastofnun. SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
Bárugata 15. Gerðarþoli Halldór Júl- íusson, gerðarbeiðendur Akranes- kaupstaður og tollstjórinn í Reykja- vík.
Garðabraut _ 45, 01.02. Gerðarþolar Haraldur Asmundsson og María Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður, Byggingarsjóður verkamanna og Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar.
Húsbréf
■ ^
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefurfarið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 -18. útdráttur
1. flokki 1990 -15. útdráttur
2. flokki 1990 -14. útdráttur
2. flokki 1991 -12. útdráttur
3. flokki 1992 - 7. útdráttur
2. flokki 1993 - 3. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. maí 1995.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu
flokkunum hér að ofan birt í Morgunblaðinu
föstudaginn 10. mars. Upplýsingar um útdregin
húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins,
á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 69 69 00